Vísir - 16.09.1981, Qupperneq 8
8
Mi&vikudagur 16. september 1981
VÍSIR
utgefandi: Reykjaprenth.f.
Ritstjóri: Ellert B. Schram.
Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aöstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen
drup, Arni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna
Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi-
marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaöur á Akureyri: Gísli
Sigurgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, SigmundurO. Steinarsson. Ljósmynd--
ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson.
Utlitsteiknun: MagnúsÓlafsson, Þröstur Haraldsson.
Safnvöröur: Eirikur Jónsson.
Auglýsingastjóri: Páll Stetansson.
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Ritstjórn: Siðumúli 14, sími 86611, 7 línur.
Auglýsingarog skrifstofur: Siðumúla8, símar86611 og 82260.
Afgreiösla: Stakkholti 2—4, sími 86611.
Áskriftarqjald kr. 85á mánuði innanlands
og verð i lausasöluó krónureintakið.
Visir er prentaður i Blaðaprenti, Siðumúla 14.
„Fra manni til manns”
Húsnæðismál hafa verið á dag-
skrá að undanförnu, og kemur
engum á óvart. Leigjendur hafa
lýst yfir neyðarástandi, íbúðar-
byggingar hafa dregist saman,
lánakjör hafa versnað og al-
mennt er viðurkennt, að hús-
næðiskreppa blasi við. Þetta
ástand hefur orðið stjórnmála-
mönnum að þrætuefni. Á síðasta
ári var húsnæðislögunum breytt,
stefnan tekin á sérstaka fyrir-
greíðslu til handa láglaunafólki
og lagaákvæði um leiguíbúðir
hert verulega. Menn greinir á
um, hvort þessar breytingar haf i
orðið til góðs eða ills.
Stjórnarandstaðan, einkum
sjálfstæðismenn í Reykjavík,
halda því fram, að sökin liggi hjá
Alþýðubandalaginu, sem ræður
ríkjum í borgarstjórn og félags-
málaráðuneytinu. Alþýðubanda-
lagið ber hönd fyrir höf uð sér. Þó
er Ijóst að þeir síðarnefndu gera
sér grein fyrir slæmri stöðu
sinni, aðgagnrýnin hittir í mark.
Þeir hafa verið seinheppnir í
viðbrögðum sínum og tal um
leigunám hefur mælst illa fyrir.
Á ráðstefnu sem Alþýðubanda-
lagið efndi til um helgina var
bentá ýmsar leiðir til úrlausnar,
sem allar bera keim af ör-
væntingu. Þar var helst talað um
að leysa húsnæðisvandann „frá
manni til manns", hvernig svo
sem það á að skiljast.
Húsnæðismál eru mikilvægur
málaflokkur og miklu skiptir
hvaða stefnu stjórnvöld móta í
þeim efnum. Sjálfstæðismenn
hafa alla tíð lagt megin áherslu á
sjálfseignarfyrirkomulagið, að
gera öllum kleift að koma sér
upp eigin íbúðum án tillits til
tekna, stéttar eða fjölskyldu-
stærðar. Þessi stefna hefur ráðið
ferðinni lengst af hér á landi, og
hagstæð lánakjör í mikilli verð-
bólgu hafa gert framkvæmd
hennar auðveldari.
Á síðustu misserum hafa orðið
miklar breytingar á þessu sviði.
Kemur þar tvennt til.
Annarsvegar eru lán verð-
tryggð, sem þýðir að húsbyggj-
endur geta ekki lengur slegið lán
útá verðbólguna. Hinsvegar hef-
ur fé verið dregið út úr hinu al-
menna lánakerfi, til að standa
undir félagslegum íbúðum og
lánum til þeirra. Þetta er gert að
frumkvæði vinstri manna, sem
vilja mismuna fólki með hliðsjón
af tekjum þess. Auðvitað er ekk-
ert nema sjálfsagt að tekjulitlum
einstaklingum sé veitt aðstoð til
húsnæðiskaupa, en það er frá-
leitt að láta aðra borgara gjalda
þess. Meginatriði hlýtur að vera,
að allir sitji við sama borð. Kerf-
ið á ekki að refsa þeim, sem
spjara sig með dugnaði og fram-
taki.
