Vísir - 26.06.1981, Side 9

Vísir - 26.06.1981, Side 9
Föstudagur 26. júni 1981 AuOarbók Auðuns. Lands- samband sjálfstæOiskvenna og Hvöt gáfu út 1981. Elina Pálma- dóttir, Hannes H. Gissurarson og Ragnhildur Helgadóttir sáu um útgáfuna. Auður Auðuns er einn helsti brautryðjandi islenskra kvenna. Hún fæddist árið 1911 — árið sem lögin um rétt kvenna til náms og embætta voru sett. Þau lög voru áfangi i jafnréttis- baráttu kvenna og voru sett um leið og lögin um Háskóla Islands sem var einn lokaáfanginn i sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Auður varð einna fyrst is- lenskra kvenna til að notfæra sér löggjöfina frá 1911 þvi hún var fyrsta konan sem lauk laga- prófi frá Háskóla íslands (1935). Hún var eini kvenlögfræðingur- inn i mörg ár — en nú á dögum þykir ekki tiltökumál þótt kona ljúki háskólaprófi. Það er dæmi um hve langan tima það hefur tekið að lifga við lifvana laga- bókstaf. En Auður Auðuns braut isinn á fleiri sviðum, hún var borgar- fulltrúi i Reykjavik um aldar- fjórðungsskeið, átti sæti i borg- arráði i nær tvo áratugi, hún var forseti borgarstjórnar um langt árabil, borgarstjóri var hún á- samt Geir Hallgrimssyni 1959-- 1960, þingmaður i fimmtán ár og dóms- og kirkjumálaráðherra i ráðuneyti Jóhanns Hafstein 1970-1971. Auðarbók Auðuns Auður hefur lengi verið einn helsti leiðtogi sjálfstæðiskvenna og þvi vel við hæfi af þeim að gefa út Auðarbók Auðuns i til- efni sjötugs afmælis hennar á þessu ári. 1 bókinni eru ritgerðir eftir 8 karla og 8 konur. Höfundar greinanna eru: Agnar Kl. Jónsson sem fjallar um veru sina i lagadeild Há- skólans fyrir fimmtiu árum, Ás- laug Friðriksdóttir ,ritar um þróun fræðslumála i Reykjavik, Baldur Möller f jallar um rikis- borgararéttinn, Bessí Jóhanns- dóttir skrifar um Ingibjörgu H. Bjarnason alþingismann, Esth- er Guðmundsdóttirritar um ný viðhorf i jafnréttismálunum, Friðrik Friðriksson fjallar um þá spurningu hvort markaðs- sósialismi sé framkvæmanleg- ur, GeirHallgrimssonrifjar upp borgarstjórnarkosningarnar i Reykjavik 1946, Gisli Jónsson skrifar um sjöunda júli 1915 (þegar því var fagnað að konur fengu full stjórnmálaréttindi), Halldór Guðjónsson ritar um menntun framtiðarinnar, Ingi- björg Kafnar fjallar um réttar- hjálp án endurgjalds, Kjartan Gunnarsson skrifar um það hvernig Islendingar geti best gætt öryggis sins, Kristin Norð- fjörðritarum merkisbera frels- is í Ráðstjórnarrikjunum, Matt- hias Johannessen skrifar um frelsi listamannsins og heildar- hyggjuna, ólafur Björnsson ræðir aðdragandann að við- reisnarstjóminni, ólöf Bene- diktsdóttir ritar um Þorbjörgu Sveinsdóttur, Sigriður Snævarr fjallar um kenningu Hönnu Ar- endt um alræðisstefnuna, Stein- unn Margrét Lárusdóttir ritar um nýlega lagasetningu um upptöku ólöglegs sjávarafla og grein ÞórisKr. Þórðarsonarber yfirskriftina „Frá framfærslu til endurhæfingar”. Einangrun kvenna Eins og að framan sést eru höfundar bókarinnar á öllum aldri og hafa ólikan bakgrunn. Sumir eru með mikla reynslu af ritstörfum og fræðimennsku en aðrir að stiga sin fyrstu spor. Vitaskuld sjást þessa merki i mismunandi efnistökum en i heild er bókin mjög frambæri- leg og útgefendunum til sóma. Ragnhildur Helgadóttir, fyrr- verandi alþingismaður, ritar formála að bókinni og segir þar á einum stað: „Stefnt var að þvi, að greinarnar i bókinni yrðu ekki stjórnmálagreinar, heldur um ýmis efni er höfund- arnir hafa sérþekkingu á og rit- uðu um, til heiðurs Auði. Grein- arnar eru þvi fjölbreyttar að efni og tengjast hugðarefnum hennar og viðfangsefnum”. Þetta er i góðu samræmi við það sem Ragnhildur segir á öðrum stað i formálanum og er þá að VÍSIR Auöarbók Auöuns lýsa