Lesbók Morgunblaðsins - 20.01.2001, Blaðsíða 20
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 20. JANÚAR 2001
U
PPHAFLEGA flutti ég sög-
una af Bláa hnettinum sem
munnlega frásögn á upp-
ákomu í Leikhúskjallaran-
um í janúar 1998,“ segir
Andri Snær sem svar við
spurningunni hvenær og
hvernig sagan hafi orðið til.
Hann kímir þegar ég spyr hvort hafi komið á
undan leikritið eða sagan og svarar á diplómat-
ískan hátt að í sínum huga sé þetta bara ein
saga, sögð á bók og í leikhúsi, hvor miðill um
sig útheimti sína frásagnaraðferð. Spurningin
er greinilega út í hött enda má einu gilda hvort
kom á undan hænan eða eggið.
„Leikritið er þó í vissum skilningi ekki tilbú-
ið fyrr en á frumsýningu. Bókin er löngu komin
út en leikritið kemur fyrst fyrir almennings-
sjónir á morgun.“
Verðlaunaleikrit og verðlaunabók
Líklega er óþarft að rekja söguþráð Bláa
hnattarins, sagan kom út fyrir jólin 1999 og
seldist ekki einasta upp í mörgum prentunum
heldur hlaut Andri Snær íslensku bókmennta-
verðlaunin, fyrsti höfundurinn sem hlýtur þau
fyrir barnabók, og nú þegar hefur hún verið
þýdd á 9 tungumál en útgefendur í fimm lönd-
um hafa ákveðið að gefa bókina út. Nýverið
hlaut sagan pólsku Janusz Korczak verðlaun-
in. Þau eru veitt annað hvert ár og valið úr bók-
um frá 80 þjóðlöndum. Og ekki má gleyma því
að leikritið um Bláa hnöttinn hlaut 2. verðlaun í
leikritasamkeppni Þjóðleikhússins í tilefni 50
ára afmælis leikhússins. „Ég fékk eiginlega
þessa hugmynd strax og ég sá samkeppnina
auglýsta. Mér fannst skila sér svo lítið af nýju
bitastæðu efni fyrir börn í leikhúsin og þótti
sem þessi saga væri kjörin til að verða leikrit.
Samkeppnin fól líka í sér loforð um uppsetn-
ingu, auk peningaverðlauna, og því fannst mér
þetta tækifæri sem ekki mætti sleppa.“ Þetta
ráðabrugg Andra Snæs með leikritið sitt gekk
svo allt saman upp og nú stendur frumsýning
fyrir dyrum. „Þetta var þaulhugsað plott frá
upphafi, eins og þú sérð,“ segir hann og er
engu líkara en honum sé alvara. „Ég lít á þessa
vinnu í leikhúsinu sem skóla fyrir mig sem höf-
und og hef haft geysilega mikið gagn af þessu.
Reynsla mín af leikhússtarfi fram að þessu var
sýning Menntaskólans við Hamrahlíð á leik-
verki mínu Náttúruóperunni. Það var frábær
reynsla, mikil upplifun en gjörólík vinnunni við
sýninguna hér í Þjóðleikhúsinu.“
Þarf ekki stöðug skrípalæti
Andri Snær segir að hann hafi lítið breytt
sögunni en þó hafi hann leyft sér að fara aðrar
leiðir. „Sagan er orðin það vel þekkt að hún
bíður engan skaða af því þótt í leikritinu sé
brugðið út af. Það var t.d. góður dagur í leik-
húsinu þegar ég skar burt tveggja mínútna
samtal og bað um tilfinningar og tónlist í stað-
inn. Þetta er hægt í leikhúsinu en ekki í bók.
