Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.01.2004, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ A-a-ah, ekki einu spori meira, fjárveitingin er uppurin. Styrkir ESB vegna orkuverkefna Eftirspurn um- fram framboð Hingað til lands erað koma Spán-verjinn Pedro Ballesteros Torres og mun hann sitja fund sem hald- inn verður á Grand hótel Reykjavík á morgun, 20. janúar, frá klukkan 8.30 til 10.30 á vegum iðnaðar- ráðuneytisins. Torres mun svara fyr- irspurnum um styrki sem ESB veitir til verkefna á sviði orkumála. Einn verk- efnaflokkurinn nefnist á ensku „Intelligent Energy-Europe“, skamm- stafað EIE og gæti út- lagst Skynsöm orkuverk- efni í Evrópu. Morgun- blaðið ræddi við Torres og lagði þá nokkrar spurn- ingar fyrir hann. – Hvernig stendur á heimsókn þinni hingað til lands? „Já, einn af verkefnaflokkunum er einmitt EIE og veitir styrki, m.a. á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, orkusparnaðar og samgangna. Þetta er nýr verk- efnaflokkur sem tekur við af öðr- um sem hafa verið í gangi und- anfarin ár. Á fundinum sem ég mun sitja á Íslandi mun ég halda erindi um EIE-áætlunina og kynna þessi mál og ræða við hugsanlega styrkumsækjendur. Auk þess veit ég til þess að styrk- ir undir 6. rammaáætlun ESB til orkurannsókna verða kynntir á fundinum.“ – Segðu okkur aðeins meira frá EIE … „Það má segja að EIE eigi að vera verkfæri. Aðalverkfæri þeirra samfélaga sem leggja út í verkefni á orkusviðinu. EIE verð- ur ennfremur framkvæmdastofn- un þeirra stefna og aðgerða í Evrópu sem miða að því að nýta endurvinnanlega orku og að spara orku. Skipta má stefnu EIE í fjóra meginþætti. Sá fyrsti miðar að orkusparnaði, annar að notkun endurvinnanlegrar orku, sá þriðji að samgöngumálum á orkusviði og sá fjórði snýr að samvinnu í þessum þáttum, tveimur eða fleiri, þar sem það er gerlegt. EIE mun nýta allt að 80% umtalsverðra sjóða sinna í styrki og stærstu styrkina munu stærstu og heildstæðustu hug- myndirnar og aðgerðirnar fá. Við tökum nú á móti umsóknum um styrki og hafa menn tíma til 30. apríl að skila umsóknum til okk- ar.“ – Sérðu fyrir þér að einhver ís- lensk verkefni geti hlotið styrki EIE? „Já, það er ekki nokkur vafi. Mörg þeirra sviða sem ég gat um áðan eru fyrir hendi í íslensku samfélagi, sjálfbær skipulagning, endurvinnanleg orka, hitun húsa með heitu vatni og rafmagni. Við reiknum fastlega með því að fá áhugaverðar styrkumsóknir frá íslenskum aðilum sem vilja starfa með okkur, enda vitum við að þó- nokkrar stofnanir eru að vinna á þessum nótum og myndu fagna auknu fjármagni.“ – Hvað þarf að koma til svo að slíkur styrk- ur frá EIE fáist? „Fyrst og fremst þarf að kynna verkefnið á eins einfaldan og gegnsæjan hátt og frekast er kostur og verkefnin sem um ræð- ir þurfa að falla algerlega að þeim stefnum sem EIE hefur lagt fram og starfar samkvæmt því eftir. Það þýðir að þeir sem hafa áhuga á samvinnu verða að lesa vand- lega stefnumörkun EIE, líka smáa letrið. Í öðru lagi er algerlega nauð- synlegt að hafa samvinnuþáttinn í lagi og að að minnsta kosti þrír samstarfsaðilar frá þremur mis- munandi löndum komi að hverri umsókn. Í þriðja lagi verður að geta þess að gífurlegur áhugi er á þessum styrkveitingum og við fáum umsóknir frá miklum mun fleiri aðilum upp á miklu hærri fjárhæðir heldur en við getum nokkru sinni sinnt. Til þess að gæta fyllstu sanngirni erum við með hlutlausa nefnd sem fjallar um hverja umsókn, metur gæði þeirra og reiknar út. Síðan út- hluta EIE í samræmi við það sem nefndin mælir með hverju sinni. Af þessu leiðir að umsóknir verða að vera vel unnar frá byrjun til enda til að eiga möguleika á styrk. Það er rétt að taka það fram að á engan hátt erum við að ætlast til þess að menn fari að finna aft- ur upp hjólið. Lykillinn að góðri umsókn er að verkefnið sé ný- sköpunarlegt, framsýnt og hafi óumdeilanlega samvirkni milli landa.“ – Eru einhver svið æskilegri en önnur í þessum efnum? „Já, við höfum látið það út ganga að menn eigi að huga helst að þeim stefnuþáttum okkar sem snúa að endurvinnanlegri orku og orkusparnaði. Í því skyni hefur EIE komið á fót gagnagrunni á Netinu sem við köllum Intell- Ebase þar sem menn geta skyggnst inn í fram- gang 700 verkefna sem stofnað hefur verið til áður á okkar vegum. Auk þess vinnur EIE að því að koma á fót öðrum gagnagrunni á vefsvæði sínu þar sem menn og stofnanir geta leitað sér að samstarfsaðil- um sem eru að vinna eða hugsa á líkum línum. Slóðin er http://europa.eu.int/ comm/energy/intelligent/in- dex_en.html, en einnig má skrifa tölvupóst og fá upplýsingar. Net- fangið er tren-intelligent- energy@cec.eu.int. Pedro Ballesteros Torres  Pedro Ballesteros Torres er spænskur eins og nafnið gefur til kynna, fæddur á Spáni 1961. Menntaður verkfræðingur í matvælaiðnaði og MBA í orku- tengdri viðskiptafræði. Á ár- unum 1984 til 1994 starfaði hann sem ráðgjafi í orku- og umhverfismálefnum fyrir ýms- ar Evrópustofnanir og Samein- uðu þjóðirnar en hefur starfað hjá ESB síðan 1995 að ýmsum málaflokkum. Núna fer hann fyrir stofnun sem hefur með staðbundin orkuverkefni að gera. … og myndu fagna auknu fjármagni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.