Vísir - 17.10.1981, Blaðsíða 18
Laugardagur 17. október 1981
18
Datsun 280 C diesel árgerð 1980
63000 km. — litur hvitur — útva
sérflokki
Tii sýnis hjá
BILASALAN BUK s/f
SÍÐUMÚLA 3-5-105 REYKJAVlK
SlMI: 86477
Opið i dag til kl. 18 • sunnudag kl. 14-17
Sadofoss lím
og þéttiefni
Eigum ávallt fyrirliggjandi á lager:
Þéttiefni — góiflím — veggiím — flísalím — trélím
hobbylím — steinlím.
Tréfylli
sandsparsl — kittissprautur og frauðlista
cft:
byggingavörur________
Hringbraut 119 —Símar 10600
og 28600
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njólsgötu 49 — Simi 15105
E
IANDSVIRKJUN
Skoðunarferð að
Sultartanga
Landsvirkjun mun væntanlega láta hefja
framkvæmdir við byggingu Sultartangastíflu
árið 1982, og mun verkið væntanlega boðið út
um áramótin 1981/1982.
Landsvirkjun hyggst efna til skoðunarferðar,
föstudaginn 23. október 1981 með fulltrúum
þeirra verktaka er áhuga hafa á að bjóða í
verkið, og eru þeir beðnir að tilkynna þátttöku
sina á skrifstofu Landsvirkjunar fyrir kl.
16:00 þriðjudaginn 20.10.1981. Farið verður frá
Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, Reykjavík
kl. 08:00
VÍSIR
(slensk list
í hávegum
Nú síðast á listiónaöarsýningu
í Danmörku — En hér heima?
tslensk leirlist á sýningunni i Fredrikshavn
Enn berast fregnir af
afrekum íslenskra
listamanna á erlendri
grund, fimm grafik-
listakonur slá i gegn i
Noregi og sýning á list-
iðnaði i Danmörku vek-
ur athygli þarlendis og
er þá aðeins það allra
n.ýjasta talið.
Listiönaöarsýningin sem um
ræöir, stendur yfir um þessar
mundir i Bangsbo-safninu i
Fredrikshavn á Jótlandi. Þar
hafa undanfarin átta ár veriö
haldnar norrænar listiönaöar-
sýningar undir nafninu Pejling.
Danirhafa sýnt þrisvar, Noreg-
ur og Sviþjóö t visvar hvort land,
Finnland einu sinni en tsland
ekki fyrr en nú, á niunda ári
Pejling-sýninganna.
Hefur skapað sér sess
Pejling-sýningarnar hafa
þegar skapaö sér viröingarsess
i heimi norræns listiönaðar og
þykir heiður aö hafa átt þar
verk. Það mun lengi hafa verið
ósk forráöamanna sýningarinn-
ar, aö fá i'slenska sýningu en
gengið stirölega þangaö til Nor-
ræna húsið tók virkan þátt i
skipulagi þess með milligöngu
sinni núna. Norræna húsið sneri
sér til Stefáns Snæbjarnarsonar
innanhússarkitekts og hafði
hann nokkurs konar yfirumsjón
meö framkvæmdum, vali lista-
verka og uppsetningu þeirra.
Stefán tengdist listiönaöarsýn-
ingunni í Hasselby, sem si'ðan
var hér á Kjarvalsstöðum i
sumar og vakti einróma aödá-
un.
Sýningin hófst þann 2. október
og varir til 8. nóvember en þá
verður húnflutttilListasafnsins
i Tönder á Suður-Jótlandi. 1
tengslum viö þessa listiðnaðar-
sýningu fer einnig fram annars
konar kynning á Islandi, m.a.
veröur sýnd kvikmynd AgUsts
Guðmundssonar, Land og synir.
24 listamenn sýna
Listamennirnir sem sýna
handverk sitt á þessari sýningu
eru 24 og eru gullsmiðirnir
Hjördis Gissurardóttir, Jens
Guöjónsson, Guöbrandur Jez-
orsky, Jón Snorri Sigurðsson,
leirlistarfólkið Kolbrún Björg-
ólfsdóttir, Jönina Guönadóttir,
Jóna Guðvaröardóttir, Elisabet
Haraldsdóttir, Steinunn Mar-
teinsdóttir, Borghildur óskars-
dóttir, Edda óskarsdóttir,
Rúna, Gestur Þorgrimsson, Sig-
rún Ólöf Einarsdóttir glerlistar-
maður og textilhönnuðurnir
Guðrún Auðunsdóttir, Sigrún
Guðmundsdóttir, Guðrún Gunn-
arsdóttir, Ina Salome Hall-
grimsdóttir, Sigriður Jóhanns-
dóttir, Leifur Breiðfjörð, Hulda
Jósefsdóttir, Ragna Róberts-
dóttir, Aðalheiður Skarphéðins-
dóttir og Eva Vilhelmsdóttir.
