Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 36

Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 36
UMRÆÐAN 36 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ N eyslusamfélagið gerist æ aðgangs- harðara við ómót- uð börn, stóð í Morgunblaðinu 2. janúar sl. og „einhver móðuharð- indi hafa byrgt okkur sýn gagn- vart því sem máli skiptir!“ Auga tíðarandans getur her- numið huga barnsins, en til að standast augnaráðið og vinna giftusamlega úr hughrifunum þarf gott veganesti og föruneyti. Hugurinn er mannhelgur og því er leiðin frá eyra að hjarta aðeins mörkuð af innri vilja. Föruneytið sem vill vernda bernskuna veit að allur heimurinn getur einnig náð eyrum barnsins, því þarf að þjálfa „tóneyrað“. Eftir að barnið hefur stigið út úr síðasta hring æsk- unnar, snýst sjónarmiðið og leiðin ligg- ur niður fjall- ið og um dal- ina. Á heimleiðinni má jafnvel sjá drauma í hengingarólum, svikin loforð liggja eins og hráviði út um allt og vináttu í gapa- stokkum. Allt líður undir lok, og enginn kemst ósnertur frá þeim ótal þrautum sem þarf að vinna. Þó bjarmar af nýjum degi. Þeir sem snúa aftur heim vita að það var vonin sem skildi á milli feigs og ófeigs. Sá sem held- ur í vonina til síðustu stundar og býst til varnar þótt allt virðist undirokað myrkrinu, hann á enn möguleika til að ganga veginn á enda. Fróðara snýr unga fólkið aftur með sóma í hjarta og tekst á við óvænta vegfarendur sem eru á rangri leið. Skæður óvinur geng- ur hjá, en hann virðist ekki leng- ur hættulegur. Fangarinn er ekki svipur hjá sjón og finnst skorta á þekkingarleysi unga fólksins. Hann er þó ekki dauður úr öllum æðum og stefnir á síðasta vígið. Verst finnst honum þegar ljósinu er beint að honum. Heima í héraði er ekki allt með felldu. Heimalandið er ekki varið með girðingum og á meðan ferðalangurinn fór grunlaus um heiminn og vann ýmsar dáðir læddust þangað sömu öfl og bar- ist var við út í heimi. Ósóminn sem leyndist í skúmaskotinu er kominn á stjá. Sá sem hélt á vit ævintýranna hefur lært hugrekki, hann hefur lært að gera greinarmun á góðu og illu, röngu og réttu í tíðarand- anum. Honum hefur tekist að öðlast sjálfsaga og styrk til að taka ákvarðanir. Hann hefur gengið um land skuggans og lýst það upp, og býst við að geta snú- ið værukær heim og sofnað áhyggjulaus. Heima býður héraðshreinsun, því ófétið (fangarinn) hefur hermunið huga heimalinganna. Næsta verkefni er skapa nýtt heimaland á grunni þess gamla. „Biskup kallar eftir því að for- eldrar endurskoði eigið gildismat og gefi sér meiri tíma fyrir börn- in sín en fyrir lífsgæðakapp- hlaupið.“ (Mbl. 02.01. 04). Í héraðinu reynist ískyggilegt áhugaleysi á dýrmætum gildum, það ber á einelti, kynþáttahatri, ofbeldi, öfund og öðrum neikvæð- um samskiptum sem þarf af vinna bug á. Samábyrgð hins unga felst í því að vilja standa vörð um þau gildi sem hann lærði; jafngildi allra manna, virð- ingu fyrir einstaklingum, um- hyggju og sáttfýsi. Hann vill þroska með sér umhyggju fyrir öðrum, og láta þá finna að þeir tilheyri hver öðrum. Hinn miskunnarlausi birtist hins vegar eins og sá sem ekkert hefur til saka unnið: Undrandi harðneitar hann ábyrgð sinni og áhrifum á berskjaldaðan huga unglingsins. „En í augum mark- aðarins eru unglingar mikilvægir neytendur, en fyrst og fremst eru þeir neytendur framtíð- arinnar og því eftirsóknarvert að móta neyslumynstur ungs fólks snemma, eða allt frá barnæsku.“ (Mbl. 21.01. 04). „Verndum bernskuna!