Vísir - 22.07.1981, Page 8

Vísir - 22.07.1981, Page 8
8 Miðvikudagur 22. júli 1981 VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: kjartan Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel A.mmen (irup, Árni Sigfússon, Friða Ástvaldsdóttir, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Sigþórsdóttir, Kristin Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdimarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaðurá Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sig- mundur Ö. Steinarsson. Ljósmyndir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrés- son. útlitsteiknun: Magnús Ölafsson, Þröstur Haraldsson, Safnvörður: Eirikur Jónsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson. Ritstjórn: Síðumúla 14, simi 86611, 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Síðumúla 8, simar 86611 og 82260. Afgreiósla: Stakkholti 2-4, simi 86611. Áskrif targjald kr. 80 á mánuði innanlands og verð í lausasölu 5 krónur eintakið. Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14. Ekki Möðhetia enn Það var óneitanlega broslegt að hlýða á ummæli iðnaðarráð- herra í hádegisfréttum í gær, þegar hann lét í Ijós álit sitt á ályktun þingflokks sjálfstæðis- manna. Yf irlætið leyndi sér ekki, og tónninn var líkastur því þegar hastað er á óþekka stráka. I stuttu máli heldur ráðherrann því fram, að sjálfstæðismenn leggi meir upp úr því að skamma sig, heldur en Alusuisse og með því séu þeir að svíkja íslenska hagsmuni. Ennfremur þykir honum illt að sjálfstæðismenn skuli ekki taka mark á niðurstöð- um endurskoðunarskrifstof unn- ar um samningsbrot Alusuisse. Rétt er að líta á þessa gagnrýni og þá f yrst á þá síðarnef ndu. Iðn- aðarráðherra hefur fullyrt að Alusuisse hafi brotið samninga og í yfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar frá 16. júlí segir: ,,að Alusu- isse hafi ekki staðið við samn- ingslegar skuldbindingar sínar". Þessar f ullyrðingar byggjast á rannsókn Cooper og Lybrand og er til þess vísað bæði í kynningu ríkisstjórnarinnar og ummælum ráðherra. í sjálfu sér eru ekki bornar brigður á niðurstöður endurskoð- enda í ályktun þingflokks sjálf- stæðismanna. Þvertá móti er þar tíundað sérstaklega að í skýrslu endurskoðendanna segi, að verð á súráli til ISALS hafi verið hærra en milli óskyldra aðila ef miðað er við lægstu verð í slíkum viðskiptum og nemi mismunur- inn 16 milljónum dollara á því 5 1/2 ári, sem hér um ræðir. Sjálfstæðismenn varast hins- vegar að f ullyrða nokkuð um sekt eða samningsbrot. Þeir telja að enn séu ekki öll kurl til grafar komin. Þeir vilja víðtækari at- hugun áður en dómur er kveðinn upp. En það eru fleiri en stjórnar- andstaða sjálfstæðismanna sem eru þessarar skoðunar. Sjálf- stæðisráðherrarnir þrír mættu á þingflokksfundi og tóku þar fram, að í ályktun ríkisstjórnar- innar væri enginn dómur lagður á málið og engin afstaða tekin til skýrslu Coopers og Lybrand og niðurstöðu hennar. Ljóst er að framsóknarmenn eru sömu skoðunar. Steingrímur Hermannsson vísar málsókn á bug og leggur áherslu á samn- ingaviðræður við Alusuisse. Varla væru þeir að hika við dóm- stólaleiðina og skaðabótakröfur, ef þeir teldu sekt mótaðilans sannaða. Gagnrýni Hjörleifs Guttorms- sonar að þessu leyti hittir ekkl aðeins fyrir stjórnarandstöðu sjálfstæðismanna, heldur einnig samstarfsmenn hans í ríkis- stjðrninni. Hitt atriðið í gagnrýni Hjör- leifs, er hneykslan hans á því að sjálfstæðismenn skuli deila á hann persónulega, en það telur ráðherrann árás á íslenska hags- muni. Það er rétt hjá ráðherran- um að ályktun þingf lokksins ein- kennist mjög af gagnrýni á hann sjálfan. Sú gagnrýni ber að- f