Morgunblaðið - 19.01.2004, Side 35
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. JANÚAR 2004 35
ÞAÐ er alltaf sagnhafa í hag
ef andstaðan hefur lýst spil-
um sínum vel í byrjun
sagna. Hér fær suður gott
veganesti, því vestur hefur
opnað á Standard-tígli og
fengið svar á hjarta:
Vestur gefur; AV á hættu.
Norður
♠D73
♥102
♦K1052
♣KD82
Suður
♠KG10952
♥KG4
♦G6
♣Á10
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Pass 1 hjarta 1 spaði
2 hjörtu 2 spaðar Pass 3 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Útspil vesturs er smár
spaði og suður fær fyrsta
slaginn. Hvernig myndi les-
andinn spila?
Spilið – sem er frá 12. um-
ferð Reykjavíkurmótsins –
þróaðist þannig á nokkrum
borðum: Suður spilaði tíg-
ulgosa í öðrum slag og stakk
upp kóng þegar vestur lét
lítinn tígul. Kóngurinn hélt.
Þá var laufi spilað þrisvar
og tígli hent heima. Þetta
lítur út fyrir að vera góð
áætlun, því ef laufið heldur
má gefa tvo slagi á hjarta.
En laufdrottningin „hélt“
ekki:
Norður
♠D73
♥102
♦K1052
♣KD82
Vestur Austur
♠Á86 ♠4
♥Á763 ♥D985
♦Á943 ♦D87
♣G4 ♣97653
Suður
♠KG10952
♥KG4
♦G6
♣Á10
Vestur trompaði, tók
spaðaás og spilaði tígli. Nú
er sagnhafi illa klemmdur
og kemst ekki hjá því að
gefa tvo hjartaslagi.
Þetta er kannski óheppni,
en á hitt ber að líta að tvíspil
vesturs í laufi ætti ekki að
koma á óvart. Útspilið virð-
ist vera frá ásnum þriðja og
í sögnum hefur vestur sýnt
fjögur hjörtu og tígullit.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 19. jan-
úar, er sextugur Björn
Grétar Sveinsson, fyrrver-
andi formaður Verka-
mannasambandsins. Hann,
ásamt eiginkonu sinni Guð-
finnu Björnsdóttur, verður
að heiman á afmælisdaginn.
Skugginn/Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 13. september 2003 í
Garðakirkju af sr. Hirti
Hjartarsyni þau Dagný
Erla Vilbergsdóttir og Dag-
bjartur Willardsson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 30. ágúst 2003 í Graf-
arvogskirkju af sr. Önnu
Pálsdóttur þau Ingibjörg
Grettisdóttir og Sölvi Þór
Bergsveinsson.
Skugginn/Barbara Birgis.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 25. október sl. í
Hafnarfjarðarkirkju af sr.
Halldóri Reynissyni þau
Lilja Dögg Gylfadóttir og
Ófeigur Hreinsson.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
STEINGEIT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert lífleg/ur, vingjarnleg/
ur og skapandi og lifir yf-
irleitt áhugaverðara lífi en
gengur og gerist. Draumar
þínir geta ræst á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður tími til að bæta
lífsstíl þinn og heilsu. Það sem
þú gerir á þessum tíma í lífi
þínu ætti að verða árangurs-
ríkt.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þess að láta ekki aðra
vaða yfir þig með eigingirni og
yfirgangi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú býrð yfir krafti sem getur
orðið öðrum hvatning til fram-
kvæmda. Fólk virðist tilbúið
til að fara að tilmælum þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú vilt bæta umhverfi þitt og
ert staðráðin/n í að ná fram
markmiðum þínum sem allra
fyrst.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér liggur svo margt á hjarta
varðandi stjórnmál, trúmál
eða heimspeki þessa dagana
að þú ert jafnvel tilbúinn til að
tala á götum úti.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Sú aðstoð sem þú þarft á að
halda til að koma á umbótum á
heimilinu stendur þér til boða.
