Morgunblaðið - 19.04.2004, Blaðsíða 28
HESTAR
28 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það er löngu ljóst orðið aðhestamennskan er ekkisíður áhugamál kvenna enkarla. Um það bera vitni
mót þar sem eingöngu konur keppa
á og þá kemur glöggt í ljós að
keppnisáhugi þeirrra virðist síður
en svo minni en karlanna. En af
einhverjum ástæðum fer mun
minna fyrir konunum á sameig-
inlegum mótum beggja kynja þegar
komið er í flokka fullorðinna
Hart var barist í kvennatölti
Gusts á laugardagskvöldið og tals-
verðar breytingar á röðum þeirra
sem þátt tóku í úrslitum. Hástökkv-
ari mótsins var án efa Bára Brynj-
ólfsdóttir sem keppti á Narfa frá
Syðra-Skörðugili í byrjendaflokki.
Hún vann í B-úrslitum og gerði sér
síðan lítið fyrir og sigraði einnig í
A-úrslitum og stóð þar með uppi
sem sigurvegari. Góð byrjun á
keppnisferli það. Einn stóri kost-
urinn við kvennatöltmót Gusts í
gegnum tíðina er að margar konur
sem eru prýðilega hestfærar drífa
sig af stað og skella sér í keppni,
sem sumar þeirra hafa aldrei látið
sér detta í hug. Og þar er byrj-
endaflokkurinn afar mikilvægur
hvati.
En það voru víða sviptingar því í
flokki minna keppnisvanra kvenna
vann Líney Kristinsdóttir á Perlu
frá Bringu sig upp í þriðja sæti eft-
ir að hafa farið í gegnum B-úrslitin
og sigrað þar að sjálfsögðu. Sigur
vann svo Helga D. Hálfdánardóttir
á Gná frá Ytri-Skógum.
Rósa Valdimarsdóttir sem keppti
á Heiki frá Álfhólum gerði enn bet-
ur því hún lét ekki staðar numið
fyrr en í annað sætið var komið í
flokki þeirra sem kölluðust vanari
konur. Það var hinsvegar Trine
Risvang sem sigraði á hinum kunna
stóðhesti Þengli frá Kjarri í þessum
flokki.
Í efsta flokki sem kallaðist Opinn
meistaraflokkur sigraði Hulda
Gústafsdóttir nokkuð örugglega á
Sjarma frá Skriðuklaustri en skilin
voru nokkuð skörp þar milli þriggja
efstu keppenda. Þótti hestakostur í
þessum flokki býsna góður og
greinilegt að dómarar voru því sam-
mála eftir einkunnum að dæma þótt
ekki teygðu þeir sig eins hátt og á
nýafstöðnum skautahallamótum.
Hulda og Sjarmi læddu sér yfir
áttu-mörkin í úrslitum en taka
verður tillit til þess að völlurinn í
Reiðhöll Gusts er lítill og því ekki
um samnaburðarhæfar tölur við það
við fáum að sjá á íþróttamótum
komandi vors.
Röð tíu efstu keppenda í hverjum
flokki varð eftirfarandi:
Byrjendur
1. Bára Brynjólfsdóttir og Narfi
frá S-Skörðugili, 5,77
2. Eygló Gunnarsdóttir, Sörla, og
Snælda frá Höfðabrekku, 5,73
3. Svandís Sigvaldadóttir, Gusti,
og Bifröst frá Skógskoti, 5,49
4. Oddný Erlendsdóttir, Blakki,
og Máni frá Sólvöllum, 5,48
5. Auður Jónsdóttir, Gusti, og
Stelkur frá Árgerði, 5,47
6. Linda B. Bentsdóttir, Gusti, og
Gulfoss frá Gerðum, 5,40
7. Sólrún Sigurðardóttir, Sleipni,
og Kopar frá Selfossi, 5,16
8. Linda B. Gunnlaugsd., Gusti, og
Júlí frá Þúfu 5,12
9. Anna M. Sívertsen, Andvara,
og Patti frá Brún, 4,96
10. Lára Jóhannsdóttir, Fáki, og
Fannar frá Hlemmiskeiði, 4,52
Minna keppnisvanar
1. Helga D. Hálfdánard., Smára,
og Gná frá Ytri-Skógum, 6,76
2. Helga R. Júlíusd., Gusti, og
Eldur frá Hóli, 6,57
3. Líney Kristinsdóttir, Loga, og
Perla frá Bringu 6,29
4. Bryndís Jónsdóttir, Herði, og
Blesi frá Skriðulandi, 6,18
5. Anne-Marie Martin, Sörla, og
Fálki frá Dalsmynni, 6,14
6. Vigdís Elma Cates, Sörla, og
Síak frá Þúfum, 6,04
7. Guðrún L. Kristinsdóttir, Fáki,
og Íris frá Bergþórshvoli, 5,98
8. Anna Sigurðardóttir, Fáki, og
Roði frá Finnastöðum, 5,78
9. Inga K. Campos, Sörla, og
Blæja frá Svignaskarði, 5,52
10. Guðrún Pétursdóttir og Stefnir
frá Breið, 5,26
Meira keppnisvanar
1. Trine Risvang, Smára, og
Þengill frá Kjarri, 7,28
2. Rósa Valdimarsdóttir, Fáki, og
Heikir frá Álfhólum, 6,94
3. Anna K. Kristinsd., Fáki og
Háfeti frá Þingnesi, 6,76
4. Maria G. Rasmussen, Gusti, og
Glaður frá Skipanesi, 6,45
5. Helle Laks, Herði, og Spaði frá
Kirkjubæ, 6,45
6. Elka Halldórsdóttir, Gusti, og
Krummi frá Kollaleiru, 6,36
7. Hulda G. Geirsdóttir, Gusti, og
Dimma frá Skagaströnd, 6,51
8. Signý Á. Guðmundsd., Fáki, og
Fiðla frá Höfðabrekku, 6, 33
9. Þórdís A. Gylfadóttir, Andvara,
og Smyrill frá Stokkhólma, 6,25
10. Linda H. Reynisdóttir, Gusti,
og Stormur frá Ármóti, 6,08
Opinn meistaraflokkur
Hulda Gústafsdóttir, Fáki, og
Sjarmi frá Skriðuklaustri, 8,07
Marjolijn Tiepen, Geysi, og Vígar
frá Skarði, 7,71
Sara Ástþórsdóttir, Fáki, og Þyrni-
rós frá Álfhólum, 7,18
Berglind Ragnarsdóttir, Fáki, og
Ögri frá Laugavöllum, 7,13
Erla G. Gylfadóttir, Andvara, og
Brúnka frá Varmadal, 7,0
Ásta D. Bjarnadóttir, Gusti, og Þór
frá Litlu-Sandvík, 6,87
Anna B. Ólafsdóttir, Sörla, og Vaka
frá Hafnarfirði, 6,69
Birgitta D. Kristinsd., Gusti, og
Dröfn frá Höfða, 6,64
Ólöf Guðmundsdóttir, Fáki, og
Hrafn frá Berustöðum, 6,58
Lena Zielinski, Fáki, og Villirós frá
Hvítárholti, 6,58
Kvennatölt Gusts í reiðhöllinni í Glaðheimum í Kópavogi einn af vinsælustu viðburðum vorsins
Sviptingar
í flestum
flokkum
Morgunblaðið/Vakri
Hulda Gústafsdóttir og Sjarmi frá Skriðuklaustri eru í góðum gír þessa dagana og höfðu nú góðan sigur í opnum
flokki í kvennatölti eftir góða frammistöðu í keppni við karlpeninginn í ístöltinu í Egilshöll á dögunum.
Kvennatölt Gusts, sem að venju var haldið í
reiðhöll Gusts í Kópavogi, er orðið einn af
vinsælu viðburðum vorsins á sviði hesta-
mennskunnar. Alls voru níutíu konur skráð-
ar til leiks að þessu sinni en keppt var í fjór-
um flokkum og B-úrslitum í öllum flokkum.
Baráttuglaðar konur að loknum spennandi úrslitum, frá vinstri talið: Elka og Krummi, Helle og Spaði, Maria og
Glaður, Anna og Háfeti, Rósa og Heikir og sigurvegarinn Trine og Þengill.
Sigurinn er sætur. Helga Dís hamp-
ar sigurlaununum að loknum úrslit-
um hjá minna vönum konum á Gná
frá Ytri-Skógum.
SKEIFUDAGURINN verður hald-
inn hátíðlegur á Hvanneyri sumar-
daginn fyrsta að venju en meira verð-
ur umleikis nú en oft áður þar sem
fagnað verður fimmtíu ára afmæli
hestamannafélagsins Grana á Hvann-
eyri, sem er félagsskapur nemenda
sem stunda nám við Landbúnaðarhá-
skólann þar og leggja stund á hesta-
mennsku. Dagskráin hefst síðdegis á
miðvikudag með keppni barna og
unglinga og í framhaldinu keppni í A-
og B-flokki gæðinga.
Sumardaginn fyrsta hefst dagskrá
með opinni forkeppni í tölti en úrslit í
gæðingakeppni hefjast klukkan tíu.
Hátíðardagskráin hefst svo klukk-
an 13.30 með fánareið og í framhald-
inu úrslitum í töltkeppninni en sjálf
skeifukeppnin hefst klukkan 14.30.
Þar er meðal annars keppt um Morg-
unblaðsskeifuna sem alla tíð hefur
verið veitt á skeifudaginn. Að keppni
lokinni verður boðið til hátíðarkaffis í
matsal Landbúnaðarháskólans og þar
verða verðlaun afhent.
Skeifudagurinn á Hvanneyri
Haldið upp á 50 ára
afmæli Grana
VONIR um að fersksæðingar
verði stundaðar í Gunnarsholti í
vor og fram á sumar hafa glæðst
en forráðamenn Sæðingastöðv-
arinnar í Gunnarsholti hafa sent
Orrafélaginu nýtt tilboð um verð
á fersksæðingum. Ekki fékkst
upp gefið hvað verðhugmynd
væri í þessu tilboði en formaður
Orrafélagsins, Sigurður Sæ-
mundsson, staðfesti að haldinn
yrði fundur í stjórn félagsins á
morgun og í framhaldinu vænt-
anlega félagsfundur þar sem
tekin yrði afstaða til þess hvort
tilboðinu yrði tekið.
Ekki hefur tekist að fá aðra
stóðhesta í fersksæðingar enn
sem komið er og því ljóst að ef af
verður mun Orri frá Þúfu verða
einn á Sæðingastöðinni.
Sagði Sigurður að vissulega
mætti orða það svo að vonar-
glæta hefði kviknað um að
samningar næðust um sæðing-
ar. Ef svo fer munu væntanlega
120 hryssur verða leiddar ýmist
undir Orra eða í sæðingar.
Vonar-
glæta um
sæðingar