Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2001, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.2001, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 16. JÚNÍ 2001 HRYÐJUVERKAMAÐURINN Timothy McVeigh var tekinn af lífi fyrr í þessari viku. Áhugi fjölmiðla var gríðarlegur enda þyrsti al- menning í upplýsingar um aðbúnað hans síðustu dagana, undirbúning og framkvæmd aftökunnar, sem og viðbrögð sjónarvotta og aðstandenda fórn- arlambanna. Hér skipta jafnvel smæstu atriði máli. Við vitum að umsjónarmaður aftökunnar Harley Lappin, er „kvæntur og tveggja barna fað- ir,“ og að fyrirtækið Ritter framleiðir aftökustól- inn. Við vitum stærðina á klefanum sem McVeigh dvaldi í síðustu nóttina í lífi sínu, hvaða fötum hann klæddist á dauðastundinni, hver síðasta mál- tíð hans var og að hann valdi 19. aldar ljóðið „In- victus“ eftir William Ernest Henley sem lokaorð sín. Við vitum meira að segja að útlínurnar á inni- skóm McVeighs sáust undir lakinu sem lá yfir honum á meðan eitrinu var dælt í æðar hans. Ríkið sýnir táknrænt og raunverulegt vald sitt yfir þegnunum í aftökunni. Vald þetta birtist skýrast í líflátinu sjálfu sem fylgir settum reglum, en jafnframt í þeim fjöl- mörgu fyrirmælum sem ber að fylgja síðustu dag- ana fyrir aflífun. Hinn dauðadæmdi fær að taka með sér fimm ljósmyndir inn í klefann þar sem hann dvelur síðasta sólarhringinn og síðasta mál- tíðin má ekki kosta meira en tuttugu dali eða um 2000 krónur. Aftakan er sjónarspil þar sem sak- borningurinn gefur sig ríkinu á vald og lætur lífið fyrir syndir sínar. Ákjósanlegast er að hann sam- þykki dóm sinn, sýni iðrun og óski eftir fyrirgefn- ingu. Með því gefur hann dauða sínum „jákvæða“ merkingu um leið og hann staðfestir visku og rétt- sýni ríkisvaldsins. Aftakan er þannig táknrænt niðurlag ferlis, sem hefst með dauða fórnarlambs- ins og endar með dauða sakborningsins. Þrátt fyrir að dauðarefsingu hafi verið fylgt eft- ir í hinum ýmsu fylkjum Bandaríkjanna í aldar- fjórðung, er McVeigh fyrsti sakborningurinn sem er tekinn af lífi af ríkinu í tæp fjörutíu ár. Árið 1963 valdi Victor Feguer eina ólívu sem lokamál- tíð sína í þeirri von að ávöxturinn af friðartrénu leiddi til sátta. Hafi menn vonað að McVeigh sýndi sama samningsvilja urðu þær vonir að engu. Glæp hans var beint gegn ríkinu og hann á sér hug- myndafræðilegar og pólitískar rætur, sem eru skiljanlegar í ljósi evrópskrar sögu, þar sem póli- tísk hryðjuverk má rekja langt aftur fyrir daga frönsku stjórnarbyltingarinnar. Í bandarísku samhengi er glæpur hans þversögn, en þar eru menn vanari því að fást við sakamenn sem láta stjórnast af löngunum eins og losta eða græðgi. Að sama skapi var McVeigh umhugað að afneita valdi ríkisins yfir sér á dauðastundinni. Hann sagðist vera „sinnar eigin gæfu smiður og herra sálar sinnar,“ svo vitnað sé í lokalínur ljóðsins sem hann gerði að einkunnarorðum sínum. Ljóðið sem McVeigh valdi er sérkennilega gamaldags, en dauði hans minnir óneitanlega á dauða þeirra bylt- ingarmanna sem stóðu keikir á aftökupöllum 19. aldar með ljóðabækur í höndum og frýjuorð á munni. Þannig er hætt við að dauði McVeighs hefji hann upp í augum þeirra aðila, sem telja sig eiga ýmislegt sökótt við bandaríska ríkið og geri hann að þeim píslarvætti sem hann mátti aldrei verða. Eitt af fórnarlömbum sprengingarinnar í Okla- homa segist ætla að þurrka Timothy McVeigh úr minni sínu. „Nafn hans mun falla í gleymsku en nöfn fórnarlambanna munu ávallt lifa,“ bætti hún við. Henni verður ekki að ósk sinni. FJÖLMIÐLAR DAUÐINN OG TIMOTHY MCVEIGH Aftakan er sjónarspil þar sem sakborningurinn gefur sig rík- inu á vald og lætur lífið fyrir syndir sínar. Ákjósanlegast er að hann samþykki dóm sinn, sýni iðrun og óski eftir fyr- irgefningu. GUÐNI ELÍSSON IÍ vetur kom út í Bretlandi bókin The Full Room(Þéttsetna herbergið) eftir breskan leikstjóra að nafni