Vísir - 22.07.1981, Side 28

Vísir - 22.07.1981, Side 28
Krakkarnir i Vinnuskóla Kópavogs blésu heidur betur nýju lifi ! Hlíðargarðinn I Kópavogi, i gær. Garðurinn hefur hingað til verið litið notaður en I gær efndu krakkarnir til útiskemmtunar undir stjórn Marteins Sigurgeirssonar hjá Vinnuskólanum. F jölmenni lét ekki á sér standa og komu um eitt þúsund manns ! garðinn til að taka þátt i skemmtunum og útileikjum sem undirbúnir höfðu verið. Pylsur voru grillaðar, mini-golf þreytt, koddaslagur og vöflur gerðu mönnum dagamun. Allur ágóði af þessari skemmtan mun renna tií byggingar hjúkrunarheimilis aldraðra iKópavogi. —ÓM/Visism. Þó.G. • ••• GRILLPYLSUR OG KODDASLAGUR Hvad meö nýjan Peugeot? visiR: Ferðablað á morgun Peugeot 104 GL (verö80.000kr) Dreginn út 24. juli Vertu Vísis-áskrifandi Sími 86611 veöurspá dagsins Suðurland og Suð-Vesturmið: Norð-vestan gola i dag en skýjað i nótt og sums staðar litilsháttar súld með morgn- inum. Faxaflói og Faxafióamiö: Norð-vestan og vestan eða kaldi og þykknar smám saman upp i dag, súld öðru hverju i nótt. Breiðafjöröur, Vestfirðir, Breiðafjarðarmið og Vest- fjarðamið: Vestan gola og siðar suö-vestan kaldi, skýjað, sums staðar súld siðdegis. Dá- lítil súld i nótt. Strandir og Norðuriand vestra til Austurlands að Glettingi og Norð-Vesturmið til Austur- miöa: Hæg breytileg átt og léttskýjað að mestu til lands- ins, vestan gola og siðar kaldi og skýjað á miðunum. Austfirðir og Austfjarðamiö: Norðan kaldi, léttskýjað til landsins en skýjað á miðum i dag. Vestan gola og léttskýjað i kvöld og nótt. Suð-Austurland og Suð- Austurmið: Norð-vestan gola og sums staðar kaldi og létt- skýjað, þykknar upp með vestan golu vestan til i nótt. önundur Ásgelrsson: Kallar Svan „kvlsllng” önundur Ásgeirsson fyrrver- andi forstjóri Olis hefur nú rofið þagnarmúr sinn og sent frá sér yfirlýsingu. Yfirlýsing þessi er að mestu svar við greinargerð stjórnar Olis frá i fyrradag. önundur segir i yfirlýsingu sinni að greinargerð stjórnarinn- ar sé röng i' átta atriðum, sem hann tilgreinir. bá greinir hann frá að hann styðji örn Guðmundsson i deil- unni um hvort hann eða Svan Friðgeirsson skuli starfa áfram i fyrirtækinu, og segist hafa lýst þvi yfir við stjörnina, ,,að nauð- synlegt væri að undirróðursmað- urinn og „kvislingurinn” Svan Friðgeirsson viki, tilþess að unnt verði að koma á starfsfriði innan fyrirtækisins”. —SV Puttaferðalangarnir eru horfn- ir af þjóðvegunum og fara nú um landið með áætlunarbifreiðunum á sérstökum vildarkjörum. betta kemur fram i aukablaði Visis um ferðamál sem fylgir blaðinu á morgun. Efnið er fjöl- breytt mg má til dæmis nefna að svo virðist sem æ fleiri kjósi aö fljúga til einhvers staðar á land- inu og fara siðan styttri ferðir þaðan. En ekki að aka fleiri hundruð kilömetra eftir misjafn- lega greiðfærum hringveginum. Veöriö hér 09 har Veðrið klukkan sex I morgun: Akureyri léttskýjað 4, Bergen þokumóða 11, Helsinki al- skýjað 16, Kaupmannahöfn skýjað 