Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 16

Morgunblaðið - 19.04.2004, Side 16
LISTIR 16 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Það er mikið ferðast í ljóðabók Ara Trausta Guðmundssonar Í leiðinni. Ljóðin eru flest ferðaljóð, skyndi- myndir af fólki og stöðum sem hinn víðförli vísinda- maður hefur sótt heim frá Ekvador til Norðurheim- skautsins og oftar en ekki á jöðrum hins byggilega heims. Þó má skilja hér frá ljóðabálk um Múlakaffi sem túlkar kannski fyrst og fremst alþýðuskap höfundar. Í sum- um ljóðum er náttúran í fyrirrúmi en í öðrum fólk og oft fólk við bágar að- stæður og erfið kjör. Þetta er lagleg- ur skáldskapur, myndrænn og skáld- ið hefur auga fyrir því sem fyrir ber í ferðum hans og þegar best lætur öðl- ast hinar hversdagslegustu skyndi- myndir persónulegan blæ og íhugul- an. Um Café Fromme sem hefur verið starfrækt í Köln frá 1893 eins og stendur á snarpheitum kaffibolla, yrkir Ari svo: … Hér sat faðir minn teiknaði laufléttar Kölnarleikkonur samdi titrandi ljóð um bláeyga ástina í blokkina sína … löngu áður en ég fæddist … Nú eru hér vel klæddar kaupkonur með farsíma á þönum en ástin til sölu í næstu búð við bleik neonljós … Ég dreg upp blokk og blýant … til hvers? … Raunar er ljóðið Ara Trausta hug- leikið yrkisefni, einkum af hverju ljóðið lifir. Hann setur fram þá til- gátu, eins og vísindamanni sæmir, að það sé lífvera sem þróist líkt og aðrar lífverur stig af stigi: … En líkt og amöbur, þríbroddar, risaeðlur, loðfílar, apar, menn þróast eitt ljóð af öðru … aftur og aftur. … Þess vegna lifir ljóðið. … Ari Trausti kemst einnig að því að saman eru orð og fólk ,,görótt blanda“ og hann kallar ljóðlistina ,,andrými lifandi manns“. Ari Trausti segir einnig á einum stað að gagnrýnendur séu ,,fyrirsjá- anlegir“. Það má segja um þann sem hér skrifar sem finnst kveðskapur Ara ósköp ljúfur, góður og vandaður en ljóð hans eru einnig nokkuð fyr- irsjáanleg og koma engum á óvart. BÆKUR Ljóð eftir Ara Trausta Guðmundsson. 88 bls. Vaka-Helgafell 2004 Í LEIÐINNI Frá Ekvador til norðurheimskautsins Skafti Þ. Halldórsson Ari Trausti Guðmundsson Reykhólahreppur stendur fyrir fjöl- breyttri menn- ingardagskrá á Reykhólum í Austur- Barðastrand- arsýslu á sum- ardaginn fyrsta, 22. apríl. Dagskráin hefst með opnun myndlistarsýn- ingar kl. 13 í Hjúkrunar- og dval- arheimilinu Barmahlíð þar sem Guð- mundur Björgvinsson mynd- listarmaður mun sýna verk sín. Kl. 14 hefst síðan dagskrá í íþróttasal Reykhólaskóla þar sem Eivör Pálsdóttir söngkona frá Fær- eyjum og Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur koma fram. Eivör syngur eigin lög og annarra og Þórunn mun lesa úr verki sem hún er með í smíðum um Matthías Jochumsson, en hann fæddist ein- mitt í Reykhólasveit á 19. öld. Að- gangur er ókeypis. Í Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Barmahlíð hefst kl. 15 sama dag árlegur Barmahlíðardagur þar sem seldar verða kaffiveitingar og sýndar ýmsar hannyrðir sem íbúar heimilisins hafa unnið. Sérstakur heiðursgestur verður Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, sem auk þess að skoða Barmahlíð mun njóta menningarviðburða sem í boði eru. Þetta er í annað sinn sem Reyk- hólahreppur stendur fyrir menning- aruppákomu á sumardaginn fyrsta, en sama dag í fyrra lásu tveir rithöf- undar úr verkum sínum og tveir tón- listarmenn léku á hljóðfæri. Áhugasömum má benda á að Reykhólar eru einungis í 230 km fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og er bundið slitlag á veginum nær alla leiðina. Allir eru hjartanlega vel- komnir á hátíðina að sögn heima- manna. Tónlist, myndlist og sagnfræði Eivör Pálsdóttir Þórunn Valdimarsdóttir Jón Kristjánsson Menningardagskrá á Reykhólum Efnt var til ritþings um bækur Arnaldar Indriðasonar í Gerðu- bergi á laugardag og var hvert sæti skipað og ríflega það, því sumir urðu að standa ef þeir vildu ekki verða af umræðunum. Örn- ólfur Thorsson bókmenntafræð- ingur stýrði umræðum en spyrlar ásamt honum voru Katrín Jak- obsdóttir bókmenntafræðingur og Kristín Árnadóttir framhaldsskóla- kennari. Margt fróðlegt kom fram í umræðum við höfund hinna geysivinsælu bóka um rannsókn- arlögreglumanninn Erlend og fé- laga hans en einnig hafa aðrar bækur vakið mikla ánægju eins og Bettý sem út kom fyrir síðustu jól. Margir voru einnig spenntir að heyra lesið úr nýjustu bók Arn- aldar sem væntanleg er á mark- aðinn í haust. Að ritþinginu loknu var síðan opnuð sýning á ýmsum munum sem tengjast bókum Arnaldar og gefa skemmtilega mynd af sögu- sviði þeirra og tíma. Lögreglan í Reykjavík hefur sett upp morð- vettvang samkvæmt lýsingu í upp- hafskafla Mýrarinnar og býður upp á leiðsögn um sýninguna. Sýningin um glæpasögur Arn- aldar Indriðasonar stendur til 9. maí. