Vísir - 19.05.1978, Side 6
6
BERGMAN ARGUR ÚT í DÓTTURINA
Anna Bergman heitir
hún á þessari mynd, og
er reyndar dóttir Ing-
mar Bergman. Anna er
leikkona og hefur lengst
af búið í London. AAest
megnis hefur hún feng-
ist við það að fækka föt-
um á hvíta tjaldinu og
leika í djörfum mynd-
um. Fyrir nokkru var
sýnd ný slík mynd, en
Ingmar frétti af því fyr-
ir frumsýninguna. Hann
er sagður langt frá þvi
ánægður með fatafellu-
æði dóttur sinnar, og
hringdi þegar til hennar
og lét i Ijósi óánægju
sína. Hann vildi ekki
hafa það að hún léki i
svo einfaldri og ómerki-
legri klámmynd. En
Anna lét sig ekki og
kvaðst reyndar hafa náð
föður sínum niður á
jörðina fljótlega. En út
af þessu öllu varð hið
mesta umstang. Þeir
sem að myndinni stóðu
mótmæltu þvi að mynd-
in væri ómerkileg og
létu eitthvað frá sér i
blöðin, en alla vega
fengu þeir þarna ágæta
ókeypis auglýsingu.
AFAR ILLA KLÆDDAR!
Þegar bandaríski
tlskuhönnuðurinn Rich-
ard Blackwell sem sagð-
ur er mjög frægur var
beðinn um að velja
fimm best ktæddu og
fimm verst klæddu kon-
ur sem viðstaddar voru
Óskarsverðlaunaaf-
hendinguna f yrir
nokkru, viðurkenndi
hann að hann gæti þvi
miður ekki nefnt nokkra
konu sem hefði verið vel
klædd. Og það endaði
með því að hann gaf
stjörnunum öllum
slæma einkunn fyrir
klæðaburðinn. Diane
Keaton, sem fékk Osk-
arinn að þessu sinni, var
ein af þeim (meðfylgj-
andi mynd). Um hana
sagði Blackwell m.a.:
,,Hún sýndi mikið hug-
rekki þegar hún lét sjá
sig í þessum fatnaði.
Hún hefur valið úr það
„besta" af öllu þvi
versta sem hún hefur
getað fundið og skellt
því utan á sig. Hún hafði
greinilega ekki nokkra
tilfinningu fyrir þvi
hvað fór vel saman og
hvað ekki. Þetta var
hræðilegt".
Umsjón: Edda Andrésdóttir
/Hann vill gera lýöræöift
meira virkt. Þaö eiga
fleiri aö fá aö segja skoöu
sina en þeir sem koma
V I sjónvarpssal.