“ – það er hlutverkið, en það gagnar samt ekki fyrir föruneyti barns- ins að láta hefnd mæta hefnd og efna til átaka þegar önnur ráð eru fyrir hendi. Heldur þarf að ræna myrkrið styrkleika sínum og stökkva því á brott með að- ferðum sem það beitir ekki sjálft. Barnið sem snýr heim fullorðið þarf að rjúfa einangrun heima- landsins og gera það hluta af ver- öldinni allri. Það vill koma í veg fyrir sofandahátt og af- skiptaleysi, því einmitt þetta tvennt skapar pláss fyrir orms- tunguna. Aðeins á hulinni brynju hollustu, samkenndar og sam- ábyrgðar brotnar hnífsblað hat- ursins. En aldrei, aldrei á gagn- kvæmu hatri. Farsælt föruneyti gerir gott fólk úr börnum, fólk sem dofnar ekki undir sefjun umhverfisins heldur man hvert erindi þess og jafnvel köllun er. Á fjalls- toppnum getur það jafnvel hikað við að sinna erindi sínu og rang- lega snúist hugur. Þá getur sá ólíklegasti í föruneytinu átt ein- hverju mikilvægu hlutverki að gegna. Sá sem safnar aðeins viðhlæj- endum og jábræðrum í kringum sig er ekki líklegur til að greina aðstæður nægjanlega vel. Í góðu samfélagi er lögð stund á sam- ræðru ólíkra hópa, og djúp virð- ing er borin fyrir fjölbreytninni. Framtíð heimalandsins veltur ekki á einmenningssamfélagi fyrri kynslóða, heldur fjölmenn- ingu komandi kynslóða. Það er verkefnið sem mætir ungu fólki, og lykillinn að betri heimkynn- um. Hæfnin felst í því að geta skoðað mál frá ólíkum sjón- arhornum, geta greint á milli þeirra til að samþætta þau og þekkja sóma frá ósóma. Verkefnið er alltaf tvíþætt. 1. Sókn: Að eyða ofstæki og ofríki ormstungunnar án þess að beita sömu brögðum, því það nærir eldinn. 2. Vörn: Að efla gildin sem styðja lífið og byggja innri varnir með börnum framtíð- arinnar. Barn er ævintýri – og það er ævintýri að ala upp barn. Þríleikur um barnið: 8. jan.: Föruneyti barnsins. 22. jan.: Tveggja barna tal. 5. feb.: Barnið snýr heim. Barnið snýr heim Föruneytið vill vernda bernskuna og þjálfar með börnum skarpa sjón og „tón- eyra“. Barnið sem snýr heim fullorðið þarf að gera héraðshreinsun og hrekja ormstunguna aftur inn í myrkrið. VIÐHORF Eftir Gunnar Hersvein guhe@mbl.is EITT af því dapurlegasta sem hent getur börn eru munn- og and- litsskaðar sem þau hljóta við högg eða fall. Andlit sem var öllu öðru fegra er skyndilega orðið afmyndað. Slík slys eru afar tíð. Um helmingur þeirra barna, sem hafa náð fimm ára aldri, mun hafa orðið fyrir einhverju hnjaski á sinni skömmu ævi með þeim afleiðingum að ein eða fleiri tennur hafi losnað, skekkst, brotnað eða fallið úr stæði sínu. Í 97% tilvika hendir þetta framtennurnar, sem mest ber nú á, svo að ofan á sársauk- ann bætist útlitslýti sem jafnan angrar þó foreldrana öllu meira en sjálft barnið sem varð fyrir óhappinu. Hnjaskið þarf ekki að vera mikið – oft ekki annað og meira en fótaskortur á teppalögðu gólfi. Margt geta foreldrar reynt til þess að koma í veg fyrir slík slys en þó er engin leið að útiloka þau með öllu. Kannanir sýna að í um helmingi þeirra til- vika þar sem barna- tönn hefur orðið fyrir hnjaski megi búast við því að eftirkomandi full- orðinstönn beri þessa hnjasks ein- hver merki á röntgenfilmu eða þeg- ar tönnin kemur fram í fyllingu tímans. Þessi ummerki geta verið allt frá vart greinanlegum blettum í tannglerungnum til mjög alvarlegra og áberandi skaða á tönninni. Hvítir eða brúnir blettir á miðframtönnum efri góms eru allalgengir. Einkum er líklegt að svona fari ef óhappið hend- ir fyrir þriggja ára aldur barnsins. Þrennt kemur þar til: Í fyrsta lagi hefst kölkun fullorðinsframtanna efri góms um fæðingu og lýkur ekki fyrr en um þriggja ára aldur og á þeim tíma eru þessar tennur óharðn- aðar og afar viðkvæmar. Í öðru lagi vill svo illa til að einmitt á aldurs- bilinu