Auði Auðuns: „Auður er vissulega fulltrúi allra sjálf- stæðismanna, kvenna sem karla og einskorðaöi störf sin engan veginn við kvenréttindamál- efni”. Hér held ég að Ragnhildur tæpi á mikilvægum þætti jafn- réttismálanna — hvort sumar kvenréttindakonur einangri sig ekki um of i málaflokkum sem einkum hafa verið taldir til á- hugamála kvenna en láti önnur Hreinn Loftsson skrifar: keppa á jafnréttisgrundvelli við karlmenn. Kommúnistar hafa sýnt andlit sitt og um það er ekkert meira að segja. Konur eiga að skipa sér á bekk með frjálshyggjumönnum, þvi hvað eru kvenréttindi annað en við- urkenning á sjálfsögðum rétti einstaklinga? Frelsi þjóðar og ein- staklings Eg minntist á að kommúnist- mál sig litlu varða. Að minnsta kosti eru þær konur ekki marg- ar sem kvatt hafa sér hljóðs á opinberum vettvangi til að fjalla um önnur mál en dagvist- unarmál, menntamál,, heil- brigðis- og tryggingamál og svo auðvitað jafnréttismál. Vita- skuld eiga konur ekki að hætta að fjalla um þessa tiltekn'u málaflokka en er ekki vandinn að einhverju leyti sá hver fáar hafa sýnt áhuga á öðrum mál- efnum svo sem efnahagsmál- um, iðnaðar- og orkumálum og málefnum atvinnuveganna? Auðar kom fram að á þvi tima- bili náðu aðeins tólf konur kosn- ingu til Alþingis. Þær skiptust þannig milli flokka að sex hlutu kosningu fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, þrjár fyrir kommúnista, ein fyrir Framsóknarflokkinn, ein fyrir Alþýðuflokkinn og ein var kjörin utan flokka. Sömu sögu er að segja af öðrum sviðum þjóðlifsins: hlutur kvenna er á flestum sviðum of rýr. Þrátt fyrir allt þetta mega konur ekki gefast upp — miklu fleiri þurfa að fylgja brauðryðj- endum eins og Auði Auðuns og ar — sem reynt hafa að eigna sér kvennabaráttuna — hefðu sýnt sitt sanna eðli i jafnréttis- málunum. I Auðarbók Auðuns er grein sem lýsir lifi tveggja sovéskra skáldkvenna undir kommúnisku skipulagi og þar er að finna skýringu á þvi hvers vegna skilja ber orð kommún- ista um „jafnrétti” og „kven- frelsi” sem innantóm vigorð. Grein þessi nefnist „Merkis- berar frelsis i Sovétrikjunum” og er eftir Kristinu Norðfjörð. Sú grein sýnir vel að tómt mál erað tala um kvenréttindi undir Timabundin forrétt- indi? Sú hugmynd hefur nýlega skotið upp kollinum að rétt sé að veita konum timabundin for- réttindi til að flýta fyrir þróun- inni iátt til fulls jafnréttis. Um- ræður um þetta urðu miklar á siðastliðnum vetri einkum vegna þess að kommúnisti i rik- isstjórn sýndi sitt rétta andlit i jafnréttismálunum. Esther Guðmundsdóttir tekur þessi nýju viðhorf til umfjöllunar i grein sinni og rekur helstu rök með og á móti. Niðurstaðan i grein hennar er á þá leið að ekki eigiað veita konum timabundin forréttindi. Orðrétt segir Esther um þetta efni: Ég tel það andstætt jafn- réttishugsjóninni að veita öðru kyninu forréttindi. Ef slik á- kvæði yrðu sett i lög, gæti það jafnvel orðið til þess aö vekja andúð manna á jafnréttismál- um og eyðileggja eitthvað af þeim árangri sem náðst hefur i baráttunni fyrir jafnrétti kynj- anna. Ég held að konur verði á- fram að berjast fyrir jafnrétti við hlið karla á jafnréttisgrund- velli, sýna og sanna, að þær eru þeim jafnokar á nær öllum svið- um og reyna þannig að breyta rótgrónum viðhorfum manna á verkaskiptingu kynjanna innan heimilis sem utan”. Auður Auðuns komst að svip- aðri niðurstöðu i grein sem hún ritaði i bókina Fjölskyldan I frjálsusamfélagi( 1980). í þeirri grein rakti Auður árangurinn af jafnréttisbaráttunni i tilefni af þvi að 65 ár voru þá liðin frá setningu stjórnskipunarlaga nr. 12/1915 (sem meðal annars kváðu á um kosningarétt og kjörgengi kvenna). 