Vísir - 16.09.1981, Síða 7
..Eq veit ekkert
Ul m 1 F r am m líi r
- segir pjálfari Dundalk Jim McLaughlin
„Við verðum að skora
mörk, og við ætlum okk-
ur að skora mörg mörk á
móti Fram i þessum
leik”, sagði Jim Mc-
Laughlin, framkvæmda-
stjóri og aðalþjálfari
irsku bikarmeistaranna
Dundalk, sem mætir
Fram á Laugardalsvell-
inum i kvöld, þegar við
hittum hann að máli á
Hótel Esju i gærkvöldi.
„Það er mikilvægt fyrir okkur
að skora hér, þvi að mörk á úti-
velli gilda tvöfalt i Evrópukeppn-
inni. En þótt við skorum ekki
mörg mörk, er ég ánægður, ef við
vinnum Fram.
Ég veit bókstaflega ekkert um
Framliðið og hef ekkert gert i að
afla mér upplýsinga um liðið,
leikaðferðir þess eða einstaka
leikmenn. Það kemur allt i ljós,
þegar við mætumst á vellinum.
Það eina, sem ég óttast hér er
vindurinn — ef hann blæs eitthvað
að ráði, er það bara happadrætti
hvernig fer.
Við fórum á æfingu á Laugar-
dalsvöllinn i gær og okkur leist
mjög vel á allar aðstæður. Þetta
var miklu betra en við áttum von
á. Minir menn eru allir i finu
formi og hlakka til að mæta Fram
i þessari Evrópukeppni.”
— klp —
Dundalk
leikmenn
- í írska deildarúrvalinu. sem ler til Brasilíu
Dundalk-liðið, sem ieikur gegn
Fram i Evrópukeppninni i kvöld,
er talið sterkasta liðið á trlandi
um þessar mundir. Þvf hefur
vegnað vel i æfingaleikjum og i
fyrsta leiknum i deildinni, sem
var á laugardaginn sigraði það
2:0.
Styrkleiki liðsins sést þó einna
best á þvi, að sex leikmenn úr lið-
inu hafa verið valdir i úrvalið úr
irsku deildinni, sem heldur til
Brasiliu á sunnudaginn kemur og
leikur þar við úrval úr brasilisku
deildinni.
Þjlafari Dundalk Jim Mc-
Laughlin, var valinn þjálfari og
fararstjóri fyrir þetta úrvalslið,
svo að það eru mikil og löng
ferðalög hjá honum og hinum sex
leikmönnum hans þessa dagana.
— klp —
Skaga-kærunni
var vísað frá
- af dómstöl knattspyrnusambandsins
0 Breitner sýnir spænska dómaranum, hvaða álit hann hafi
á honum I leiknum i Madrid.
Breitner vill
fara til Madrld
til að friða Spánverja fyrir HM-keppnina
vegna framkomu Bayern Mlinchen
í Madrid á dögunum
Mikið hefur verið rætt um það
i V-Þýskalandi, að framkoma
Paul Breitner og félaga hans
hjá Bayern Múnchen — þegar
þeirgengu af leikvlli i leik gegn
Dynamo Tbilisi i Madrid á 44.
min., til að mótmæla spænska
dómaranum José Donato Pes-
Perez, sem sýndi þeim Breitner
og Karl-Heinz Rummenigge
„rauða spjaldið” eigi eftir að
bitna á landsliði V-Þjóðverja i
HM-keppninni á Spáni 1982.
Paul Breitner, sem er nú kall-
aður Paul „Derwall” Breitner,
vegna þess hvað mikil áhrif
hann hefur á landsliöseinvald-
inn.Jupp Derwall, sagði i sjón-
varpsviðtali i V-Þýskalandi i
gær, að hann væri tilbúinn að
fara til Spánar og halda þar
blaðamannafund og koma fram
i sjónvarpi, til að skýra Spán-
verjum frá. hvaö gerðist i leikn-
um. Þess má geta, að Breitner
talar reiprennandi spænsku,
sem hann lærði, þegar hann lék
með Real Madrid. —SOS
Verður Traustl með?
