Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 34
DAGBÓK 34 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Namai, Stefnir og Dettifoss koma í dag. Framnes fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, kl. 14 fé- lagsvist. Hársnyrting, fótaaðgerð. Árskógar 4. Kl. 9–12 handavinna, kl. 10 söngstund, kl. 13–16.30 smíðar, útskurður, kl. 13–16.30 handavinna, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9– 12 bútasaumur, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10–11 samverustund, kl. 13– 16 bútasaumur, kl. 13.30 dans, kl. 15 boccia. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð kl. 10. Skrifstofan er opin í dag kl. 10–11.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið, Dal- braut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 8–16 handa- vinnustofan opin, kl. 10–13 verslunin opin, kl. 11–11.30 leikfimi. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, opin vinnustofa, kl. 9–16.30, félagsvist kl. 13.30, hárgreiðsla kl. 9–12. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Stólaleikfimi kl. 9.30, kvennaleikfimi kl. 10.20 og 11.15, spænska kl. 11.30, gler- bræðsla kl. 13, pílukast kl. 13 í Garðabergi Snyrtinámskeið kl. 13. Upplýsingar í s. 525 8590 og 820 8553. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Opnað kl. 9. Pútt í Hraunseli kl. 10–11.30, billj- ardsalurinn opinn til 16, tréútskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30, kóræfing Gaflarakórs- ins kl 17. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, m.a. almenn handavinna, kl. 9.30 sund- og leifimiæf- ingar í Breiðholtslaug, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 15.15 dans. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13, handmennt, spjall og kaffi kl. 13.30. Línu- danskennsla fyrir byrj- endur kl. 18. Dans- kennsla í samkvæmis- dönsum, framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Kennari Sig- valdi. Gjábakki, Fannborg 8. Kl. 9–17 handavinna, kl. 9.30 gler og postu- lín, kl. 13 skák, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin virka daga frá 9– 17. Hraunbær 105. Kl. 9 postulín, keramik og fótaaðgerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 13 hár- greiðsla, kl. 13.30 skrautskrift. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 og kl. 10–11 jóga, kl. 13–16 spilað. Fótaað- gerðir virka daga, hár- snyrting þriðju- til föstudags. Korpúlfar Grafarvogi. Á morgun, þriðjudag. Sundleikfimi í Graf- arvogslaug kl. 9.30 Norðurbrún 1. Kl. 9– 16 fótaaðgerð, kl. 10–11 ganga, kl. 13–16.45 op- in vinnustofa, myndlist. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9–10 boccia, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.30– 10.30 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og boccia, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla og spilað. Þjónustumiðstöðin, Sléttuvegi 11. Opið frá kl. 9–16. Kl. 13.30 opið hús, m.a. söngur, fé- lagsvist. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánu- dagskvöld kl. 20. Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilar í fé- lagsheimilinu, Gull- smára 13, mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, Hátúni 12. Kl. 19 brids. Minningarkort Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæj- arskrifstofu Seltjarn- arness hjá Ingibjörgu. Í dag er mánudagur 19. janúar, 19. dagur ársins 2004. Orð dags- ins: Eitt sinn voruð þér myrkur, en nú eruð þér ljós í Drottni. Hegðið yður eins og börn ljóssins. (Efes. 5, 8.)     Stefán Otto Stefánssonskrifar á frelsi.is: „Nú er verið að tala um að hlutafjárvæða Spari- sjóð Reykjavíkur og ná- grennis. Er það mikið fagnaðarefni enda stuðl- ar þetta að hagræðingu á fjármálamarkaði hér- lendis. Verulega var far- ið að hrikta í stoðum SPRON vegna sam- keppni frá stærri aðilum. Þó eru alltaf einhverjir sem hnussa þegar aðrir græða. Öfundin skín úr augum þeirra og orð á borð við „græðgi“, „gróði“ og „óhóflegt“ dynja á manni. Held ég að annað hljóð kæmi í strokkinn ef þau sætu hinum megin borðsins.     