Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 24

Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 24
MINNINGAR 24 MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Hallmar Óskars-son fæddist í Reykjavík 12. desem- ber 1979. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut 12. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hans eru Hall- björg Thorarensen leikskólakennari, f. 6. júlí 1953, og Óskar Elvar Guðjónsson stærðfræðingur, f. 20. apríl 1952. Systk- ini Hallmars eru 1) Þórir stærðfræðing- ur, f. 19. október 1976, sambýlis- kona hans er Védís Helga Eiríks- dóttir, f. 25. júní 1977, sonur þeirra er Fjalar Hrafn, f. 13. júlí 2003, og 2) María menntaskóla- nemi, f. 12. septem- ber 1986. Unnusta Hallmars er Marta Guðmundsdóttir, f. 25. desember 1976. Foreldrar hennar eru Guðmundur Grímsson fram- kvæmdastjóri, f. 30. júlí 1955, og Hrafn- hildur Proppé flug- freyja, f. 20. júní 1952. Þau Marta og Hallmar hófu sam- búð á síðasta ári. Hallmar ólst upp í foreldrahúsum og vann síðast hjá Vörumerkingu ehf. Útför Hallmars verður gerð frá Seljakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Ein af mörgum fallegum minn- ingum sem ég á um Hallmar er þeg- ar við sáum leikinn í sjónvarpinu og Hallmar sagði: Eigum við að koma að kúra af því að leikurinn gengur ekki nógu vel? Síðan fór hann fram úr og gáði að stöðunni í textavarpinu og staðan var 1–0. Þá kom hann aft- ur upp í rúm og fór svo aftur fram úr og staðan var þá orðin 2–0. Hann sagði að leikurinn væri ömurlegur og að hann vildi að Liverpool myndi vinna næsta leik. „Hvenær ætlar Liverpool að vinna?“ Við fórum líka í göngutúr með Kút upp á Esju og það var svo gaman. Elsku besti Hallmar minn. Þú varst einstakur og stóra ástin í lífi mínu. Ég mun alltaf sakna þín. Ég elska þig. Kiss, kiss Marta. Sunnudaginn 11. janúar 2004 var vetrarveður í Reykjavík eins og það getur orðið fegurst. Sólin var farin að hækka á lofti og lýsti Esjuna og nálæg fjöll með töfrabirtu. En þenn- an yndislega dag dró ský fyrir sólu, því að þá barst um það vissa, að lífi Hallmars okkar elskulegs, sem varð fyrir slysi í Breiðholtslaug miðviku- daginn 7. þessa mánaðar, yrði vart bjargað þó að færustu sérfræðingar í læknastétt legðu sig alla fram. En svona er lífið, enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Hallmar var um margt einstakur. Hann varð fyrir því óláni á fyrsta ári að veikjast af krampa og gekk aldrei heill til skógar síðan. Hann þurfti ætíð að vera á sterkum lyfjum. Þetta leiddi til þess að hann átti erf- itt með að fylgja jafnöldrum sínum í leik, skóla og starfi. Það háði honum verulega því hann var að eðlisfari bæði félagslyndur og metnaðarfull- ur. Hallmar var fágætlega fagurt barn, vel lagað andlit, ljós húð og dökkt mikið hár, þeim einkennun hélt hann alla ævi. Ein minning er greypt í hugann: Einu sinni þegar hann var lítið barn sótti ég hann og mömmu hans niður á Borgarspítala og hélt á honum fram spítalagang- inn. Fólk sem átti leið um stoppaði og horfði á drenginn og ein kona kom til okkar og hafði orð á hvað barnið væri fagurt. Hallmar var ákaflega ræðinn og skemmtilegur og orðheppinn svo að af bar og eru til um það mörg dæmi, en veikindi hans urðu þess valdandi að sumir áttu svolítið erfitt með að skilja hann. Hallmar var mikill áhugamaður um íþróttir og tók þátt í þeim eins og kraftar leyfðu. Hann var virkur í Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og tók þátt í mörgum íþróttamótum á vegum Íþróttasambands fatlaðra hérlendis og erlendis. Meðal félaga sinna var hann mjög vinsæll. Hallmar var einstaklega hjálp- samur. Hann mátti ekkert aumt sjá án þess að reyna að koma til hjálpar. Enginn þekkti það betur en amma hans eftir að heilsu hennar tók að hraka. Fáir voru fljótari til ef ein- hvers þurfti með. Þá var hann einn- ig mjög gjafmildur og eigum við amma hans og afi ófá merki þess. Fyrir nokkru kynntist hann stúlku, Mörtu Guðmundsdóttur, hófu þau sambúð og voru í óðaönn að stofna sitt eigið heimili þegar kallið kom og klippt var á þráðinn. Er mikill harmur kveðinn að henni og hennar nánustu við þessa fyr- irvaralausu