Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Qupperneq 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing opin þri. – fös. kl. 14–16. Til 15. maí.
Borgarbókasafnið, Grófarhúsinu,
Tryggvagötu 15.: Handrit og bækur
Tómasar Guðmundss. Til 27. jan.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Íslensk
myndlist um aldamót: Bragi Ásgeirs-
son, Daði Guðbjörnsson, Guðbjörg Lind
Jónsdóttir, Guðrún Kristjánsdóttir,
Karólína Lárusdóttir, Pétur Gautur
Svavarsson, Soffía Sæmundsdóttir,
Tryggvi Ólafsson og Þorgerður Sigurð-
ardóttir. Guðrún Halldórsdóttir, Ingi-
björg Styrgerður Haraldsdóttir, Krist-
ín Guðjónsdóttir og Magnús Þorgríms-
son. Til 28. jan.
Gallerí Reykjavík: Myndbönd mánað-
arins. Til 28. jan.
Gallerí Sævars Karls: Helgi Þorgils
Friðjónsson. Til 25. jan.
Gerðarsafn: Samsýning sex málara:
Birgir Snæbjörn Birgisson, Ed Hodgk-
inson, Jóhann Ludwig Torfason, Peter
Lamb, Sigríður Ólafsdóttir og Þorri
Hringsson. Til 21. jan.
Gerðuberg: Eggert Magnússon næf-
isti. Til 18. feb.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs-
dóttir. Til 19. feb.
Kooks 00. Bankastræti 0: Finna B.
Steinsson. Til 31. jan.
Listasafn Akureyrar: Margmiðlunar-
sýningin DETOX. Til 2. mars.
Listasafn ASÍ: Ásmundarsalur og
Gryfja: Anna Jóa. Arinstofa: Kristján
Davíðsson. Til 28. jan.
Listasafn Íslands: Gerhard Richter,
Jón Stefánsson, Rúrí. Til 20. febr.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson. Til 29. apr.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Ísland öðrum augum litið. Til 21. jan.
Höggmyndnir Roberts Dell í úti-
protinu. Til 20. mars.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað-
ir: Gullpensillinn – samsýning 14 lista-
manna. Til 24. mars. Austursalur: Jó-
hannes S. Kjarval.
Norræna húsið: Kirkjuteikningar fær-
eyska arkitektsins J.P. Gregoriussen.
Til 12. feb.
Nýlistasafnið: Samræður við safneign.
Til 18. feb.
Skálholtskirkja: Teikningar Katrínar
Briem. Til 1. feb.
Stöðlakot: Hörður Jörundsson. Til 28.
jan.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn, Kópavogi: Hrólfur Sæ-
mundsson baríton og Ólafur Vignir Al-
bertsson píanó. Kl. 17.
Sunnudagur
Bústaðakirkja: Kammermúsíkklúbbur-
inn. Gunnar Kvaran, Guðný Guðmunds-
dóttir, Helga Þórarinsdóttir og Gerrit
Schuil. Kl. 20.
Listasafn Íslands: Íslenskir einleikarar
– 20. aldar einleiksverk: Áshildur Har-
aldsdóttir, Sif Tulinius, Arnaldur Arn-
arson og Einar Jóhannesson. Kl. 20.
Neskirkja: EÞOS kvartettinn. Kl. 15.
Salurinn, Kópavogi: Vigdís Klara Ara-
dóttir og Guido Bäumer. Kl. 20.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Antígóna, lau. 20., fim.
25., fös. 26. jan.
Blái hnötturinn, sun. 21. jan.
Með fulla vasa af grjóti, lau. 20., sun.
21., fim. 25., fös. 26. jan.
Borgarleikhúsið: Öndvegiskonur, lau.
20., fim. 25., fös. 26. jan.
Móglí, sun. 21. jan.
Loftkastalinn: Sjeikspír..., lau. 20., fös.
26. jan.
Iðnó: Sýnd veiði, lau. 20., fös. 26. jan.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysing-
arnir, lau. 20. jan.
Kaffileikhúsið: Háaloftið, lau. 20., fös.
26. jan. Stormur og Ormur, sun. 23. jan.
Eva, þrið. 23. jan.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans: Leik-
lestur: Listin, lífið og ástkonurnar.
Helga Bachmann og Tristan E. Gribb-
in. Kl. 20.30.
Möguleikhúsið: Lóma, sun. 21., mán.
22. jan. Völuspá, mán. 22., þrið. 23., mið.
24., fim. 25., fös. 26. jan.
Tónleikasalur Söngskólans, Veghúsa-
stíg 7. Nemendaópera. Gondólagæjarn-
ir, mið. 17., fös. 19. jan.
MENNING/
LISTIR
N Æ S T U V I K U
GERRIT Schuil píanóleikari, Guðný Guð-
mundsdóttir fiðluleikari, Helga Þórarinsdótt-
ir víóluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari
koma fram á tónleikum Kammermúsík-
klúbbsins í Bústaðakirkju á sunnudagskvöld
kl. 20. Munu þau leika Kvartett K. 478 eftir
Mozart og Kvartett í g-moll, op. 25 eftir
Brahms.
