Pressan - 10.08.1989, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 10. ágúst 1989
7
MARGT SMÁTT
GERIR EITT STÓRT
Móttaka er hafin
Fyrst í stad verður tekið á móti einnota öl- og gosdrykkjaumbúðum á 11 móttökustöðum og 45 söfnun-
arstöðum um allt land. Með haustinu færist skipulagið í varanlegt horf og móttökustöðum fjölgar um
allt land.
Að sjálfsögðu er tekið við beygluðum jafnt sem heilum dósum en við biðjum ykkur að tæma umbúðirn-
ar vel áður en þeim er skilað.
Með tímanum munu vélar leysa móttökustöðvarnar af hólmi. Rétt er að taka fram að vélarnar geta ekki
tekið við mjög beygluðum dósum sem þarf þá að skila beint til Endurvinnslunnar.
Þannig er móttökunni háttad: Móttökustaðir:
Á móttökustöðunum er tekið við umbúðum og skilagjaldið greitt út í hönd. Til að
flýta fyrir afgreiðslu eru menn beðnir að flokka umbúðir þannig að áldósir séu í
einum poka, plastdósir og -flöskur í öðrum og einnota glerflöskur í þeim þriðja.
Á söfnunarstöðunum er tekið við umbúðum, þær merktar og fluttar til Endurvinnsl-
unnar í Reykjavík þar sem þær eru flokkaðar og taldar. Endurvinnslan sendir eigend-
um síðan ávísun fyrir skilagjaldinu í pósti. Þeir sem skila á söfnunarstað þurfa ekki að
flokka umbúðirnar en miðað er við að menn safni a.m.k. 100 umbúðum í einn poka
áður en pokanum er skilað.
Söfnunarstaðir:
Reykjavík:
Við Jaðarsel (hverfisstöð Gatnamálastjóra).
í Vesturbæ: Skemma við Eiðisgranda.
Kópavogur: Dalvegur 7
Hafnarfjörður: Við Flatahraun
Akranes: Smiðjuvellir 3
ísafjörður: Hjallavegur 11
Akureyri: Við KA-heimilið
Vestmannaeyjar: Við Kaupfélagið
Selfoss og nágrenni: Vörumóttaka KÁ
Keflavík og nágrenni: Iðavellir 9B
Borgarnes
Ólafsvík og Hellissandur
Grundarfjörður
Stykkishólmur
Búðardalur
Patreksfjörður
Tálknafjörður
Bíldudalur
Þingeyri
Flateyri
Suðureyri
Bolungarvík
Súðavík
Hólmavík
Hvammstangi
Blönduós og Skagaströnd
Sauðárkrókur
Siglufjörður
Ólafsfjörður
Dalvík
Húsavík
Kópasker
Raufarhöfn
Þórshöfn
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Seyðisfjörður
Neskaupstaður
Eskifjörður
Reyðarfjörður
Búðir
Stöðvarfjörður
Breiðdalsvík
Djúpivogur
Höfn
Kirkjubæjarklaustur
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Hveragerði
Laugarvatn
Stokkseyri
Þorlákshöfn
Grindavík
Endurvinnsla stuðlar að hreinna umhverfi, heilbrigðara verðmætamati og er auk þess dágóð búbót fyrir
duglega safnara.
Búast má viö miklu álagi fyrstu dagana, meðan menn eru að skila þeim umbúðum sem þeir
hafa safnað undanfarnar vikur. Sýnum því þolinmæöi, þá gengur allt betur.
tmmmsmta
Nýtt úr notuðu