Morgunblaðið - 19.04.2004, Blaðsíða 30
30 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Grettir
Smáfólk
VEISTU HVAÐ ÉG
VAR AÐ HUGSA?
ÉG VONA AÐ ÉG
VITI ÞAÐ EKKI!
HMM
ÉG HELD AÐ TÆRNAR MÍNAR SÉU
AFBRÝÐISAMAR ÚT Í FINGURNA Á
MÉR, VEGNA ÞESS AÐ ÞEIR FÁ AÐ
BENDA Á HLUTI...
ÉG VERÐ AÐ MUNA AÐ FÁ
MÉR ALDREI GÖNGUTÚR Í
ÞESSU HÚSI FRAMAR
ÉG
ELSKA
LAUF!
Leonardó
© LE LOMBARD
HVERNIG
VÆRI AÐ...
?
ÉG SKAL
OPNA
HVAÐ Á ÞETTA AÐ
ÞÝÐA LÆRLINGUR?
HVER RÆÐUR
HÉRNA?
JA... ÞÚ
ÉG
HELD
ÞAÐ
HVER HELUR ÞÚ AÐ GEFI
SKIPANIRNAR HÉR Á ÞESSU
VERKSTÆÐI?
ÉG VISSI ÞAÐ...
ÞAÐ ERT ÞÚ! ER
ÞAÐ EKKI?
JÚ! ÞANNIG AÐ ÉG GEF
SKIPUNINA UM ÞAÐ AÐ OPNA
HURÐINA. EKKI REYNA AÐ
OPNA HANA FRAMAR ÁN ÞESS
AÐ ÞÉR SÉ SKIPAÐ AÐ GERA
ÞAÐ!
ÉG SKIL EKKI ÞAÐ SEM ÞÚ
ERT AÐ REYNA AÐ SEGJA. ÉG
ÆTLAÐI AÐ OPNA HURÐINA
EN ÞÚ STOPPAÐIR MIG,
EN NÚNA...
OPNAÐU!!
HRAÐSKEYTI TIL
ALBERTS KLAUFA
ÞAÐ
ER ÉG
HVER VAR ÞETTA?
ÞAÐ VAR MAÐUR AÐ KOMA
MEÐ BRÉF TIL MÍN FRÁ
FRÆNDA TENGDARSONAR
AFADÓTTURSONAR
BRÓÐUR MÍNS, HANS ALLA
RICHTER
RICHTER! FALLEGT NAFN FYRIR
UPPFINNINGU. ÉG VERÐ AÐ FINNA
EITTHVAÐ UPP, EN HVAÐ?
framhald ...
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
EINAR Sveinbjörnsson skrifar um
vetrarfrí í Mbl. 8. mars sl. og hallast
ég helst að því að hann hafi verið einn
af þeim sem hlupu
á sig og sömdu um
vetrarfrí við
kennara án þess
að hafa lagt það
fyrir foreldra
hvort þeir vildu
það.
Ég var starf-
andi í foreldraráði
við skóla í Kópa-
vogi þegar vetrarfríin voru sett á.
Þetta var lagt fyrir fund í foreldra-
ráði og lagt til að við segðum til um
hvernig vetrarfrí við foreldrar vildum
en ekki hvort, þar er mikill munur á,
en ég vil taka það fram að ég sagði á
fundinum að allir kostir við vetrarfrí
væru slæmir og vildi fá að hafna vetr-
arfríi en það var ekki í boði.
Það má vera að Einar Sveinbjörns-
son hafi nóg af orlofsdögum og
kannski vetrarfrí líka en hinn „al-
menni“ starfsmaður hefur um 24 or-
lofsdaga. Taktu nú vel eftir, Einar, 24
daga. Það er ekki eins og það sé bara
vetrarfrí í skólum, það er öðru nær,
starfsdagar kennara, páskafrí og
jólafrí og leggið nú saman foreldrar í
hverju bæjarfélagi fyrir sig. Mitt álit
er að það eigi að vera sumarfrí í skól-
um í júní, júlí og ágúst til að njóta
sumarsins í heild sinni og koma til
móts við þarfir vinnuveitenda, for-
eldra og barna. Hægt er að hafa sum-
arfríin 3 tímabil, starfsmaður sem er í
fríi í júní í ár fær júlí á næsta ári
o.s.frv. Það er ekkert nema sjálfsagt
að t.d. leikskólar fylgi þessum tíma-
bilum eins að aðrar stéttir. Það væri
óskandi að þið nýttuð krafta ykkar í
að breyta sumarfríum í leikskólum til
að ekki verði þessi mannfæð úti á
vinnumarkaðnum í júlí, eins og þú
segir, það hefur verið á óskalistanum
hjá flestöllum sem nýta þjónustu leik-
skólanna. Það er verið að tala um fjöl-
skylduvæna stefnu en það er ekki
hægt að fylgja henni þegar foreldrar
lítilla barna þurfa alltaf að taka frí í
júlí sem gengur ekki gagnvart sam-
verkafólki og vinnuveitendum. Það er
örugglega hægt að skipuleggja
íþrótta- og tómstundastarf fyrir
grunnskólabörnin allt sumarið, líka
út ágúst, þannig að þau börn sem eru
í fríi með foreldrum sínum í júní eða
júlí geti nýtt sér það. Það verður að
halda kostnaðinum í lágmarki því
sumir foreldrar hafa ekki efni á að
leyfa börnum sínum að stunda íþrótt-
ir, ég gef mér að þú vitir það ekki.