eins til þriggja ára eru fætur hvað valtastir og tíðni áverka á barnatennur hvað hæst. Í þriðja lagi er svo vart nokkurt bil á milli rót- arenda barnatannanna og króna fullorðinstannanna á þessu aldurs- skeiði. Meðfylgjandi mynd er ætlað að sýna hversu þröngt er um krónur fullorðinstannanna um þriggja ára aldurinn. Þær eru þá nánast í faðm- lögum við rætur barnatannanna. Rótarendar barnatannanna þurfa því hvorki að hreyfast af miklu afli né mikið úr stað til þess að skadda eftirkomendur sína. Alla áverka á barna- tennur skyldi taka al- varlega, einkum þó á aldrinum eins til þriggja ára jafnvel þótt ekki sjái á barninu. Tannlæknar hafa þekkingu, þjálfun og búnað til þess að greina vandann og meðhöndla skekktar tennur og brotnar og gera að sárum á tann- holdi og slímhúð munnsins. Oft kunna lausar tennur og tannbrot að koma tannlækninum að gagni við grein- ingu og meðferð tannáverka. Barnið og allar úrslegnar tennur og tann- brot sem kunna að finnast á slys- staðnum skal því færa til tannlæknis eins skjótt og auðið er – mínútur skipta hér oft sköpum. Best er að láta honum eftir að hreinsa þau lausu brot sem hann kann að vilja nota til viðgerðar brotinni tönn en meðan á flutningi stendur eða bið, er mikilvægt að brotin séu varðveitt rök. Best eru þau geymd í und- anrennu eða mjólk en ekki í krana- vatni. Einnig er mikilvægt að rönt- genmyndir náist af skaddaða svæðinu því að ekki er alltaf allt sem sýnist. Þær myndir sýna þó einungis ástandið eins og það er skömmu eftir slysið. Síðar verða aðrar myndir teknar og oft þá fyrst þegar bornar eru saman myndir frá mismunandi tímum fer að verða mögulegt að sjá hvert stefnir. Þegar króna tannar brotnar kann að opnast aragrúi ganga inn til tann- kvikunnar (taugarinnar) sem stend- ur þá eftir nokkuð berskjölduð fyrir hitabreytingum, áhrifum kemiskra efna og bakteríum. Þessum göngum þarf að loka hið fyrsta. Með þeim efnum sem við höfum yfir að ráða í dag má gera það skjótt og oft einnig svo dável fari. Sé ákveðið að reyna að halda skaddaðri tönn þarf að líta vel eftir henni með reglulegri skoðun og röntgenmyndum. Mjög er þó mis- munandi hversu þétt slíkt eftirlit þarf að vera. Fer það nokkuð eftir því hvað hafi skeð og hverra vand- ræða sé helst að vænta en í heild sinni kann það að standa í nokkur ár Svokölluð „endurísetning“ (repl- antatio) úrsleginna tanna gefur góða raun fyrir fullorðinstennur. Rétt er að undirstrika hér að þetta á ein- ungis við um fullorðinstennur en alls ekki barnatennur. Ástæða þessa er sú að við sjálfa endurísetningu úrs- leginnar barnatannar kann eft- irkomandi fullorðinstönn að skadd- ast. Aftur verður þrengslum helst um kennt. Að auki fer oft svo að tannkvika úrsleginnar barnatannar drepst þótt tekist hafi að koma henni fyrir í stæði sínu aftur. Í þann dauða vef vill svo koma ígerð sem fullorð- instönninni stafar þá veruleg hætta af. Eftir föngum reyna tannlæknar að halda sködduðum barnatönnum á sínum rétta stað og lagfæra þær. Aldrei má þetta þó verða á kostnað fullorðinstannanna sem á eftir koma. Stundum kann að haga svo til að framtíðartannheilsu barnsins sé fyr- ir bestu að einstaka eða jafnvel nokkrar barnatennur verði fjar- lægðar. Almennt talað veldur missir framtanna efri góms barninu ekki erfiðleikum með framburð móð- urmálsins og truflar hvorki vöxt né sálarþroska þess. Áverkar á tönnum barna Ólafur Höskuldsson skrifar í tilefni tannverndarviku ’Alla áverka á barna-tennur skyldi taka al- varlega einkum þó á aldrinum eins til þriggja ára, jafnvel þótt ekki sjái á barninu.