Þetta fólk talar oft umgróða í neikvæðri merkingu, eins og ein- hver þurfi að skaðast til að aðrir græði. En er þetta raunin? Vitanlega ekki. Í viðskiptum hagn- ast báðir aðilar því eng- inn myndi ótilneyddur eiga í viðskiptum sem hann tapar á. Hvaðan kemur þá þessi gróði og hvað er hann? Gróði er í raun sá ávinningur sem vinnst við að skipta minni gæðum fyrir meiri. Það er huglægt mat þeirra sem eiga í við- skiptunum hvor gæðin eru meiri. Því telja báðir sig græða.     Svo eru enn aðrir semtengja gróða við þjófnað. Vissulega er það svo að menn geta grætt á þjófnaði en þá eru þeir líka að brjóta á rétti ann- arra. Frelsinu má aðeins setja skorður þar sem það brýtur gegn sjálfs- eignarrétti.     En löggjöf verður líkaað vera einföld, al- menn og skýr. Fólk verð- ur að skilja hvað má og hvað má ekki, annað er ótækt. Varasamt er að setja lög sem myndu t.d. banna vissa markaðs- hlutdeild þar sem fyr- irtæki þurfa alls ekki að misnota stöðu sína þó hún sé góð. Það er ástæða fyrir því að fyr- irtæki skara fram úr og hún er sú að þau hafa náð ákveðinni hag- kvæmni í rekstri sem gerir þeim kleift að bjóða þjónustu umfram keppi- nauta sína.     Vinstri menn skilgreinagræðgi sem eitthvað slæmt, eins og maður ásælist eitthvað sem aðr- ir eiga. Eðlilegra er að líta á græðgi sem löng- unina eftir fjárhags- legum ávinningi, gróða. Hvað er þá gróði? Vinstri menn skilgreina hann einnig sem eitthvað slæmt og vilja að menn beri „hóflegan“ ávinning úr býtum! En hvað er hóflegt, hver á að skil- greina það? Eigum við að refsa fólki fyrir að hagn- ast meira en „hóflegt“ er? Fáránleikinn í þessu er augljós, auk þess sem slík lagasetning myndi skerða séreignarrétt fólks. Græðgi er góð!“ STAKSTEINAR Hver á að segja hvað sé „hóflegt“? Víkverji skrifar... Í hvert skipti sem Víkverjifer í kvikmyndahús velt- ir hann því fyrir sér hvers vegna við á Íslandi þurfum að búa við þann leiða sið, að gert sé hlé á bíósýningum í miðjum klíðum. Víkverji man ekki til þess að hafa þurft að upplifa þetta ann- ars staðar, og hefur hann þó fyrir sið að reyna að fara í bíó í hverri einustu borg sem hann heimsækir. Best er að fara aleinn í bíó en þar sem slíkt er ekki fé- lagslega viðurkenndur siður á Ís- landi verður að láta nægja að gera það í útlöndum. Hitt er, að bíóhúsin í Reykjavík eru afskaplega vel hönnuð og stólar jafnan þægilegir, poppið gott og hljóð til fyrirmyndar. Sá galli ein- kennir hins vegar nýjustu bíósalina að þar hafa menn sjaldnast haft fyr- ir því að merkja sætisraðirnar – sem er vitaskuld verra ætli menn að liðka leggina í hléi og síðan rata aft- ur í sætið sitt. Það getur nú varla verið mikið mál að bæta úr þessu? x x x Víkverji hitti Bandaríkjamann umdaginn sem kominn er yfir sjö- tugt. Sá var að rifja upp fyrstu skiptin sem hann kom til Íslands fyrir margt löngu síðan en maðurinn hefur verið kvæntur íslenskri konu um áratuga skeið og búa þau í Seattle á vesturströnd Bandaríkj- anna. Gesturinn góði frá henni Ameríku ræddi sérstaklega um blaðasalana sem gjarnan stóðu í Austurstrætinu og létu í sér heyra, sagði að þeir hefðu alltaf vakið athygli sína og áhuga en þessu hafði hann ekki átt að venjast fyrir vestan. Við þessa upprifjun Bandaríkja- mannsins áttaði Víkverji sig á því að langt er orðið síðan hann varð var við blaðasalana í Austurstræti eins og forðum daga. Fór hann að velta því fyrir sér hvort ein af afleiðingum þess, að mun færri dagblöð koma nú út á Íslandi en áð- ur fyrr, hafi verið sú að blaðasalarnir hyrfu úr Austurstrætinu. Það er miður, hin fríða stétt blaða- sala setti skemmtilegan svip á bæjarlífið í Reykja- vík. Gott