innslur í garð Alusuisse of urliði. Ætla mætti að hann sé stærsti sökudólgurinn en ekki Alusuisse. Þetta telur ráðherrann sönnun fyrir því að stjórnarandstaða Sjálfstæðisf lokksins hafi stillt sér upp við hlið Alusuisse. Auðvitað er það alröng túlkun, en hitt er þó öllu verra, ef ráð- herrann lítur svo stórt á sig, að hann setji samasemmerki milli persðnu sinnar og íslenskra hagsmuna. Við skulum ekki gera Hjörleifi Guttormssyni upp óheiðarlegar hvatir. En hann er stjórnmála- maður, umdeildur eins og aðrir, og þótt hann hossi sér á meintum svikum Alusuisse í augnablikinu, þá er það víðs f jarri að hann sé kominn í dýrlingatölu. Menn verða ekki þjóðhetjur í krafti breskra endurskoðenda! Hjörleif ur Guttormsson er ekki persónugervingur íslenskra hagsmuna, gagnrýni á vinnu- brögð hans skerðir ekki rétt ís- lendinga. Alþýðubandalagið hefur ekki þá fortíð að forystu- menn þess geti blásið sig út i nafni íslensku þjóðarinnar. Vinnubrögðin nú gefa þeim held- ur ekki tilefni til þess. r. —— | Skilyrt framsaga Nýlega var greinarhöfundur beðinn að vera framsögumaöur á fundi i sjálfstæðisfélagi utan ■ höfuðborgarinnar. Efnisvali fylgdu engar kvaöir aðrar, en að ræða eitthyað um forystumál Sjálfstæöisflokksins, ,,þvi allir eru sólgnir i að heyra um þau”, | eins og komist var að orði. 1 fyrstu taldi undirrituð þetta ofmælt, þvi fyrir mér eru þessi atriði ekki flókin né vandleyst — hvorki vandamál né glundroði, I heldur úrlausnarefni sem um I gilda þrautreynd „prinsipp”. En sú almenna umræða, sem nær eyrum minum bendir til “ þess, að a.m.k. einhverjir velk- I ist I vafa um aðalatriöi forystu- ■ mála innan Sjálfstæöisflokksins — og þvi er hér stungið niður | penna. Andstæðingar látnir ráða afstöðu Reyndar er það fráleitt að bera innri mál stjórnmálaflokks á torg, koma flugum i munn pólitiskra andstæöinga, sem þeir sfðan matreiða og senda til baka sem agn. Alltof margir sjálfstæðismenn átta sig ekki á þiessu og láta andstæöinga, með skrifum og rógsherferöum ráða afstöðu sinni. Otlinur þessara mála eru fremur einfaldar og affarasælla að halda sig að einfaldari hlut- um, en þeim flóknari. Að vfsu lét einn þingmanna Sjálfstæðis- flokksins svo um mælt á um- liðnu vori, aö varast bæri að ein- falda vandamál flokksins um of, en á móti má svara að varast beri að flækja þau. Styrkur flokksins að standa saman Rétt er aö glöggva sig aðeins L— FLOKKUR OG FORYSTA á tilhögun mála. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins, sem er haldinn annað hvert ár, fer með æðsta vald i flokksmálum. Til fundarins eru kosnir, sam- kvæmt skipulagsreglum um eitt þúsund fulltrúar úr flokksfélög- unum alls staðar að af landinu. Verkefni landsfundar, sem er að hluta til eins og hvert annaö þing eöa aðalfundur, er að fá yf- irlit um flokksstarfið timabilið frá seinasta fundi, kjósa for- mann, varaformann og mið- stjórn, sem fer meö vald lands- fundar milli funda og móta málaefnalega stefnu flokksins og stjórnmálaafstöðu. Styrkur Sjálfstæöisflokksins hefur jafnan verið að standa að baki þeim foringjum, sem landsfundur kýs hverju sinni. Þeim mun betur sem við stönd- um saman milli funda — sýnum flokkslegan trúnað og hollustu hvert viö annað og foringja okk- ar — þeim mun sterkari veröur flokkurinn. A sama hátt — ef við höldum ekki hópinn eða látum af holl- ustu viö þá, sem við höfum kosið til aö fara fyrir liöi okkar, veik- ist staðan. tJt yfir tekur þó, þeg- ar sjálfstæðismenn taka nið um eigin foringja ómelt, úr rógs- dálkum malgagna pólitiskra andstæðinga og halda á loft við hvern sem er. Vonlausstaða Þaö voru þvi skelfiiegir at- burðir, þegar varaformaður Sjálfstæðisflokksins tók sig út