Pressan - 10.08.1989, Síða 5
Fimmtudagur 10. ágúst .1989
5
EITT ANDLIT =
ÞRJÁR KONUR
— eða öfugt
Hefur þig einhvern tíma langað til að vera allt öðruvísi en þú ert? Til dæmis eins
og einhver þekkt leikkona, fyrirsæta í blaði eða íslensk sjónvarpskona? Þú getur
hætt að láta þig dreyma! Kristín Stefánsdóttir hjá snyrtistofunni NN sýnir
hér hvernig hægt er að breyta útliti á örskammri stundu.
EFTIR: ÖNNU KRISTINE MAGNÚSDÓTTUR — MYNDIR: EINAR ÓLASON
„Gvuuuð! Ég get ekki farið svona út að borða!
LOKSINS þegar hann hringir er ég eins og
FÍFL. . . Hvað get ég gert???!‘‘
Þú getur ýmislegt gert góða mín. Langar þig
að líta út eins og Marilyn Monroe í kvöld eða
kannski Sophia Loren? Eða einhver önnur. Var
hann ekki með henni. . . einu sinni? Er það hún
sem hann sér svo eftir? Blessuð vertu, láttu þá
breyta þér svo þú líkist henni!
Þetta er ekkert grín. Þetta er fúlasta alvara.
Hver einasta kona getur nú látið drauminn ræt-
ast og litið út eins og sú kona sem henni finnst
bera af öðrum. Kristín Stefánsdóttir, eigandi
snyrtistofunnar NN á Laugavegi 27, og Sigrún
Pálsdóttir, hárgreiðslumeistari á Hár-Gallerí,
Laugavegi 27, sýndu og sönnuðu að hægt er að
búa til þrjár mismunandi manngerðir úr sömu
stúlkunni.
Kristín Stefánsdóttir lærði við Complexion
International Make-Up School á Bretlandi og
hefur síðustu fjögur árin rekið snyrtistofuna NN.
Hún vinnur eingöngu með bandarísku snyrti-
vörurnar No-Name sem hún flytur sjálf inn.
Kristín er félagi í Förðunarfélagi íslands, þar
sem eru fimmtán förðunarfræðingar, sem Krist-
ín segir allar geta breytt andlitum á þennan hátt.
Kristín segir ekki algengt að konur biðji um
förðun til að líkjast þekktum kvikmyndastjörn-
um eða öðrum þekktum konum: ,,Nei, það ger-
ist ekki oft!" segir hún. „Hins vegar er hægt að
breyta næstum öllum. Það fer þó auðvitað eftir
andlitsfalli og því hvernig fyrirsætan er hvernig
tekst til með ákveðnar manngerðir. Fyrirsætan
sem ég valdi fyrir þessar myndir er til dæmis
nokkuð áþekk Marilyn Monroe og er lífleg,
þannig að ég náði vel Marilyn-manngerðinni út
úr henni sem og Valgerði Matt. og Ritu Hay-
worth. Ef ég ætti hins vegar að breyta henni í
Marlene Dietrich gæti þurft meiri vinnu. En
með réttri förðun og hárkollu á að vera hægt að
breyta hverri sem er í hverja sem er.“
Kristín segist nota leikhússmink með venju-
legum farða, en mestu máli skipti að litaval sé
rétt og að andlitið sé skyggt á réttan hátt. Það
tók tvær klukkustundir að breyta fyrirsætunni
hér á síðunni í Marilyn Monroe, klukkustund í
Valgerði Matthíasdóttur og klukkutíma í Ritu
Hayworth: „Sigrún Pálsdóttir greiddi hár fyrir-
sætunnar fyrir myndatökurnar af Marilyn, litaði
og setti hvítar strípur í til að breyta henni í Val-
gerði og notaði hárkollu fyrir Ritu Hayworth-
myndirnar."
En ekki segir Kristín nóg að förðun og hár séu
eins og vera ber: „Til að skapa aðra persónu þarf
að fylgja öðrum sérkennum hennar. Við fengum
skartgripi lánaða hjá snyrtivöruversluninni
Hygeu á Laugavegi 35, því Marilyn varð að vera
með semelíufesti og Valgerður með armbönd.
Hár og andlitsförðun verða að vinna saman og
svo aukahlutirnir, því aðeins þannig nær maður
áhrifunum."
Fyrirsætan heitir Guðrún Jónsdóttir og
starfar hjá Papillu við að setja gervineglur á kon-
ur, en Kristín segist hafa valið hana því hún hafi
það andlitsfall sem þurfi til að búa til þær þrjár
konur sem Kristín vildi skapa: Marilyn Monroe,
Valgerði Matthíasdóttur og Ritu Hayworth:
„Þetta er eitt af því skemmtilegasta sem maður
gerir í förðunarfræðinni, að breyta manneskju,"
segir Kristín.
Kristín Stefánsdóttir hjó Snyrtistofunni
NN segir eitt af því skemmtilegasta i
förðunarfræðinni vera að breyta andlit-
um. Það tók klukkustund að búa til andlit
Ritu Hayworth ...
Fyrirsætan heitir Guðrún Jónsdóttir.
Hún hefur andlitsfall sem hentar vel til
breytinga og það tók ekki langan tíma að
búa til þrjár ólíkar persónur úr andliti
hennar.