Þú skrifar ekki: Tilfinningar og Tónlist í tvær
mínútur! Sýningin á Bláa hnettinum á kannski
eftir að koma einhverjum á óvart, þar sem ekki
er farin sú leið að dúndra öllu upp í hávaða og
sprelli. „Nei, þetta var bara ákvörðun sem við
tókum, Þórhallur leikstjóri, Axel Hallkell,
hönnuður sýningarinnar, og ég. Það hefði verið
mjög auðvelt að gera úr þessu söngleik. Það er
ennþá hægt. En mín skoðun er sú að það þurfi
ekki alltaf einhver skrípalæti á tveggja mín-
útna fresti til að halda athygli barna í leikhúsi
ef sagan er nógu kraftmikil og leikritið er fullt
af tónlist. Börn hafa meðfædda eiginleika til að
lifa sig inn í dramatískar og hættulegar að-
stæður.“ Aðalpersónur Bláa hnattarins eru
þrjár, vinirnir Hulda og Brimir og svo Gleði-
Glaumur, sölumaðurinn snjalli sem umturnar
lífinu á bláa hnettinum og selur börnunum ótal
hugmyndir fyrir æsku þeirra. Hann tryggir
þeim eilífa birtu með því að negla sólina fasta á
himinhvolfið og síðan húðar hann þau með
töfraefninu tefloni til að fiðrildaduftið skolist
ekki af þeim. Þannig geta þau flogið endalaust
og skemmt sér en láta æsku sína og sakleysi að
launum. Hinn hluti hnattarins býr svo fyrir
vikið við eilíft myrkur og þegar Hulda og
Brimir komast að því að þar búa börnin við
myrkur, kulda og skort sækir að þeim efi um
að þetta hafi verið eins sniðugt og þeim þótti til
að byrja með. En þá hefur Gleði-Glaumur náð
að snúa öllum félögum þeirra á sitt band og það
reynist hægara sagt en gert að snúa atburða-
rásinni við. Gleði-Glaumur stingur t.d. upp á
því að börnin sendi börnunum hinum megin á
hnettinum gömul föt og mat svo
þau deyi ekki úr kulda og hungri
og það þykir þeim þjóðráð – í
fyrstu.
Áreitin aukast sífellt
Táknrænar vísanir sögunnar í
ýmsa þætti samtímans eru marg-
ar og hugvitsamlegar og Andri
tekur undir það að þrátt fyrir að
vera hugsuð og samin sem æv-
intýri þá sé þetta í rauninni mjög
raunsæ saga. „Það er reyndar
alltaf hættulegt að tala á þessum
nótum því sagan hljómar þá svo
þurr og leiðinleg. Þá er líka eins
og boðskapurinn sé aðalatriðið.“
En þér er talsvert niðri fyrir og
boðskapurinn skiptir máli?
„Boðskapurinn er samt svo samtvinnaður
sögunni að hvorugt getur án hins verið. Hann
er samofinn spennunni, sálarháskanum, plott-
inu og fléttunni. Bara það að negla naglann í
sólina er þungamiðja sögunnar. En sagan er
opin, það er aldrei sagt hvað er rétt og hvað er
rangt, hver er góður og hver er vondur, hver
og einn verður að dæma fyrir sig. Gleði-
Glaumur er eins og ógnvekjandi blanda af
skemmtikrafti, eiturlyfjasala og siðblindum
stjórnmálamanni. Hann trúir því að meirihlut-
inn hafi alltaf rétt fyrir sér. Hann er líka hag-
fræðilegur níhílisti. Frá sjónarmiði hagfræði-
lega níhílistans er Gleði-Glaumur einmitt ekki
vondur og alls ekki glæpamaður, hann er bara
að veita ákveðna þjónustu, hann myndi til
dæmis aldrei drepa neinn með eigin hendi,
hann stelur ekki og hann stendur við það sem
hann lofar. Hann er ekki beinlínis góður heldur
en hann er líklega einmana. Einhver hélt því
fram að hann væri einmitt góður, hann er kom-
inn til að kenna börnunum lexíu, að sýna þeim
hvað fyrirmyndasamfélagið þeirra var reist á
veikum grunni, það er ágæt kenning. Það er
sagt að ævintýri styrki börn á þroskabrautinni,
