Vísir - 16.09.1981, Qupperneq 19
Miðvikudagur 16. september 1981
VtSIR
19
Alison I búningsherberginu fyrir
sýninguna.
„Þessar steipur eru ekki bara heimskarljóskur”—segir
Alison, sem hér er lengst til vinstri.
' V
Þaö þekkja sjálfsagt fáir „Nelly litlu” á þessari mynd, en hér er
Alison i miöju kafi við að iáta draum sinn rætast.
Draumur Alison rættist
Alison Arngrinri/ sem sjónvarpsáhorfendur þekkja betur sem Nelly litlu úr ,,Hús-
inu á sléttunni" er nú orðin stór stelpa og ekki lengur gjaldgeng í hlutverk litlu sak-
lausu sveitastúlkunnar, enda mun hún sjálf haf a orðið þeirri stund fegnust er hún
losnaði úr hlutverkinu. Þær sögur hafa nú borist, að hún hafi að undanförnu
dansað í næturklúbbi einum í Las Vegas, en með því tiltæki var hún að láta gamlan
draum sinn rætast.
— „Min æðsta ósk hefur alltaf
verið að koma fram sem dans-
mær”, — segir Alison og bætir þvi
við að þetta hafi verið afar lær-
dómsrikt eins og nærri má geta.
— „Ég lærði mikið af stelpunum
og get borið vitni um, að þetta er
mjög erfið vinna. Þessar stúlkur
hafa til að bera mikla hæfileika
og það er ekki rétt sem sumir
vilja halda fram, að þessar
stelpur séu bara heimskar ljósk-
ur”, — segir hún.
Alison segir að það hafi tekið
hana um tvær klukkustundir að
klæðast búningnum, sem var
skreyttur rinarsteinum og höfuð-
diásnið vó um 20 pund enda varö
hún aö æfa sig i dágóöa stund til
aö halda jafnvægi með alla þessa
þyngd á höföinu.
En Alison segir að allt hafi
þetta veriö þess virði og hún sé
ánægð yfir að hafa látið ósk sina
rætast. Það er lika alltaf ánægju-
legt, þegar fólk getur látiö
drauma sina rætast, hversu
heimskulegir sem þeir annars
eru.
ÉF Óánægja
W í Dallas
' Mikil óánægja hefur nú
blossaö upp meöal leikaranna i
sjónvarpsþátfunum ,,Dallas"
og stafar reiöi þeirra af hinni
slæmu búningsaðstöðu sem
MGM kvikmyndafélagið lætur
þeim i té. Hefur staöiö i stappi
vegna þessa máls nú um nokk-
urt skeið og herma fregnir aö
Linda ,,SueEllen" Gray hafi
misst þolinmæðina og kostað
þúsundum dollara í viðgerð á
búningsherbergi sínu, úr eigin
. vasa...
Hinn reynslurlki elskhugi, Pat er alsæl með Iffið og tilver-
Massimo una
Pat Kennedy
I slagtogi
með þekktum
gledimanni
Leikarinn Peter Lawford var á milli tannanna á okkur hér á síð-
unni ekki alis fyrir iöngu, þar sem viö veltum okkur upp úr sögum af
niöurlægingu hans og drykkjuskap. Þess vegna er ekki úr vegi að
gera konu hans fyrrverandi sömu skil og reifa í stuttu máli sögur af
ástarmálum hennar sem nú ganga fjöllum hærra vestan hafs. Og
ekki sakar aö konan sú er þekkt persóna i heimalandi sinu, Pat
Kennedy, systir þeirra frægu bræðra.
Sögurnar ganga að mestu út á
manninn sem nú á hug hennar
allan. Hann er bað sem kalla má
„gleðimaöur” (sbr. gleöi-
kona), eða það sem á alþjóöa-
máli heitir „gigolo”, en slikir
menn hafa framfæri sitt af að
uppfylla ástarþörf kvenna gegn
greiöslu. Massimo Gracia heitir
hann, ættaöur úr Suðurálfu og
einn af þekktari gleðimönnum á
meginlandi Evrópu, en hans er
m.a. getið i bókinni „Gigolos:
The Worlds best kept men”,
sem fjallar um þá tekjuhæstu i
þessari starfsgrein.
Pat kærir sig kollótta um for-
tið elskhugans og fer ekkert duít
með samband þeirra þótt hin
fræga fjölskylda hennar hafi
reynt að koma vitinu fyrir hana.
Massimo er fertugur að aldri
og býr i villu mikilli i Paris, sem
ein af fyrrverandi ástkonum
hans gaf honum. Eins og nærri
má geta kann hann vel við sig i
návist kvenna og konum virðist
liöa afar vel i hans félagsskap
enda fara miklar sögur af hæfi-
leikum hans á þessu sviði.
Pat sem nú er 57 ára, hefur
opinberlega borið hæfileikum
hans fagurt vitni og segist ekki i
annan tima hafa verið ham-
ingjusamari.