Vísir - 19.05.1978, Qupperneq 4

Vísir - 19.05.1978, Qupperneq 4
4 Föstudagur 19. maí 1978 VISIR Alþingishverfi í stað nýrrar stórbyggingar? Tillögur storfshóps á vegum embœttis húsameistara ríkisins kynntar Verður hætt við hugmyndina um að byggja eitt stórt Al- þingishús, og þess i stað byggð- ar nokkrar byggingar i áföngum á lóöunum umhverfis núverandi þinghús —■ eins konar Alþingis- hverfi? Það eru tillögur starfshóps, sem húsameistari rikisins skip- aði á sinum tima eftir að forset- ar Alþingis fólu embættinu að gera úttekt á byggingarmögu- leikum Alþingis á lóðum þess á milli Kirkjustrætis og Vonar- strætis i Reykjavik. Forsetar þingsins og starfsmenn emb- ættisins kynntu þessar hug- myndir á fundi með blaðamönn- um i gær. Tillögurnar Tillögurnar taka mið af verndunar-, umhverfis- og skipulagssjónarmiðum Reykja- vikurborgar, og eru eftirfar- andi: 1. Viðgerð farifram á húsakosti Alþingis á athugunarsvæðinu og húsnæðið veröi sem best aðlagaö starfsemi þingsins. 2. Ef nýbyggingar risa siðar á lóðunum Kirkjustræti 8, 8a og 10, þá verði byggingarlinu Kirkjustrætis i aðalatriðum haldið, þannig að rýmis- myndun Kirkjustrætis breyt- ist ekki. 3. Nýbyggingar veröi fremur lágar, einkum hið næsta Al- þingishúsinu (1-2 hæðir). Þegar nær dregur Tjarnar- götu ætti húsahæö að fara i 3-5 hæðir. 4. Tengsl við Alþingishúsið eru vandmeðfarin og fer senni- lega best á, aö þau verði ekki gerð ofan jarðar. Ef tengsl verða talin nauösynleg, þá verði þau um kjallara. 5. Fyrstu áfangar nýbyggingar risi meðfram Tjarnargötu, og verði þar til húsa skrifstofu- hald Alþingis og þingmanna- aöstaða. Tjarnargata 3C yrði að vikja. 6. A horni Tjarnargötu og Vonarstrætis og allt að vesturgafli Oddfellow-hússins verði siðar áframhald þeirrar / \ 4 h 0 \ Ci /- "Pl D { \ fj s j 1h <0 j Þetta yfirlit sýnir þann byggingarmáta, sem embætti húsameistara telur heppilegastan. Dökku húsfletirnir á milli Tjarnargötu, Kirkju- strætis, Templarasunds og Vonarstrætis sýna þær byggingar, sem risa myndu alls samkvæmt þessari tiliögu — en gert er ráð fyrir, að þær verði byggöar i áföngum. Þessi tillaga mun væntanlega fullnægja þörfum Alþingis fram til aldamóta. skrifstofubyggingar, en þá yrðu húsin Tjarnargata 5a og Vonarstræti 12 að vikja. Val- kostur er, aö halda Vonar- stræti 12 á núverandi stað, eða hugsanlega flytja það hús á horn Kirkjustrætis og Tjarnargötu. 7. Stefna ber aö þvi, að gömlu húsin, sem koma til með að vikja fyrir nýbyggingum, verði flutt á aðrar lóðir i gamla miðbænum, t.d. i Grjótaþorp, ef slikt þætti já- kvætt af þeim sem um þá uppbyggingu munu fjalla. 8. Vonarstræti 8 veröi um næstu framtiö látið standa, en aust- ur af þvi og sunnan Alþingis- hússins verði óbyggt. Siðar skal að þvi stefnt, að bifreiða- stæðunum.sem þar eru, verði komið fyrir á svæöinu. Yrði það i bifreiðageymslum neðanjaröar, eða I ný- byggingum við Tjarnargötu. Mætti þá að hluta opna gamla Alþingisgarðinn til suðurs eða vesturs. Þótt varlega verði að fara með skerðingu á stein- garðinum. 