Morgunblaðið - 05.02.2004, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI S-HÓPURINN svokallaði, sam-
anstendur af nokkrum félögum sem
eiga rætur sínar í Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga (SÍS).
Gengið er út frá að kjarna þessa
hóps myndi þau félög sem keyptu
saman eignarhlut ríkisins í Búnaðar-
banka Íslands fyrir ári síðan. Þetta
eru Vátryggingafélag Íslands (VÍS),
Ker, Samvinnulífeyrissjóðurinn og
Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg-
ingar. Félögin hafa um árabil tengst
þéttum böndum og sömu einstak-
lingar gjarnan skipað stjórnir
þeirra.
Ýmis önnur félög hafa einnig
tengst þessum hópi eignalega og
stjórnunarlega séð. Á síðustu árum
hafa tengslin hins vegar verið að
rofna þó svo að enn sé að finna teng-
ingar t.d. í gegnum KB banka, SÍF
og Samskip.
Kjölfestufjárfestar í BÍ
VÍS, Ker, Samvinnulífeyrissjóðurinn
og Samvinnutryggingar keyptu,
ásamt þýska bankanum Hauck &
Aufhauser Privatbankiers, 45,8%
kjölfestuhlut ríkisins í Búnaðar-
banka Íslands. Ker eignaðist við
þetta 16,1% hlut í Búnaðarbankan-
um, VÍS eignaðist 6%, Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn 3,9% og Samvinnu-
tryggingar 3,5%. Þýski bankinn
eignaðist 16,3%. Búnaðarbankinn
var á síðasta ári sameinaður KB
banka. Nú á Ker u.þ.b. 7,3% í KB
banka, VÍS á um 4,4%, Samvinnulíf-
eyrissjóðurinn á 1,8% og Samvinnu-
tryggingar á 1,6% í KB banka. Sam-
tals ræðir hér um 15% hlutafjár í
bankanum, að heildarverðmæti ná-
lægt 17 milljörðum króna.
Markaðsvæðing VÍS
VÍS er eina félagið í kjarnahópnum
sem er með hlutabréf sín skráð í
Kauphöll Íslands. VÍS var stofnað
um meginhluta vátryggingastofna
Brunabótafélags Íslands og Sam-
vinnutrygginga fyrir 15 árum síðan.
Það var einmitt þá sem nafngiftin S-
hópur varð til um þá aðila sem stóðu
að Samvinnutryggingum en hefur
síðar gjarnan verið notuð í víðari
skilgreiningu um stjórnendur og
stjórnarmenn í fyrirtækjum gamla
Sambandsins.
Landsbanki Íslands eignaðist síð-
ar eignarhlut Brunabótafélagsins í
VÍS og árið 2002 voru hlutabréf í fé-
laginu skráð í Kauphöllinni að und-
angenginni sölu nýs hlutafjár til
hundraða starfsmanna VÍS annars
vegar og Landsbankans hins vegar.
Þá höfðu bankinn og S-hópurinn
staðið í áralöngum viðræðum um
hvort og hvernig ætti að standa að
markaðsvæðingu VÍS. Bankinn sótti
fast að skrá félagið en S-hópurinn
var ekki sagður mjög upprifinn yfir
því. Sterk tengsl voru á milli VÍS og
Olíufélagsins (Kers) og þótti hætt við
að þeim tengslum yrði hætta búin ef
S-hópurinn losaði um tök sín á VÍS.
Skráningin á markað varð þó að
veruleika og skömmu eftir hana seldi
Landsbankinn nánast allan eignar-
hlut sinn í VÍS (í tvennu lagi þó, með
hálfs árs millibili) til Kers, Eignar-
haldsfélagsins Samvinnutrygginga,
Samvinnulífeyrissjóðsins og Eignar-
haldsfélagsins Andvöku.
Ker selur í VÍS
Ker seldi reyndar af eign sinni fjórð-
ungshlut í VÍS haustið 2002 til Nor-
vikur, félags Jóns Helga Guðmunds-
sonar í Byko, sem aftur seldi hann til
Eignarhaldsfélagsins Hesteyrar. Á
fyrri hluta síðasta árs seldi Ker svo
tæpan fimmtungshlut sinn í VÍS,
sem var öll eign Kers, til Kaupþings
(nú KB banki).
Stærsti hluthafinn í VÍS í dag er
KB banki, sem á tæplega 30%. Sam-
vinnutryggingar eiga rúman fjórð-
ungshlut og Hesteyri, sem VÍS á
sjálft þriðjung í, á tæpan fjórðung.
Samvinnulífeyrissjóðurinn og And-
vaka eiga samtals tæplega 16%.
Fimm stærstu hluthafa í VÍS má því
tengja S-hópnum beint eða óbeint og
eiga þeir samtals tæplega 96% í
tryggingafélaginu. Markaðsverð-
mæti VÍS er í dag 15,8 milljarðar
króna.
