Morgunblaðið - 05.02.2004, Side 53
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 A 53
„ÉG er opinn fyrir öllu og
hef jafnvel áhuga á að
breyta til í sumar en það
hefur ekkert verið ákveð-
ið ennþá,“ sagði Ragnar
Óskarsson, landsliðs-
maður í handknattleik og
leikmaður franska 1.
deildar liðsins Dunker-
que, í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Samn-
ingur Ragnars við
Dunkerque rennur út í
sumar. „Ég er með í höndunum boð
um nýjan samning við Dunkerque
og er að skoða það. Það ætti að skýr-
ast á næstu vikum hvort ég tek hon-
um eða leita eitthvað annað. Það er
eitt og annað í gangi sem ég vil
skoða til hlítar áður en ég tek
ákvörðun,“ sagði Ragnar
sem er að ljúka sinni
fjórðu leiktíð hjá franska
liðinu þar sem hann hefur
verið einn helsti mátt-
arstólpinn.
Heimildir Morgun-
blaðsins herma að Ragnar
hafi áhuga á að komast að
hjá félögum á Spáni frem-
ur en í Þýskalandi verði
hann ekki áfram í Frakk-
landi. „Ég vil ekkert segja
um það, aðeins að ég opinn fyrir því
að skoða ýmsa kosti sem kunna að
bjóðast,“ sagði Ragnar sem leikur
sinn fyrsta deildarleik með Dunker-
que að loknu hléi á frönsku deildinni
vegna EM nk. laugardag. Þá leikur
Dunkerque við Paris.
Ragnar Óskarsson langar
að breyta til í sumar
ÍSLENSKA karlalandsliðið í
tennis hóf keppni í heims-
meistarakeppni landsliða,
Davis Cup, í Kaunas í Litháen í
gær en liðið spilar í þriðju
deild eftir sigur í fjórðu deild-
inni í fyrra. Fyrsta viðureign
Íslendinga var á móti liði
Makedóníu. Raj Bonifacius og
Arnar Sigurðsson spiluðu ein-
liðaleikina og tvíliðaleikinn
fyrir Ísland og töpuðu þeir öll-
um leikjum sínum. Raj Bonifa-
cius tapaði í tveimur settum,
4:6 og 4:6. Arnar Sigurðsson
tapaði í þremur settum, 6:3,
2:6 og 3:6. Í tvíliðaleiknum
töpuðu þeir Arnar og Raj í
tveimur settum, 1:6 og 5:7.
Í dag etja Íslendingarnir
kappi við liðsmenn Mónakó og
á föstudag við lið Andorra.
Tap gegn
Makedóníu
á Davis Cup
LARRY Bratcher, bandarískur
körfuknattleiksmaður, er nú til
reynslu hjá Njarðvíkingum, en
eins og sagt hefur verið frá eru
Brenton Birmingham og Brandon
Woudstra báðir meiddir og bikar-
úrslitaleikurinn í körfuknattleik
er á laugardaginn þar sem Njarð-
víkingar mæta Keflvíkingum.
Aukinheldur er Egill Jónasson frá
í nokkrar vikur þar sem hann er
með sýkingu í fæti og Páll Krist-
insson verður ekki með þar sem
hann var í gær dæmdur í eins
leiks bann eftir að honum hafði
verið vísað út úr húsi í leik um
helgina.
Bratcher er leikstjórnandi, 1,96
á hæð og hefur leikið víða síðustu
árin, meðal annars í Þýskalandi,
Belgíu, Kólombíu og nú síðast í
Jórdaníu. Hann kom til Njarðvík-
inga á mánudaginn og sagði Frið-
rik Ragnarsson, þjálfari liðsins, að
hann virkaði ágætur leikmaður,
en hann væri til reynslu og það
skýrðist eftir helgina hvort gerð-
ur yrði við hann samningur, það
færi mikið eftir því hversu skjótan
bata Brenton og Brandon fengju.
Bratcher til reynslu í Njarðvík
ÍBV tryggði sér farseðilinn í bikar-úrslitaleikinn með tíu marka sigri
á FH, 34:24, í Vestmannaeyjum í
gærkvöldi og er þetta
fjórða árið í röð sem
ÍBV kemst þangað.
