Vísir - 17.10.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 17.10.1981, Blaðsíða 20
20 VÍSIR Laugardagur 17. október 1981 Sveita lif hvad, hvar...? Háskólabió/ Mánudags- mynd: Klossatréö Leikstjóri: Ermanno Olmi Itölsk/ gerð árið 1978. „Tréklossatréö” er nokkurs- konar lofsöngur um noröur- -italskt bændafólk, nánar til- tekiö Ibúa Lombardy-héraös, en þar er Olmi einmitt fæddur. Kvikmyndin greinir frá daglegu' lifi nokkurra bændafjölskyldna um siöustu aldamót. Bændurnir eru leiguliöar og veröa aö skila landeigandanum tveim þriöju af uppskerunni og lifiö og fátæktin ganga sinn vanagang. Batisti bóndi á litinn dreng, Minek, sem er svo greindur aö sóknarpresturinn krefst þess aö hann veröi sendur i skóla. Slikt var þá fáheyrt meöal bænda. Ekkjan Runk þvær þvott i ánni og sér þannig fyrir sex börnum. Ungt par giftist, fer til Milanó i eins dags brúökaupsferö en þar telja nunnur þau á aö taka aö sér ársgamlan munaöarleys- ingja. Þegar Minek brýtur tréklossann sinn heggur faöir hans tré sem auövitaö er eign landeigandans og fyrir vikiö er fjölskyldan gerö brottræk úr sveitinni og þar meö sett á Guö og gaddinn. „Klossatréö” er ákaflega ljóöræn mynd og Olmi sýnir glöggt tilfinningar fólksins sem hann fjallar um. Raunar má segja aö hér sé á feröinni hljóö- látt meistaraverk svo smáir eru viöburöir söguþráöarins. Til meiriháttar tíöinda teljast slátrun svins, brúökaupsferöin stutta og gullpeningsfundur bónda nokkurs. Bóndinn sem finnur myntina felur hana undir hófi hests og þegar peningurinn kemur ekki i leitirnar þegar bóndi hyggst vitja hans lemur hann hestinn og kallar hann þjóf. Framferöi bóndans við hestinn minnir raunar á sam- band hans sjálfs viö landeigand- ann. Brottrekstur Batisti og fjöl- skyldu hans sýnir glöggt hvert vald landeigenda var og i brúö- kaupsferöinni til Milanó veröa ungu hjónin vör viö uppreisnar- andann þó þau sjái aldrei neitt sem raunverulega bendir til uppreisnar. Þannig kemst póli- tiskur boöskapur myndarinnar til skila án þess aö hann sé hrópaöur á torgum. Olmi notar sjaldan leikara heldur fólk sem fæst viö sömu störf og lýst er 1 myndum hans. Þaö eru því bændur og búalið sem fara meö hlutverk i „Klossatrénu”. Þaö á án efa sinn þátt i þvi hve ákaflega raunsæisleg myndin er. Þess má geta aö leikarnir i „Klossa- trénu” eru allir frá Bergamo, fæöingarsveit Olmis. Ermanno Olmi er án nokkurs efa meöal hæfileikarikustu leik- stjóra heims. Hann skrifar, stjórnar, leikstýrir og myndar sjálfur kvikmyndir sinar. Kvik- myndaiðnaðinum hefur ekki tekist aö læsa klónum i Olmi, hann vinnur sjálfstætt og hefur þvi oft á tiöum litiö fé handa á milli. En þó „Klossatréö” hafi ekki kostaö mikiö, mælt i gulli, þá hefur Olmi kostaö öllu til sem listamaöur og myndin veröur aö teljast meö fágætum perlum I sögu kvikmyndanna. —SKJ ....Nýja Biósýnir nú víöfræga gamanmynd 9 til 5. Myndin greinir frá ofboö venjulegri skrifstofuþarsemkarlmaöur er yfirmaöur og hefur fjölda kvenna aö undirtyllum. Yfir- maöurinn er liklega heldur verri en meöalyfirmaöurinn, sniögengur konur viö stöðuveit- ingar þuklar þær og sýnir þeim litilsviröingu á alla kanta. Skrif- stofustúlkurnar una ástandinu afar illa og tilviljanimar haga því svo a ö þær hafa brátt öll ráö húsbóndans i hendi sér. Starfs- stúlkurnar eru leiknar af Jane Fonda, Lili Tomlin og Dolly Parton en þaö er sú síðast- nefnda sem slæri gegn og er oft ákaflega fyndin. Góö gaman- mynd.sem ættiaö vera viö allra smekk..... HáskólabM sýnir annan hluta af Superman. Superman stendur enn sem fyrr istórræöum og nú á hann i höggi vib þrjá illvirkja sem allir búa yfir sömu ofurorku og hann sjálfur. En eins og strákurinn sagöi: „Superman getur sko allt” og þaö viröast krakkamir kunna ab meta, gottef fullorönir eru