Morgunblaðið - 05.02.2004, Side 21

Morgunblaðið - 05.02.2004, Side 21
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 21 SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 70% SÍÐUSTU DAGAR ÚTSÖLUNNAR! AFSLÁTTUR Í NOKKRA DAGA Síðustu forvöð til að gera góð kaup! (Lokum þri. 10. febrúar - opnum aftur föst. 13. febrúar) um nstu helgi Reykjavík | Árni Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, hefur óskað lausnar frá setu í hverfisráði Vest- urbæjar og sex mánaða leyfis frá setu í samgöngu- nefnd. Í samtali við Morg- unblaðið sagði Árni Þór að hann vildi gjarnan létta nokkuð af sér störfum en hefði einnig tek- ið að sér aukin verkefni fyrir Samband ísl. sveitar- félaga, m.a. í tekjustofnanefnd sam- bandsins. Árni Þór lagði fram bréf þessa efnis í borgarráði og var samþykkt þar að vísa málinu til afgreiðslu borgarstjórnar í dag, fimmtudag. Í bréfi Árna Þórs er lagt til að Katrín Jakobsdóttir taki sæti hans í hverf- isráði Vesturbæjar og gegni þar formennsku. Einnig að hún taki sæti hans í samgöngunefnd og gegni formennsku meðan á leyfi hans stendur. Árni Þór léttir vinnuálag sitt Árni Þór Sigurðsson Höfuðborgarsvæðið | Ekki er þörf á sameiningu sveitarfélaganna á höf- uðborgarsvæðinu að svo stöddu, þó að mikilvægt sé að vel sé hlúð að þeim sviðum þar sem þau eiga samstarf um sameiginlega hagsmuni, til dæmis sorpvinnslu, almenningssamgöngur og fleira. Þetta kom fram í máli bæði Sig- urðar Geirdal, bæjarstjóra Kópavogs, og Þórólfs Árnasonar, borgarstjóra Reykjavíkur, á kynningarfundi um efl- ingu sveitarstjórnarstigsins sem hald- inn var á dögunum í Félagsheimili Kópavogs. Þar mæltu Hjálmar Árna- son, formaður verkefnisstjórnar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, Sig- urður Geirdal, formaður Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Þórólfur Árnason borgarstjóri og dr. Grétar Þór Eyþórsson, forstöðumaður Rannsóknarstofnunar Háskólans á Akureyri. Fundi stýrði Ásdís Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar. Lagfæringar tekjustofna Í erindi sínu kynnti Hjálmar Árna- son tilgang verkefnisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins og helstu markmið þess. Þar á meðal var að treysta og efla sveitarstjórnarstigið með aukinni valddreifingu hins op- inbera, að sveitarfélögin myndi heild- stæð atvinnu- og þjónustusvæði og annist flesta nærþjónustu við íbúa og að tryggja næga tekjustofna vegna aukinna verkefna. Meginmarkmiðið var þannig, að sögn Hjálmars, að efla sjálfsforræði byggðarlaga. Hjálmar sagði hlut ríkisins í opinberum út- gjöldum miðað við sveitarfélögin mun hærri en á Norðurlöndunum. Leita þyrfti leiða til að leiðrétta þennan mun. Undir verkefnisstjórn verkefnisins falla tvær nefndir, sameiningarnefnd og tekjustofnanefnd. Sameining- arnefndin hefur að sögn Hjálmars það hlutverk að undirbúa og leggja fram tillögur um breytta sveitarfé- lagaskipan með hliðsjón af breytingum á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og landfræðilegum og félagslegum að- stæðum þannig að hvert sveitarfélag myndi heildstætt atvinnu- og þjón- ustusvæði. Tekjustofnanefndin hefur hins vegar það hlutverk að meta fjár- hagsleg áhrif af hugsanlegum breyt- ingum á verkaskiptingu ríkis og sveit- arfélaga og breytingum á sveitarfélagaskipan, einkum með tilliti til þess að endurskoða forsendur fyrir útreikningi framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Nefndin mun setja fram hugmyndir um breytingar á tekju- stofnum sveitarfélaga út frá breyt- ingum á sveitarfélagaskipan og verka- skiptingu ríkis og sveitarfélaga. Hjálmar sagði einnig nauðsynlegt að smá sveitarfélög þéttust, til að létta þeim ýmis verkefni og bjóða upp á bætt samskipti, t.d. við þingmenn. Engin ein formúla fyrir allt landið Í máli Sigurðar Geirdal