Taktu til á heimilinu og drífðu
síðan í þeim lagfæringum sem
bíða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinna þín mun ekki bera mik-
inn árangur ef þú hefur ein-
ungis þína eigin hagsmuni að
leiðarljósi. Þú munt hins vegar
fá miklu áorkað ef þú hefur
hagsmuni heildarinnar í fyr-
irrúmi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú hefur orku til að koma
miklu í framkvæmd í dag.
Notaðu tækifærið til að vinna
að hagsmunum heildarinnar
ekki síður en þínum eigin
hagsmunum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert í tengslum við sköp-
unargáfu þína í dag. Þú veist
að gerðir þínar geta haft áhrif
á umhverfi þitt. Líttu á þetta
sem tækifæri.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það ríkir ringulreið á heim-
ilinu vegna flutninga, breyt-
inga eða gestagangs. Þú tekst
á við þetta með glæsibrag. Það
er eins og þú vitir alltaf ná-
kvæmlega hvað þér ber að
gera.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur mikinn sannfæring-
arkraft og átt því auðvelt með
að telja aðra á þitt band. Vertu
viss um að þú vitir hvað þú
viljir áður en þú færð aðra til
að ganga til liðs við þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Stundum er nauðsynlegt að
verja fjármagni til að styrkja
stöðu sína í vinnunni og í sam-
félaginu. Líttu á það sem fjár-
festingu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1
b5 7. Bb3 O-O 8. c3 d6 9. h3
a5 10. a4 b4 11. d3 Ba6 12.
Dc2 Hb8 13. Rbd2 bxc3 14.
bxc3 d5 15. exd5 Rxd5 16.
Rc4 Rxc3 17. Rcxe5 Rxe5 18.
Rxe5 Bb7
Staðan kom upp í Meist-
araflokki Hastingsmóts-
ins sem lauk fyrir
skömmu. Kateryna
Lahno (2486) hafði hvítt
gegn Mark Hebden
(2560). 19. Rxf7! Hxf7
20. Bxf7+ Kxf7 21.
Dxc3 Bf6 22. d4! Hc8
svartur myndi ekki end-
urheimta skiptamuninn
eftir 22... Bxd4 vegna
23. Dc4+. Í framhaldinu
tekur hvítur sinn tíma í
að nýta umfram skipta-
muninn til sigurs. 23.
Dc4+ Dd5 24. Dxd5+ Bxd5
25. Ba3 h5 26. Bc5 h4 27.
Hec1 Hh8 28. Hab1 Hh5 29.
Kf1 Bg5 30. He1 Bf6 31. Hb8
Bc6 32. Hc8 Bxa4 33. Hxc7+
Kg6 34. Ha7 Bb5+ 35. Kg1
a4 36. Hb1 Bc6 37. Hb6 Bd5
38. f3 Bb3 39. Be7 Hb5 40.
Hd6 Kf5 41. Bxf6 gxf6 42.
Haa6 Kf4 43. Hxf6+ Ke3 44.
Hh6 Hb4 45. Hxh4 Kd3 46.
Hg4 Bd5 47. Ha5 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
SÖKNUÐUR
Man ég þig, mey,
er hin mæra sól
hátt í heiði blikar.
Man ég þig, er máni
að mararskauti
sígur silfurblár.
Heyri ég himinblæ
heiti þitt
anda ástarrómi.
Fjallbuna þylur
hið fagra nafn
glöð í grænum rinda.
Lít ég það margt,
er þér líkjast vill
guðs í góðum heimi:
brosi dagroða,
blástjörnur augum,
liljur ljósri hendi.
– – –
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt
í síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is. Einnig
er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12
og kl. 17.30 í neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk
kl. 20.
Langholtskirkja. Ævintýraklúbbur kl.
16–17. Starf fyrir 7–9 ára börn í umsjón
Þóru Guðbjargar og Ólafs Jóhanns. Fjöl-
breytt dagskrá og eru allir krakkar á
þessum aldri velkomnir.
Laugarneskirkja. Góðar mömmur, kl.
