Morgunblaðið - 09.02.2004, Side 29
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. FEBRÚAR 2004 29
Stóra svið
Nýja svið og Litla svið
CHICAGO eftir J. Kander, F. Ebb og B. Fosse
Fö 13/2 kl 20, - UPPSELT, Lau 14/2 kl 20 - UPPSELT,
Su 15/2 kl 20-UPPSELT, Fö 20/2 kl 20 - UPPSELT,
Lau 21/2 kl 20 - UPPSELT, Su 22/2 kl 20 - UPPSELT,
Lau 28/2 kl 20 - UPPSELT, Su 29/2 kl 20, - UPPSELT,
Mi 3/3 kl 20 - UPPSELT Fö 5/3 kl 20 - UPPSELT
Lau 6/3 kl 20 - UPPSELT, Su 7/3 kl 20 - UPPSELT,
Fö 19/3 kl 20 - UPPSELT, Lau 20/3 kl 20 - UPPSELT,
Fi 25/3 kl 20 AUKASÝNING
Fö 26/3 kl 20, - UPPSELT, Lau 27/3 kl 20 - UPPSELT,
Fi 1/4 kl 20 - AUKASÝNING
Fö 2/4 kl 20, - UPPSELT, Lau 3/4 kl 15 - AUKASÝNING
Lau 3/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 16/4 kl 20,
Lau 17/4 kl 20, - UPPSELT, Su 18/4 kl 20
Fi 22/4 kl 20, Fö 23/4 kl 20, Lau 24/4 kl 20
Ósóttar pantanir seldar daglega
Miðasala: 568 8000
Nýr opnunartími: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00 - 18:00
miðviku-, fimmtu- og föstudaga: 10:00 - 20:00
laugardaga og sunnudaga: 12:00 - 20:00
www.borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is
Meira (en) leikhús!
SPORVAGNINN GIRND e. Tennessee Williams
Fö 13/2 kl 20, Lau 14/2 kl 20,
Fö 20/2 kl 20, Su 22/2 kl 20
Su 22/2 kl 20, Lau 28/2 kl 20, Su 29/2 kl 20
ERLING eftir Hellstenius/Ambjörnssen
su 15/2 kl 20. Lau 21/2 kl 20
Aðeins þessar sýningar
IN TRANSIT e. THALAMUS
í samvinnu við leikhópinn THALAMUS
Mi 11/2 kl 20, Fi 12/2 kl 20, Fi 19/2 kl 20
Lau 21/2 kl 14:30 - Á Reykjavíkurflugvelli!
Su 22/2 kl 14, Fi 26/2 kl 20, Fö 27/2 kl 20
Sýningin er á ensku - Aðeins þessar sýningar
ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield
Fi 12/2 kl 20, Lau 13/3 kl 20
Síðustu sýningar
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Lau 14/2 kl 14, - UPPSELT, Su 15/2 kl 14, -UPPSELT,
Su 22/2 kl 14, Lau 28/2 kl 14, Su 7/3 kl 14,
Lau 13/3 kl 14, Su 14/3 kl 14
GLEÐISTUND
FORSALURINN OPNAR KLUKKUTÍMA FYRIR KVÖLDSÝNINGU
****************************************************************
VIÐ MINNUM KORTAGESTI Á VALSÝNINGAR
Ath:. Ekki er hægt að hleypa í salinn eftir að sýning hefst
DRAUGALEST e. Jón Atla Jónasson
FRUMSÝNING mi 18/2 kl 20 - UPPSELT
Fi 19/2 kl 20, Fi 26/2 kl 20, Fö 27/2 kl 20
Gríman 2003
„BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“ að mati áhorfenda
sjá nánari upplýsingar á www.sellofon.is
Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700
og sellofon@mmedia.is
IÐNÓ
Fös. 13. feb. k l . 21:00 örfá sæti
Lau.14. feb. k l . 19:00 nokkur sæti
Lau. 21. feb. k l . 19:00 nokkur sæti
Fim. 26. feb. k l . 21:00 nokkur sæti
.
Sýningar hefjast kl. 20
Miðasala í síma 555-2222
Miðsala opin mið til lau, kl. 16 - 19
Ath. leikhúsumræður eftir sýningu
Lau. 7. feb. nokkur sæti
Fös. 13. feb. nokkur sæti
Lau. 14. feb. nokkur sæti
Fös. 20. feb.
Lau. 21. feb.
Fös. 27. feb.
Lau. 28. feb.
„Hrein snilld í Hafnarfjarðarleikhúsinu“
Valur Gunnarsson DV 7. jan.
„...töfrar Hafnarfjarðarleikhússins losna
fyrir alvöru úr læðingi“ „stórviðburður“
Þorgeir Tryggvason Mbl. 9. jan.
„Sýningin er skemmtileg, litrík,
fjölbreytileg, full af glæsilegum
og skínandi hugmyndum“
Páll Baldvin DV 10. jan
loftkastalinn@simnet.is
Fös. 13. feb. kl. 20 örfá sæti laus
Fös. 20. feb. kl. 20 laus sæti
Lau. 21. feb. kl. 20 nokkur sæti
Fös. 27. feb. kl. 20 laus sæti
Lau. 13. mars kl. 20 laus sæti
„Frábært-drepfyndin-átakanlegt“
Opið virka daga kl. 13-18
Vinsælasta sýning leikársins heldur áfram
Yfir 30 þúsund gestir!