Dominic Dromgoole. Sá hefur getið sér orð sem einn af frumlegri leikstjórum breskum af yngri kynslóðinni, hann var listrænn stjórnandi Bush leikhússins, þar á eftir Old Vic leikhússins og er nú listrænn stjórnandi Whitehall leikhússins. Á ferli sínum hefur hann leikstýrt eða átt þátt í frumflutn- ingi um 80 nýrra leikrita og í Þéttsetna herberginu lætur hann gamminn geysa í fjölmörgum stuttum og hnitmiðuðum ritgerðum um alla helstu breska leikritahöfunda samtímans. Einn og einn frá meg- inlandinu fær að fylgja með ef Dromgoole hefur þótt ástæða til. Ein þeirra er hin franska Yazmina Reza, höfundur l’Art, Listaverksins, sem sýnt var hér í Þjóðleikhúsinu við miklar vinsældir. Um hana segir Dromgoole: „Yasmina Reza er mjög rík. Yasm- ina Reza est trés riche.“ Svo mörg voru þau orð. IIDromgoole tilheyrir þeim hópi breskra leik-húsmanna sem tekið hefur út þroska sinn og menntun við Oxford eða Cambridge háskóla. Hann skrifar eins og sá sem valdið hefur, lætur allt flakka og er fyndinn og skemmtilegur að ekki sé sagt örlítið sjálfumglaður í skrifum sínum. Ritgerðir hans eru þó góð áminning um að ekki skuli taka alla hluti jafn hátíðlega og að tímarnir sem við lifum á séu nánast óskiljanleg blanda af öllu sem áður hefur verið gert og hefur ekki verið gert. Þeir sem hafa þörf fyrir að skilgreina hlutina og treysta varlega eigin dómgreind eiga erfitt uppdráttar í slíku um- hverfi. IIIDromgoole segir í ritgerð sinni um Sam Adam-son, sem er ungt breskt leikskáld með tvö at- hyglisverð leikrit að baki, Clocks & Whistles og Grace Note, að Michael Codron, (þekktur breskur leikhúsmaður) hafi hvíslað að sessunaut sínum eft- ir að tjaldið féll á frumsýningu í Bush leikhúsinu á Clocks & Whistles. „Þetta var mjög skemmtilegt en er þetta gott leikrit?“ Dromgoole segist hafa glaðst í hjarta sínu, ekki vegna þess að Codron hafi skemmt sér og ekki heldur vegna þess að hann var svona óöruggur heldur vegna þess að enginn þekkir regl- urnar lengur. Ekki einu sinni þeir sem setja þær. Dromgoole er ómyrkur í máli í garð gagnrýn- enda. Hann segir að leiklistargagnrýni sé farsi sem allir hafi samþykkt að taka þátt í. „Af einhverri óþekktri ástæðu höfum við samþykkt að halda uppi trúverðugleika hennar. Gagnrýni er della sem bygg- ist á því hvað gagnrýnandinn borðaði í hádeginu, hvenær hann fékk það síðast, í hvaða skóla hann gekk, hvort hann var lagður í einelti sem barn eða unglingur, hvort honum var sparkað úr skóla- leikriti eða hvort hann er með plattfót. Að láta sér detta í hug að gagnrýnandi geti hafið sig yfir allt þetta upp á svið hreinnar dómgreindar er brjálæði sem teygir sig lengra en öll eðlileg geðveiki.“ IVSíðan viðurkennir Dromgoole að hann myndialdrei gagnrýna leikrit þar sem hann viti hversu erfitt sé að skrifa þau. „Ég elska, virði og dái alla takmarkalaust sem geta skrifað leikrit.“ VHér má rifja upp orð hins sænska leikskálds PerOlov Enquist sem sagði eitt sinn að þegar leik- rit loks kæmi fyrir sjónir almennings hefði það þeg- ar átt langt stefnumót við sinn harðasta gagnrýn- anda. Nefnilega höfundinn sjálfan. NEÐANMÁLS Það helgaðist nú fyrst og fremst af efninu, þ.e. einhvers konar tilraun til að draga upp myndina af heiminum. Þegar ég var í skóla minnir mig að þetta hafi verið afgreitt mál og ekki áhugavert sem slíkt en síðan hefur þessi umræða um heimsmyndina tekið allt aðra stefnu. Heimsmyndin er í svo gerjandi mótun nú um stundir að allir sem eru að fást við list- ir hljóta að verða varir við það. Heimsmyndin er á dag- skrá hjá almenningi, í blöð- um, tímaritum og öllu þessu efni sem umleikur okkur. Vís- indi, fræði og listir vefast sam- an, það er innan handar fyrir mig sem rithöfund að nýta mér allt sem ég get úr fræð- unum og ef ég hefði tök á því að tileinka mér niðurstöður vísindanna þá myndi ég gera það. Þetta er alþjóðlegt fyr- irbæri, lítum t.a.m. á franska höfundinn Houellebecq