kom fram að stærð nær allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu gerir þeim kleift að annast alla helstu þjónustu við sína íbúa sjálfstætt. Hann sagði eflingu og sjálfstæði sveitarfélaganna aðalatriðið þegar litið væri til höfuðborgarsvæð- isins. Sigurður varaði ennfremur við sameiningarhugmyndum um þau, því þá myndi myndast eitt sveitarfélag með um tvo þriðju þjóðarinnar innan- borðs og tólf sinnum stærra en næst- stærsta sveitarfélagið. „Það gildir eng- in ein formúla fyrir allt landið – það þarf að laga lausnir að þörfum hverrar byggðar og landssvæðis eftir því sem við á,“ sagði Sigurður m.a. Hann fagn- aði góðu samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu á mörgum svið- um og sagði mikilvægt að efla það samstarf en um leið að eiga í jákvæðri samkeppni á ýmsum sviðum. „Núver- andi fyrirkomulag fjölbreyttrar og góðrar samvinnu er enn um sinn far- sælasti og besti kosturinn fyrir okkur á höfuðborgarsvæðinu að mínu mati,“ sagði Sigurður að lokum. Í klukkutíma fjarlægð Þórólfur Árnason tók í svipaðan streng í sínu erindi, en bætti við þeirri staðreynd að um 77% þjóðarinnar byggju í um klukkustundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og því væri mikilvægt að hugsa um þessi svæði í öllu skipulagi og þjónustu. Íbúar höf- uðborgarsvæðisins væru í æ meira mæli að tileinka sér öðruvísi bú- setuhætti og væru ýmsir möguleikar þar í stöðunni. Þórólfur sagði einnig að Reykjavík- urborg nyti stærðar sinnar í miðlæg- um þáttum, eins og innkaupamálum og tölvu- og upplýsingamálum, en mik- ilvægt væri að auka hagkvæmni í nær- þjónustu og færa hana út í hverfin til þess að nýta tengslin við íbúana. Þann- ig myndu nærþjónustumiðstöðvar þjóna um 20–25.000 manns í stað þess að allir yrðu undir einni stofnun. Samstarf sveitarfélaganna sagði Þórólfur afar mikilvægt og einnig að það gengi mjög vel. Engu að síður var- aði hann við því að samstarfið gæti verið viðkvæmt fyrir flokkspólitískri togstreitu og hreppapólitík. Enn- fremur yrði að miða samstarf SSH við að hægt yrði að taka tillit til svæðanna umhverfis höfuðborgina, sem hann minntist á í upphafi. Ólíkar aðstæður til umræðu Grétar Þór fjallaði í erindi sínu um tilgang sameiningar sveitarfélaga og setti hann í samhengi við umræðuna um landsbyggðina og höfuðborg- arsvæðið. Sagði hann helsta ávinning sameiningar sveitarfélaga vera jafnara þjónustustig með því að sveitir yrðu hluti af öflugri einingum, faglegri stjórnsýslu, sterkari einingar til efl- ingar atvinnulífs og spornunar við fólksflótta og að lokum þann að stærri sveitarfélög væri í mörgu tilliti öflugri einingar lýðræðislega. Einnig sagði hann að ýmis félagsleg vandamál leystust illa í smærri sveitarfélögum þar sem fólk þyrfti jafnvel að sækja lausn sinna mála á næsta bæ. Þá væri stundum betra að sækja þjónustuna til fjarlægari stofnana. Helstu varnaðaratriði varðandi sameiningar sagði Grétar vera þá hættu að jaðarsvæði verði útundan þegar vald þjappast saman á kjarna- svæðum, hagræðing geti bitnað á jöðr- unum auk þess sem kostnaður við ein- staka málaflokka getur vaxið. Varðandi mögulega sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæð- inu sagði Grétar að ávinningur af slíkri sameiningu væri annars eðlis en það sem umræðan hefur snúist um und- anfarin ár og áratugi, smásveit- arfélagavandann. Bein sameining myndi jafnvel skapa fleiri vandamál en hún myndi leysa. Grétar velti þá fyrir sér möguleika á nokkurs konar milli- stjórnsýslustigi. Kynningarfundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu njóta samstarfs á mörgum sviðum, en fæstir eru á því að þau beri að sameina. !     # =G) "&H &    %II  '   . I !$ . I . I&   # (.   %&+ "   Samstarf ofar sameiningu á höfuðborgarsvæðinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.