Morgunblaðið - 09.02.2004, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 27
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú gætir lent í orðaskaki við
vin í dag og ástæðan er senni-
lega sú að þú ert eitthvað við-
kvæmur, en það er ástæðu-
laust að láta æsa sig upp.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú líður ekki nokkrum manni
að vera ókurteis við þig í dag,
ekki einu sinni yfirmanni þín-
um eða foreldrum. Sjálfs-
traustið er í lagi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú skalt sýna öðrum þol-
inmæði í dag. Barnaleg við-
brögð gætu viljað brjótast
fram, en best er að streitast
gegn þeim svo að þú skamm-
ist þín ekki seinna.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það borgar sig ekki að rífast
um eignir og skuldir. Betra
væri að hugsa til þess þegar
allir voru sáttir og læra af því.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Viðræður við yfirmenn og
starfsfélaga gætu leitt til
deilna. Þú gætir verið skap-
styggur í dag, en ekki missa
stjórn á þér. Þú munt sjá eftir
því.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Annaðhvort ert þú í slæmu
skapi eða þú dregur til þín
fólk, sem er það. Hafðu hug-
fast, það þarf tvo til að rífast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Deilur milli elskenda gætu
blossað upp í dag. Rétt er að
nota tækifærið til þess að tala
út um hlutina og fá þá á
hreint.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Farðu varlega í dag, klaufa-
skapur gæti valdið slysi, eink-
um heima fyrir. Innibyrgðar
tilfinningar gætu valdið því að
öðrum finnist þú tillitslaus.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Líkt og sporðdrekinn gætir
þú átt á hættu að verða fyrir
slysi í dag. Farðu varlega
þegar þú ert á ferðinni, hvort
sem það er fótgangandi eða
undir stýri.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Peningamál gætu valdið
vandræðum í dag og það gæti
verið rétt að vera við öllu bú-
inn eftir því sem líður á dag-
inn.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Merkúr er í vatnsberanum í
dag og afstaða hans til Mars
gerir að verkum að allir eru á
nálum. Þú þarft að sýna meiri
þolinmæði en endranær.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ekki reyna að hafa betur í
rökræðum eða rifrildi í dag.
Það er ekki þess virði og
betra að sýna þolinmæði
þannig að aðrir verði vand-
ræðalegir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Afmælisbörn dagsins lifa
spennandi lífi. Þið eruð full af
orku og laðið að ykkur fólk.
Áhugi ykkar smitar út frá sér.
Árið framundan gæti orðið
mjög gott.
VATNSBERI
HVAR ERU SKIPIN –
Hvar eru skipin, sem við sigldum á
til sólarlandsins yfir höfin blá,
og fákurinn, sem fyrr með okkur rann
til fjallsins, þar sem vafurloginn brann?
Hvar eru þau hin töfralýstu torg
og turnarnir á okkar hvítu borg?
Hvar eru öll hin hvelfdu súlnagöng
og kliðurinn í vatnsins perlusöng,
og hvar er það hið gamla, vígða vín,
sem vermir kalda, gefur blindum sýn,
og hvar er það hið forna fórnarbál,
sem friðar hjartað, hvílir þreytta sál,
og harpan gullna, er grét í höndum mér
af gleði, er eg sat við fætur þér,
og brúðarsængin rauðum rósum stráð
og rökkrið helga og augnabliksins náð?
---
Við brotin skipin bylgjur stíga dans
á borgarrústum okkar sokkna lands.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
LJÓÐABROT
Nú er tími til kominn að
láta reyna á útspilið. Eins
og gengur og gerist í nú-
tímabrids fylgir lesandinn
þeirri meginreglu að spila
út þriðja eða fimmta hæsta
frá lengd gegn trompsamn-
ingum. Það er grunnreglan.
Þraut sex:
Norður
♠753
♥KG9762
♦KG94
♣–
Vestur Norður Austur Suður
– 2 hjörtu Pass 3 hjörtu
3 spaðar Pass 4 spaðar Pass
Pass Pass
Lesandinn er gjafari og
vekur á veikum tveimur í
hjarta, sem lofar sexlit og
5–10 punktum. Makker
hækkar hindrandi í þrjú
hjörtu, en það kemur ekki í
veg fyrir að AV blandi sér í
sagnir og niðurstaðan verð-
ur sú að vestur spilar fjóra
spaða.
Hvert er útspilið?
– – –
Norður
♠753
♥KG9762
♦KG94
♣–
Vestur Austur
♠ÁKD96 ♠G84
♥104 ♥83
♦105 ♦ÁD73
♣ÁK76 ♣D1043
Suður
♠102
♥ÁD5
♦862
♣G9852
Lausn: Strax frá upphafi
sér norður fyrir sér
draumavörnina: Koma
makker inn á hjarta og fá
lauf til baka. Ef suður á
tvær innkomur á hjarta er
hugsanlega möguleiki á
tveimur stungum. Þetta er
einfalt á opnu borði, en
hvernig á að fá makker til
að skilja alvöru málsins og
spila laufi? Leiðin til þess er
að sveigja frá hefðbundinni
úrspilsreglu – spila ekki út
hjartasexu (fimmta hæsta),
heldur lægsta hjarta, eða
tvistinum. Ef það er krist-
altært í kerfinu að opnun á
veikum tveimur lofi sexlit,
þá mun suður átta sig á því
að útspilið er brot á reglu.