sem nýlega skrifaði Öreindirnar – þar er á ferðinni höfundur sem tekur inn líftækniumræð- una og notar sem efnivið í skáldsögu. Pétur Gunnarsson tmm Hagfræði kynlífsins Hvaðan þörf fólks til að stunda kynlíf sprettur er í sjálfu sér ekki hagfræðilegt vandamál en ætla má að hún sé meðfædd og mótist á þroskaskeiði okkar. Það er hins vegar gefin staðreynd að fólk vill stunda kynlíf og lítur á það sem leið að ákveðnum markmiðum. Eins og hér hefur verið fjallað um má sýna fram á að verð á mismunandi kyn- lífsathöfnum skýri mismun- andi kynhegðun. Því hefur einnig verið haldið fram að hægt sé að útskýra mismun kynjanna, bæði hegðun og útlit, út frá kenningum um náttúruval og að innri rökvísi af hagfræðilegum toga sé einnig að verki í náttúrunni. Í þeim kenningum sem hér hafa verið settar fram er því ekki hafnað að fólk hafi tilfinn- ingar og misjafnan smekk. En tilhneigingar þess í kynlífs- málum ráðast af utanaðkom- andi aðstæðum, þeim mögu- leikum og hömlum sem setja bönd á hegðun fólks. Fólk stundar kynlíf vegna þess að það er leið að ákveðnum markmiðum en þau markmið geta verið af ýmsum toga. Í hagfræði er gert ráð fyrir því að fólk leiti skynsamlegra leiða til þess að ná mark- miðum sínum. Hér hefur verið reynt að lýsa samskiptum kynjanna á þennan hátt. Sólmundur Ari Björnsson tmm HEIMSMYND Í GERJUN Morgunblaðið/RAX Látbragð við Geysi. NÝ SKÁLDSAGA eftir breska rithöfundinn Magnus Mills er komin í búðir í Bretlandi en hún ber heitið Three to See the King (Þrír að finna kon- unginn). Líkt og í fyrri bók- um sínum seg- ir höfund- urinn þar fjarstæðu- kennda sögu. Aðalpersónan er ónefndur maður sem býr einn í tinhúsi á eyðilegri sléttu fjarri mannabyggð. Magnus Mills kom fyrst fram á sjónarsviðið í bresk- um bókmenntaheimi árið 1999 með skáldsögunni The Restraint of Beasts, eða Taumhald á skepnum eins og hún heitir í ís- lenskri þýðingu Ísaks Harð- arsonar sem út kom í fyrra. Bók- in var tilnefnd til Booker-verðlaunanna og þótti afhjúpa á kaldhæðinn en áleitinn hátt bágborið mannlíf í sveitum Bretlands. Mills er einnig höf- undur skáldsögunnar All Quiet on the Orient Express sem einn- ig vakti mikla athygli. Harðsoðinn Mosely BANDARÍSKI rithöfundurinn Walter Mosley sendi frá sér nýja skáldsögu nú í júní. Sú heitir Fearless Jones (Jón kaldi), og segir frá samnefndri persónu og gerist í Los Angeles á sjötta ára- tugnum. Walter Mosley er virtur rithöfundur og áberandi persóna í bandarísku bókmennta- lífi. Hann er þekktastur fyrir að skrifa spennusögur af harðsoðnu hefðinni og færa inn í reynslu og samfélag blökku- manna í stórborgum Bandaríkj- anna. Aðalsmerki höfundarins er fágaður stíll og eftirminnilegar persónur en frægust þeirra er sögupersónan Easy Rawlins sem fyrst kom fyrir í bókinni Devil In A Blue Dress. Skáldsagan RL’s Dream, sem út kom árið 1996, þótti jafnframt staðfesta hæfi- leika rithöfundarins á sviði fag- urbókmennta. Fearless Jones verður vafa- laust vel fagnað meðal aðdáenda Mosely enda fyrsta spennusaga höfundarins frá því árið 1996. Í gervi Rosamond Smith Óhætt er að segja að Joyce Carol Oates sé með afkastameiri rit- höfundum samtímans en hún hefur sent frá sér tugi rit- verka af ýmsu tagi á sínum ferli. Hún hef- ur nú gefið út nýja spennu- sögu en ekki er lengra síð- an en í mars síðastliðnum að hún sendi frá sér smásagnasafnið Faithless: Tales of Transgression sem hlaut lofsamlega dóma. Glæpa- sagan heitir The Barrens: A Novel of Suspense og kemur hún út undir höfundarnafni sem Oates skrifar jafnan spennusög- ur sínar undir, þ.e. Rosamond Smith. Þá kom hin ágæta skáld- saga Oates frá síðasta ári, Blonde: A novel, nýlega út í kilju- formi og hafa margir unnendur bókmennta eflaust beðið með eftirvæntingu eftir þeirri útgáfu. ERLENDAR BÆKUR Mills með nýja skáldsögu Walter Mosely Joyce Carol Oates Magnus Mills

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.