úr liöi, meö nokkra menn með sér og gekk til samstarfs viö höfuð- andstæðinga I landsmálum I trássi viö meirihluta fiokksráðs, miöstjórnar og þingflokks. Hvort sem tilgangurinn er réttlætanlegur eða ekki, þá er slik staða vonlaus á sviöi stjórn- mála. Þrir menn ráðherrar i tíu manna stjórn, án þess aö hafa þingstyrk að baki sér verða eins og fangar. Enginn stjórnarsátt- máli getur breytt þvi. Beygja sig fyrir komm- únistum Hiö sorglega er lika, að þeir sjálfstæöismenn sem nú sitja i rikisstjórn virðast hafa beygt sig i flestu tilliti fyrir sjónar- miðum og vilja alþýðubanda- lagsmannanna þar. En þeir sýnast fara fram af öllu meiri hörku en hinn stjornarflokkur- inn, enda þótt ekkert vanti á að framsókn standi vörö um sér- hagsmuni sina að vanda. Þvi aðeins geta sjálfstæðismenn lagt ut i stjórnarsamstarf við kommúnista, að þeir hafi fullan þingstyrk að baki sér. Þegar rætt er um sættir i Sjálf- stæðisflokknum, hefi ég ekki annað, til mála að leggja en segja þeim flokksbræðrum, sem sjálfviljugir fóru i herleiðinguna að koma aftur til baka úr henni — inn i sinn eigin flokk, efla hann og ganga þar fram til sig- urs gegn okkar höfuöandstæö- ingum. Víglínaner klár Við berjumst fyrir sjálfstæð- isstefnunni, sem grundvallast á valddreifingu, séreignaskipu- lagi, stéttasamvinnu, einka- framtaki og einstaklingsfrelsi. Okkur ber þess vegna að berjast gegn miðstýringu, söfnun valds á fáar hendur og forsjárstefnu, en þetta er allt á stefnuskrá kommúnista. Sem sjálfstæöis- menn hljótum við að takast á viö kommúnista, en ekki veita þeim brautargengi eins og nú viðgengst vegna fulltingis nokk- urra sjálfstæðismanna. 1 jafnstórum flokki og Sjálf- stæðisflokknum, er eðlilegt, að ekki séu allir á einu máli, en þar eru þaö málefnin en ekki menn- irnir sem velja skal um. Per- sónudýrkun er einkenni annarra flokka. En lýðræöislegar niður- Björg Einarsdóttir fjallar um innri mál Sjálfstæðisflokksins f til- efni af þeim umræðum sem fram hafa farið um forystumál hans. Björg segir að formennskan liggi ekki á lausu, hins- vegar vanti kandidat í varaformennsku. Flókn- ara sé málið ekki. stöður á afgreiðslu mála ber að hafa i heiðri. Einfaldar útlinur Hásumar er og ferðalög ■ manna leiða til aukinna sam- | skipta. Nú riöur á að dreng- . skapur og félagslegt- og flokks- I legt siðgæði ráði ferðinni. t I haust munum við svo aftur _ safnast saman til starfa og hitt- I ast heilshugar á landsfundi i I október. Þar eigum við að kjósa I flokknum forystu aö vanda. I Staðan nú er sú, að varafor- . maður flokksins hefur lýst þvi I yfir, að að óbreyttu gefi hann | ekki kost á sér til þeirra starfa. ' Af þvi leiðir að finna ber kandi- | dat i það starf. Á sama hátt hefur núverandi ' formaður Sjálfstæðisflokksins I sagt, aö við óbreyttar forsendur . gefi hann kost á sér til for- I mennsku á ný og að hann telji I það raunar skyldu sina. 1 þessu , felst aö þar vantar ekki kandi- I dat. Einhverjum kann að þykja þetta einföld framsetning á þvi, I sem hefur verið þyrlað upp sem ■ ■ stórmáli og stórvanda — en svo 1 einfaldar eru útlinurnar og eftir | þeim er einlægast að feta sig. i Leiðtogi frjálsra afla 1 hlutarins eöli liggur að leið- ■ togi sjálfstæðismanna er leiö- | togi hinna frjálsu afla i landinu. ■ Hver sem fyrir valinu verður i hljótum við aö fylkja okkur að | baki hans, bægja burt lágkúru- . legum viðhorfum og sameinast I öðrum lýðræðisflokkum um ör- I yggis- og varnarmál þjóðarinn- . ar. Meö þetta veganesti og von ■ um aö bjartara verði um aö lit- 1 ast i landsmálum á haustdög- | um, er væntanlega réttast að i framhalda sumarfrium.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.