ekki sumir á sama báti þeg- ar Superman er annars vegar.... Cannonball Run er þaö sem sumir myndu kalla hreinustu endaleysu en þó brandarar myndarinnar séu sundurlausir eru þeir oft á tiöum alveg yfir- máta spaugilegir.... Gamla Bió er nú sjötiu óg fimm ára og af- mælismyndin er Fantasia Walt Disneys. Fáar teiknimyndir hafa orðiö frægari eða hlotið mári vinsældir enda Fantasi'a ofurhugljúf mynd. Þaö má kall- Sólveig K. Jónsdóttir. skrifar ast happ ef ein frambæriieg mynd fyrir börn finnst i kvik- myndahúsum borgarinnar og nú þegar sýningum á Hringa- dróttinssögu hefur veriö hætt er óhætt aö mæla meö Fantasiu sem bestu myndinni fyrir þá sem ungir eru.... Minek kemur heim með brotinn tréklossa. í vinnu frá niu til fimm, Jane Fonda, Dolly Parton og Lily Tomlin. Myndlist Galleri Djúpiö: Ivan Török, leikmyndateiknarinn velþekkti, opnar málverkasýningu i dag kl. 15.00. Listaskáli ASt: Þar er yfirlitssýning á myndvefnaði hins ágæta vefara, Asgerðar Búadóttur. Listaskálinn er opinn daglega frá kl. 14—22. Norræna húsiö: í sýningarsal i kjallara stendur yfir sýning tslenskrar grafikur á verkum sextán grafiklistamanna. A laugardagskvöld kl. 20.30 flytja þau Snorri Sigfús Birgisson (pianó) og Manuela Wiesler (flauta) nokkur verk fyrir sýningargesti. t anddyri er sýning á prjónlesi dönsku listakonunnar Aase Lund Jensen. Kjarvalsstaöir: A laugardag kl. 14.00 opnar i vestursal sýning á franskri grafik, og meðalhöfunda eru Picasso, Chagall og Miró. Við opnunina leikur Hall- dór Halldórsson frönsk lög á pianó. Sama dag opnar i forsölum sýning á verkum nemenda I skóla Heimilisiönaöarins. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega frá kl. 14—22. Listasafn íslands: Listasafnið heldur mikia yfirlitssýningu á verkum Kristjáns Daviös- sonar, listmálara, og spannar sýningin allt málaraskeiö Kristjalis, frá þvi hann er fimmtán ára gamall og fram á okkar daga. Nýlistasafniö: A sunnudagskvöld kl. 20.00 fremur Kristinn Harðarson gerning (performance). Galleri Langbrók: Þar stendur yfir sýning á verkum Langbrókara. Galleriið er opið alla virka daga milli kl. 12—18. Torfan: Ljósmyndir úr sýningum Alþýðuleikhússins hanga þar á vegg, gestum til bæði fróðleiks og skemmtunar. Listasafn Einars Jónssonar — Hnitbjörg: Safnið eropið sunnudaga og miðvikudaga milli kl. 13.30—16.00. Ásgrimssafn: Safnið er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 13.30—16.00. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Safnið er opið laugardaga, þriðjudaga og fimmtudaga milli kl. 14.00—16.00 alla dagana. Leiklist Alþýöuieikhúsið: STERKARI EN SÚPERMAN — laugardag kl. 15. STJÖRNLEYSINGINN — laugardag kl. 23.30 — Fáar sýningar eftir. STERKARI EN SÚPERMAN — sunnudag kl. 15. Miðasölusimi i Hafnarbiói 1 64 44. Leikfélag Reykjavikur: BARN 1GARÐINUM — laugardag kl. 20.30 — Allra siöasta sýning. SKORNIR SKAMMTAR — laugardag kl. 23.30 i Austurbæjarbiói. ROMMÍ — laugardag kl. 29.30. Miöasölusimi I Iðnó 1 66 20 — I Austurbæjarbiói 1 13 84. Þjóðleikhúsið: HÓTEL PARADÍS — laugardag kl. 20.00 DANS A RÓSUM — sunnudag kl. 20.00 ÁSTARSAGA ALDARINNAR —sunnudag kl. 20.30á Litla sviðinu. Miðasölusimi 1 12 00. Tónlist Austurbæjarbió: Pina Carmirelli fiðluleikari og Arni Kristjánsson pianóleikari koma fram á vegum Tónlistarfélagsins á laugardaginn kl. 14.30. Norræna húsiö: Manuela Wiesler og Snorri Snorrason leika á laugardagskvöldi á sýningunni islensk grafik. Þau leika verk eftir Atla Heimi, Þorkel og Ravel. Fóstbræöraheimiliö: Skemmtikvöld fóstbræðra hefjast á laugardaginn kl. 20.30. Söngur, grin og gaman. Fjáröflun fyrir Bandarikjaferö. Fíladelfiukirkjan: Antonio Corveiras heldur orgeltónleika á laugardag kl. 17. Verk eftir gamla meistara.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.