brottkvaðningu. En enginn má sköpum renna og von- andi læknar tíminn þau sár. Hallmar hafði fyrir nokkru ráðist í vinnu hjá Vörumerkingu ehf. og var því félagi í Félagi bókagerðar- manna. Í Vörumerkingu, eins og annars staðar, kom hann sér einkar vel og var dáður og virtur af eiganda og vinnufélögum. Kom það skýrt í ljós nú í veikindum hans. Hallmar minn! Við amma þín og afi kveðjum kæran ástvin og þökk- um þér allar ánægjustundirnar sem þú hefur veitt okkur og allt sem þú gerðir fyrir okkur og hvað þú gerðir það allt af góðum hug. Minningin um þig, elsku Hallmar, er dýrmætur fjársjóður. Við kveðjum einstaklega góðan dreng með hrærðum huga um leið og við vottum öllum hans nán- ustu okkar innilegustu samúð. María amma og Þórir afi Asparfelli. Það var síðsumars árið 2002 sem við hittum Hallmar í fyrsta sinn. Marta dóttir okkar tilkynnti okkur að hún væri búin að eignast kærasta og hann var væntanlegur í mat til okkar. Það var mikil spenna og eft- irvænting hjá allri fjölskyldunni. Þegar þau svo mættu bræddi hann strax hjörtu okkar allra með sinni fallegu og hlýju framkomu, og ekki spillti fyrir hvað hann var bráð- myndarlegur og snyrtilegur. Við fylltumst strax innilegri gleði yfir því að Marta væri búin að kynnast svona yndislegum ungum manni. Hún sem hafði þráð ástina og ham- ingjuna allt sitt líf. Það er ekki að orðlengja það að upp frá þessu voru þau sem eitt. Það var alltaf talað um þau í einu orði; Marta og Hallmar. Svo fóru þau að búa saman fyrir tæpu ári og allt gekk svo vel. Sam- band þeirra var svo fallegt og ein- lægt; þau gerðu allt saman og voru miklir vinir. Því er söknuðurinn og sársaukinn nær óbærilegur fyrir Mörtu okkar. Það nístir hjörtu okk- ar að finna hinn ólýsanlega sársauka sem hún þarf nú að upplifa. Við hrökkvum illilega við og verðum þess áskynja hversu fljótt lífið getur breyst; í einu vetfangi er allt orðið breytt og verður aldrei aftur eins. Við trúum því að honum hafi verið ætlað hlutverk annars staðar, en erfitt er að sætta sig við það. Hallmar heillaði alla með sinni hlýju og fallegu framkomu og öllum í fjölskyldunni þótti jafnvænt um hann. Hann heilsaði okkur alltaf og kvaddi með kossi og faðmlagi og var svo hlýr, en umfram allt var hann svo góður við Mörtu. Við getum því glaðst yfir því að hafa fengið að kynnast þessum góða dreng, en söknuðurinn er mikill. Guðmundur Óli dóttursonur okk- ar þóttist hafa himin höndum tekið, því þarna var kominn Liver- poolaðdáandi og þar af leiðandi mað- ur sem hægt var að tala við. Við höfum haft þann sið að hittast hjá ömmu og afa á Borgó á sunnu- dagsmorgnum og Marta og Hallmar voru dugleg að mæta þar. Þar tókst honum að smita marga með Liver- pooláhuganum og fylgist nú öll stór- fjölskyldan með því hvernig gengur hjá því liði. Fólk sem engan áhuga hafði haft á fótbolta var nú allt í einu farið að fylgjast með því hvernig gengi hjá Liverpool. Þrátt fyrir allt of stuttan tíma get- um við þakkað fyrir að hafa kynnst Hallmari. Hann auðgaði líf okkar allra og var svo góður við Mörtu. Við getum líka þakkað fyrir að þau fengu að kynnast ástinni og ham- ingjunni sem henni fylgir þótt tím- inn væri allt, allt of stuttur sem þau fengu með hvort öðru. Við kveðjum með söknuði og þakklæti undurgóð- an dreng og vottum foreldrum hans og fjölskyldu innilega samúð okkar. Megi Guð styrkja ykkur öll í sorg- inni og veita ykkur blessun. Guðmundur og Hrafnhildur. Óhætt er að segja að mikill spenn- ingur hafi verið á bænum þegar til stóð að kynna Hallmar fyrir fjöl- skyldunni. Hver og einn hafði ímyndað sér hvernig nýi fjölskyldu- meðlimurinn væri en Hallmar kom okkur öllum á óvart með hjartahlýju sinni og einstökum persónuleika. Hann hafði ekki setið lengi á spjalli þegar fótbolti barst í tal. Hallmar sýndi okkur fram á ótrúlega hæfi- leika Liverpool-leikmanna og kom okkur í skilning um það að ekki væri hægt að halda með tveimur liðum og helst ekki öðru liði en Liverpool. Hallmar hafði svör við öllu og í eitt sinn þegar hann var fenginn til þess að aðstoða við að flytja á meðan Liv- erpool og Arsenal voru að keppa þá sá einhver sér leik á borði að skjóta á Hallmar því Liverpool gekk ekki nógu vel í þessum leik. Svar hans við því var einfalt: „Ég kom ekki til þess að tala um fótbolta.