Miklar likur eru á að Trausti
Haraldsson leiki með Fram á
móti Dundalk á Laugardalsvell-
inum i kvöld. Trausti hefur átt við
meiðsl i hné að striða að undan-
förnu og var t.d. ekki með Fram i
leiknum við KA á laugardaginn.
Framarar reiknuðu ekki með,
að hann yrði orðinn góður fyrir
leikinn við Dundalk. Kom þeim
það þvi skemmtiiega á óvart,
þegar Trausti mætti á æfingu I
fyrrakvöld og kenndi sér þá
einskis mein. -klp-
Sparkast á við
Dómstóll Knattspyrnusam-
bands tslands kvað i gærkvöldi
upp úrskurð i hinni umtöluðu
kæru Akurnesinga i sambandi
við leikinn við KR 11. deildinni á
dögunum.
KSl-dómstóllinn staðfesti
dóm héraðsdómsstóls Knatt-
spyrnuráðs Reykjavikur, sem
visaði málinu frá. Mun þetta
vera lokaniðurstaða i þessu
kærumáli, sem kom upp vegna
þess, að dómari leiksins leyfði
KR-ingiað koma inn á leikvöll-
inn, eftir að hafa sýnt öðrum
„rauða spjaldið” fyrir að yfir-
gefa völlinn án leyfis.
Akurnesingar sögðu, að með
þvi hefðu KR-ingar leikið með
ólöglegt lið siðustu 2 minútur
leiksins. KR-ingar sögðu aftur á
móti, að þeir hefðu ekki gert
neitt rangt. Þetta hefðu verið
mistök dómarans en ekki þeirra
— hannhefði leyft manninum að
koma inn á, og meira að segja
sýnt honum „gula spjaldið”
fyrir það... — klp —
Skota á sunnudag
- og pá leika íslenskar stúikur tyrsta landsleikinn I knattspyrnu
tslendingar leika sinn fyrsta
kvennalandsleik i knattspyrnu
við Skotland I Dunbarton á sunnu-
daginn kemur. tslenska liðið hef-
ur þegar verið valið og er það
skipað eftirtöldum stúlkum:
Frá Breiðabliki:
Guðriður Guðjónsdóttir
Jónina Kristjánsdóttir
Asta Maria Reynisdóttir
Rósa Valdimarsdóttir
Magnea Magnúsdóttir
Bryndis Einarsdóttir
Asta B. Gunnlaugsdóttir
Svava Tryggvadóttir.
Frá Val:
Ragnheiður Vikingsdóttir
Sigrún Cora Barker
Bryndis Valsdóttir
Frá Vikingi:
Bryndis Guðjónsdóttir
Frá FH:
Hildur Harðardóttir
Frá Akranesi:
Ragnheiður Jónsdóttir
Kristin Aðalsteinsdóttir
Kristin Reynisdóttir
tslenska kvennalandsliðið, sem leikur fyrsta kvennalandsleik islands I knattspyrnu við Skota á sunnudaginn. Meö þeim á myndinni er
þjálfari liösins og landsliðsnefnd. Vfsismynd Friöþjófur.
Islenska liðið er ekki alveg eins
sterkt og vonast var eftir. Einar 5
stúlkur gáfu ekki kost á sér, þar
sem þær eru aö fara með kvenna-
landsliðinu i handknattleik til
Þýskalands á sama tima.ogeinn-
ig hrjá meiðsli stúlkur sem til
greina komu i liðið. En þær, sem
fara, eru staðráðnar i að standa
sig á móti skosku stúlkunum, sem
hafa mikla leikreynslu að baki.
Eru þær t.d. að koma núna úr
keppni frá Italiu, sem mörg
kvennalandslið tóku þátt i.
—klp-