Morgunblaðið - 05.02.2004, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI Viðskiptablað Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang
vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri
guna@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110
Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
BAUGSVELDIÐ, það er að segja
Baugur Group og tengd félög, er
umsvifamesta viðskiptablokk í ís-
lensku atvinnulífi nú um stundir, og
angar veldisins teygja sig reyndar
til fleiri landa. Með þessu er ekki
fullyrt að Baugsveldið sé það verð-
mætasta hér á landi, en það snertir
daglegt líf almennings tvímælalaust
mun meira og oftar en önnur við-
skiptaveldi og áhrif þess hér á landi
eru mikil í samræmi við það. Þetta á
ekki síst við eftir að þessi hópur fyr-
irtækja hóf innreið sína á fjölmiðla-
markaðinn og ræður nú stærsta fjöl-
miðlafyrirtæki landsins,
Norðurljósum.
Meðal annarra fyrirtækja í
Baugsveldinu eru Hagar, sem áður
hét Baugur Ísland og segja má að
sé kjarni starfseminnar hér á landi
og það sem byggt hefur upp veldið.
Í Högum er fjöldi verslana og
verslanakeðja, svo sem Hagkaup,
Bónus, 10-11, Lyfja og Útilíf.
Baugsveldið á einnig drjúgan meiri-
hluta í Fasteignafélaginu Stoðum,
sem er stærsta fasteignafélag
landsins. Af öðrum eignum hér á
landi má nefna tæpan helming í
Húsasmiðjunni, um fjórðung í
Flugleiðum og Kaldbaki, um fimmt-
ung í Smáralind og stærstan hluta
Tæknivals, en nánar verður farið
yfir þetta hér að neðan.
Gaumur, sem er í eigu Jóhann-
esar Jónssonar og fjölskyldu, á
meirihluta í Baugi Group. Meðal
annarra eigenda Baugs eru KB
banki, Ingibjörg S. Pálmadóttir og
Eignarhaldsfélagið ISP, og Vor,
sem er í eigu Péturs Björnssonar,
fyrrverandi eiganda Vífilfells. Auk
þess að eiga meirihluta í Baugi á
Gaumur 40% hlut í félagi sem á
Pizza Hut-staðina hér á landi og í
Svíþjóð, en sala á Pizza Hut-stöð-
unum hér á landi er nú á lokastigi.
Gaumur á einnig Hard Rock að
fullu og 20% í Latabæ. Þessar þrjár
síðastnefndu fjárfestingar eru smá-
ar fyrir Gaum og helsta hlutverk
félagsins er að vera eignarhalds-
félag um hlutinn í Baugi Group.
Á meðfylgjandi yfirlitskorti má
sjá nánara yfirlit yfir helstu eignir
Baugsveldisins, bæði hér á landi og
erlendis, en þeirra á meðal eru leik-
fangakeðjan Hamleys, meirihluti
tískuverslanakeðjunnar Oasis og
rúmur fimmtungur í matvörukeðj-
unni Big Food Group, svo nokkuð
sé nefnt.
Meðal eigna sem farið hafa um
hendur Baugsveldisins en hafa
horfið þaðan aftur má nefna stóra
hluti í Íslandsbanka, Straumi og
Tryggingamiðstöðinni. Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóri Baugs og
einn eigenda Gaums, reyndi ásamt
fleirum, að hluta til hinum svokall-
aða Orca-hópi þar sem forstjóri
Samherja var meðal annarra innan-
borðs, að ná yfirráðum í Trygginga-
miðstöðinni, Íslandsbanka og
Straumi á árunum 2001 og 2002.
Óhætt er að segja að þetta hafi ver-
ið metnaðarfull áform, en um leið
voru þau umdeild og mættu veru-
legri fyrirstöðu þeirra sem ráðið
höfðu fyrirtækjunum. Áformin
gengu ekki eftir þó að um tíma
hefði litlu munað.