Góðar móttökur
Eins og getið var i upphafi,
hefur þessi sýning vakið athygli
ogfengið góðar móttökur i Dan-
mörku. Einn gagnrýnendanna
lætur þess sérstaklega getið
hversu margar konur eiga gripi
þarna en tekur þó fram að það
eitt út af fyrir sig geri þessa
sýningu ekki svo sérstaka held-
ur hitt, hversu gæðagóð hún er
og fjölbreytt. Þessi gagnrýn-
andi getur þess að um sé að
ræða nútimaleg listaverk, en
nútimaleg á islenska visu, þ.e.
listamennirnir sæki hugmyndir
sinar til lands og menningar
bæði hvað varðar efni og form :
,,í leir, gleri og málmum koma
fram form, sem engum dytti i
hug að móta, nema að hafa búið
ilandi elds og sögumenningar.”
Hugleiðing blaða-
manns
Undirrituð hefur um þó nokk-
urt skeið tekið við fréttum af
listafólki og listaverkum og er
orðin þvi alvön að skoða erlend-
ar blaðagreinar, þar sem ekki
hvaö sist islenskri myndlist er
hrósað i hástert. Þessar blaða-
greinar eru fyrir löngu hættar
að furða sig á, að þetta „litla
landá Norðurslóðum” geti yfir-
leitt nokkuð! Þvert á móti eru
islenskir myndlistarmenn álitn-
ir jafningjar sem skapa verk, er
standa fullkomlega jafnfætis
annarra þjóða listaverkum.
Þetta kann enn að koma is-
lenskum blaðalesendum á óvart
enda eru blöð öllu latari við að
halda þessum merkjum á loftá
en t.d. merkjum iþróttamanna
eða skákmanna. Mér þykir full
ástæða til að benda á þetta ekki
sist þessa dagana, þegar and
stæðurnar eru svo ljósar sem
þæreru, hvað varðar það álit og
þá virðingu sem borin er fyrir
okkar fólki utan landssteinana
annars vegar og svo þá með-
höndlan sem það fær hér heima
hins vegar af þvi opinbera. I
þessu sambandi má vel minnast
þess, að islensk listhönnun er
sist verri landkynning en bolti i
mark knattspyrnuandstæðing-
anna. Þess vegna skýtur það
skökku við ef satt er, að ástæða
þykir til að sækja hönnuði frá
útlöndum þegar ljóst er, að
jafngott, ef ekki betra fólk, er
þegar fyrir hendi hér heima og
þess vegna hefði verið ástæða
t.d. til að gefa baráttudegi
myndlistarmanna sem var á
miðvikudaginn var meira rúm i
fjölmiðlum en gert var, en sá
dagur fór meira og minna fram
hjá bæði dagblöðum og Rikisút-
varpi.
Enginn stuðningur hins
opinbera
Kjarabaráttumenn myndlist-
arfólks hafa verk að vinna, ekki
aðeins hvað varðar fjárhags-
kjör heldur önnur kjör lfka. Hér
erþarft.að benda á, svo dæmi sé
tekið, að sú listiðnaðarsýning,
sem nú er að auka hróöur okkar
i Danmörku, hlaut alls engan
styrk frá þviopinbera hér nema
hvað Menntamálaráðuneytið sá
ástæöu til að kosta för eins
manns til að vera viðstaddur
opnun sýningarinnar. Að ööru
leytier þessi landkynning okkur
að kostnaðarlausu.
Sömu sögu er að segja um
syninguna í Hásselby og raunar
flestar aðrar sýningar erlendis,
sem tsland hefur tekið þátt í —
alls staðar hafa veriö um boð að
ræða en ekki hitt, aö stutt hafi
verið við bakiö á þeim, sem
sýna, af íslenskum stjórnvöld-
um. Einhvern veginn finnst
manni timi vera til þess kom-
inn, aö hér verði snúið blaöi.
Ms