Morgunblaðið - 05.02.2004, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 11
Bankastræti 11,
sími 5513930
Allsherjar útsala
Allt á hálfvirði
Kvöldfatnaður
Brúðarkjólar st. 4-16
Brúðarskór st. 35-42
Spariskór st. 35-42
Skartgripir
Sjöl, belti, töskur
Opið laugardag
kl. 11-17
NÁM erlendis er reynsla sem fólk
býr að alla ævi, bæði í starfi og
einkalífi. Um þetta voru frummæl-
endur sammála á fundi sem Sam-
band íslenskra námsmanna erlendis
(SÍNE) stóð fyrir í Norræna húsinu
í gær. Töldu þeir að nám við erlenda
háskóla væri jafnframt mikilvægt ís-
lensku samfélagi og atvinnulífi.
Námsmenn öðlist þroska, fái víð-
sýni, kynnist öðrum viðhorfum og
læri erlend tungumál – það sem
lengi var kallað að verða „sigldur“.
Ólafur Stephensen, aðstoðarrit-
stjóri Morgunblaðsins, sem tók
meistarapróf í alþjóðastjórnmálum í
Bretlandi, sagði að skólinn sem hann
nam við væri staðsettur í miðri
London, hefði góðan aðgang að öll-
um helstu rannsóknarstofnunum
Bretlands á sviði alþjóðamála og að
byggt væri á ríkri hefð gagnrýn-
innar umræðu. „Þátttakendur í
þessum umræðum, nemendur, kenn-
arar og gestafyrirlesarar, koma frá
öllum heimsins hornum og hafa
nokkurn veginn allar lífsskoðanir,
sem völ er á. Þetta er ósköp einfald-
lega umhverfi, sem er erfitt eða
ómögulegt að búa til á Íslandi. Með-
al annars þess vegna lít ég á minn
tíma í námi erlendis sem eitt
skemmtilegasta tímabilið í lífi
mínu,“ sagði Ólafur.
Skuldum vafinn á byrjunarreit
Guðmundur Steingrímsson, rit-
höfundur og blaðamaður, var á sömu
skoðun. „Ég ætti eiginlega að segja
að þetta hefði verið ömurlegt. Ég
kom heim skuldum hlaðinn, skildi
við konuna, endaði aftur heima hjá
mér í Mávanesinu, í herberginu sem
ég hafði yfirgefið til að fara til út-
landa. Kominn aftur á byrjunarreit
og kláraði ekki gráðuna sem ég ætl-
aði mér,“ sagði Guðmundur Stein-
grímsson, rithöfundur og blaðamað-
ur, sem stundaði nám í Belgíu og
Svíþjóð og hefur tvær meistara-
gráður í heimspeki. Guðmundur
sagðist ekki sjá eftir neinu, dvölin
erlendis hefði gefið honum nýja sýn
á samfélagið á Íslandi og sett það í
nýtt samhengi.
Bjarni Benediktsson alþing-
ismaður stundaði nám í lögfræði
bæði í Þýskalandi og Bandaríkj-
unum. Hann sagði dvölina hafa verið
ótrúlega góða. Það hefði nýst honum
vel í starfi eftir að námi lauk að hafa
þekkingu á lögmennsku á erlendri
grundu, en í náminu hefði hann
kynnst ungum lögfræðingum frá öll-
um heimshornum. Alþjóðleg sam-
skipti Íslands hefðu aukist mikið síð-
ustu ár og þótt erfitt sé að leggja
mælistiku á hvernig menntun er-
lendis nýtist Íslandi, standi landið
framarlega í erlendum samanburði
hvað samkeppnishæfni varðar.
Mikilvæg auðlind
fyrir fyrirtæki
Þorfinnur Ómarsson, sem stýrir
námi í hagnýtri fjölmiðlun við Há-
skóla Íslands, stundaði nám í fjöl-
miðlun og kvikmyndafræði í Frakk-
landi. Hann sagði að námið hefði
nýst sér í starfi strax eftir komuna
heim, það hefði gefið sér ákveðna
sérstöðu að hafa búið í Frakklandi.
Þorfinnur sagði dýrmætustu reynsl-
una ekki síst vera að hafa kynnst
þjóðfélagi í öðru landi til hlítar. Aug-
ljóst væri að það nýttist íslensku
þjóðfélagi. Sagðist hann myndu ráð-
leggja öllum að reyna að haga námi
sínu þannig að þeir fengju einhvern
tímann tækifæri til að „sigla“.
Þórólfur Árnason borgarstjóri,
sem lauk framhaldsnámi í verkfræði
í Danmörku, sagði nám erlendis nýt-
ast íslenskum fyrirtækjum mjög vel.
Þannig hefðu starfsmenn hjá Marel,
þar sem hann starfaði áður, numið
eða starfað í löndum þar sem ellefu
mismunandi tungumál voru töluð.
Þetta hefði reynst mikil auðlind þeg-
ar farið var út í markaðsstarf á er-
lendri grundu.
„Þegar allt kemur til alls held ég
að mikilvægasti ávinningur bæði
samfélagsins og einstaklinganna af
námi erlendis sé að það ýtir undir
gagnrýna hugsun; að fólk tileinki sér
aðrar aðferðir til að hugsa en það
hefur lært á Íslandi, beri saman
hluti á milli landa og brjótist út úr
þeirri einsleitu umræðu, sem gjarn-
an ríkir hér á landi,“ sagði Ólafur
Stephensen.
Fundur á vegum SÍNE um mikilvægi náms í erlendum háskólum
Ýtir undir gagnrýna hugsun og
setur samfélagið í nýtt samhengi
Morgunblaðið/ÁsdísGuðmundur Steingrímsson, Bjarni Benediktsson, Ólafur Stephensen og í pontu stendur Guðmundur Thorlacius, formaður SÍNE.