9. Um næstu framtið yrði að þvi stefnt, að þingfundir verði áfram i gamla Alþingishús- inu, sem hugsanlega yrði tengt um kjallara við skrif- stofusvæðið. Möguleikar á byggingu nýrra þingsala eru þó fyrir hendi á baklóöum Kirkjustrætis 8b og 10. Ákvörðunin Alþingis A fundinum kom fram, aö það væri Alþingis að taka allar ákvarðanir um framkvæmdir. Þingforsetar töldu, aö sú itar- lega greinargerð, sem starfs- hópur embættis húsameistara hefur gert, myndi mjög auð- velda þingmönnum ákvörðunartöku. 1 greinargerðinni er auk til- lögugerðarinnar nokkuð itarleg úttekt á núverandi stöðu i hús- jiæðismálum Alþingis og lóða- málum, og söguleg minnisatriði er málið snerta. — ESJ. VERKALÝÐSFÉLAGINU GEFIÐ BÓKASAFN ÞINGMANNSINS! Verkalýösfélagið Vaka á nýtt húsnæöi fyrir félagsstarf- Siglufiröi tók nýlega i notkun semi sfna að Suðurgötu 10 á i bókasafni Vöku: Svanhildur óladóttir, Stelnþóra Einarsdóttir og Pétur Gunnarsson. Mynd: Július Júlfusson. Siglufirði. Er þar skrifstofa, fundarsalir og bókasafn og hús- næðið allt hið vistlegasta. Við þetta tækifæri var Vöku afhentur formlega til eignar bókakostur sá, sem Gunnar Jóhannsson, alþingismaður átti. Þetta gerði Steinþóra Einars- dóttir, ekkja Gunnars, sonur hans og tengdadóttir. Frú Stein- þóra sem nú er 87 ára afhenti bókasafnið með skörulegri ræðu. Safnið er nú um 2000 bindi, ef með eru taldar gjafir ýmissa velunnara þess, en hjón- in Svanhildur óladóttir og Pétur Gunnarsson, framkvæmda- stjóri, sonur Gunnars heitins, gáfu safninu i þessu tilefni hina stórfögru bók Dýrariki Islands eftir Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal, skáld og listamann. Gunnar Jóhannsson alþingis- maður, var i fjölda ára for- maður verkalýðsfélagsins Þróttar. en það félag sameinað- ist verkakvennafélaginu Brynju fyrir nokkrum árum undir nafn- inu Vaka. —ÞRJ, Siglufirði. HALDA FERÐA- MÁLARÁÐSTEFNU Ferðamálaráð tslands hefur ákveðið að boða til Ferðamála- ráöstefnu, sem hefst á Hótel Esju föstudaginn 26. mai, kl. 9.00 f.h., en verður slitið kl. 17.00 iaugardaginn 27. mai. Dagskrá ráðstefnunnar er ekki endanlega ákveðin, en fyrir- komulag verður með svipuðum hætti og á fyrri ráðstefnum, þannig aö fyrri fundardaginn verða flutt erindi, siðan skipa menn sér í starfsnefndir, sem skila áliti og tillögum til um- ræðna og ályktana á ráöstefn- unni. Það er von Ferðamálaráðs Is- lands að Ferðamálaráðstefnan 1971 veröi vel sótt og marki spor i framtiðarskipan ferðamanna- þjónustunnar i landinu fyrir is- lenska og erlenda feröamenn. Ráðstefnan er opin öllum sem áhuga hafa á ferðamálum. Það eru vinsamleg tilmæli aö þátttaka i ráðstefnunni verði til- kynnt sem fyrst til skrifstofu Ferðamálaráðs Islands, Lauga- vegi 3, simi 27488. Vilja fá sfitlag á vegina „Allar þær álögur sem lagðar eru á bifreiðaeigendur og um- ferö og teljast umfram það sem almennt tiðkast að leggja á aðr- ar samgöngur og samgöngu- tæki, renni til vegasjóös. Ef ekki veröi þær skilyrðislaust felldar niður”. Þannig er komist að orði i ályktun almenns fundar bif- reiöaeigenda, sem haldinn var að Höfn i Hornafirði i vikunni að frumkvæði Félags islenskra bif- reiðaeigenda. Þá var þar einnig fjallað um þörfina á lagningu bundins slit- lags á þjóðvegi, og talið brýnt aö nú þegar yrði lagt slikt slitlag á þá vegi, sem þyldu það. Þeir vegir væru margir en lægju nú undir skemmdum sökum þess að slitlagið vantaði.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.