lífshættan og myrkrið sem persóna ævintýris
glímir við og sigrast á er einfaldlega lífsnauð-
synlegt veganesti fyrir fullorðinsárin. Kannski
hefur þetta ævintýri einhver slík áhrif, að búa
börn undir framtíðina þar sem áreitin munu
stöðugt halda áfram að aukast, töfralausnum
fjölga og maðurinn mun þurfa að takast á við
áður óþekkt vandamál og svara áður óspurðum
spurningum og því nauðsynlegt að hafa sterk
bein til að velja og hafna. Hættan er sú að fólk
loki sig af í sínum markhópum og loki dyr un-
um á umheiminn að öðru leyti. Við eigum eftir
að fást við marga Gleði-Glauma í framtíðinni.“
Barnaleikrit fyrir fullorðna
Hann brosir þegar hann bætir því við að
hann viti af því að í sögunni sé pólitísk rétt-
hugsun varðandi jafnrétti milli kynjanna þar
sem Hulda er miklu sterkari en
Brimir og stelpurnar eiga yfirleitt
síðasta orðið. „Mér fannst þetta
hálffúlt á tímabili. Mér fannst ég
hafa látið undan pólitískum þrýst-
ingi. En þetta er nú bara af því að
systir mín Hulda er eldri en ég og
var þarfleiðandi alltaf sterkari en
ég þegar við vorum krakkar. Fleira
í þessari sögu er tekið beint úr mín-
um reynsluheimi. Þegar ég byrjaði
að búa þá gaf amma mér wok pönnu
húðaða tefloni. Eftir að hafa borðað
fyrsta pastaréttinn sem ég eldaði á
pönnunni tók ég eftir því að teflonið
var horfið af henni. Ég var sann-
færður um að ég myndi deyja eða
að minnsta kosti yrði ég tilfinninga-
lega teflonhúðaður upp frá þessu! “ Andri
Snær segir í lokin að þó Blái hnötturinn sé
fyrst og síðast barnaleikrit þá leyfi hann sér að
vona að sýningin höfði einnig til unglinga og
fullorðinna áhorfenda. „Húmor verksins og
hugmyndaheimur, tónlistin og umgjörð er ekki
síður miðuð við stálpuð börn og fullorðna, þeim
á alls ekki að leiðast á sýningunni. Það er auð-
vitað langskemmtilegast ef mönnum tekst að
fá þrjár eða fjórar kynslóðir saman í leikhús.
Þórhallur náði þeim galdri í Gauragangi sem
var þó unglingabók upphaflega. Það er ekki
svo oft sem ungir og gamlir upplifa eitthvað í
sameiningu en nú bíðum við bara spennt eftir
viðtökum áhorfenda.“
Gleði-Glaumur býður sannarlega gull og græna skóga.
TILVERA TIL SÖLU
Þjóðleikhúsið frumsýnir á morgun barnaleikritið Bláa
hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason. Eins og nafnið
bendir til er um sömu sögu að ræða og hlaut Íslensku
bókmenntaverðlaunin fyrir ári. HÁVAR SIGURJÓNS-
SON átti samtal við Andra Snæ.
Morgunblaðið/Ásdís
Björn Bjarnason ræðst á Huldu og Brimi.
„Raunsætt ævintýri,“
segir Andri Snær.
BLÁI HNÖTTURINN eftir Andra Snæ
Magnason.
Leikendur: Inga María Valdimarsdóttir,
Atli Rafn Sigurðarson, Kjartan Guð-
jónsson, Nanna Kristín Magnúsdóttir,
Valur Freyr Einarsson, Guðmundur Ingi
Haraldsson, Linda Ásgeirsdóttir, Bjarni
Haukur Þórsson og Marta Nordal. Einn-
ig taka þátt í sýningunni þau Anna
Brynja Baldursdóttir, Atli Þ. Albertsson,
Árni Egill Örnólfsson, Guðjón Davíð
Karlsson, Halldóra Harðardóttir, Sveinn
Kjarval og Þórdís Elva Þorvaldsdóttir.
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Tónlist: múm
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Leikmynd og búningar: Axel Hallkell.
Margrét Sigurðardóttir sér um útfærslu
á búningum.
Grímur: Stefán Jörgen Ágústsson
Dansar: Ástrós Gunnarsdóttir
Leikarar og list-
rænir stjórnendur