13, Osló léttskýjað 18, • Reykjavlk skýjað 9, Stokk- hólmur rigning 14, bórshöfn alskýjað 10. Veðriö klukkan 18 I gær: Aþena léttskýjað 26, Berlin hálskýjað 17, Chicago al- skýjað 12, Feneyjar alskýjað 24, Frankfurtrigning 17, Nuuk súld 6, London skýjað 23, Luxemburg rigning 15, Las Palmas léttskýjað 28, Mallorka léttskýjað 24, Montrealskýjað 25, New York mistur 32, Parls alskýjað 19, Rómheiðrikt 23, Malagaheið- , rikt 26, Vin rigning 15. LOKI segir Kvennaframboðskonur segjast munu leggja megin- áherslu á ýmis „sérmál kvenna” og nefna til sög- unnar, „skólamál, menn- ingarmál, skipulagsmál og dagvistunarmál”. Ég hélt nú að efnahagsmáiin væru sér- stök einkamál kvenna. Klemmdlst undir bil sinum: Meðvltundarlaus I ivo sólarhringa brjátiu og sex ára gamall maður varð undir bifreið sinni i gærmorgun er hann vann við- gerðir á henni i bilskúr við heimili sitt á Selfossi. Er að honum var hann þá fluttur á sjúkrahús Selfoss en siðan á G jörgæsludeild Borgar- spitalans. Slysið gerðist þannig að tjakkur er hélt bilnum uppi að Wuta losnaði undan honum og lenti maðurinn undir framan- verðum bílnum en þar hafði hann legið við viðgerðir. Börn mannsins komu að honum en hann svaraði ekki er þau kölluöu og höföu þau þá sam- band við móöur sina er var við vinnu á Selfossi. Hún hafði strax samband við lögregluna og að sögn þeirra liöu i hæsta lagi um 10 minútur frá þvi börnin komu að föður sínum og þangað til búið var að losa hann undan bflnum. Ekki er vitað hversu lengi hann hefur verið klemmdur undir bilnum en hann hóf viögerðir snemma um morguninn en tilkynnt var um slysið klukkan 11.30 Vakthafandi læknir á Gjör- gæsludeild Borgarspitalans sagði að liðan mannsins væri ó- breytt, hann væri enn með- vitundarlaus. —HPH. AAiðvikudagur 22. júlí 1981 síminn er86611 Kynferðlsiega brenglaðlr menn hreiia siúikur I unglingavlnnunni: Flella slg klæðum I augsýn slúlknannal Stúlkur i unglingavinnu hjá Reykjavikurborg hafa óþyrmi- lega orðið varar við kynferðis- lega brenglaða menn sem halda sig I öskjuhliöinni. Svo rammt hefur kveðið að þessu að mcnn hafa komið og flett frá sér klæð- um frammi fyrir stúlkunurn og sýnt af sér aðra undarlega hegðun. Hér er einkum um að ræða menn á miðjum aldri. Kannast stúlkurnar við sömu menn sem eru á ferðinni dag eftir dag og jafnvel sumar eftir sumar. Gröfasta atferlið var nýlega er nokkrar stúlkur voru að störfum i öskjuhliðinni að maður einn um fertugt sem stóð spottakorn frá þeim leysti frá sér og tók að fitla við kynfærin allnokkra stund i augsýn stúlkn- anna. Stúlkurnar eru frá 15 ára aldri og hefur þessi hegðun mann- anna vakið mikinn ugg i þeirra hópi. „Við þorum varla að ganga einar um vinnusvæðið”, sagði ein þeirra i samtali við Visi, ,,en við höfum þó ekki orðið fyrir beinni áreitni. Mikil brögð eru að þvi að menn hangi þarna daglangt og glápi á okkur, sérstaklega á sólskins- dögum þegar við erum létt- klæddar við vinnu”. — KS

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.