Pressan - 10.08.1989, Blaðsíða 29
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
29
spáiw
vikuna 10.—17. ágúst
•• (21. mars—20. apríl)
Þaö fer í taugarnar á þér aö þaö virðist eng-
inn hafa tíma til aö tala við þig. Láttu þaö
ekki fara meö skapið og taktu þess í staö fyr-
ir langtímaverkefni sem þú hefur lengi ætlað
aö fara í. Viö aðstæður sem þessar eru þogl-
ar og látlausar aögeröir áhrifaríkastar.
(21. apríl—20. maí)
Óbreytt ástand er þaö sem á best viö naut
um þessar mundir. Allar breytingar sem þú
telur þér til góös gætu snúist upp í and-
hverfu sína meö ófyrirsjáanlegum afleiðing-
um. Naut meö tungl í vatnsbera eru þó und-
anþegin þessu og þau mega gera nánast allt
sem þau vilja og geta.
(21. maí—21. júní)
Ástandið í einkalífi tvíbura gæti verið betra
en það er. Smárabb gæti leyst vandann og
komið hlutunum í fyrra horf. Það sama á við
um fjárhaginn, en réttu aðgerðirnar gætu
breytt fyrirsjánlegum minus í plús. Fólk í
listageiranum ætti að sinna sinum málum af
mikilli natni og varfærni.
(22. júní—22. júli)
Alveg fyrirtakshelgi til ferðalaga, en pass-
aðu veskið, krítarkortið og útilegubúnaðinn.
Farðu ekki eftir veðurspám varðandi hvert
skal halda heldur fylgdu eðlisávisuninni.
Klæddu þig vel ef viðrar illa, ullin t.d. klikkar
ekkii
)23. júlí—22. ágúsl)
Timi til kominn að taka lifið alvarlega efir að
hafa verið svolítið kærulaus undanfarið. Það
þýðir þó ekki aö þú eigir aö setja upp ein-
hvern steingervingssvip heldur vera blið-
lega alvarleg, því tilhugalifið krefst þess. Á
þeim bænum er hætt við að eitthvað spenn-
andi gerist.
(23. ágúsl—23. sepl.)
Forðastu öll rifrildi í lengstu lög og farðu
frekar i biltúr, út að skokka, eða í sund ef eitt-
hvað slikt lætur á sér kræla. Fjölskyldan
verður krefjandi þessa helgi og óvænt út-
gjöld ekki ólikleg. Og vinnan verður það lika
í byrjun næstu viku. Já, lífið er ekki alltaf
dans á rósum.
(24. sepl —23. okt.)
Þú færð óvæntar upplýsingar sem gætu
komið sér vel fjárhagslega. Haltu þeim þó
einungis fyrir þig og engan annan. Aðgerðir
i samþandi við þetta verður þú að ihuga
vandlega og ekki flýta þér. Farðu í heimsókn
til vina eða ættingja og rifjaðu upp sætar
minningar með þeim. Það gæti orðið fjör.
(24. okt—22. nóv.)
Félagslega ertu í góöu formi þessa dagana
og Ijós þitt skin á því sviði. Mögulegt er þó
að eitthvað i umhverfi þínu fari i taugarnar á
þér, en hafðu ekki áhyggjur af því. Ef þer
leiðist þegar líða fer á helgina sittu þá ekki
aðgerðarlaus, heldur gerðu eitthvað í mál-
unum.
(23. nóv.—21. des.)
Bogmenn eru stundum hið hugmyndarík-
asta fólk. Þá er bara að vinna úr hugmynd-
unum sér i hag. Það gæti krafist aðstoðar
annarra og ekki vera feiminn við að biðja um
hana. Það gæti nefnilega margborgað sig.
Einhleypum er bent á hagstæöa stöðu him-
intunglanna og giftum, að kapp er best með
forsjá.
(22. des.—20. janúar)
Til þess að halda andlegri heilsu er nauðsyn-
legt að halda jafnvægi milli vinnu og frítíma.
Það er nauðsynlegt að draga úr stressinu og
slappa aðeins af. Þetta er einmitt það sem
steingeitur eiga að gera þessa helgi.
(21. janúar—19. febrúar)
Fyrir fólk i þessu merki sem sinnir viðskipt-
um gætu dyr sem hafa verið lokaðar f ram að
þessu skyndilega opnast. Verið óhrædd að
ganga inn. Fjölskyldumál gætu þurft skipu-
lagningar, og þeim sem eru að byggja er
bent á að vextir eru háir og fjármagnskostn-
aður himinhár. Forðist þvi bankabyggingar i
lengstu lög.
