Vísir - 19.05.1978, Page 3

Vísir - 19.05.1978, Page 3
3 VISIR Föstudaeur 19. mal 1978 ;7f> í'-'* \*% 4f-\ jk ^ Stjórnandinn Jón Stefánaion Jón sem eru á efnisskránni á tón- leikunum um helgina. „Við höfum æft nokkuð mikið undanfarið en fólk hefur lagt hart að sér, þar sem stór hluti félag- anna er ungt fólk sem stundar nám i menntaskóla, eða háskóla og er einmitt nú i prófum”, sagði Jón. Kórfélagar fá sérstaka tima i raddþjálfun og er það Ólöf Harðardóttir sem annast þann þátt starfsins. „Við höfum skipt kórnum niður i fimm hópa og skiptumst á við að syngja við messur, en einu sinni i mánuöi syngur allur kórinn. Við breyttum þessu fyrir nokkrum árum. Aður hafði kórinn þegið laun en nú rennur sú upphæð til hljóöfærakaupa, og til að greiða einsöngvurum svo eitthvað sé nefnt”, sagði Jón. Kór Langholtskirkju hefur haldið fjóra tónleika I vetur en einnig skemmtu þeir vistmönn- um á Reykjalundi með söng sln- um. —KP Signý Scmundsdóttir syngur einsöng með kórnum. „Skemmtilegt að syngja verkið hans Þorkels" „Þetta er nú dálitið strembið hjá mér þessa dagana þvi ég er i stúdentsprófum og fer i siðasta prófið sama dag og tónleikarnir verða”, sagði Signý Sæmunds- dóttir en hún syngur m.a. ein- söng með kórnum I kvöld. Signý er aö læra söng hjá Elisabetu Erlingsdóttur, en hefur verið i kórnum i tvö ár. „Það er afskaplega skemmti/ legt að syngja verkið hans Þor- kels en takturinn er dálltið erfiður,” sagði Signý. —KP „Meðalaldur er 25 ár" ,Gáfum ót blað til að safna fyrir ferðinni' „Ég hef veriö i kór hjá Jóni Stefánssyni frá þvi ég var niu ára. Hann er mjög skemmtileg- ur stjórnandi og drifur fólkið áfram”, sagði Dagbjört Jóns- dóttir en hún hefur verið i Kór Langholtskirkju siðan árið 1973. „Hér er mikið af ungu fólki og ég held að meðalaldur kórsins sé um 25 ár. Við höldum einnig mikið hópinn, förum t.d. i æfingarbúðir og syngjum þá frá morgni til kvölds”, sagði Dagný. ' Nú fyrir tónleikana er æft á hverju kvöldi minnst i tvo tima i senn. —KP Daghjört Jónsdóttir. Iagt Viðar Arnason. —Myndir Björgvin. Ingi Viðar Arnason hefur ver- ið i kórnum i fimm ár. „Viö fá- um að kynnast mörgum skemmtilegum verkum I þessu starfi með kórnum. Við höfum einnig farið tvisvar i tónleika- ferðirtil útlanda og þaö er alltaf skemmtilegt að vinna að undir- búningi slikra ferða. Nú er næst á dagskrá hjá okk- ur Finnlandsferð en styrktar- félagar okkar hafa haldið t.d. kökubasar og bræðrafélagið hélt þorrablót I vetur en þessir aðilar styrkja okkur mjög mikiö og létu allan ágóða renna til okkar”, þessi stuðningur er okkur mikils virði”, sagði Ingi. Hann sagði að kórfélagar heföu einnig ráðist i að gefa út aug- lýsingablað til að safna fyrir utanlandsferðinni. „Mér finnst ákaflega skemmtilegt að starfa með Jóni Stefánssyni hann laðar fólk til sin, vegna hæfileika sinna og drifur starfið áfram”, sagði Ingi. —KP Nýtt hraðamœlingartœki hér ó landi: Radarbyssan á að vera öllu hentugri i notkun við hraðamælingar sér- staklega þar sem svo mikiil fjarskiptabúnaður er eins og á Keflavikur- velli. Visismynd: GVA RADARBYSSA Á VALLARVíGINUM „Radarbyssa” er það kallað nýja hraðamæiingartækið sem nú verður tekið I notkun hjá lögreglunni á Keflavlkurvelli. Radarbyssan hefur aldrei áður verið notuð hér á landi en þykir öllu hentugri en þau tæki sem notuð hafa verið: miðað við allan þann fjarskiptabúnað sem er á vallarsvæöinu. Nýja tækið var sýnt blaða- mönnum i gær og sagði Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri á Keflavikurvelli, að tækið yrði tek- ið I notkun I næstu viku og tók hann fram að þeir vildu að fólk vissi af þvl, svo það gæti hagað akstri sinum samkvæmt þvi. Tækið verður notað á flugvallar- svæðinu i samvinnu við varnar- liðið en það fjármagnar tækið. Benedikt Þórarinsson yfirlög- regluþjónn sagði radarbyssuna mjög handhægt tæki og þægilegt i notkun. Tók hapn það sérstaklega fram að radarbyssan væri öllu heppilegra þar sem svo mikil flugumferð er, vegna þess að siöur er hætta á að hún geti valdið truflunum i viðkvæmum tækjum flugvélanna en önnur hraða- mælingartæki. Hins vegar hafa lögreglumenn fyrirskipun um að staðsetja tækið þannig, að þau eigi ekki á nokkurn hátt að geta haft áhrif á tækjabúnað flugvéla. Radarbyssan er mjög nákvæm og er t.d. hægt að „loka” tækinu á þeim hraða sem mældur er i hvert skipti svo hægt er að sýna það svart á hvitu að ekið hafi ver- ið á þeim hraða. Yfir sumartimann eykst um- ferð mjög um Keflavikurvöll og fara þá stundum allt upp i 10-12 þúsund bilar um bæði hliðin á ein- um sólarhring. —EA Með JÓMí-SÓLUM getið þér flutt sólar- löndin inn á heimili yðar. JÓMí-SÓLIN sendir frá sér ljós sem hefur sömu áhrif á húðina og sólarljósið. JÓMí-SÓLIR eru til i mörgum stærðum einnig framleiðir JÓMÍ nuddpúða og hita- teppi. JOMl- sólin er byggð samkvœmt kröfu framtíðarinnar. Hún er með 3-4 kvartsljós og 6-8 últra rauð Ijós. Þig getið verið brún ó kroppnum allt órið, því það eru til fleiri en ein sól milli himins og jarðar. / , íimittí etWÆi SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.