Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 9

Morgunblaðið - 19.04.2004, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 9 www.ropeyoga.com Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Mikið úrval af fatnaði frá 36-56Str. Hörkjólar - hörpils - hörtoppar Fyrir vorið Laugavegi 63, sími 551 4422 Laugavegi 63, sími 551 4422 Sumarkápur, Vattstungnir sumarjakkar, Glæsilegt úrval Sendum lista út á land Vor/sumar 2004 Vesti .... 4.360 Toppur ...1.380 Belti .....1.730 Buxur ... 5.230 Skór .... 6.110 UM 60 milljóna króna sportbíll af gerðinni Porsche Carrera GT kom til landsins í gær með fraktvél Blá- fugls. Bíllinn, sem er fluttur inn af Bílabúð Benna og keyptur af Íslend- ingi sem hyggst selja hann aftur til útlanda, er líklega sá verðmætasti sem til landsins hefur komið. Aðeins um 350 bílar af þessari tegund eru framleiddir og mjög eftirsóttir. Bíllinn er hannaður með það fyrir augum að vindviðnám sé sem minnst og stöðugleiki í akstri sem mestur. Innbyggð vindskeið að aftan rís sjálfkrafa við 120 km/klst. og þrýstir afturhlutanum niður til að tryggja veggrip og stöðugleika. Vélin er í miðjunni þannig að þyngdarmiðjan er mitt á milli fram- og afturhjóla. Vélin er 10 ventla, 612 hestöfl og gír- kassinn er sex gíra. Undirvagninn er sömu gerðar og í kappakstursbílum og hægt er að stilla hann á ýmsa vegu. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Porsche-bíllinn dýrmæti við vél Bláfugls á Keflavíkurflugvelli í gær. Hann verður til sýnis á næstunni í umboðinu hjá Bílabúð Benna. Dýrmætur Porsche keyptur til Íslands LYFJAFRÆÐINGAFÉLAG Ís- lands (LFÍ) fagnar tillögu heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytisins um að lyfseðlar við sárasjúkdómi og geðdeyfð takmarkist ekki lengur við 30 daga. LFÍ lýsir aftur á móti áhyggjum sínum vegna tillagna ráðuneytisins um lækkun á lyfja- kostnaði og telur þær vera vanhugs- aðar og að þeir eigi eftir að koma verst niður á efnalitlum sjúklingum að því er kemur fram í fréttatilkynn- ingu LFÍ. Þá telur LFÍ að þær stangist á við lög um réttindi sjúklinga og þvingi fólk í heilbrigðiskerfinu til að taka upp vinnuaðferðir sem tíðkist í þró- unarríkjunum. LFÍ bendir á að í tillögunum um lækkun álagningar í smásölu sé ekki tekið tillit til afslátta sem apótek veita en þeir nemi nú um 500 millj- ónum á ári. Lækki almenn álagning sé mjög sennilegt að apótek afnemi eða lækki afslætti til sjúklinga. Þá telur LFÍ að tillögur um við- miðunarverð fyrir lyf með „sam- bærileg meðferðaráhrif“ í þremur lyfjaflokkum geti verið varasamar þar sem sjúklingar bregðist mis- munandi við lyfjum sem teljist til sama flokks. Sú staða geti komið upp að sjúklingur svari illa lyfi sem ódýr- ast er í tilteknum flokki og hann þurfi því að greiða mismun á verði ódýrasta lyfsins og því lyfi sem hent- ar honum betur. Lyfjafræðingafélag Íslands Tillögur heil- brigðisráðuneytis vanhugsaðar Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn STJÓRN Landverndar hefur sent frá sér tilkynningu þar sem tillögu fjár- málaráðherra um breytingar á gjald- töku á gas- og dísilolíu er fagnað. Seg- ir hún skynsamlegt, frá sjónarhóli umhverfisverndar, að hverfa frá nú- verandi kerfi kílómetragjalds á minni ökutæki og miða gjaldtöku í meira mæli við eldsneytisnotkun eins og hugmyndir um olíugjald fela í sér. Í tilkynningunni segir m.a.: „Stjórn Landverndar telur nauðsynlegt að við álagningu gjalda á eldsneyti sé tekið ríkt tillit til umhverfissjónarmiða. Notkun sparneytnari ökutækja sem menga minna er til bóta fyrir um- hverfi og heilsufar og er jafnframt hagkvæm fyrir samfélagið. Gjöldin eiga að hvetja til notkunar á samgöngutækjum sem valda sem minnstu álagi á umhverfið. Jafnframt eiga gjöldin að endurspegla raun- verulegan kostnað við notkun elds- neytis og áhrif brennslu þess á um- hverfið. Gjaldið á að beina eftirspurn að ökutækjum sem nýta eldsneytið sem best. Tillögur fjármálaráðherra ganga í þessa átt. Notkun sparneytn- ari ökutækja sem menga minna er til bóta fyrir umhverfi og heilsufar.“ Tillaga um olíugjald spor í rétta átt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.