(20. febrúar—20. mars)
Sumir tiskar eru þannig að þeim er gjarnt að
snúa við ef þeir finna fyrir andstreymi. Það
getur svo sem verið heppilegt stöku sinnum
en ekki alltaf. Ef vatnsmagnið í kringum þig
er farið að minnka, flýttu þér þá að upptök-
um vatnsins, þvi þar gæti leynst önnur upp-
spretta sem fer í aðra átt.
i frqmhjahlaupi
Hannes Hólmsteinn Gissurarson lektor
„Vil hvorki verðð
sköllóttur né feitur"
— Hvaða persóna hefur haft
mest áhrif á þig?
„Friedrich von Hayek. Ég
hreifst mjög af bók hans Leið-
inni til ánauðar þegar ég las
hana ungur að árum. Mér fannst
Hayek skýra mjög vel stjórn-
málaskoðanir sem ég hafði haft
í miklu frumstæðari mynd áður
en ég las bókina."
— Hvenær varðstu hrædd-
astur á ævinni?
„Þegar ég steig inn í salinn
þegar ég var að verja doktorsrit-
gerðina mína úti í Oxford."
— Hvenær varðstu glaðast-
ur?
„Ætli það hafi ekki verið þegar
ég fékk að vita að ég hefði verið
skipaður lektor í félagsvísinda-
deild Háskóla íslands."
— Hvers gætirðu síst verið
án?
„Einkatölvunnar minnar sem
er af Macintosh-gerð. Það er
hinn besti gripur."
— Hvað leiðist þér mest?
„Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins. Þargeta pennarnirekki
gert annað en geispa út úr sér
sjálfsögðum sannindum."
— Hvað skemmtir þér best?
„Að lesa góða bók og taka
smávegis í glas með skemmti-
legu fólki."
— Hvað fer mest í taugarnar
á þér?
„Trúðarnir þrír sem leiða ríkis-
stjórnina."
— Manstu eftir pínlegri
stöðu sem þú hefur lent i?
„Ég varð mér alltaf til skamm-
ar á öllum vinnustöðum vegna
kunnáttuleysis í verklegum efn-
um. Hins vegar kann ég mjög vel
við mig á núverandi vinnustað.
Þú verður að spyrja samkennara
mína hvort ég verð mér nokkuð
til skammar í háskólanum."
— Hvað vildirðu helst fást
við ef þú skiptir um starf?
„Skrifa bækur í fullu starfi eða
vinna á fjölmiðli."
— Áttu þér einhvern leynd-
an draum?
„Flestir mínir draumar hafa
ræst, þannig að ég á mér engan
leyndan draum lengur. Ég hefði
þó áhuga á því að hasla mér enn
frekar völl í hinum enskumæl-
andi heimi. Ég geri ráð fyrir því
að í framtíðinni skrifi ég bækur
um mín fræði frekar á ensku en
íslensku. — Heyrðu annars: Ætli
hinn leyndi draumur minn sé
ekki að varðveita æskuna sem
lengst og verða hvorki sköllóttur
né feitur..."
VILTU LÁTA LESA ÚR ÞÍMUM
LÓFA?
Sendu þá tvö góö Ijósrit af hægri
hendi (þeir örvhentu Ijósrita vinstri lóf-
ann!) og skrifaöu eitthvert lykilorð aft-
an á blöðin, ásamt upplýsingum um
kyn og fæðingardag.
Utanáskriftin: PRESSAN — lófalestur
Ármúli 36
108 Reykjavík
lófalestur
í þessari viku:
HA
(kona, fædd 26.10.1966)
ALMENNT:
Líf þessarar konu verður mjög
viðburðaríkt, sérstaklega á árun-
um 1990 til aldamóta. Það gætu
orðið töluverðar breytingar á
næstu tveimur árum tengdar
heimilisaðstæðum hennar eða
hennar nánustu fjölskyldu.
Eftir nokkur ár gæti þessi kona
sest að á allt öðrum stað en hún
dvelur nú á. Það gerist líklega,
þegar hún er u.þ.b. 34 til 37 ára
gömul.
MERKÚRHRINGUR (1):
Það er óvanalegt að sjá svona
greinilegan Merkúrhring. Hann
gefur til kynna aö konan hafi vissa
heppni með sér í fjármálum eða
þá að hún er hreinlega nokkuð
klók og útsjónarsöm. Einnig hefur
hún að öllum líkindum góðan tal-
anda. Hún verður hins vegar að
varast mjög að taka áhættu í fjár-
málum, eins og t.d. að taka þátt í
fjárhættuspilum. Heppnin yrði
kannski með henni í fyrstu skiptin,
en svo gæti hún fengið harðan
skell.
AMY
ENGILBERTS