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvert sæti var skipað í salnum í Gerðubergi og þeir síðustu inn urðu að standa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Arnaldur Indriðason ásamt Katrínu Jakobsdóttur, Kristínu Árnadóttur og Örnólfi Thorssyni. Fjölmennt á ritþingi um Arnald Hjallakirkja í Kópavogi. Tónleikar þriðjudaginn 20. apríl kl. 20.30. Flutt verður Messe Solennelle í A dúr Ópus 12 fyrir kór, einsöngvara, orgel, hörpu og selló eftir César Franck. Í þessari messu er m.a. að finna upphaflegu gerðina af hinni þekktu mótettu Panis angelicus. Flytjendur: Kór Hjallakirkju. Kristín R. Sigurðardóttir sópran, Gréta Jónsdóttir mezzosópran, Snorri Wium tenór og Gunnar Jónsson bassi. Lenka Máteóvá á orgel, Elísabet Waage á hörpu og Bryndís Halla Gylfadóttir á selló. Stjórnandi er Jón Ólafur Sigurðs- son.  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Á MORGUN Skáldaspírukvöld á Jóni forseta annað kvöld, þriðjudaginn 20. apríl, er helgað smásögum í tilefni af viku bókarinn- ar og útkomu smásagnasafnsins 23. apríl. Eftir- taldir höfundar bókarinnar lesa úr verkum sínum: Ágúst Borgþór Sverrisson, Krist- rún Helga Gunnarsdóttir, Stefán Máni, Gerður Kristný, Rúnar Helgi Vignisson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Einar Örn Gunnarsson, Kristín Marja Baldursdóttir og Hlín Agn- arsdóttir. Lesturinn hefst kl. 20 og eru allir velkomnir. Smásagnakvöld á Jóni forseta Sigurbjörg Þrastardóttir Kristín Marja Baldursdóttir Gerður Kristný Út er komin bókin Norden och Eur- opa 1700–1830. Synvinklar på öm- sesidigt kulturellt inflytande. Rit- stjóri er Svavar Sigmundsson. Ritið hefur að geyma greinar sem byggjast á fyrirlestrum sem haldnir voru á norrænni ráðstefnu Félags um átjándu aldar fræði 14.–15. júní 2002. Ráðstefnan var haldin í Odda, Háskóla Íslands. Haldnir voru þrett- án fyrirlestrar, þar af átta af Íslend- ingum en fimm frá öðrum Norð- urlöndum. Hér eru birtar ellefu greinar, sjö á ensku, tvær á dönsku (með útdráttum á ensku) og tvær á sænsku (með útdráttum á frönsku). Þetta var fyrsta norræna ráðstefnan sem félagið efndi til en það hefur nú starfað í tíu ár. Greinarnar fjalla um hin ólíkustu svið átjándu aldar fræða þar sem Upplýsingin er vissulega áberandi þáttur. Áhrif hennar hafa verið rannsökuð hér á landi af mikl- um krafti undanfarinn áratug og hef- ur árangur þess birst á ráðstefnum félagsins með ýmsum hætti. Félagið hefur haldið úti vefritinu Vefni undanfarin ár þar sem greinar um átjándu aldar efni hafa birst, og á heimasíðu félagsins eru birtir út- drættir úr flestum fyrirlestrum sem haldnir hafa verið á vegum félags- ins. Félaginu þótti rétt að freista þess að færa út kvíarnar og var ráð- stefnan og ritið Norden och Europa 1700–1830 árangur þess. Ritið er fyrsta prentaða ritið sem félagið gef- ur út. Með því eru margvísleg áhrif Upplýsingarinnar á Íslandi kynnt fyrir öðrum þjóðum og lesendur geta fræðst hér um ýmsa þætti í andlegu lífi átjándu aldar manna á Norð- urlöndum. Átjándu aldar fræði eru vaxandi fræðigrein á Norðurlöndum eins og víða í heiminum og hér má lesa um nokkra þætti þeirra frá norrænum sjónarhóli. Bókin á ekki aðeins er- indi við þann breiða hóp hér sem sýnt hefur starfi Félags um átjándu aldar fræði áhuga á undanförnum ár- um heldur alla þá sem láta sig sögu átjándu aldar varða. Útgefandi er Háskólaútgáfan í samvinnu við Félag um átjándu aldar fræði. Bessi Aðalsteinsson annaðist umbrot en kápu hannaði Kristinn Gunnarsson. Prentsmiðjan Guten- berg prentaði. Útgáfan er styrkt af KB-banka. Verð: 3.900 kr. 18. aldar fræði

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.