I viðtali.sem Vísir átti við Pét-
ur Ðlöndal stærðfræðing um
helgina setti hann fram þá skoð-
un sína, að leggja ætti Bygginga-
sjóðinn niður. í stað þess ættu
bankarnir og lánastofnanir að
annast f járveitingar til húsnæðis,
eins og tíðkast víða erlendis. Að-
stæður fólks eru mismunandi,
þarfir og langanir, og það er frá-
leitt kerf i, sem felur það í sér,að
pólitískir fyrirgreiðslumenn hafi
i hendi sér, hver fái lán eða geti
staðlað umsóknir. Með niðurfell-
ingu Byggingasjóðs má spara
skatta, auka tryggingar og bæta
lífskjörin að öðru leyti. Hinn al-
menni f jármagnsmarkaður mun
standa undir húsnæðislánum og
ætti að vera f ullfær um það, þeg-
ar verðtrygging er á lánum og
sparifé eykst stórum á innláns-
reikningum.
Hér er um stórfellda kerfis-
breytingu að ræða, hugmynd,
sem stjórnmálamenn ættu að
leiða hugann að í stað þess að
stunda þrætubókarlist um auka-
atriði. Þá leggst sá ósiður niður,
að pólitfkusar séu að leysa mál
„frá manni til manns", og ör-
væntingarfullt tal um leigunám
og skyndiúrlausnir verður úr
sögunni. Þannig má sömuleiðis
forðast þá hneysu, að fólki sé
raðað niður í húsnæði eftir tekj-
um og stéttum.
Samkvæmt rikisiltvarpinu er
engu likara en frelsarinn sé
krossfestur á hverjum sunnu-
degi. Þannig dettur Utvarpiö i
slikt makalaust þungiyndi á
hverjum sunnudegi, aö jafnvel
léttlyndustu og bjartsýnustu
menn hengja höfuö ef þeim
veröur á aö kveikja á viötækinu.
Allan sunnudaginn glymur
þunglyndiö. Morguntónleikar,
hádegistónleikar, mibdegistón-
leikar, kórsöngur, létt tónlist frá
austurriska Utvarpinu (hér ætti
létt aö vera innan gæsalappa)
og loks frá tónleikum Kammer-
mUsikklúbbsins. Þaö vill til aö
fáurn veröur á aö hlutsa á alla
þessa dagskrárliöi enda vill út-
varpiö eflaust engum svo illt.
Hér er svo sem ekki veriö aö
mælasttil þess aö öllum þessum
dagskrárliöum veröi hent út
enda eflaust einhverjir sem
hlutea á eitthvaö af þessu þótt
kannanir hafi sýnt aö þeir eru
fáir.Hins vegar sýnist ekki gera
ósköpin öll til þótt svo sem eins
og einn þáttur meö raunveru-
lega létttri tónlist kæmi i' staö
einhvers þessara liða.
Kröfur til flytjenda
Um kvöldmatarleytiö á laug-
ardg las Jón Danielsson palest-
inska smásögu Skóburstarann,
eftir einhvern Kanafani. Sagan
var prýtileg og þaö sem meira
er, lestur Jóns var betri en oft
gerist I útvarpinu og raunar á-
gætur. Þaö vill nefnilega oft
brenna viö, aö lesendur efnis i
útvarpinu séu hreint aldeilis
ekki læsir. Þá er ekki átt viö aö
vera læs i þeim skilningi aö
menn getiekki stautaö sig fram
úr launatékkanum heldur hitt,
aö framsögn er oft svo slæm aö
verr er af staö fariö en heima
setiö. Hér er meinsemd á ferö,
sem blessaö skólakerfiö á auö-
vitaö ab bæta úr og hætta aö
krefjast þess aö börnin lesi á
einhverjum methraöa en leggja
þess i staö áherslu á framsögn-
ina. Á meöan menn útskrifast
ekki sjálfkrafa læsir úr skólum
landsins verbur útvarpið að
velja úr þá sem hæfir eru.
