Morgunblaðið - 19.04.2004, Page 19
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2004 19
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Opi› málfling um menntamál
á Grand Hótel, flri›judaginn 20. apríl kl. 20-22
Í stuttum framsöguerindum ver›ur fjalla› um íslenska skólakerfi› og flróun
fless til framtí›ar, jafnrétti til náms og skyldur ríkisvaldsins í menntamálum.
fiá ver›a pallbor›sumræ›ur me› flátttöku frummælenda og fundarmanna.
Áhugafólk um menntamál er
hvatt til a› mæta og taka flátt í
málefnalegri fljó›félagsumræ›u.
Halldór Ásgrímsson, forma›ur Framsóknarflokksins, setur málflingi›.
Erindi flytja:
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erf›agreiningar.
Gu›finna Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Gunnar Hersveinn, bla›ama›ur og heimspekingur.
Sigmar Vilhjálmsson, sjónvarpsma›ur.
Sæunn Stefánsdóttir, a›sto›arma›ur heilbrig›isrá›herra.
Fundarstjóri: Jónína Bjartmarz, alflingisma›ur.
framtí›arinnar
Skóli
UMSÆKJENDUR um vínveit-
ingaleyfi í knattspyrnu- og skauta-
höllinni í Grafarvogi halda því fram
að eðlilegt geti verið að þeir veiti vín
á skyndibitastað sínum þar sem ým-
is önnur starfsemi eigi
að vera í húsnæðinu.
Staðreyndin er hins
vegar sú að húsnæðið
var byggt fyrir íþrótta-
starfsemi handa æsku
borgarinnar. Þarna er
knattspyrnuhöll,
skautahöll og nokkrir
minni íþróttasalir.
Önnur starfsemi, s.s.
skyndibitasalan, er
fyrst og fremst til
stuðnings þeirri
íþróttastarfsemi,
barna, unglinga og full-
orðinna, sem þarna fer
fram.
Vínveitingar í anddyrinu
Nú háttar svo til að skyndibitastað-
urinn sem sækir um vínveit-
ingaleyfið er staðsettur í rými sem
jafnframt er anddyri fyrir íþrótta-
starfsemina í húsinu. Þarna eiga
skólabörn í skyldunámi leið um og
iðkendur knattspyrnu og annarra
íþrótta á öllum aldri. Skyndibita-
staðurinn er staðsettur aftan við
annað mark knattspyrnuvallarins, í
nokkurra metra fjarlægð og hægt er
að fylgjast með því sem fram fer á
vellinum í gegnum glerhurðir sem
aðskilja svæðin. Þessi skyndibita-
staður er tíður viðkomustaður iðk-
enda eftir æfingar og þar geta for-
eldrar tyllt sér niður á meðan börnin
eru á æfingu. Út af fyrir sig er þetta
fyrirtaksaðstaða. Þarna hefur líka
verið stór sjónvarpsskjár sem sýnt
hefur vinsæla kappleiki sem krakk-
arnir hafa gaman af að sjá. Það eru
því engin rök sem geta mælt með því
að þarna sé veitt áfengi. Það yrði al-
gjörlega á skjön við þá
stefnu íþróttahreyfing-
arinnar að neysla
áfengis og ástundun
íþrótta fari engan veg-
inn saman. Þetta yrði
hliðstætt því að selja
áfengi í anddyri
íþróttahúsa grunnskóla
í borginni.
Það vekur nokkra
furðu að helsti fylgj-
andi umræddrar vín-
sölu er forystumaður
ungmennafélagsins í
hverfinu, Guðlaugur
Þór Þórðarson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og
þingmaður, og hlýtur sú uppátekt
hans að vera á skjön við 2. grein laga
Ungmennafélagsins Fjölnis um að
vinna gegn „neyslu áfengis og ann-
arra skaðnautna, s.s. vímuefna“.
Þetta þarf þó ekki að koma á óvart
þar sem Guðlaugur er einn fremsti
talsmaður aukins aðgengis að áfengi
í samfélaginu.
Rekstrarhagsmunir og
íþróttahugsjón
Harkaleg viðbrögð íþróttahreyfing-
arinnar og foreldra skólabarna og
íþróttaiðkenda við umsókninni um
vínveitingar eru skiljanleg. Til þessa
hefur það ekki þótt til siðs hér á
landi að veita áfengi í tengslum við
grunnskólastarfsemi eða íþrótta-
iðkun ungmenna. Að fjalla um málið
sem um venjulega veitingahúsa-
starfsemi væri að ræða er ekki rök-
rétt. Því síður er hægt að nota það
sem rök að til séu svokallaðir sport-
barir sem sýna íþróttakappleiki, eða
að veitt sé áfengi á kappleikjum í
öðrum löndum (stundum með sorg-
legum afleiðingum). Það er kominn
tími til þess að fólk spyrni kröft-
uglega við því að innflytjendur og
framleiðendur áfengis læsi klónum
enn frekar í íþróttastarfsemi en raun
er á orðin. Markmið íþróttahreyfing-
arinnar er að vera frísvæði, laust við
tóbak, áfengi og aðra vímugjafa, í því
skyni að halda ungmennum sem
lengst frá neyslu þeirra. Rökin eru
þau að reynslan segir að því fyrr sem
unglingar komast í kynni við vímu-
efnin því skaðlegra getur það orðið
heilsu þeirra. Íþróttahreyfingin leit-
ast við að bera sína ábyrgð í þessum
efnum og borgaryfirvöld mega ekki
stíga óheillaskref frá þeirri stefnu
sem mörkuð hefur verið í vímuvörn-
um íþróttahreyfingarinnar.
Áfengisveitingar í
íþróttahúsum?
Stefán Jóhann Stefánsson skrif-
ar um vínveitingar og íþróttir ’Til þessa hefur þaðekki þótt til siðs hér á
landi að veita áfengi í
tengslum við grunn-
skólastarfsemi eða
íþróttaiðkun ung-
menna.‘
Stefán Jóhann
Stefánsson
Höfundur er í borgarstjórnarhópi
Reykjavíkurlistans og fyrrverandi
formaður knattspyrnudeildar íþrótta-
félags í Reykjavík.
HS Bólstrun ehf.
www.bolstrun.is/hs
M
EI
ST
AR
AF
ÉLAG BÓLSTRA
R
A
STOFNAÐ 1928