Morgunblaðið - 09.02.2004, Side 8
FRÉTTIR
8 MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Með sama áframhaldandi herbrölti verður varla langt í að herinn okkar, „Bjarnason army“,
verði sendur í bein átök.
Knattspyrnuskóli Bobbys Charltons
Það er alltaf
farið á völlinn
Hingað til lands erkominn Englend-ingurinn Ian
Bateman sem er skóla-
stjóri Knattspyrnuskóla
Bobbys Charltons. Skól-
inn sá er skammt frá
Blackpool, aðeins um
klukkustundarferð frá
Manchester. Erindi Ba-
temans hingað til lands er
að kynna skólann bæði
sunnan heiða og norðan.
Bateman er hér á vegum
ÍT-ferða og forkólfur á
þeim bæ er fyrrverandi
landsliðsmaður í knatt-
spyrnu og handknattleik
með meiru, Hörður Hilm-
arsson. Morgunblaðið
ræddi við hann um heim-
sókn Batemans.
Hver er Ian Bateman
Hörður?
„Hann er skólastjóri þessa
þekkta og virta knattspyrnu-
skóla, Knattspyrnuskóla Bobbys
Charltons. Að vísu kemur Charl-
ton ekki við sögu í skólanun leng-
ur, eigendaskipti urðu fyrir
nokkrum árum, en nafnið stend-
ur. Bateman er þrautreyndur
knattspyrnuþjálfari, m.a. ung-
lingaþjálfari hjá úrvalsdeildar-
félaginu Bolton og hefur rekið
þennan skóla af slíkum mynd-
arskap að hann er talinn einn sá
frægasti og besti í dag. Íslend-
ingar hafa átt gott og farsælt
samstarf við Ian Bateman og
skóla hans og hann hefur oft
komið hingað áður.“
Hver er dagskrá Batemans?
„Hann verður með fund og
sýnikennslu í Boganum og fund í
félagsheimili Þórs á Akureyri í
dag og á morgun verður hann í
Reykjavík og verður þá með
fund í Íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal klukkan 20.“
Þið hafið sem sagt sent krakka
í þennan skóla áður?
„Já, það höfum við oft gert og
Samvinnuferðir-Landsýn á und-
an okkur.Vinsældirnar eru mikl-
ar og ferðirnar standa alltaf und-
ir væntingum og vel það. Það
hafa farið 100 til 200 krakkar á
okkar vegum í skóla þennan síð-
ustu árin og þetta eru ævinlega
viku til tíu daga ferðir sem farn-
ar eru í kringum verslunar-
mannahelgina. Þetta er fyrir
börn á aldrinum tólf til sautján
ára, bæði stráka og stelpur, ein-
staklinga, hópa eða einstök lið.
Kennslan og dagskráin eru snið-
in eftir aðstæðum hverju sinni,
lið sem fara út leika sem lið og
búin eru til lið úr hópum og ein-
staklingum þannig að allir geti
verið með. Hluti af kennslunni
eru leikir við ensk lið og mót-
herjarnir valdir eftir styrkleika
til að leikirnir séu eins jafnir og
frekast er kostur.“
Eru frægir kennarar?
„Ekki í þeim skilningi að um
fræg knattspyrnunöfn sé að
ræða, en þetta eru upp til hópa
hæfir og menntaðir kennarar og
kennslan er á mörgum sviðum.
Það er ekki bara verið
að sparka bolta, þarna
er líka kennsla í hlut-
um eins og næringar-
fræði, íþrótta- og ár-
angurssálfræði og
margt fleira. Síðan eru þessar
ferðir af því tagi að það er aldrei
að vita hvað dúkkar upp. Það er
til dæmis alltaf farið á völlinn. Á
þessum tíma leika liðin venjulega
athyglisverða æfingaleiki eða
taka þátt í smámótum og oftar
en ekki komast krakkarnir á
völlinn hjá frægum liðum. Skól-
inn er miðja vegu á milli
Blackpool og Fleetwood, aðeins
klukkustundarferð frá Man-
chester til að mynda. Einu sinni
komumst við á leik með Liver-
pool og Valencia og í öðru tilviki
fór hópurinn á fyrstu opinberu
æfinguna á Old Trafford þar sem
rúmlega 40 þúsund manns borg-
uðu sig inn til að sjá nýju andlitin
það árið. Þá vorum við á leiknum
um Góðgerðarskjöldinn milli
Arsenal og Manchester United í
ágúst síðastliðnum, þannig að
það er eftir mörgu að slægjast
fyrir þessa fótboltakrakka. Ein
mamman sem fór með hópnum
einhverju sinni hafði á orði að
allir krakkar sem hefðu á annað
borð gaman af knattspyrnu ættu
að fara einu sinni á ævinni í
svona ferð.“
Ekki muna krakkarnir eftir
Bobby Charlton?
„Nei kannski ekki, en foreldr-
ar þeirra muna eftir honum og
krakkarnir þekkja David Beck-
ham. Hann var tvisvar í þessum
knattspyrnuskóla, tólf og þrettán
ára gamall, og það er mynd
þarna af Bobby Charlton og
David Beckham þegar hann var
tólf ára. Það var einhver knatt-
leiknikeppni þarna sem Beck-
ham náði ekki að vinna, sem varð
til þess að hann kom aftur árið
eftir, þá þrettán ára, og vann þá
keppnina með þvílíkum yfirburð-
um að metið stendur enn. Krakk-
arnir geta því borið sig saman
við Beckham þegar hann var
þrettán ára. Það er
sagt að Bobby Charl-
ton hafi spurt Beck-
ham á þessum tíma
hvort hann væri búinn
að setja sér einhver
markmið fyrir framtíðina. Beck-
ham hélt það nú, og greindi
Charlton frá því að það væri
tvennt sem hann stefndi að. Ann-
að væri að leika með Manchester
United og vera þar í peysu núm-
er sjö. Hitt markmiðið í lífinu
væri að komast í enska landsliðið
og verða fyrirliði þess. Það er því
óhætt að segja að markmið
Beckhams hafi gengið eftir.“
Hörður Hilmarsson
Hörður Hilmarsson fæddist
21. nóvember 1952. Hann er
framkvæmdastjóri ÍT-ferða. Eig-
inkona hans er Rita Kárason og
eru börn þeirra Bryndís f. ’80,
Sara Mildred f. ’90 og Birna Ósk
f. ’94. Hörður er kennaramennt-
aður og starfaði lengi við
kennslu, einnig var hann hand-
knattleiks- og knattspyrnuþjálf-
ari um árabil. Hefur starfað við
ferðaþjónustu frá 1986, hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn og Úrvali-
Útsýn, en hjá ÍT-ferðum frá
haustinu ’96. Sérgrein þar er
íþróttatengd ferðaþjónusta og
markaðssetning á Reykjavík og
Íslandi.
… geta borið
sig saman við
Beckham