Vísir - 22.07.1981, Síða 3

Vísir - 22.07.1981, Síða 3
Mibvikudagur 22. JÚH 1981 i i i i i i i i i I i i i i i i i i i & Tf ' H 'A f • /• ♦ • \ » 4 * * t»,; VÍSIR Laugardagslokunin: Borgarlðgmaöur véfengir lögmæti reglugeröarinnar ,,Það kom fram I álitsgerð borgarlögmanns, að hann telur gengið nærri atvinnufrelsi manna með hinni svo kölluðu laugardagslokun verslana” sagði Davfð Oddsson borgar- ráðsmaður i samtali við Visis eftir borgarráðsfund i gær. Davið sagði að i álitsgerðinni segði, að með hliðsjón af til- gangi lagasetningarinnar þegar lögin um lokunartima sölubúða voru sett væri erfitt að rök- styðja heimildir borgarstjórnar til að banna alfarið almenna versluná laugardögum tiltekinn - gengur nærrl atvinnufrelsi manna tima á ári og raunar einnig að setja verslun á laugardögum sérstakar og verulega þrengri skorður en gilda á öðrum virk- um dögum. 1 álitsgerð borgarlögmanns segireinnig: A það er þó að lita, að allt frá árinu 1918 hefur verslun á laugardögum yfir sumartimann verið settar þrengri skorður og frá 1963 en þó einkum frá 1971, hefur laug- ardagsverslun einnig verið sett- ar þrengri skorður yfir vetrar- mánuðina. Má þvi segja, að viss hafð sé komin á þá tilhögun, sem hefur verið i nokkru sam- ræmi við þær breytingar sem orðið hafa á almennum dag- vinnutima samkvæmt kjara- samningum. Niðurstaða fyrir dóm- stólum láliti borgarlögmanns kemur og fram, að álitamál sé hvaða þýðingu staðfesting félagsmála- ráðuneytisins hefur á reglu- gerðarákvæðinu en fullyrt er, að vist verði að telja, að staðfest- ing eða álit framkvæmdavalds- ins hafi ekki sama vægi og mat löggjafans. Um þetta, tekur borgarlögmaður fram, að óyggjandi niðurstaða fáist ekki nema fyrir dómstólum. Þá er i álitinu sagt, að með setningu ákvæða um verslunarháttu á laugardögum, sé óneitanlega gengið nærri rétti manna til at- vinnufrelsis án þess að séð verði gild rök fyrir þvi sem laga- heimildin hefur byggst á. „Heimild til setningar slikra reglna af hálfu borgaryfirvalda veröur tæplega sótt til vinnu- verndarsjónarmiða eingöngu. Verður þvi að telja, að orka kunni tvimælis um gildi þessara reglna, ef á það reynir fyrir dómstólum,” segir i álitsgerð- inni. Davið Oddsson sagði, að niðurstaða borgarlögmanns hefði veriðsú, að mæla með þvi, að borgaryfirvöld taki reglurn- ar um laugardagsverslun til endurskoðunar. — óM Horfið hefur verið frá þvi að keyra moldinni úr grunni fjölbýlishúsanna á Eiðsgranda f sjóinn. (Vísism. Þó. G.) Moldin al Elös- granda flutt í VatnsmVrína tvö tilboö bárust í verkiö en báðum var hafnaö AlDjöðlegt fjárfestlnga- félag: Hlutafé Cargolux hefur verið aukið uin 25 prósent. Er það al- þjóðlegt fjárfestingafyrirtæki, sem fest hefur kaup á hiutafénu. Samfara þessu hafa orðið eigna- breytingar i Cargolux, þannig aö nú eru fjórir aðiiar eigendur og á hver um sig fjórðung, en eigendur voru áður þrir. Það var á aðalfundi Cargolux i Luxembourg siðastliðinn föstu- dag, að upplýst var að hlutafé félagsins yrði aukið um 25 prósent og jafnframt var tilkynnt, að f jár- festingafélagið, sem hefur aðset- ur i Luxembourg, og aðallega er i byggingaframkvæmdum ýmiss konar, hefði keypt hlutabréfin. Eigendur Cargolux eru þvi orðnir fjórir, Flugleiðir, Salien, Luxair, auk þessa fjárfestingafélags. A fundinum voru og kosnir nýir menn i stjórn og fyrir íslands hönd eru það Bergur Gislason og Kaupir hlut í Cargolux Gunnar M. Björgvinsson, en fyrir sátu þeir Sigurður Helgason, Alfreö Eliasson og Einar Okran. — KÞ Moldin sú við Eiðs- grandann er hvað mestu fjaðrafoki olli i vor, þeg- ar ibúar Sörlaskjóls neituðu alfarið að fá hana i nágrennið, hefur nú fengið framtiðar- dvalarstað, Verður henni dreift yfir Tivoli- svæðið gamla i Vatns- mýrinni. Verkamannabústaðir eru að byggja 176 ibúðir á þessu svæði. Fyrir skömmu buðu þeir út jarð- vegs skipti undir húsin og bárust tvö tilboð. Reyndust þau bæði vera of há. Ástæðan mun væntan- lega mikil verkefni hjá jarðvegs- verktökum á þessum árstima og liklegt að verðið mundi lækka nokkuð með haustinu, þegar um hægist. Eftir þvi verður þó ekki beðið, þvi byggingaframkvæmdir hafa núþegartafist all verulega vegna þessa moldarmáls. Þvi hefur ver- ið ákveðið að semja beint við ein- staka aðila um mokstur og flutn- ing moldarinnar i Vatnsmýrina. — JB L0k humar- vertíöar Þann 20. júlí s.l. var humarafli á yfirstandandi vertið orðinn tæp- ar 2.200 lestir, en heildarkvótinn var ákveðinn 2.700 lestir í upphafi þessarar vertiöar. Miöað við veiði að undanförnu má ætla, að heildaraflinn náist i fyrri hluta ágústmánaðar og hef- ur ráðuneytið þvi ákveðið, að sið- asti veiöidagur þessarar vertiðar verði miðvikudagurinn 12. ágúst n.k. — SV Yfir 40 gerðir sófasetta Consul-sófasettid Staftgreiðsluverð kr. 14.040.— með greiðsluskil- málum kr. 15.600.— Opið: Fimmtudaga i öllum deildum til kl. 22 Föstudaga Matvörumarkaður, rafdeild og fatadeildtil kl. 22, aðrar deildir til kl. 19 Lokað laugardaga Eitthvað viö allra hæfi Útborgun allt niðuri 20% , lánstimi allt að 9 mánuðum Strand-sófasettid Staðgreiðsluverð kr. 8.100.— með greiðsluskilmálum kr. 9.000.— ’A A 4 A A A Jón Loftsson hf. _ la L-iuaciijri.i Hringbraut 121 — Sími 10600

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.