44 milljarða króna
eignir í Bretlandi
Hægt er að líta svo á að Baugs-
veldið hafi orðið til við sameiningu
Bónuss og Hagkaups árið 1998, en
sagan er þó lengri. Pálmi Jónsson
stofnaði Hagkaup árið 1959 og
hann og síðar fjölskylda hans áttu
fyrirtækið þar til árið 1998 þegar
það var selt og stofnendur Bón-
usverslananna eignuðust stóran
hlut. Hagkaup rak 12 verslanir árið
1998, en meðal þess sem fyrirtækið
hafði staðið fyrir og fjármagnað var
bygging Kringlunnar, sem var
einnig að stórum hluta í eigu þess.
Feðgarnir Jóhannes Jónsson og
Jón Ásgeir Jóhannesson stofnuðu
Bónus árið 1989 en fyrir má segja
að eignir þeirra hafi nánast engar
verið, nema að vísu viðskiptahug-
mynd sem reyndist meðal þeirra
allra ábatasömustu sem hrint hefur
verið í framkvæmd hér á landi.
Bónusverslunum fjölgaði á næstu
árum og fyrirtækið var orðið nokk-
uð áberandi á matvörumarkaðnum
þegar Hagkaup keypti helming
þess árið 1992. Ári síðar stofnuðu
Hagkaup og Bónus saman inn-
kaupafyrirtæki sem þá hét Baugur
en heitir nú Aðföng. Bónus og Hag-
kaup sameinuðust árið 1998 og var
það fyrir milligöngu tveggja fjár-
festingarbanka, FBA og Kaup-
þings, sem keyptu Hagkaup og
eignuðust svo hvor um sig 37,5% í
sameinuðu félagi, en 25% voru í
eigu Gaums. Um sameininguna var
stofnað fyrirtækið Baugur sem var
skráð á Aðallista Kauphallar Ís-
lands, sem þá hét Verðbréfaþing
Íslands, í apríl 1999. Um næstu
áramót átti Gaumur tæpan þriðj-
ung hlutafjárins og var langstærsti
einstaki hluthafinn.
Eins og áður segir má líta svo á
að Baugsveldið hafi orðið til árið
1998, en þó að Baugur væri þá þeg-
ar stórt fyrirtæki hefur það vaxið
mikið. Í árslok 1998 voru eignir
Baugs samtals rúmir 6 milljarðar
króna, en samkvæmt síðasta árs-
reikningi voru eignirnar orðnar
rúmir 46 milljarðar króna í lok
febrúar í fyrra og höfðu því nær
áttfaldast. Mikið vatn er runnið til
sjávar frá þeim tíma og Baugur
hefur aukið umsvif sín í Bretlandi
svo um munar auk þess sem verð-
mæti eignarhluta félagsins þar í
landi hafa vaxið mikið. Eignir
Baugs í Bretlandi voru fyrir tæpu
ári innan við 9 milljarða króna virði,
en eru nú um 44 milljarða króna
virði. Þar við bætist meðal annars
nýlegur hlutur í Norðurljósum, sem
er með eignir upp á 11 milljarða
króna og þar á Baugur 37% beinan
og óbeinan hlut.
Fall er fararheill
Þó að Baugsveldið hafi vaxið mikið
hér á landi frá stofnun Baugs hefur
vöxturinn verið mun meiri erlendis
eins og sjá má af tölunum hér að of-
an. Útrás Baugs hófst í árslok 1999
með kaupum á helmingshlut í lág-
vöruverðskeðjunni Bonus Dollar
Stores í Flórída í Bandaríkjunum,
auk þess sem félagið samdi þá við
verslanakeðjuna Debenhams um að
opna fyrstu Debenhams-verslunina
á Norðurlöndum, nánar tiltekið í
Stokkhólmi, á árunum 2002–2003.
Áður hafði Bónus reyndar sótt út
til Færeyja árið 1994 og opnað þar
verslun og í dag á Baugur helm-
ingshlut í SMS í Færeyjum sem á
fimm verslanir.
Þar sem segja má að útrás Baugs
hafi hafist í alvöru með Bonus Doll-
ar Stores í Bandaríkjunum má ef til
vill halda því fram að fall sé far-
arheill. Forstjóri Baugs hefur orðað
það þannig að starfsemin í Banda-
ríkjunum hafi verið Baugi dýr skóli,
en fyrirtækið tapaði um eða yfir 3
milljörðum króna í Bandaríkjunum.