Fjögur dótturfélög eru hluti af
samstæðu VÍS. Það eru Líftrygg-
ingafélag Íslands (LÍFÍS), sem er að
þremur fjórðu hlutum eign VÍS og í
fjórðungseigu Eignarhaldsfélagsins
Andvöku, Flutningar, Tölvur, sem
hefur nánast enga starfsemi, og
Traustfang.
Traustfang leyst upp
Hið síðastnefnda átti m.a. og seldi til
Kaupþings hlut í Frjálsa fjárfest-
ingabankanum (reyndar einnig VÍS,
Olíufélagið hf. og Samvinnulífeyris-
sjóðurinn) og var stærsti eigandi Ol-
íufélagsins þar til fyrir tveimur árum
síðan að Traustfang var leyst upp og
eignum skipt á milli eigenda, sem
voru auk VÍS, Olíufélagið, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Mundill,
dótturfélag Samskipa. Traustfang er
nú að fullu í eigu VÍS.
Hlutdeildarfélög VÍS eru fimm
talsins: Alþjóðlegar bifreiðatrygg-
ingar, sem er í eigu allra trygginga-
félaganna. Íslensk endurtrygging,
sem er verið að gera upp um þessar
mundir. Móklettur, sem rekur hótel í
Vík í Mýrdal og var í eigu Kaup-
félags Árnesinga en VÍS og Ker eiga
saman nær helming í því nú. Enn-
fremur á VÍS tæpan fjórðungshlut í
Öryggismiðstöð Íslands.
Loks er Hesteyri, sem VÍS á þriðj-
ungshlut í á móti Fiðskiðjunni Skag-
firðingi og Skinney-Þinganesi en
Hesteyri á aftur tæpan fjórðungs-
hlut í VÍS, eins og kom fram hér að
framan.
Áhersla á sjávarútveg
Óhætt er að telja að nokkur áhersla í
fjárfestingum VÍS í öðrum félögum
liggi á sviði sjávarútvegs. Meðal
eigna VÍS eru eignarhlutir í 10 sjáv-
arútvegsfélögum um allt land. Sex
þeirra eru með hlutabréf sín skráð á
markaði, það eru Grandi í Reykjavík,
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum,
SÍF (sem nánar er fjallað um hér á
eftir) Samherji á Akureyri, Tangi á
Vopnafirði og Þorbjörn-Fiskanes í
Grindavík. Hin fjögur eru Oddi á
Patreksfirði, Skinney-Þinganes á
Hornafirði, Loðnuvinnslan á Fá-
skrúðsfirði og Fiskiðjan Skagfirð-
ingur á Sauðárkróki, sem reyndar er
einnig í félagi við VÍS í gegnum
Hesteyri og á meirihluta í Skagfirð-
ingi sem Eimskipafélagið seldi
heimamönnum nýlega.
Verðmætasta eign VÍS er 4,37%
eignarhlutur í KB banka, að mark-
aðsvirði tæplega 4,9 milljarðar
króna. Það er sá hlutur sem VÍS
eignaðist við samruna Kaupþings og
Búnaðarbanka eftir kaup S-hópsins
á hlut ríkisins í þeim síðarnefnda.
VÍS átti einnig 2% hlut í Lands-
banka Íslands, að verðmæti um einn
milljarður króna, en sá hlutur var
seldur KB banka nýverið.
Stjórn VÍS skipa þeir Þórólfur
Gíslason (formaður) kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagfirðinga,
stjórnarformaður Hesteyrar og
stjórnarmaður í Samvinnutrygging-
um og Andvöku, Óskar Gunnarsson
(varaformaður) stjórnarformaður
Samvinnutrygginga og Andvöku og
fyrrum framkvæmdastjóri Osta- og
smjörsölunnar, Eiríkur Tómasson
framkvæmdastjóri Þorbjarnar-
Fiskaness, Margeir Daníelsson
framkvæmdastjóri Samvinnulífeyr-
issjóðsins, Helgi Jóhannesson fram-
kvæmdastjóri Norðurmjólkur, Ing-
ólfur Ásgrímsson, skipstjóri og einn
eigenda Skinneyjar-Þinganess, og
Sigurður Markússon, stjórnarmaður
í Samvinnutryggingum og Andvöku
og fyrrum stjórnarformaður SÍS.
Þess má geta að þeir Þórólfur, Ósk-
ar, Margeir og Sigurður hafa
löngum verið taldir til S-hópsins og
Þórólfur hefur gjarnan verið talinn
með valdameiri mönnum innan hóps-
ins.
Samvinnulífeyrissjóðurinn og
Ehf. Samvinnutryggingar
Eignarhaldsfélagið Samvinnutrygg-
ingar, Eignarhaldsfélagið Andvaka
og Samvinnulífeyrissjóðurinn hafa
gjarnan átt hlut að máli í fjárfest-
ingum S-hópsins í gegnum tíðina en
eignasöfn þessara félaga í dag tengj-
ast mjög VÍS. Félögin voru öll stofn-
uð í tengslum við gamla Sambandið
en starfsemi Samvinnutrygginga og
Andvöku er orðin mjög lítil eftir að
tryggingastofnar félaganna fluttust
yfir til VÍS og LÍFÍS.