‘ Ólafur Höskuldsson Höfundur er sérfræðingur í barna- tannlækningum og lektor í þeirri grein við tannlæknadeild Háskóla Íslands. SAMKVÆMT stjórnskipunarlög- unum frá 1903 skyldi Íslands ráðherra bera upp lög og mikilvægar stjórn- arráðstafanir fyrir konungi í ríkisráði. Skyldi ráðherrann fara svo oft sem nauðsyn var á til Kaupmannahafnar til að bera upp fyrir kon- ungi í ríkisráðinu lög og mikilvægar stjórn- arráðstafanir. Árið 1907 staðfesti konungur þrenn lög utan ríkisráðs er hann var staddur hér á landi, en þau lög munu hafa verið borin upp fyr- ir konung síðar í rík- isráði til staðfestingar og skapaðist um þetta stjórnskipunarvenja. Í 16. gr. lýðveldisstjórnarskrárinnar er kveðið á um að forseti lýðveldisins og ráðherrar skipi ríkisráð og forseti hafi þar forsæti. Lög og mikilvægar stjórnarráðstafanir skal bera upp fyrir forseta í ríkisráði. Ákvæðið er hlið- stætt þágildandi ákvæði í dönsku stjórnarskránni, enda voru ekki gerð- ar aðrar breytingar á stjórnarskránni vegna lýðveldisstofnunarinnar en nauðsynlegar voru og þá stundum þannig að forseti kom í stað konungs. Hinn 16. desember 1943 var gefin út tilskipun um starfsreglur ríkisráðs og er tilskipunin óbreytt, enda þótt hún miði við ríkisstjórann, en ekki forseta lýðveldisins. Þó hefur með lögum frá 1969 verið gerð sú breyting að ráðu- neytisstjóri forsætisráðuneytis skuli jafnframt gegna starfi ritara ríkisráðs- ins. Í tilskipuninni er ákveðið að rík- isstjórinn (nú forsetinn) boði til rík- isráðsfundar ýmist samkvæmt tillögu forsætisráðherra eða að eigin frumkvæði. Fundi skal halda á skrifstofu forseta. Í tilskipuninni segir að sé ríkisstjóri (nú forseti) fjarverandi eða forfallaður sökum veik- inda þá skuli forsætis- ráðherra vera forseti ríkisráðs. Meðal mikilvægustu ákvæða um valdheim- ildir forseta lýðveldisins er ákvæði 26. gr. stjórn- arskrár um að hann eigi þess kost að synja laga- frumvarpi staðfestingar og hefur það í för með sér að lagafrumvarpið er þá lagt undir atkvæði allra kosn- ingabærra manna. Telja má víst að kæmi upp sú staða að forseti hygðist synja um staðfestingu og skjóta laga- frumvarpi til þjóðaratkvæðagreiðslu, þá myndi slíkt gerast á ríkisráðsfundi, sem forseti boðaði til. Teldist rík- isstjórn heimilt að halda ríkisráðsfundi án þátttöku forseta yrði þessi vald- heimild forseta lýðveldisins einskis nýt. Sú stjórnskipunarvenja hefur myndast hér á landi að ríkisráðsfundi skal ekki halda án þátttöku forseta og fundartími því ákveðinn með hliðsjón af aðstæðum forseta. Á síðustu 40 ár- um mun ekki hafa verið haldinn einn einasti ríkisráðsfundur án þess að hon- um væri stjórnað af forseta lýðveld- isins. Svo rík venja sem farið hefur verið eftir í 40 ár af 60 ára sögu lýð- veldisins myndar óhjákvæmilega stjórnskipunarvenju, sem ekki verður breytt nema með stjórnskip- unarlögum. Þó er þessi regla ekki án undantekninga. Við neyðarrétt- araðstæður er forsætisráðherra eða þeim ráðherra sem gegnir stöðu hans í forföllum heimilt og eftir atvikum skylt að boða til ríkisráðsfundar vegna mik- ilvægs málefnis, sem ekki verður skot- ið á frest. Sé haldinn ríkisráðsfundur án þátt- töku forseta lýðveldisins án þess að fyrir hendi sé brýn nauðsyn, sem veld- ur því að fundi verði ekki frestað, verð- ur að telja að þær ákvarðanir sem þar eru teknar teljist ógildar þar til þær hafa verið endurstaðfestar á löglegum fundi í ríkisráði. Um ríkisráðið Ragnar Aðalsteinsson fjallar um ríkisráðsfundinn ’Ákvarðanir sem þareru teknar teljist ógild- ar þar til þær hafa verið endurstaðfestar á lög- legum fundi í ríkisráði.‘ Ragnar Aðalsteinsson Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.