Mið. 11. feb. kl. 19.00 Uppselt
Mið. 25. feb. kl. 19.00 laus sæti
Sun. 29. feb. kl. 15.00 örfá sæti laus
Selma Björnsdóttir fer í hlutverk Krissu.
Birgitta Haukdal heldur áfram sem Sandy
Jónsi heldur áfram sem Danni
lau. 14. feb. kl. 20
- laus sæti
Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og
fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu: 511 4200
www.opera.is
Brúðkaup
Fígarós
eftir Mozart
Frumsýning sun. 29. feb. kl. 19
2. sýning fim. 4. mars kl. 20
3. sýning lau. 6. mars kl. 19
ÞAÐ var gaman að sjá öll þessi
ungu andlit á Kaffi List geislandi af
djassáhuga og þannig er mér sagt
að sé öll fimmtudagskvöld og nú
hefur laugardagskvöldum verið
bætt við í djasssafnið. Fín djass-
vakning það.
Að þessu sinni var boðið uppá
samnorrænan djass. Kvartettinn
Rodnet er skipaður finnska tromp-
etleikaranum Jarko Hakala, Hauki
Gröndal saxista úr Garðabæ,
norska bassaleikaranum Lars Tor-
mod Jensen og Helga Svavari
Helgasyni trommara frá Siglufirði.
Þeir félagar hafa starfað saman
með hléum í nær þrjú ár og kynnt-
ust á Rýþmíska konservatoríinu í
Kaupmannahöfn. Kvartettinn fékk
styrk til tónleikaferðar um Norð-
urlönd og auk þess til að taka upp
geisladisk sem var gert í Reykjavík
í síðustu viku. Semsagt djasssveit
sem ráðamenn menningar í norðri
hafa trú á.
Ég held að þeir háu herramenn
hafi ekki veðjað á vitlausan hest. Í
það minnsta var kvartettinn ansi
áheyrilegur á tónleikunum á Kaffi
List. Þótt tónlistin væri að hluta
frjálsleg var þó hinn hefðbundni
þáttur sterkari enda hljóðfæraleik-
ararnir auðheyrilega vel menntaðir
í nýboppi margháttar semog kunn-
ugir þjóðlegri tónlist Balkanskaga
sem gyðinga.
Flest voru verkin eftir Hauk
Gröndal, laglega samin þótt fæst
geymist í minni eftir frumheyrn.
„Þorleifur Repp“ hét hið fyrsta, til-
einkað forföður Hauks, hinum
þekkta málamanni sem kunni meir-
að segja ungversku og ritaði grísku
allra manna best. Hvort frjálsi altó-
sólóinn hans með tillærðri reiði af
ætt Aylers og Shepps var lýsing á
æði Repps er honum var vikið frá
doktorsvörn í Höfn veit ég ekki, en
Hauki lætur betur að blása á hefð-
bundnari nótum. Það gerði Jarko
Hakala svikalaust og tónninn breið-
ur og sterkur svo minnti stundum á
Henry Allen á efri árum. Hann var
lítið á frjálsu línunni og hafði því
meir gaman að bregða fyrir sig
frösum frá Dizzy og fleiri góðum
mönnum. Stundum var hann svo
góður að minnti á Howard Robert-
son með Hilmari á djasshátíðinni.
Haukur blés margan góðan altó-
sólóinn og einnig nokkuð í klarin-
ettið og er tónn hans af hinum
klassíska skóla einsog hjá Buddy
DeFranco og Jimmy Hamilton,
meirað segja þegar hann var á
austurlensku nótunum. Lars Tor-
mod fór mikinn á bassann og lék
einsog menntuðustu frjálsdjass-
bassistarnir, nóturnar margar og
tæknin góð. Afturá móti var hann
bestur í kompinu, hvort sem það
var rokkað með orkuboltann Helga
Svavar við stýrið eða þegar hann
brá fyrir sig göngubassanum. Helgi
Svavar var fínn í rýþmanum og
ekki háværari en það að félagar
hans nutu sín allir þótt ekkert væri
magnað.
Haukur Gröndal er aflvaki og
höfuðábyrgðarmaður þessa kvart-
etts.
Það var meira skrifað en spunnið
í tónlistinni og allt í góðu með það.
Slíkt hefur einkennt hvíta frjáls-
djassinn í Bandaríkjunum ólíkt
þeim svarta og þýska og enska. Við
fyrstu heyrn var þetta skemmtileg
tónlist og oft leikandi létt og ég
hlakka til að fá diskinn með þeim
félögum með vorinu.
Frjálst en
bundið
DJASS
Kaffi List
Jarko Hakala trompet, Haukur Gröndal
altósaxófón, klarinett og bassetthorn,
Lars Tormod Jensen bassa og Helgi Svav-
ar Helgason trommur. Fimmtudags-
kvöldið 30.1. 2003.
RODNET
Vernharður Linnet
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Helgi Svavar Helgason þykir sett-
legur á trommusettinu og gefur fé-
lögum sínum gott rými.
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Haukur Gröndal þykir gríðargóður
lagahöfundur og skapandi og frísk-
legur listamaður.