ef Laddi sýndi blaðasölunum í Austur- stræti ekki dágóðan sóma í einu laga sinna fyrir um tuttugu árum, „Austur- stræti, ys og læti, fólk á hlaupum í innkaupum“ hljómaði viðlagið, ef Víkverja mis- minnir ekki. x x x Víkverji brá sér í nýju líkamsrækt-arstöðina Laugar í Laugardal um daginn og verður að lýsa ánægju sinni með aðstöðuna þar. Sturturnar eru þær bestu sem Víkverji hefur komist í, tækjasalurinn frábær og dásamlegt að geta rölt yfir í pottana í Laugardagslaug eftir æfingu. Að vísu er gangan nokkuð löng og ýms- ar torfærur á leiðinni. Þá er aðkoma fyrir bíla algerlega ófrágengin. Er það ekki dæmigert fyrir okkur Ís- lendinga að hér skuli ráðist í að opna staði þó að ekki sé í reynd búið að ljúka við að byggja þá! Morgunblaðið/Sverrir Það er gott að geta labbað úr líkamsræktarstöðinni Laug- um yfir í sundlaugarnar í Laugardal. Fullorðnir dónalegir við unglinga AF hverju er fullorðið fólk svona dónalegt við ung- linga? Það eru sumir unglingar dónalegir og í einhverri vit- leysu en það eru ekki næst- um því allir. Sumir ungling- ar eru í alls konar vitleysu en í félagsmiðstöðvunum í skólunum er alltaf opið hús einu sinni til tvisvar i viku og allskonar böll og svoleið- is þannig að unglingar geti skemmt sér án áfengis og vímuefna. Fullorðið fólk fer með unglinga eins og þeir séu ekki mennskir, t.d þegar maður er að skoða inni í búðum kemur afgreiðslu- fólk og byrjar að fylgjast grannt með manni því það heldur að maður ætli að stela einhverju. Það eru al- veg jafnmiklar líkur á að fullorðnir steli einhverju eins og unglingar! Eftir að maður er búinn að vera inni í búðinni að skoða í smá- stund kemur afgreiðslu- fólkið og segir að maður eigi að vera úti ef maður er ekki að kaupa neitt, þetta myndi afgreiðslufólkið aldrei segja við fullorðna manneskju. Þótt fullorðið fólk sé með reynslu af lífinu ættu allir samt að fara með unglinga eins og fullorðið fólk. Ung- lingar eru líka fólk! Krakkar í 8.ÍB, Borgaskóla, Reykjavík. Pennavinar leitað „THORBY Skagfjord“ í Reykjavík er beðinn um að hafa samband við penna- vinkonu sína, Amöndu Mill- er í Englandi, en hún týndi heimilisfanginu í flutning- um nýlega. Heimilisfang Amöndu Miller er: A.J. Miller, 8 Bromfield Crescent, Grampound Road, Truro, Cornwall, TR2 4DJ, England. Hver þekkir lagið? GETUR einhver sagt mér heiti lags sem ég hef ein- staka sinnum heyrt í út- varpi, en þekki því miður ekki flytjanda eða lagheiti. Þetta er einhvers konar léttur grínslagari, fluttur af bandi sem greinilega hefur ekki tekið sig of alvarlega. Aðallaglínan er svohljóð- andi: „Við værum betur komnir aftur upp í tré, því apaköttur er ei stressaður. Við værum betur komnir aftur upp í tré, halló apa- bróðir, halló apabróðir, sæll og blessaður.“ Þeir sem gætu liðsinnt mér eru beðnir að hafa samband við Baldur á net- fanginu: bjth@hi.is Tapað/fundið Eyrnalokkur týndist GULLEYRNALOKKUR, hringur 2 cm, týndist í Foldahverfi laugardags- kvöldið 1. nóvember sl. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 696 9683. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is LÁRÉTT 1 laða, 4 tilgerð, 7 spak- ar, 8 hnötturinn, 9 um- fram, 11 líffæri, 13 nagla, 14 snjóa, 15 lipur, 17 ímynd, 20 samtenging, 22 ölvíma, 23 blítt, 24 æða yfir, 25 tarfi. LÓÐRÉTT 1 hljóðfærið, 2 náðhús, 3 hina, 4 viðartegund, 5 drengja, 6 niðurfelling, 10 sigrað, 12 kraftur, 13 hafði aðsetur, 15 troðn- ingur, 16 þor, 18 bognu, 19 gisti, 20 hlífa, 21 lengdareining. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 rótgróinn, 8 frétt, 9 umbun, 10 Níl, 11 setti, 13 teigs, 15 starf, 18 saggi, 21 inn, 22 lúðan, 23 álfur, 24 sakamaður. Lóðrétt: 2 ólétt, 3 gætni, 4 óhult, 5 nebbi, 6 ofns, 7 snös, 12 tár, 14 eta, 15 sálm, 16 auðna, 17 finna, 18 snáða, 19 giftu, 20 iðra. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.