Fyrir um tveimur árum heyrðu tveir
stjórnarmenn Kammermúsíkklúbbsins þessa
sömu listamenn flytja kvartettana á Kamm-
ertónleikum í Garðabæ og heilluðust svo
mjög af þeim flutningi að ákveðið var að fá
þá endurtekna fyrir félaga Kammermúsík-
klúbbsins. Mozart lét eftir sig tvo
píanókvartetta og Brahms þrjá. Þessir
kvartettar teljast allir meðal fremstu kamm-
erverka höfunda sinna, ekki síst þeir tveir
sem fluttir verða á sunnudag, en þeir eiga
það sammerkt að hafa vakið með fræði-
mönnum minni úr tröllauknum sinfóníum
Beethovens.
Upphafi g-moll kvartetts Mozarts K. 478
hefur verið líkt við örlagastefið úr fimmtu
sinfóníunni og um g-moll kvartett Brahms,
op. 25, var skrifað: „Fyrsti kaflinn er meðal
frumlegustu og áhrifamestu tónsmíða sem
samdar hafa verið frá því Beethoven skrifaði
upphafsþátt 9. sinfóníu sinnar.“ Þegar Moz-
art samdi píanókvartettinn, 1785, lét hann
kröfur tónlistarinnar sjálfrar ráða ferðinni –
braut gegn markaðslögmálinu, því hinn
breiði massi nótnakaupenda, áhugaspilarar,
réð ekki við að spila verkið, nóturnar seldust
ekki og útgefandinn gafst upp við að gefa út
þann flokk kvartetta sem sendibréf sýna að
þeir Mozart höfðu ráðgert.
Píanókvartettar Brahms töldust á sínum
tíma til stórmerkja í kammertónlist og gagn-
rýnandinn frægi Eduard Hanslick, áleit þá
vera hvorki meira né minna en „kjarna, mið-
punkt og hornstein verka meistarans“.
KVARTETTAR LEIKNIR Í
KAMMERMÚSÍKKLÚBBNUM
Morgunblaðið/Ásdís
Gunnar Kvaran, Guðný Guðmundsdóttir, Helga Þórarinsdóttir og Gerrit Schuil.
MEIRI breytingar verða á listaverkaeign
sænska ríkisins en sem nemur kaupum á
nýjum verkum. Ástæðan er slaklegt eftirlit
með listaverkum í opinberri eigu sem hefur
orðið til þess að mörg verkanna hafa horfið
eða skemmst. Til marks um þetta má nefna
að þjóðminjasafnið sænska neyddist nýlega
til þess að greiða yfir tvær milljónir ísl. kr.
fyrir skrifborð sem hafði glatast.
Enginn hefur yfirsýn yfir verðmæti lista-
verkanna sem eru í eigu sænska ríkisins, að
því er segir í Dagens Nyheter. Yfirvöld
hunsa algerlega reglur um eftirlit með lista-
verkum sem hverfa þar af leiðandi í stórum
stíl.
Einn maður hefur umsjón með öllum op-
inberum listaverkum og þar sem opinberar
stofnanir veita í fæstum tilfellum upplýs-
ingar um hvaða listaverk þær hafi undir
höndum veit hann ekki hversu mörg þau
eru, giskar á milli 600-700.000.
Tilkynningar berast
mánaðarlega
Starfsmaðurinn, Stellan Ellboj, segir að
gríðarlegar fjárhæðir tapist með listaverk-
um sem hverfi á einn eða annan hátt, í
hverjum mánuði berist inn fjöldi tilkynninga
um slík tilfelli.
Sem dæmi má nefna að árið 1941 keypti
Listanefnd ríkisins olíuverkið „Alfred“ eftir
málarann Sven Ljungberg og kom því fyrir
hjá Handiðnaðarstofnuninni sem aldrei
gerði nokkra grein fyrir verkinu. Stofnunin
var síðar sameinuð Iðnaðarstofnuninni og
sú aftur Atvinnu- og tækniþróunarstofnun-
inni árið 1991. Þá loks var gerður listi yfir
verk í eigu stofnunarinnar og kom í ljós að
„Alfred“ var horfinn. Enginn veit hvenær
það gerðist.
„Alfred“ skaut svo upp kollinum fyrir
tæpum tveimur árum á málverkauppboði í
Stokkhólmi þar sem listanemi keypti hana
fyrir um 60.000 ísl. kr. Hvorki seljandinn né
kaupandinn gerðu sér grein fyrir að nokkuð
væri athugavert við söluna og verkið er
gengið úr greipum hins opinbera.
Mönnum gengur alls ekki alltaf illt til.
Dæmi um það er starfsmaður sænsku járn-
brautanna sem spurði yfirmann sinn hvort
hann mætti eiga listaverk sem var geymt
inni í kompu. Það þótti sjálfsagt mál, starfs-
maðurinn fékk verkið, seldi það og gaf and-
virðið í söfnun fyrir bágstadda í Eystra-
saltsríkjunum.
Þrátt fyrir ítrekuð tilmæli hafa fæstar
stofnanir tekið sig á, engin yfirsýn er yfir
ástandið og menningarmálayfirvöld hafa
ekki vald til þess að sækja stofnanir til saka
fyrir embættisafglöp.
LISTAVERK GLATAST
VEGNA SLÆLEGS
EFTIRLITS Í SVÍÞJÓÐ
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
PEGASUS, vængjaða hestinn úr grísku goða-
fræðinni, ber hér við himin er nýlegur tungl-
myrkvi átti sér stað.
Pegasus er einn þeirra skúlptúra er
skreyta þak gamla óperuhússins í Frankfurt í
Þýskalandi, en myndin var á dögunum valin
mynd vikunnar af AP-fréttastofunni.
AP
PEGASUS BER
VIÐ HIMIN