Það voru gestirnir úr
Hafnarfirðinum sem
skoruðu fyrsta mark leiksins en í kjöl-
farið komu þrjú Eyjamörk. Leikurinn
var þó lengst af hálfleiksins í járnum
en Eyjastúlkur þó alltaf skrefi á und-
an. Liðin bæði spiluðu hraðan sókn-
arleik, sóttu hratt eftir að hafa fengið
á sig mark og við það opnuðust varnir
liðanna illa og ef ekki hefði verið fyrir
frábæra markvörslu beggja megin
hefðu bæði liðin getað skorað yfir
tuttugu mörk í hálfleiknum. Eyja-
stúlkur leiddu þó í hálfleik, 16:14 og
gerðu svo út um leikinn á upphafs-
mínútum síðari hálfleiks og skoruðu
tíu mörk gegn tveimur Hafnfirðing-
anna. Eftir það róaðist leikurinn tals-
vert og liðin skiptust á að skora og
þegar upp var staðið sigruðu ÍBV
34:24. Stórskytturnar Alla Gorkorian
og Anna Yakova voru markahæstar í
liði ÍBV en bestu leikmenn liðsins
voru þær Sylvia Strass leikstjórnandi
sem skoraði oft stórglæsileg mörk
eftir gegnumbrot og Julia Gantim-
urova markvörður sem varði eins og
berserkur í leiknum. Hjá gestunum
var Þórdís Brynjólfsdóttir í miklum
ham í fyrri hálfleik en hvarf nánast al-
veg í þeim síðari. Þá átti Guðrún
Hólmgeirsdóttir ágætan leik og nýtti
sér hraða sinn í hröðum sóknum liðs-
ins. Það var þó markvörðurinn
Jolanta Slapikiene sem stóð upp úr og
þá sérstaklega í fyrri hálfleik.
ÍBV í úrslit
fjórða
árið í röð
Allan fyrri hálfleik var mikillsprettur á leikmönnum Gróttu/
KR svo að gestunum gekk illa að
hemja þá. Fljótlega var stórskyttan
Ramune Pekaskyte
tekin úr umferð þeg-
ar Gerður Rún Ein-
arsdóttir fylgdi
henni eins og skugg-
inn. Fyrir vikið var eins og fjaraði
undan sókn Hauka en Gróttu/KR
tókst ekki að nýta það.
Eitthvað hafa Haukar farið yfir
skipulagið í hléinu því þeir gerðust
yfirvegaðri og þegar það skilaði for-
ystu í fyrsta sinn mátti sjá sjálfs-
traustið vaxa. Eftir tíu mínútur mun-
aði þremur mörkum og hlutskipti
Gróttu/KR að elta. Þegar 5 sekúndur
voru eftir af venjulegum leiktíma
jafnaði Aiga Stephanie fyrir Gróttu/
KR svo að framlengja varð leikinn
og þá héldu Haukar haus, ekki síst
Kristina sem varði mjög vel.
„Þetta var hörkubikarleikur frá
fyrstu mínútu,“ sagði Eva Björk
Hlöðversdóttir, fyrirliði Gróttu/KR,
eftir leikinn. „Það er mikil pressa á
leikmönnum og svo kemur í ljós
hvort maður ræður við hana.“ Hildur
Gísladóttir varði mjög vel, Aige byrj-
aði mjög vel og Eva Björk einnig.
„Við áttum þetta svo sannarlega
skilið því það hefur gengið brösug-
lega hjá okkur eftir jólin,“ sagði
Anna G. Halldórsdóttir úr Haukum
eftir leikinn. „Við spiluðum ekki vel í
fyrri hálfleik, það var svo mikill hraði
og hávaði hérna í höllinni, en svo
kom þetta. Baráttan kom upp og við
spiluðum allar sem ein, ekki ein og
ein. Við lögðum einmitt upp með það,
það hefur oft vantað baráttuna hjá
okkur sérstaklega einhvern neista.
Við áttum von á að Ramune væri
tekin úr umferð en mér fannst við
spila okkur nokkuð vel út úr því og
hinar taka við,“ bætti Anna við og
hlakkar til að komast í úrslitaleikinn.