1 samantekt 9 ráöstjórn einfaldlega vegna þess að þar þrifst ekkertfrelsi. Gildir þá einu hvort svo sé látið i veðri vaka að allir séu jafnir i réttlevsinu! Ævisaga Nadezhdu Mandel- stam („Merkisbera hinna of- sóttú skálda”) sem Kristin rek- ur I stórum dráttum, er átakan- legt dæmi um réttleysi einstakl- inga i kommúnisku skipulagi. Hún er dæmi um konu sem ekki lét bugast og verk hennar munu bera ævarandi vitnisburð um eymd kommúnista. Verk henn- ar munu halda á lofti minning- unni um alla þá sem „dóu i þögn” eins og eiginmaður henn- ar skáldið Osip Mandelstam. Nadezhda lést i desember sið- astliðnum og voru þá liðin 42 ár frá andláti eiginmanns henn- ar sem lést I þrælkunarbúðum kommúnista. Áratugum saman geymdi hún i minningu sinni ljóð eiginmannsins sem aldrei höfðu fengist birt á prenti og hefðu að öðrum kosti glatast að eilifu. Það er sárt til þess að hugsa að hópur Islendinga gengur (stundum milli Keflavikur og Reykjavikur) erinda böðlanna sem myrtu Osip Mandelstam og marga fleiri. Heimsfriðnum stafar hætta af alræðiseggjun- um i Kreml og sem betur fer eru þeir íslendingar i miklum meirihluta sem vilja taka þátt i varnarstarfi vestrænna lýöræð- isrikja og vernda þannig bæði frelsi þjóðar sinnar og frelsi ein- staklinganna — jafnt kvenna sem karla. En þar kemur ein- mitt að grein Kjartans Gunn- arssonar sem nefnist: „Hvernig eiga Islendingar að gæta örygg- is sins?” Aukið landvarnastarf Kjartan bryddar i grein sinni á nýstárlegum hugmyndum sem við fyrstu sýn gætu virst djarflegar en eru við nánari skoðun bæði eðlilegar og sjálf- sagðar. Þannig leggur Kjartan til að íslendingar taki mun meira frumkvæði I eigin vörn- um en verið hefur. „Við eigum að gera okkar eigin tillögur um varnirnar, meta varnarþörfina og fyrirkomulag varnanna”, segir Kjartan. Hann telur lik- legt að slikt mat myndi leiða i ljós að ekki ætti aðeins að heim- ila smiði þriggja sprengju- heldra flugskýla sem nú þegar hefur verið - heimilað að reisa heldur allra þeirra niu sem varnarliðið hafi farið fram á. Jafnframt þvi sem reisa þurfi sprengjuhelda stjórnstöð fyrir varnarliðiðen stjórnstöðin er nú i gömlu flugskýli. Kanna þurfi staðsetningu varnastöðvarinnar og hvort nauðsynlegt sé að koma upp fleiri ratsjárstöðvum til dæmis á Langanesi til að fylgjast betur með umsvifum sovétmanna við landið. Þá telur Kjartan Islendinga ekki nógu virka i störfum At- lantshafsbandalagsins og segir að ekki væri óeðlilegt að herafli sá sem hafa eigi afnot af landinu i ófriöi æfði hér hlutverk sitt: þar á meðal liðs- og birgðaflutn- inga til landsins. í niðurlagi greinar sinnar segir Kjartan: „Við höfum kosið vegna fá- mennis og annarra aðstæðna að vera i gagnkvæmu bandalagi við aðrar þjóðir til tryggingar á öryggi okkar. Framlag okkar til þessa bandalags er margþætt og mikilvægt. Okkur ber skylda til að standa við skuldbindingar okkar bæði gagnvart öðrum og ekki sist gagnvart sjálfum okk- ur. Við höfum tekið afstöðu og valið leið, hana skulum við ganga upprétt og með opin aug- un”. Hér kveður vissulega við nýj- an og hressilegan tón i umfjöll- un um varnarmál. Andstæðing- ar landvarna eru háværir og þeim hefur tekist of lengi að yfirgnæfa alvarlegar umræöur um öryggis- og varnarmál. Margoft hefur þó komið i ljós að mikill meirihluti þjóðarinnar er hlynntur aðildinni að Atlants- hafsbandalaginu og þvi óþarfi að þjarka fram og aftur — eins og gert hefur verið undanfarna þrjá áratugi — um þaö hvort varnarliðið eigi að vera eða vera ekki. Miklu fremur ætti að ræða hvernig varnarsamstarf- inu verði best háttað i framtið- inni þvi ekkert bendir til friöar- vilja rússneska bjarnarins.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.