Og reglur eru ekki brotnar
nema til að segja einhverja
sögu – kveikja á perunni hjá
makker. Sé suður vakandi
mun hann átta sig á því að
hjartatvisturinn er beiðni
um lauf, eða hliðarkall
(lægra spila fyrir lægri lit).
Hann tekur með hjartaás
og spilar nákvæmt laufníu
til baka (háu spili til að sýna
fram á aðra mögulega inn-
komu á hjarta (en þó ekki
kónginn)). Það er vanda-
laust fyrir norður að túlka
það spil og þegar hann hef-
ur trompað mun hann aftur
spila undan hjartakóng og
þiggja aðra stungu. Hrein
snilld.
Stig: Þú færð 10 stig fyrir
að spila út hjartatvisti, ann-
ars því miður ekkert.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
80 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 9. febr-
úar, er áttræður Einar H.
Guðmundsson, Reykjanes-
vegi 10, Reykjanesbæ.
1. e4 c5 2. Rc3 d6 3. f4 g6
4. Rf3 Bg7 5. Bc4 Rc6 6. d3
e6 7. a3 Rge7 8. Ba2 d5 9.
Bd2 b6 10. O-O O-O 11.
De1 Rd4 12. Rxd4 cxd4 13.
Rd1 dxe4 14. dxe4 Ba6 15.
Hf3 Hc8 16. Hc1 Bc4 17.
Bb1 Dd7 18. e5 f6 19. exf6
Hxf6 20. Rf2 e5 21. Re4
Hff8 22. c3 exf4 23.
Hxf4 Rd5 24.
Hxf8+ Hxf8 25.
Dh4 Df7 26. h3 Be5
27. De1 Rf4 28. Rg3
Staðan kom upp í
alþjóðlegu móti sem
lauk fyrir skömmu í
Bermúda. Boris
Gelfand (2709) hafði
svart gegn Bartlo-
miej Macieja (2653).
28... Rxg2! 29. Dxe5
29. Kxg2 gekk ekki
upp vegna
29...Df3+. 29...
Df2+ 30. Kh1 Rh4!
31. Be4 Rf3 32. Bd5+
Svartur hefði einnig unnið
eftir 32. Bxf3 Dxf3+ 33.
Kh2 Df2+ 34. Kh1 Dxd2.
32... Bxd5 33. Dxd5+ Kh8
og hvítur gafst upp enda
fátt um varnir. Meist-
aramót Taflfélagsins Hellis
hefst í húsakynnum félags-
ins, Álfabakka 14a, í kvöld,
9. febrúar. Nánari upplýs-
ingar um mótið er að finna
á heimasíðu félagsins,
www.hellir.is.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
H
rin
gb
ro
t
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Sagðir þú ekki að nýja blómið æti skordýr?
MEÐ MORGUNKAFFINU
KIRKJUSTARF
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 og
kl. 17.30 í neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl.
20.
Laugarneskirkja. Opinn tólf sporafundur
kl. 18.00 í safnaðarheimilinu. Umsjón hef-
ur Arnheiður Magnúsdóttir. Allt fólk vel-
komið. Vinir í bata. Tólfsporahópar koma
saman kl. 20.00. Gengið inn um aðaldyr
safnaðarheimilis. Umsjón hafa Guðlaugur
Ólafsson og Hafdís Margrét Einarsdóttir.
Neskirkja. 6 ára starf kl. 13.40. Sögur,
söngur, leikir og föndur. Uppl. og skráning í
síma 511 1560. TTT-starf kl. 16.30. Starf
fyrir 10–12 ára börn. Leikir, ferðir o.fl.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN-
starf með sjö til níu ára börnum í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13–15.30,
spilað og spjallað. Kaffiveitingar. Þeir sem
óska eftir akstri láti vita í síma 557 3280
fyrir hádegi. Fyrirbænastund í kapellu kirkj-
unnar kl. 15.30. Bænaefnum má koma til
djákna, presta eða annarra starfsmanna
kirkjunnar. Stúlknastarf fyrir 11–12 ára kl.
16.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga í 8.,
9. og 10. bekk kl. 20–22. Umsjón Stefán
Már Gunnlaugsson
Grafarvogskirkja. Kirkjukrakkar fyrir börn
á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–18.30 í
Engjaskóla. KFUK fyrir stúlkur á aldrinum
9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Seljakirkja. KFUK 9–12 ára kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16
ára og eldri kl. 20–22.
Ástjarnarsókn. Ponzý (unglingastarf ætl-
að árg. 1990 og upp úr) á mánudögum kl.
20–22.
Lágafellskirkja. Bænastund í Lágafells-
kirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tekur
við bænarefnum í síma 691-8041 alla
daga frá kl. 9–16. Al-Anon fundur í Lága-
fellskirkju kl. 21. Barnastarf kirkjunnar,
Kirkjukrakkar, fyrir 6 og 7 ára börn er í Var-
márskóla kl. 13.15–14.40. Umsjón hefur
Þórdís djákni.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30–
16.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 15 heim-
ilasamband fyrir alla konur. Kl. 17 Örkin
hans Nóa, fyrir 1., 2. og 3. bekk. Kl. 18 KK
fyrir 4. og 5. bekk.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 20
bænastund. Beðið fyrir öllum samkvæmt
innsendum bænarefnum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Laugarneskirkja
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Útsala
stærðir 36-46
Árshátíðarkjólar
Húsgögn
Ljós
Gjafavara
Mörkinni 3, sími 588 0640
www.casa.is
Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15.
ÁRNAÐ HEILLA