Það er talað um að hvíla börn, gefa
þeim frí frá námi, það er hægt til
dæmis með þemaviku í skólanum fyr-
ir jól og páskafríið gefur frí á vorönn.
Foreldrar eru sumir hverjir líka með
börn í leikskóla sem er ekki endilega í
sama hverfi og grunnskólinn er og þá
eru aðrir starfsdagar sem þarf að
taka tillit til. Þetta með að skipta upp
vetrarfríum eftir búsetu til að koma
t.d. til móts við atvinnulífið, hvernig
dettur þér þetta í hug þótt þú vinnir á
sömu þúfu og þú býrð á?
Það verður aldeilis gósentíð hjá
vissum hópi manna sem stunda það
að fylgjast með hvort fólk sé heima
eða ekki, til að gera sig heimakomna
og jafnvel ná sér í sitthvað sem þá
vanhagar um eða geta selt, þegar bú-
ið er að gefa út að heilt hverfi sé í
vetrarfríi og kannski enginn heima.
Allir að skíða, ferðast, setjast upp hjá
ættingjum og vinum úti á landi eða
utanlands.
Fyrir utan það að ekki nema lítið
brot af þessum foreldrum hefur efni á
að „skíða norðanlands“. Mér hefði
fundist eðlilegt að þú hefðir í grein
þinni tekið fram hve marga daga for-
eldrar þurfa að geyma vegna allra
fría í skólanum og ekki þá gleyma
þeim dögum þegar kennsla er skert,
það þarf að taka hálfs dags frí vegna
þeirra daga líka. Það stóð kona upp á
fræðslufundi sem skólanefnd Kópa-
vogs hélt um skólamál í Kópavogi og
tjáði okkur að hún hefði þurft að nota
10 daga bara vegna vorannar. Ég
vonast til að fleiri tjái sig um þessi
mál.
ÓLÖF BJÖRNSDÓTTIR,
móðir og bankastarfsmaður.
Vetrarfrí í grunn-
skólum – slæmt
fyrirkomulag
Frá Ólöfu Björnsdóttur:
Í RITSTJÓRNARGREIN 14. apríl
er fjallað um færslu Hringbrautar og
skipulagsmál almennt og hvernig
nauðsynlegt er að taka tillit til óska
almennings í þeim málaflokki.
Ritstjóri fjallar ekkert um ástæðu
þess að verið er að flytja Hringbraut.
Þar er auðvitað átt við uppbygg-
ingu Landspítala á þeirri lóð sem
skapast við þessar framkvæmdir. Rit-
stjórnin hefur í gegnum árin stutt
sameiningu spítalanna. Það er því
nauðsynlegt að spyrja nokkurra
spurninga.
Umrædd uppbygging mun taka
langan tíma og kosta mikið fé. Gert er
ráð fyrir byggingu 85–90 þúsund fer-
metra af nýju húsnæði og kostnaður
gróflega áætlaður 30–40 milljarðar
króna. Telur ritstjórn að nauðsynlegt
fé til þessa verks muni fást á næstu
árum?
Ráðgjafar Ementor lögðu til að
bráðaþjónusta yrði færð í Fossvog.
Það þýðir byggingu u.þ.b. 30 þúsund
fermetra húsnæðis við núverandi
byggingu í Fossvogi. Kostnaður um
10–12 milljarðar króna. Núverandi og
fyrrverandi heilbrigðisráðherrar hafa
báðir hafnað því að skoða þessa leið.
Er ritstjórn sammála ráðherrunum
eða telur hún rétt að skoða málið áður
en lagt er í umræddar framkvæmdir?
ÓLAFUR ÖRN ARNARSON,
læknir.
Færsla Hringbrautar
og Morgunblaðið
Frá Ólafi Erni Arnarsyni: