Morgunblaðið - 19.04.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.04.2004, Blaðsíða 11
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 11 SÍMAFYRIRTÆKIN keppast við þessa dagana að koma upp þráð- lausum nettengingum á almenn- ingsstöðum, einkum á veitinga- og kaffihúsum. Þannig tilkynnti Sím- inn nýlega um fimm staði, þar sem hægt er að sitja með fartölvuna sína og vera í þráðlausu sambandi. Síminn kallar þráðlausu netsvæðin „HotSpot“. Fyrir helgina bætti Og Vodafone um betur og opnaði 18 „heita reiti“ eins og þeir kallast þar á bæ, þar af 15 á höfuðborg- arsvæðinu, þannig að samtals eru nú 20 staðir í borginni með slíka þráðlausa tengingu. Bæði símafyr- irtækin segja að fjöldi staða muni bætast við á næstunni, bæði á höf- uðborgarsvæðinu og úti um landið. Sá munur er á þjónustu símafyr- irtækjanna tveggja að Síminn býð- ur þjónustuna ókeypis í kynning- arskyni, en hyggst síðar meir rukka fyrir hana. Hjá Og Voda- fone verður þjónustan hins vegar ókeypis fyrir notendur til fram- búðar og stendur öllum til boða, sem á annað borð eru með þráð- laust netkort í fartölvunni. Töluverð eftirspurn Arnar Þór Gíslason, rekstrar- stjóri á Thorvaldsen bar, sem er einn af þeim stöðum, sem bjóða nú þráðlaust netsamband, segir að töluverð spurn hafi verið orðin eft- ir netsambandi á veitingastaðnum, einkum frá fólki úr viðskiptalífinu. „Fólk úr bönkunum var að spyrj- ast fyrir um fundaraðstöðu hjá okkur og fannst æskilegt að geta tengzt Netinu til að geta t.d. varp- að upplýsingum af Netinu upp á vegg. Við vorum spurð af hverju við tylltum ekki upp netsamband- inu og myndum þá græða það að allur fundurinn yrði haldinn hjá okkur með mat, kaffi og öðru slíku,“ segir Arnar. Hann segir að síðastliðið sumar hafi einnig verið mikið spurt um þráðlaust samband á útiborðum staðarins á Austurvelli. „Fólk í fyrirtækjum hér í miðbænum vildi breyta til, bjóða kúnnanum upp á að færa fundinn úti í sólinni yfir hvítvínsglasi eða einhverju slíku og vildi þá geta komizt í netsam- band. Þetta er nú ástæðan fyrir að við dembum okkur í þetta, eft- irspurnin er orðin slatti og við sáum fram á að við græddum á mat og drykk, sem fólk sem kemur hér til að funda, kaupir,“ segir Arnar. Gjaldtaka síðar meir Eva Magnúsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, segir að meðan á kynningartímabilinu stendur geti allir notfært sér þráðlaus netsvæði Símans. Eftir að gjaldtaka verði tekin upp, muni viðskiptavinir int- ernet- og farsímaþjónustu Símans njóta sérkjara. Þeir, sem ekki séu í öðrum viðskiptum hjá fyrirtækinu, geti hins vegar keypt sér skafkort til að fá aðgang að þjónustunni. Gert sé ráð fyrir að viðskiptavinir tengist þráðlausa netinu með sama notandanafni og lykilorði og þeir nota í internetþjónustu Símans eða með farsímanúmerinu sínu. Þjón- ustan verði gjaldfærð á símareikn- ing viðskiptavina Símans. Staðirn- ir, sem Síminn er í samstarfi við um að bjóða upp á samband, greiði ekki sérstaklega fyrir þjónustuna. Eva segir að Síminn leggi mikla áherzlu á öryggi þráðlausu þjón- ustunnar og að notendur á þráð- lausa netsvæðinu geti ekki orðið varir hver við annan og þar með heldur ekki smitað tölvur hver annars með vírusum. Þá muni við- skiptavinir Símans fá aðgang að þúsundum HotSpot-svæða úti um allan heim og greiða fyrir afnot af þeim með GSM-símanum sínum eða með sérstakri áskriftarleið, sem Síminn muni bjóða í samstarfi við erlend fyrirtæki. Stendur öllum til boða Pétur Pétursson, upplýsinga- fulltrúi Og Vodafone, segir að veit- ingastaðirnir, sem um ræðir, greiði símafyrirtækinu fyrir þjónustuna, en komið sé til móts við þá með mjög hagstæðu verði. „Svo er sam- komulag okkar á milli um að þjón- ustan standi öllum fartölvunotend- um til boða, óháð því hvar þeir kaupa internetþjónustu, án endur- gjalds,“ segir Pétur. „Það sem fyr- irtækin sjá sér hag í er að bjóða sínum viðskiptavinum aukna þjón- ustu og jafnvel auka þannig við- skipti sín.“ Pétur segir að dæmi sé um að veitingastaður, sem Og Vodafone reyndi að fá til samstarfs en hafn- aði því í fyrstu, hafi nokkrum dög- um síðar haft samband og óskað eftir „heitum reit“ vegna eftir- spurnar frá viðskiptavinum. „Það höfðu viðskiptavinir komið inn og spurt hvort væri netsamband. Þegar svarið var nei, löbbuðu þeir hreinlega út og sögðust ætla að fara á stað þar sem hægt var að tengjast Netinu,“ segir Pétur. Tuttugu staðir á höfuðborgarsvæðinu Þráðlaus netsvæði Símans eru í Smáralind, á Nordica hóteli, í Laugum, á Esso-benzínstöðinni á Ártúnshöfða og í Kofa Tómasar frænda. Fyrirtækið boðar fjölda nýrra staða í höfuðborginni og úti á landi á næstu vikum og gerir ráð fyrir 20–30 stöðum í lok ársins. Heitir reitir Og Vodafone eru á níu veitingastöðum í miðbænum, þ.e. Café Cultura, Café Viktor, Hress- ingarskálanum, Kaffi 22, Kaffi Sól- on, Kaffibrennslunni, Prikinu, Reykjavík Bagel Company og Thorvaldsen Bar, auk þess á Energia bar í Smáralind, Café Borg, BK kjúklingum, Players og á Kaffitári í Kringlunni. Þá eru heitir reitir á Bláu könnunni og Café Karólínu á Akureyri og á Kaffitári í Innri-Njarðvík. Boðað er að stöðunum fjölgi á næstunni. Kapphlaup símafyrirtækjanna um að koma upp þráðlausum net- tengingum fyrir fartölvunotendur á almenningsstöðum Þráðlaust samband á 20 stöðum í borginni Og Vodafone býð- ur ókeypis aðgang til frambúðar     Morgunblaðið/Sverrir Í netsambandi Æ fleiri vilja hafa aðgang að Netinu á meðan þeir sitja á kaffi- eða veitingahúsi og símafyrirtækin reyna að bregðast við eftirspurn. ● BREZKA tízkuvöruverzlanakeðjan Karen Millen verður væntanlega sett á markað, kaupi Baugur ekki stóran hlut í fyrirtækinu, að sögn The Daily Telegraph. Í frétt blaðs- ins kemur fram að fyrirtækið hygg- ist leita til fjárfestingarbanka um ráðgjöf við hlutafjárútboð. Fram hefur komið að Karen Mil- len, sem er að þremur fimmtu- hlutum í eigu Kevins Stanfords, fyrrverandi manns hönnuðarins Karen Millen, en að tveimur fimmtu í eigu íslenzkra fjárfesta, væri í viðræðum við Baug um kaup á stórum hlut í fyrirtækinu. Tele- graph segir að Stanford vilji eiga aðra áætlun í bakhöndinni, verði ekki af samningum hans við Baug. Karen Millen Holdings á jafn- framt verzlanakeðjuna Whistles og búðir undir merki keðjunnar eru reknar víða um heim, m.a. á Ís- landi. Karen Millen á markað ef Baugur kaupir ekki ● Atvinnuleysisskráningum í Bandaríkjunum fjölgaði í síðustu viku aftur, eftir að hafa nýlega náð sínu lægsta gildi í fjögur ár, að sögn AP-fréttastofunnar. Þessi aukning er hin mesta síðan síðla árs 2002. Skammt er síðan þær fréttir bárust að 308.000 störf hefðu verið sköp- uð í marsmánuði í Bandaríkjunum, sem var mesta fjölgun starfa þar í heil fjögur ár. Þrátt fyrir þá fjölgun jókst hlutfall skráðra atvinnulausra í landinu lítillega þar sem hin breytta mynd á atvinnumarkaði virkaði sem vítamínsprauta á fólk sem var farið út af vinnumarkaði, að snúa aftur og halda áfram leit sinni að starfi. Skráð atvinnuleysi eykst aftur vestra Hádegisverðarfundur Dansk- íslenzka verzlunarráðsins, í Skála, Hótel Sögu kl. 12. Flemming Skov Jensen, forstjóri Lønmodtagernes Dyrtidsfond, held- ur erindi um fjárfestingarstefnu sjóðsins. Í DAG ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.