HAFSTEINN Þór Hauksson varð
í gær fyrsti laganeminn í Háskóla
Íslands sem nýtti sér nýjar reglur
lagadeildar og kynnti efni lokarit-
gerðar sinnar á opnum fyrirlestri í
Lögbergi.
Í tengslum við aukið vægi loka-
ritgerða kandídata í lögfræðideild
þurfa þeir að
þreyta próf úr
efni ritgerðar-
innar, eða gera
grein fyrir efni
hennar á opnum
fyrirlestri, og
verður það síð-
ara einkum gert
ef ritgerðin þyk-
ir skara fram úr
eða ef efni henn-
ar telst líklegt til
að vekja almennan áhuga.
Lokaritgerð Hafsteins ber titil-
inn „Stjórnarskrárhyggja og
stjórnarskrárígildi alþjóðlegra
mannréttindasáttmála“. Í samtali
við Morgunblaðið sagðist Hafsteinn
hafa haft þrenns konar markmið
þegar hann vann að ritgerðinni.
„Í fyrsta lagi vildi ég leitast við
að skýra hugtakið stjórnarskrár-
hyggja, sem gengur út á það að
varpa ljósi á þau rök sem liggja að
baki stjórnarskrám. Hvers vegna
erum við með stjórnarskrá? Hvers
vegna reisum við stjórnskipan okk-
ar á einhverri sérstakri stjórnar-
skrá, það er ekkert sjálfsagt að
gera það,“ segir Hafsteinn.
Sáttmálar jafngilda
stjórnarskrá
Í ritgerðinni var einnig fjallað
um hugtakið stjórnarskrárígildi, en
það hefur verið að ryðja sér til
rúms í lögfræði undanfarið. Hug-
takið lýsir að sögn Hafsteins því að
alþjóðlegir mannréttindasáttmálar,
og þá sérstaklega mannréttinda-
sáttmáli Evrópu, hafi ríkara vægi
en formleg staða þeirra gefi til
kynna.
„Við erum kannski með alþjóð-
legan mannréttindasáttmála sem í
klassískri kenningu ætti jafnvel
ekki að hafa neitt gildi í innan-
landsrétti, heldur bara vera þjóð-
réttarsamningur milli Íslands og
ákveðinnar stofnunnar,“ segir Haf-
steinn.
Hann segir sáttmálana gjarnan
fá ríkara vægi, og í ýmsum til-
vikum víki jafnvel íslensk laga-
ákvæði vegna ákveðinna ákvæða.
Þannig hafi þeir í raun ígildi stjórn-
arskrár.
Að lokum var svo umræðan um
stjórnarskrárígildi skoðuð í ljósi
stjórnarskrárhyggjunnar, það er
því ljósi sem býr á bak við stjórn-
arskrána, og kannað hvernig þess-
ar hugmyndir samrýmast.
Gengið framhjá
stjórnarskrárgjafanum
Hafsteinn segir að niðurstaða
sín, að virtum þeim rökum sem
liggja að baki stjórnarskránni, sé
að heldur óheppilegt sé að viður-
kenna alþjóðlega mannréttinda-
sáttmála sem stjórnarskrárígildi.
„Ég tel að með því sé vegið að
nokkrum markmiðum stjórnar-
skrárhyggjunnar, að tryggja fyr-
isjáanleika laganna og stöðugleika
þeirra, sem eru tvö af einkennum
réttarríkisins. Ekki síður er þar
verið að ganga framhjá stjórnar-
skrárgjafanum, sem hefur einn
heimild til að setja þessi grundvall-
arlög.“
Hafsteinn segir að fyrirlestrinum
hafi verið vel tekið, og var ánægður
með að sjá marga af helstu lög-
fræðingum landsins í salnum, auk
almennra áhorfenda og laganema.
Kynnti efni lokaritgerðar í lagadeild Háskóla Íslands
Stjórnarskrárígildi al-
þjóðasáttmála óheppilegt
Hafsteinn Þór
Hauksson.
LÖGREGLAN í Borgarnesi
handtók á þriðjudag tvo menn á
þrítugsaldri fyrir að hafa fíkni-
efni í fórum sínum. Mennirnir
voru saman í bíl sem var stöðv-
aður við reglubundið eftirlit og
kom þá í ljós að þeir voru með 2
grömm af kannabisefnum.
Mennirnir gengust við að eiga
efnin en sögðu þau ætluð til eig-
in neyslu og var þeim sleppt að
lokinni yfirheyrslu.
Tveir hand-
teknir með
kannabis
MAÐUR sem reyndist vera
undir áhrifum lyfja lenti í
árekstri á Selfossi um hádegi í
gær og gerði lögregla í fram-
haldinu húsleit á heimili
mannsins. Þar fundust nokkur
grömm af amfetamíni og hassi.
Maðurinn var að sögn lög-
reglu í mjög annarlegu ástandi
og verður hann yfirheyrður
þegar hann verður í standi til
þess en hann hefur komið við
sögu lögreglu áður vegna fíkni-
efnamisferlis. Ekki urðu slys á
fólki í árekstrinum.
Keyrði á í
annarlegu
ástandi
LÖGREGLAN í Reykjavík
handtók í gær tvo menn með
nokkurt magn fíkniefna í fórum
sínum. Fíkniefnin voru af ýmsu
tagi og í svo miklu magni að lík-
legt er að mennirnir hafi ætlað
þau til sölu, að sögn lögreglu.
Mennirnir hafa báðir komið við
sögu lögreglu áður vegna fíkni-
efnamála.
Tveir hand-
teknir með
fíkniefni
STUTT