“ En að öllum fótbolta slepptum var Hallmar ynd- islegur í alla staði. Hann var mikið prúðmenni og kurteisin var engu lík. Hann hafði mikinn og ákveðinn smekk, var alltaf flottur í tauinu og snyrtimennskan réð alfarið ferðinni. Hann var hjálpsamur og hikaði ekki við að skella á sig svuntunni, jafnvel þótt það væri leikur. Alltaf skyldi hann bjóða upp á kaffi og enginn skyldi fara svangur frá heimili hans og Mörtu. En fyrst og fremst var hann yndislegur við hana Mörtu okkar og lýsti upp líf hennar. Fyrir það erum við honum ævinlega þakk- lát. Við þökkum Hallmari fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, við erum öll ríkari eftir að hafa kynnst honum. Minningin lifir í hjörtum okkar að eilífu. Oddný Marie, Hulda Dögg, Grímur, Tinna og fjölskyldur. Í dag verður til moldar borinn kær vinur og samstarfsmaður Hall- mar Óskarsson. Ekki voru kynni okkar mjög löng, en Hallmar gerðist starfsmaður Vörumerkingar í maí sl. Þessi ungi maður var einkar ljúf- ur og samviskusamur og varð hvers manns hugljúfi á vinnustað. Hallmar var mikill aðdáandi enska fótboltans, harður stuðnings- maður Liverpool, og voru síðustu samskipti okkar á þann veg að hann spurði hvernig leikur Chelsea og Liverpool myndi fara, en sá leikur átti að fara fram þennan örlagaríka dag, miðvikudaginn 7. jan. Urðum við sammála um að Liverpool mynda sigra með einu marki gegn engu, það gekk eftir, en því miður fengum við ekki að gleðjast yfir því saman. Skarð Hallmars verður vandfyllt og hans er sárt saknað. Starfsfólk Vörumerkingar sendir fjölskyldu Hallmars innilegar sam- úðarkveðjur, og biður Guð almátt- ugan að vaka yfir þeim. Hallmar minn, við kveðjumst í bili og höfum í huga einkennislag Liver- pool „You’ll never walk alone“. Karl M. Karlsson. Þegar ég mætti til vinnu hinn 8. janúar sl. fékk ég þær hörmulegu fréttir að það hefði orðið slys í Breiðholtslauginni. Mér var sagt að það hefði verið Hallmar vinur minn og bocciafélagi sem varð fyrir slys- inu. Ég var mjög sleginn yfir þessari frétt og hringdi strax til móður minnar sem er þjálfari í boccia hjá Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík, en þar var Hallmar félagi. Kæri Hallmar, við áttum óklárað verk fyr- ir höndum, Íslandsmótið í sveita- keppni framundan, Hængsmótið sem haldið er ár hvert á Akureyri. Þú varst í bestu sveit ÍFR í boccia ásamt þeim Hjalta og Mörtu. Þið voruð nýbúin að vinna Akranesmót- ið sem fram fór á Akranesi í nóv- ember sl. og vinna silfur á Reykja- HALLMAR ÓSKARSSON Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR frá Burstafelli í Vestmannaeyjum, Hvassaleiti 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Háteigskirkju þriðju- daginn 20. janúar kl. 13.30. Árndís L. Óskarsdóttir, Friðrik J. Sigurðsson, Óskar S. Óskarsson, Kirsti H. Óskarsson, Ólafur Óskarsson, Fanney Valgarðsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför sonar okkar, INGVARS ÞÓRS HALLDÓRSSONAR. Inga Ingvadóttir, Már Björgvinsson. Ástkær frænka okkar, GUÐFINNA J. FINNBOGADÓTTIR (Nanna), áður til heimilis að Tjarnarkoti, Innri-Njarðvík, andaðist í Víðihlíð í Grindavík að morgni föstu- dagsins 16. janúar. Útförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Gylfi A. Pálsson. Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og systir, MARGRÉT MARÍNÓSDÓTTIR, lést á heimilin sínu miðvikudaginn 7. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásgrímur Högnason, Svanhvít Sigurðardóttir, Sigrún M. Sigurðardóttir, Bjarney Inga Bjarnadóttir, Einar Hansson, barnabörn og langömmubörn, Hilma og Erla Marínósdætur. Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, DÓRA S. HLÍÐBERG Ofanleiti 25, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi laugardaginn 17. janúar. Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 24. janúar kl. 10.30. Rafn Sigurðsson, Sigurður Valur Rafnsson, Margrét Valgeirsdóttir, Rafn Yngvi Rafnsson, María Guðmundsdóttir, Kristín Hlíðberg Rafnsdóttir, Bogi Guðmundur Árnason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.