Umsvifin í Bandaríkjunum voru
talsvert mikil og ráku fyrirtæki
Baugs um tíma yfir fjögur hundruð
verslanir þar í landi. Í fyrra hætti
fyrirtækið við að reyna að koma
rekstrinum í Bandaríkjunum í lag,
seldi fjárfestingar sínar þar og
ákvað að einbeita sér að fjárfest-
ingum í Bretlandi og á Norðurlönd-
unum.
Þegar þessi ákvörðun var tekin
höfðu fjárfestingar Baugs í Bret-
landi þegar skilað miklum hagnaði.
Arðbærasta fjárfestingin var
fimmtungshlutur í Arcadia-versl-
anakeðjunni. Baugur hafði haft hug
á að eignast það fyrirtæki, eða að
minnsta kosti að kaupa ákveðnar
verslanir út úr því. Það gekk ekki,
en hagnaður Baugs af fjárfesting-
unni var verulegur, eða um 7,4
milljarðar króna. Salan fór fram
haustið 2002, en kaup á hlutnum
hófust um tveimur árum áður og þá
í félagi við aðra. Baugur eignaðist
þennan Arcadia-hlut að fullu vorið
2001.
Sá mikli ágóði sem Baugur fékk
af hlutabréfaeigninni í Arcadia hef-
ur ráðið miklu um það svigrúm sem
félagið hefur haft til fjárfestinga
síðasta rúma árið, enda hefur at-
burðarásin verið hröð á þeim tíma.
Fjárfestingar í eigu Baugs í
Bretlandi skiptast í tvennt, í stefnu-
mótandi fjárfestingar þar sem
Baugur tekur þátt í að stjórna fyr-
irtækjunum, og sjóðsfjárfestingar
Umsvifamesta
viðskiptaveldið
Eignir sem Baugur og tengd félög eiga eða stýra í Bretlandi eru yfir 50 milljarða króna virði. Eignirnar hér á landi eru enn
meiri en vöxturinn er mun hraðari erlendis. Baugur Group hefur vaxið úr nánast engu upp í mesta viðskiptaveldi lands-
ins á 15 árum. Fyrirtækið hefur komið að margvíslegum rekstri bæði hér á landi og erlendis. Yfirleitt hefur gengið vel, en
þó ekki alltaf. Haraldur Johannessen rekur sögu og umsvif Baugsveldisins.
BAUGUR
JÓHANNES Jónsson og börn hans, Jón Ásgeir og
Kristín, stýra mesta viðskiptaveldi landsins og eiga
meirihluta í helsta fyrirtæki þess, Baugi Group. Jó-
hannes og Jón Ásgeir stofnuðu Bónus fyrir fimmtán
árum og þá hófst eignamyndun fjölskyldunnar, en
það sem hér er kallað Baugsveldið varð til þegar
Bónus og Hagkaup voru sameinuð árið 1998 undir
nafninu Baugur. Jón Ásgeir er forstjóri Baugs og Jó-
hannes og Kristín sitja í stjórn félagsins, en Kristín
er auk þess framkvæmdastjóri Gaums, sem er eign-
arhaldsfélag fjölskyldunnar.
Pálmi Haraldsson er meðal annars aðaleigandi
fyrirtækisins Græns markaðar, sem er heildsala á
sviði blóma og tengdra vara, og hefur verið at-
kvæðamikill á grænmetismarkaðnum.
Pálmi er aðaleigandi Fengs og annarra félaga sem
hafa oft fjárfest í sömu fyrirtækjum og Baugs-
fjölskyldan. Félög Pálma eiga til að mynda stóran
hlut í Högum og Norðurljósum. Í dag eru eigna-
tengslin orðin það mikil að fyrirtæki Pálma eru í
þessari umfjöllun höfð með í því sem kallað er
Baugsveldið.
Jón Ásgeir JóhannessonJóhannes Jónsson Pálmi Haraldsson
Baugsfjölskyldan og Fengur
Kristín Jóhannesdóttir