Tryggingafélögin tvö voru gagn-
kvæm félög en á níunda áratug síð-
ustu aldar þótti orðið ljóst að rekstr-
arform gagnkvæmu
tryggingafélaganna hentaði ekki vel,
hlutafélagaformið hentaði betur. Af-
leiðingin var VÍS og síðar LÍFÍS en
eftir standa eignarhaldsfélögin tvö.
Samvinnulífeyrissjóðurinn hefur
hins vegar öllu meiri starfsemi með
höndum en starfsmenn Samskipa,
Olíufélagsins og VÍS eru meðal
þeirra helstu sem greiða iðgjöld til
sjóðsins.
Ker stofnað um Olíufélagið
Ker er eignarhaldsfélag sem upphaf-
lega var stofnað um eignir Olíufé-
lagsins hf. (Esso) og fyrsti fram-
kvæmdastjóri félagsins var fyrrum
Olíufélagsforstjórinn Geir Magnús-
son. Olíufélagið, eða Ker frá árinu
2002, var með hlutabréf sín skráð í
Kauphöllinni þar til sl. vor þegar fé-
lagið var yfirtekið og afskráð.
Fyrir ári síðan áttu VÍS, Sam-
vinnulífeyrissjóðurinn og Samvinnu-
tryggingar ríflega fjórðungshlut í
Keri en nokkrum mánuðum síðar
hafði eignarhaldsfélagið Vörðuberg
keypt öll hlutabréf tveggja fyrr-
nefndu og gerði í kjölfarið yfirtöku-
tilboð í hlutabréf annarra hluthafa í
Keri.
Langur aðdragandi var að yfirtök-
unni. Snemma hausts árið 2001 urðu
miklar breytingar á hluthafahópi
Kers (þá Olíufélagið) sem miðuðu að
því að styrkja stöðu hóps eigenda í
Samskipum í félaginu. Viðskiptin
voru afar flókin þar sem Ker eign-
aðist nálægt helmingshlut í Sam-
skipum og greiddi fyrir með hluta-
bréfum í 11 félögum, þ.á m. eigin
bréfum, bréfum í Vinnslustöðinni og
VÍS. Almennt var talið að þessi við-
skipti hefðu verið gerð af ótta við yf-
irtöku á Olíufélaginu. Fjárfestinga-
félagið Straumur hafði komið sér
upp tæpum fimmtungshlut í félaginu
og þótti líklegt að Jón Ásgeir Jó-
hannesson, forstjóri Baugs og þáver-
andi bankaráðsmaður í Íslands-
banka, stæði að kaupunum.
Yfirtaka og afskráning
Þegar upp var staðið höfðu þre-
menningarnir Ólafur Ólafsson, Jón
Kristjánsson og Jón Þór Hjaltason,
og skjólstæðingar þeirra, tryggt sér
um 40% í Olíufélaginu og náð með
því undirtökum. Þeir stóðu einmitt
að eignarhaldsfélaginu Vörðubergi,
sem yfirtók Ker á síðasta ári. Félag-
ið var í kjölfarið afskráð.
Vörðuberg átti eftir yfirtökuna um
76% hlutafjár í Keri og tæp 23% voru
í eigu Gerðis, dótturfélags Norvikur
(í eigu Jóns Helga í Byko) sem átti
þann hlut fyrir og tók þátt í yfirtök-
unni á Keri. Hann á nú engan hlut að
Keri.
Eigendur Kers eru í dag eignar-
haldsfélögin Kjalar, Sund, J&K,
Vogun og Fiskveiðahlutafélagið
Venus ásamt stjórnendum.
Kjalar er að mestu í eigu Ólafs
Ólafssonar, stjórnarformanns Sam-
skipa, og var um tíma stærsti hlut-
hafi Samskipa.
Sund, sem einnig var áður stór
hluthafi í Samskipum, er í eigu fjöl-
skyldu Óla Kr. Sigurðssonar sem
jafnan var kenndur við Olís og er Jón
Kristjánsson, forsvarsmaður félags-
ins. Sund er stærsti hluthafinn í SÍF
með 18,5% hlutafjár.
J&K er í eigu Jóns Þórs Hjalta-
S-hópurinn skiptist
í tvær blokkir
Þau miklu eignatengsl sem voru á árum áður á milli Olíufélagsins og Vátryggingafélagsins eru orðin að litlu.
Soffía Haraldsdóttir skoðaði tengsl þeirra félaga sem keyptu kjölfestuhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands.
S-HÓPURINN
Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson yfirgefa fundarstað eftir undirskrift sam-
komulags um kaup S-hópsins á hlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands.