Vísir - 22.07.1981, Síða 4

Vísir - 22.07.1981, Síða 4
yy :r: rtsiR Miövikudagur 22. júíi 1981 Frá Fræðsluskrifstofu Reykjavfkur Við Meðferðarheimilið við Kleifarveg eru eft- irtalin störf laus til umsókna: Forstöðumanns/ aðstoðarforstöðumanns/ ráðskonu og uppeldisf ulltrúa. Umsó knum, er greini menntun og fyrri störf, skal skila til fræðsluskrifstofu Reykjavikur fyrir 14. ágúst n.k. Fræðslustjóri. I§l Sérkennslufulltrúi Starf sérkennslufulltrúa við fræðsluskrifstofu Reykjavíkur er lausttil umsóknar. Umsókn- um, er greini menntun og fyrri störf, skal skila til fræðsluskrifstofu Reykjavikur fyrir 14. ágúst n.k. Fræðslustjóri. Sími 34420 | l»t Sólveig Leifsdóttir hárgreióslumeistari ^ Hárgreiðslustofan Gígja Stigahlið 45 - SUÐURVERI 2. hœð - Sími 34420 Litanir* permanett • klipping Vinningar í Lukkumiðoleik YÍSIS Dregið hefur verið fyrir júií og upp komu númer: 10541 10966 10201 15200 VinningshQfor vinsamlegast hofið somband sem fyrst við afgreiðslu Vísis í'fV-v mw' '/ Wm mrnnM imm 1 Wfr; v.■:/&&&%& W&M Líkja eftir Hemingway Ef Ernest Hemingway hefði lif- að, hefði hann átt áttatiu og tveggja ára afmæli i gær, og var þess minnst í Key West i Flórida i gær. Gamla manninum hefði brugð- ið, ef hann hefði litið þar inn á sina fyrri uppáhaldsölstof u í gær. Þar gat að lita tylft harðjaxla, gráskeggjaða, sem allir höfðu svip með skáldinu. Ekki nóg með það. Þangað sóttu einnig þeir, sem telja sig geta likt sannfær- andi eftir ritstil hans. Annað mál er svo, hvort 'ann hefði orðið hrifinn af. Arin 1928 til 1939 bjó Heming- way i þessari syðstu borg Banda- rikjanna og minnast menn þess enn. Þar er t.d. uppáhaldsölstof- an hans, sem þá hét „Sloppy Joe” (Sóða-Jói) ,en nií er hún kennd við Tony höfuðsmann, þvi að Jói sóði Russell flutti sig fáar húslengdir neðar i Duvalstræti 1937. Nokkur samkeppni hefur verið milli þessara öldurhúsa um að laða aö sér ferðamennina, sem feta vilja um slóðir ská.ldsins. Stóð önnur þeirra að þvi að stefna saman mönnum og láta þá ke_ppa um, hver likastur væri rithöfund- inum í útliti. Einnig þeim, sem best gætu likt eftir ritstil hans. Það er töluverður slangur af feröamönnum, sem kemur til Key West nánast einvörðungu til að skoða minjasafn um Hemingway. HUsið þar sem „Papa” skrifaði „Tohaveand have not’ hefur ver- ið varðveitt, eins og sagt er, að það hafi verið þann tima, sem hann bjó þar. En eitthvað hefur timinn brenglað minningu manna um lifshætti skáldsins. Eða þá að Jói sóði svi’fst einskis i sölu veiganna. Hann efndi meðal annars til bjór- kappdrykkju í tilefni afmælisins. Vita þó allir, að uppáhaldshress- ing „Papa” var KUburomm. Mönnum virðist ekkert heilagt orðið. Banntillaga USA við hvalvelDi var feiifl Sextán aðildarriki alþjóða hvalveiðiráðsins (IWC) greiddu atkvæði með banni við hval- veiðum, eins og Bandarikin og Bretland höfðu lagt til, en átta greiddu atkvæði á móti. Með því að þrirsátu hjá og þrir tóku ekki þátt i atkvæðagreiðsl- unni, þá nær banntiilagan ekki fram að ganga, þvi að 75% atkvæða þarf til þess að sam- þykkt hennar öðlist gildi, — Er þetta sjötta árið i röð, sem borin er upp tillaga bann við hvalveið- um. Fylgjendum bannhugmyndar- innar vex stöðugt fiskur um hrygg og fengu þeir að þessu sinni liðsauka í Reagan Bandarikja- forseta, sem skrifaði ráðstefnu IWC í Brighton bréf, þar sem hann hvatti tU algjörs banns. Stóðu Japanir fastastir i móti tiUögunni um algjört bann. Fyrir ráðstefnunni liggja fleiri banntillögur, sem eiga eftir að koma til atkvæðis. Eins og bann við veiði búrhvala, og önnur tU- laga um bann við hvalveiöi i N- Atlantshafi, en að þeirri síðast- töldu standa Bretar, Frakkar, Seychelles-eyjar og Belgar og Hdlendingar. blaðburmr- FóLK uSkásfj HRINGIÐ866U Hverfisgata frá 1. ágúst. Bústaðarhverfi I 1. ágúst Ásgarður Hólmgarður Hæðagarður Bústaðavegur Réttarholtsvegur Skjólin afleysingar frá 25/7-4/8 Kaplaskjólsvegur Nesvegur Granaskjól llggur i breska verkamannanokknum Úrslit aukakosninga Warrington-kjördæmis, þar sem jafnaðarmenn buðu i fyrsta sinn fram og velgdu verkamanna- flokknum undir uggum, urðu forkólfum verkamannaflokksins tilefni til sérstaks fundar niln á dögunum. Var greinilegt, að þeim hafði ekki orðið um sel, þvi að fram- bjóðandi þeirra hlaut aöeins 48% fylgi i kjördæminu, sem átti að heita nær eldtraust vigi verka- ,mannafldcksins.ö Denis Healey varaformaður Verkamanna- flokksins breska var ómyrkur i máli og taldi nú góð ráö dýr. Sagöi hann, að flokkurinn mætti ekki láta viö svo búið standa, þvi að augljóslega mundi verka- mannaflokkurinn ekki sigra i al- mennum þingkosningum, ef svo héldi fram. Kvað Healey mikla nauðsyn á þvi, að flokkurinn, sem klofinn hefur verið i togstreitu vinstri arms og hógværari afla, yrði að syna fram á, að honum væri treystandi til þess að bera uppi skoðanir kjdsenda á sem breið- ustum grundvelli. I flokki lýðræðisjafnaðar- manna, sem stofnaður var upp úr innanflokkságreiningi i verka- mannaflokknum, rikir hinsvegar sigurgleiði með árangur Roy Jenkins, frambjóðanda þeirra, en hann fékk 42% atkvæða i kosn- ingarsamstarfi við frjálslyndá. Denis Healey varaformaöur breska verkam annaf lokksins var ekki léttur á brún, þegar rædd voru i flokksforystunni úrslitin i aukakosningum Warringtonskjördæmis, þar sem hurð skall full nærri hælum.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.