Léttir og friskir
Laugardagssyrpa Páls Þor-
steinssónar og Þorgeirs Ast-
valdssonar er skóladæmi um
rétta timasetningu á útvarps-
efni. Tíminn eftir hádegi á laug-
ardegi er afar vel fallinn til
flutnings á léttu efni, sem ekki
þarf aö leggja mikið á sig til aö
FJÖLMIÐLAR
SÍÐUSTU VIKU
geta notið og það skilja þeir fé-
lagar. Þeir leika létt og friskt
efni og eru sjálfir nákvæmlega i
takt viö þaö. Kynningar þeirra
eru fjörlegar og gott tempó í öll-
um þættinum. Sama má raunar
segja um allar Syrpurnar og
þætti Gunnars Salvarssonar og
Jónatans Garöarssonar. Sá galli
er hins vegar á, að tveir siöast-
nefndu þættir eru settir á af-
káralegan tima.
Morgunvakan
Nú les maöur að ákveðið sé,
aö Páll Heiöar stjórni morgun-
vöku á hverjum virkum morgni
ivetur. Satt aö segja er þessi á-
kvöröun litiö fagnaðarefni i
huga minum. Páll Heiöar hefur
gert marga góða hluti fyrir út-
varpiö og geröi einmitt einn
slikan þegar hann reiö á vaðiö
meö Morgunpóstinn. Sá þáttur
var hins vegar kominn i svo
fastan og þungan farveg undir
lok siöasta vetrar, aö þaö sem
sagt var hér aö framan um
sunnudagsþunglyndið færöist
yfir á virka daga. Hér er lang
oftast á ferð áheyrilegasta efni
en þvi miður á röngum tima.
Viö sem ekki erum með sjötiu
og sjö útvarpstæki i hibýlum
okkar getum ekki meö nokkru
móti numiö speki morgunsins
meöan rakvéÚn suöar, tann-
burstinn djöflast og maður
þeytist milli herbergja viö önn-
ur morgunverk. Þó viröist eiga
að vera eitthvað um tónlist i
nefndri Morgunvöku. Það er
enda það efni, sem best á heima
á slikum ti'ma.
Já hugguleg....
Af vettvangi sjónvarps ber
auðvitað Dallas hæst. Einhvern
veginn hafa þeir sem i sér láta
heyra um sjónvarp lýst van-
þóknun sinni á þessum þætti.
Enginn heyristmælahonum bót.
Af þessu draga menn svo þá á-
lyktún aö þatturinn sé ómögu-
legur. En hvernig skyldi standa
á þvi, aö götur tæmast á dag-
skrártima Dallas? Sannleikur-
inn er sá aö þaö ær ekkert viö
þennan þátt sem kallar á þá for-
dæmingu, sem komið hefur Ut
úr mönnum. Það skiptir engu
máli þótt þátturinn sé einfaldur,
barnalegur, yfirborðskenndur
og alltannaö sem mennkjósa að
nefna þvi þaö breytir eldci þvi
að þjóöin vill horfa á Dallas.
Þess vegna geta sjálfskipaðir
menningarpostular horft á
rússneskar hægagangsmyndir i
prívatklúbbum. Við hinir ætlum
að halda áfram að horfa á Dall-
as meöan oss endist lif og heilsa.
Annars er merkilegast af sjón-
varpinu aö segj a aö þangab
þangaö er nú komin ný dag-
skrárþula. SU er hugguleg og á-
gæt. Liklega verður aö láta
hana fara fyrir huggulegheita
sakir þvf nú oröið má kvenfólk
ekki h'ta svoleiöis Ut.
Flosi
Blaöalestur var meö eðlileg-
um hætti hjá manni þessa
siðustu viku og fátt eitt sérstakt
um blööin að segja. Húsnæðis-
mál tóku bróðurpartinn af
fréttaumfjöllun sumra blaða og
veitir vist ekki af að ýta enn
frekar viö þeim sem „stjórna”
borginni. Annars var Flosi auö-
vitað bestur.