12. María Íris Guðmundsdóttir, BA í sál-
arfræði, og Kristjana Þorgeirsdóttir
Heiðdal líkamsræktarþjálfari bjóða til
fræðslu, íhugunar og hollrar hreyfingar
með mæðrum ungbarna, þar sem unnið
er með fæðingarþunglyndi. Gengið inn
um aðaldyr safnaðarheimilis. Opinn 12
spora fundur kl. 18 í safnaðarheimilinu.
Umsjón hefur Arnheiður Magnúsdóttir.
Allt fólk velkomið. Vinir í bata. Tólf spora
hópar koma saman kl. 20. Gengið inn
um aðaldyr safnaðarheimilisins. Um-
sjón hafa Gunnlaugur Ólafsson og Haf-
dís Margrét Einarsdóttir.
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur,
söngur, leikir og föndur.Uppl. og skrán-
ing í síma 511 1560. TTT-starf kl.
16.30. Starf fyrir 10 12 ára börn. Leikir,
ferðir o.fl.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN-
starf með sjö til níu ára börnum í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13–
15.30, spilað og spjallað. Kaffiveiting-
ar. Þeir sem óska eftir akstri láti vita í
síma 557 3280 fyrir hádegi. Fyrirbæna-
stund í kapellu kirkjunnar kl. 15.30.
Bænaefnum má koma til djákna, presta
eða annarra starfsmanna kirkjunnar.
Stelpustarf fyrir stelpur í 6. og 7. bekk
kl. 16.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga í
8., 9. og 10. bekk kl. 20–22.
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir
börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Engjaskóla. KFUK fyrir stúlkur á
aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir
16 ára og eldri kl. 20–22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf
ætlað árg. 1990 og upp úr) á mánudög-
um kl. 20–22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lágafells-
kirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tek-
ur við bænarefnum í síma 691 8041
alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon fundur í
Lágafellskirkju kl. 21. Barnastarf kirkj-
unnar, Kirkjukrakkar, fyrir 6 og 7 ára
börn er í Varmárskóla kl. 13.15–14.40.
Umsjón hefur Þórdís djákni.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl.
17.30 Æskulýðsstarf fatlaðra, yngri
hópur. Fyrsti fundur á nýju ári. Hulda Lí-
ney Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi og
sr. Þorvaldur Víðisson.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30–
16.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15
heimilasamband fyrir alla konur. Kl. 17
Örkin hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk.
Kl. 18 KK fyrir 4. og 5. bekk.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 20
bænastund. Beðið fyrir öllum innsend-
um bænarefnum.
Dagskrá bænaviku.
Mánudagur: Bænastund kl. 12 í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu, Hátúni 2,
Reykjavík. Allir velkomnir. Bænastund
kl. 20 í Karmelklaustri í Hafnarfirði. Allir
velkomnir.
Safnaðarstarf
LANDSPÍTALI -
HÁSKÓLASJÚKRAHÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni
og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
FRÉTTIR
KIRKJUSTARF
BECHTEL, sem byggja mun álver-
ið í Reyðarfirði, hefur styrkt Verk-
menntaskóla Austurlands um fimm
þúsund kanadíska dollara, eða tæp-
lega þrjú hundruð þúsund íslenskar
krónur til að kaupa tæknibúnað fyrir
áliðnabraut skólans. Nemendur
munu sjálfir sjá um uppsetningu
tækja, en nú þegar hafa verið keypt-
ar þrjár iðntölvur og spennugjafi.
Verkmenntaskóli Austurlands nýtur stuðnings Bechtel við uppbyggingu
starfsnáms áliðna.
Bechtel styrkir VA
til tækjakaupa
FJÓRIR ungir Íslendingar héldu til
Palestínu um síðustu helgi fyrir
milligöngu félagsins Ísland-Palest-
ína til þess að taka þátt í hjálpar-
störfum og mótmælaaðgerðum.
Fjórmenningarnir, sem eru 22 til 23
ára gamlir, munu dvelja í Palestínu
þar til föstudaginn 23. janúar.
Nokkrir Íslendingar hafa áður hald-
ið til þangað í sömu erindagjörðum
Fjórir Íslendingar til Palestínu