Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 17

Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 17
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 17 STUTTMYNDIN „Bjargvættur“ í leikstjórn Erlu Skúladóttur gerir víðreist í heimi kvikmyndahátíða. Myndin hefur þegar unnið til einna áhorfendaverðlauna sem besta er- lenda stuttmyndin á kvikmyndahá- tíðinni Austin Film Festival í Tex- as. Í mars fór Bjargvættur á 4 hátíð- ir í Bandaríkjunum, 2 í Kaliforníu (Tiburon International Film Festi- val og Sonoma Valley Film Festi- val), eina í Chicago (Women in the Director’s Chair International Film Festival) og síðan á Martha’s Vi- neyard Independent Film Festival. Að sögn leikstjórans Erlu Skúla- dóttur verður hún á ferð og flugi með myndina á næstu vikum. „Við byrjum á hátíð í New York borg, First Run Film Festival, og förum síðan til San Francisco, en San Francisco International Film Festi- val er ein sú stærsta á vest- urströndinni og verður 47. hátíðin haldin í lok apríl. Á First Look Int- ernational Film Festival hátíðinni í Colorado hefur Bjargvættur verið útnefnd til verðlauna sem besta leikna stuttmyndin, en hátíðin fer einnig fram í lok apríl. Aðrar hátíðir, sem myndin tekur þátt í og fara fram í maí eru Nash- ville Film Festival, Syracuse Int- ernational Film and Video Festival og Forest Grove International Film Festival. Fyrsta evrópska kvikmynda- hátíðin sem Bjargvættur fer á er svo Oberhausen International Short Film Festival í Þýskalandi, en þar er myndin í samkeppn- isflokki sem besta barna- og ung- lingastuttmyndin,“ segir Erla Skúladóttir. Morgunblaðið/Arnaldur Erla Skúladóttir, lengst til vinstri, ásamt íslensku og bandarísku samstarfsfólki sínu við kvikmyndina Bjargvætt. Bjargvættur á 11 kvikmyndahátíðum LÚÐRASVEIT Reykjavíkur heldur tónleika í Borgarleikhúsinu annað kvöld, þriðjudaginn 20. apríl kl. 20.30. Einleikari með lúðrasveitinni er rússneski klarinettuleikarinn Dimitri Þór Ashkenazy sem staddur er hér á landi og fékkst til að leika með sveitinni. Hann mun leika ein- leik í Concerto For Band, verki bandaríska klarinettuleikarans Artie Shaw í útsetningu Daniels Hauschens. Stjórnandi er Lárus Halldór Grímsson. Dimitri fæddist í New York 1969, sonur hjónanna Þórunnar og Vlad- imirs Ashkenazy. 1978 fluttist hann með foreldrum sínum sem þá bjuggu á Íslandi til Sviss, þar sem hann býr nú. Hann hóf píanónám aðeins 6 ára en skipt síðan yfir í klarinettuleik og nam við Conservatory í Lucerne í Sviss. Síðan þá hefur hann haldið fjölda tónleika í heimalandi sínu og utan þess bæði sem einleikari og með sinfóníuhljómsveitum og kammersveitum. Á tónleikunum frumflytur lúðra- sveitin einnig verkið „Hver tók ost- inn minn“ eftir ungan meðlim Lúðra- sveitarinnar, altósaxófónleikarann Báru Sigurjónsdóttur, sem hefur einnig útsett verkið og búið undir hljómsveitarflutning. Bára hefur í nokkur ár verið einn af einleikurum Lúðrasveitar Reykjavíkur en þetta er frumraun hennar í tónsmíð fyrir blásarasveit. Lúðrasveit Reykjavíkur Dimitri Ashkenazy einleikari á klarinett Dimitri Ashkenazy leikur einleik með Lúðrasveit Reykjavíkur. VÍNARKVÖLD í hádeginu er yf- irskrift síðustu hádegistónleika Óperunnar á vormisseri, sem haldn- ir verða kl. 12.15 á morgun, þriðju- dag. Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Snorri Wium tenór, Ólafur Kjartan Sigurðarson baritón og Davíð Ólafsson bassi flytja tónlist úr óperettum, m.a. Leðurblökunni, Sardasfurstynjunni og Kátu ekkj- unni. Kurt Kopecky leikur á píanó. Hádegistónleikarnir standa í um 40 mínútur. Hulda Björk Garðarsdóttir í Brúð- kaupi Fígarós. Vínarkvöld í hádeginu „ÉG hefði átt að leggja harðar að mér við dönskunámið“ er yfirskrift fyrirlestrar dr. Auðar Hauksdótt- ur sem hún flytur á vegum Stofn- unar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum á morgun, þriðjudaginn 20. apríl, kl. 16 í stofu 101 í Lögbergi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um niðurstöður þríþættrar meg- indlegrar og eigindlegrar rann- sóknar meðal íslenskra náms- manna í framhaldsnámi í Danmörku, sem unnin var á ár- unum 1999–2003. Greint verður frá viðhorfum nemenda til dönsku- kennslu í ís- lenskum grunn- og framhalds- skólum, þörfum þeirra fyrir dönskukunnáttu vegna náms og dvalar í Dan- mörku og hvern- ig þeir sjá sig í stakk búna að mæta þeim kröf- um um dönskukunnáttu sem náms- dvölin útheimtir. Loks verður rætt um hugmyndir námsmannanna að bættri dönskukennslu í ljósi reynslu þeirra af námsdvöl í Dan- mörku. Á ári hverju hefja hundruð ís- lenskra námsmanna framhaldsnám í Danmörku og í því sambandi gegnir dönskukunnátta þeirra lyk- ilhlutverki. Samkvæmt upplýsing- um Lánasjóðs íslenskra náms- manna sóttu um 1500 íslenskir námsmenn um lán eða styrk á árinu 2003 vegna náms þar í landi. Dr. Auður Hauksdóttir er dós- ent í dönsku við Háskóla Íslands og forstöðumaður Stofnunar Vig- dísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Fyrirlestur um dönskukunnáttu Auður Hauksdóttir AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.