Morgunblaðið - 19.01.2004, Qupperneq 21
Starf sýslumanns var erilsamt
enda maðurinn kappsamur og metn-
aðarfullur. Eftir þrjú ár í starfi á
Ísafirði skrifar Hannes bréf til vinar
og talar þar m.a. um að hann yrki lít-
ið og hafi mikið að gera. Hann segist
hafa margt á prjónunum en sé orð-
inn: ,,…púlsklár, kancellibikkja,
dómsmálatrunta, mæðin og meidd í
miðju baki“. Þarna kemur vel fram
hversu mikils virði það var fyrir
skáldið að hafa tíma fyrir ljóðagerð
sína sem reyndist líka mikilvægt
fyrir þjóðina því Hannes Hafstein
orti dirfskufull og hvetjandi ljóð fyr-
ir þjóð sína. Einkennandi eru eft-
irfarandi ljóðlínur:
,,Þótt þjaki böl með þungum hramm,
þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt samt
fram.“
Og Hannes Hafstein fór ávallt
fram. Það var mikil eldraun þegar
hann lét róa með sig út í togarann
Royalist sem var að ólöglegum veið-
um í Dýrafirði haustið 1899.
Drukknuðu þrír af þeim fimm sem
voru með honum í bátnum og mun-
aði litlu að hann færist sjálfur en
hann einn var syndur af mönnunum.
Tók hann lát félaga sinna mjög
nærri sér. Minnisvarði um þennan
atburð hefur verið reistur í landi
Bessastaða í Dýrafirði.
Ísafjarðarár Hannesar Hafstein
og fjölskyldu urða átta talsins.
Hannes Hafstein var sýslumaður og
um tíma þingmaður fyrir Ísafjarð-
arsýslu. Þess vegna er eðlilegt á
þessum merku tímamótum að minn-
ast hans sérstaklega á Ísafirði með
því að reisa honum minnisvarða og
um leið að fagna eitt hundrað ára af-
mæli stjórnsýslunnar í höndum ís-
lensks ráðherra, búsettum á Íslandi.
’Minningarskjöldur af-hjúpaður um Hannes
Hafstein sýslumann á
Ísafirði og fyrsta ráð-
herra Íslands.‘
Höfundur er bæjarstjóri
Ísafjarðarbæjar.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 21
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
Alla daga
við hendina
TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 339 KR / STK.
Tilboðið gildir til 31. janúar 2004
Dagbækur af
öllum gerðum og
stærðum
www.m
ulalun
dur.is
Gatarar og
heftarar af
öllum
stærðum
bílar
Áskrifendum Morgunbla›sins
b‡›st smáaugl‡sing í bla›inu
Bílar fyrir a›eins
995 kr.
Fólkið sem þú vilt ná til
les sama blað og þú!
Ertu a› hugsa um a› selja bílinn flinn? Far›u árangursríkustu
lei›ina og augl‡stu hann í bla›inu Bílar.
Pantanafrestur er til kl. 12 á flri›judögum. Panta›u núna í
síma 569 1111 e›a sendu tölvupóst á augl@mbl.is
-alltaf á miðvikudögum
SKÁLDIÐ segir frá Runólfi
Jónssyni í Brekkukotsannáli sínum
á bls. 54 og 55: ,,Um þennan mann
er síst oflof þó sagt sé
að sjaldan hafi verið
meiri aðdáandi góðra
hlandfora á Íslandi, að
Búnaðarfélagi Íslands
ekki undanskildu.“
,,Þessar nýtísku-
þrær dáði Runólfur
Jónsson umfram aðrar
smíðar sem samdar
höfðu verið í veröld-
inni um hans daga;
taldi hann góðar
hlandforir ýmist til
fróðárundra ellegar
kraftaverka.“
Fræðimaðurinn hefir samið eitt
slíkt meistaraverk og kallar Hall-
dór. Undirritaður nennir ekki að
kafa djúpt í þá þró. Lætur sér
nægja eina eða tvær tilvitnanir.
Fræðimaðurinn ritar svo í sinni
smíð á bls. 176: ,, Séra Halldór Kol-
beins kom loks til Flateyjar. Hann
ákvað að taka nafna sinn frá Lax-
nesi með sér í ferð um sóknina og
nálægar byggðir. Séra Halldór
drakk ekki kaffi. Þegar prófast-
urinn í héraðinu, séra Bjarni Sím-
onarson á Brjánslæk, stuttur mað-
ur með jólasveinaskegg, heyrði það,
setti hann upp áhyggjusvip. ,,Mætti
nú kannski segja, að það væri held-
ur heppilegra, að prestur drykki
kaffi,“ sagði hann og dró seiminn.
,,Mér þykir það vont,“ sagði séra
Halldór. Séra Bjarni svaraði því til,
að sumt yrði að gera fyrir fólk, þótt
það væri ekki skemmtilegt. Hver
meðalprestur yrði að vera við því
búinn í embættisferðum að drekka
kaffi á hverjum bæ.“
Skáldið orðar þetta svo í Íslend-
ingaspjalli (bls. 106–107): ,,Yfirboð-
ari séra Halldórs þar vestra var
prófastur séra Bjarni Símonarson á
Brjánslæk, stuttur maður með
skegg einsog jólasveinn á jólakorti.
Séra Halldór var bæði af siðferð-
isástæðum og trúarskoðunum, svo
og að því hann sagði vegna heilsu-
fars síns, bindindismaður á kaffi og
aðra hressandi drykki, enda hafði
hann meiri hressileik
til að bera af náttúr-
unnar hendi en flestir
menn. Þegar prófast-
urinn séra Bjarni varð
þess áskynja að nýi
presturinn drakk ekki
kaffi færðist áhyggju-
svipur yfir hinn aldna
drottinsþjón.
Mætti nú kannski
segja að það væri held-
ur heppilegra að
prestur drykki kaffi,
sagði prófasturinn.
Mér þykir það vont, sagði séra
Halldór.
En séra Bjarni var heilagur mað-
ur og hélt því þessvegna fram að
það yrði að gera ýmislegt fyrir fólk-
ið sem manni væri sjálfum ekki al-
ténd jafn skapfelt, og bætti við að
hver meðalprestur ætti að vera við
því búinn á embættisferðum að
drekka þrjátíu mál af rótarkaffi
fram að nóni…“
Nú er það eftirlátið læsum mönn-
um að bera saman þessi tilþrif
skáldsins og fræðimannsins, hverj-
um að sínum smekk.
En skáldgáfan og frumleiki
fræðimannsins veður alls staðar á
súðum og nær sér stundum á flug í
hæð við skáldið. Á bls. 59 í fræðirit-
inu endar 3. kafli svo: ,,en í morg-
undögginni stirndi á svartfexta
hestana.“
Skáldið lýkur Íslandsklukku
sinni á þessum orðum: ,,og það
glitti á döggslungin svartfext
hrossin í morgunsárinu.“
Og nú svamlar fræðimaðurinn
ákaflega í safnþró sinni. En á bakka
hlandforarinnar standa björg-
unarsveinar Aðalritara, Jón háyfir-
dómari og Jakob sagnfræðingur og
hæla hundasundinu.
Og landsmenn eiga von á fram-
haldi á fróðárundrum.
Utansveitarkronika
Sverrir Hermannsson
skrifar um ævisögu
Halldórs Kiljans Laxness ’En á bakka hlandfor-arinnar standa björg-
unarsveinar Aðalritara,
Jón háyfirdómari og
Jakob sagnfræðingur og
hæla hundasundinu.‘
Sverrir Hermannsson
Höfundur er fv.
menntamálaráðherra.