„Svona eiga líka bikarleikir að vera,
framlenging með öllu en þá verður
maður líka að vinna og við ætluðum
að komast á græna gólfið í höllinni.“
Sem fyrr segir áttu Ramune og
Kristina góðan leik en Anna, Ragn-
hildur Guðmundsdóttir og Erna Þrá-
insdóttir skiluðu sínu.
Morgunblaðið/Golli
Ramune Pekarskyte, litháíska stórskyttan í liði Hauka, skoraði
13 mörk í sigri Hauka á Gróttu/KR á Nesinu í gærkvöldi. Hér er
hún að brjóta sér leið framhjá Írísi Ástu Pétursdóttur.
Haukar höfðu
betur í spennuleik
ÆSISPENNANDI framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit og kom-
ast í bikarúrslitaleik þegar Haukakonur sóttu Gróttu/KR heim í
gærkvöldi. Heimasæturnar á Nesinu höfðu undirtökin framan af en
Hafnfirðingar hrukku í gang er leið á síðari hálfleik og voru agaðri
síðasta sprettinn með 33:32 sigri.
Stefán
Stefánsson
skrifar
DAGUR Sigurðsson, þjálfari og
leikmaður Bregenz, skoraði 1 mark
fyrir lið sitt sem hafði betur í topp-
slagnum við Superfund Hard, 26:20,
í austurrísku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik í gærkvöld. Bregenz er
með 28 stig í efsta sæti og Superfund
Hard hefur 25.
DANSKI varnarmaðurinn Ronnie
Hartvig hefur gefið KA-mönnum já-
kvætt svar um að leika með liðinu í
úrvalsdeildinni í sumar. Hartvig lék
vel með norðanliðinu á síðustu leiktíð
en KA-menn voru orðnir óþreyjufull-
ir að bíða eftir svari Danans sem dró
að svara þar sem hann var ekki viss
um hvort hann kæmist vegna náms.
Heimasíða KA sagði frá þessu í gær.
HÓLMFRÍÐUR Ósk Samúelsdótt-
ir gekk í gær til liðs við kvennalið
Breiðabliks í knattspyrnu á ný eftir
eins árs dvöl í KR. Hólmfríður, sem
er 19 ára, varð Íslandsmeistari með
KR í fyrra og lék 12 af 14 leikjum
Vesturbæjarliðsins í úrvalsdeildinni.
KRISTINN Ingi Valsson varð í tí-
unda sæti á VIS-svigmóti sem haldið
var í Noregi á þriðjudagskvöldið.
Hann fékk 44,88 FIS-punkta fyrir
tímann 1.44,10 mín.
KARL Friðrik Jörgensen varð í
37. sæti í sama móti á 1.52,04 mín. og
fékk 89,15 FIS-punkta fyrir það.
Snorri Páll Guðbjörnsson varð 47. á
1.54,83 mín.og fékk 104,70 punkta og
Guðjón Ólafur Guðjónsson fékk
132,74 punkta fyrir 1.59,86 mín. og
60. sætið en 69 skíðamenn luku
keppni.
TVEIR íslenskir skíðamenn féllu
úr keppni í fyrri ferð, þeir Óðinn
Guðmundsson og Kári Brynjólfsson.
SALOME Tómasdóttir varð í 12.
sæti í svigi kvenna á sama móti, fékk
tímann 2.03,21 mín. og 104,07 FIS-
punkta en Áslaug Eva Björnsdóttir
var aðeins á eftir í 13. sæti á 2.03,55
mín. og fékk 105,80 punkta fyrir.
Agla G. Björnsdóttir varð í 23. sæti
af þeim 26 sem luku keppni, fékk
169,04 punkta fyrir 2.15,99 mín.
FIMM íslenskar stúlkur féllu úr
keppni í fyrri ferð – þær Guðrún Ar-
inbjarnardóttir, Hrefna Dagbjarts-
dóttir, Ásta Björg Ingadóttir, Elín
Arnardóttir og Aldís Axelsdóttir.
FÓLK
Ragnar
Sigursveinn
Þórðarson
skrifar