Pressan - 10.08.1989, Blaðsíða 16

Pressan - 10.08.1989, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 10. ágúst 1989 ÞÁIIUR AF LINCOLN SWADOS — og innilegri hluttekningu Hallgríms Thorsteinssonar út af örlögum hans Þegar Hallgrimur Thorsteinsson var búinn að sýna i tvö ár i Reykjavik siðdeg- is á Bylgjunni hvernig islenskur útvarps- þáttur gœti verið töffffaralegur en léttur, menningarlegur en skemmtilegur — þá hvarff hann á vit nýrra œvintýra til Amer- iku. VIDTAL: ÞÓRHALLUR EYPÓRSSON „Ég er í þriggja vikna stoppi og nota tækifærið til að grípa í gamla þáttinn minn,“ segir Hallgrímur sem stýrir Reykjavík síðdegis næstu þrjár vikurnar. Annars er hann núna búsettur í New York og stund- ar þar nám í háskólanum sem kenndur er við borgina: New York University. „Námið felst í því að reyna að átta sig á hvað þessi mikla tölvu- og fjarskiptabylting kemur til með að þýða. Þetta er masters-nám og heitir: Interactive telecommuni- cations — á íslensku: Samvirk boð- skipti. Þetta er skemmtilegt nám," held- ur Hallgrímur áfram, „af því að það veit enginn hvað er að gerast. í þessu fagi koma menn ekki til með að vita hvað er að gerast fyrr en eftir 10 ár, þegar fer að greiðast úr allri tækniflækjunni — þá, í fyrsta lagi, munum við vita hvernig boð- skiptum og fjölmiðlun verður hátt- að í framtíðinni. Þessi tækni á eftir að gera kleift að senda miklu meira af upplýsingum, myndefni, hljóð- efni o.þ.h. þvers og kruss um allan heim fyrir miklu minna fé en nú er. Þetta er spennandi í augnablikinu." Getur Hallgrímur lært eitthvað meira um fjölmiðla en hann er bú- inn að gera í starfi sínu sem frétta- maður á ríkisútvarpinu, blaðamað- ur á Helgarpóstinum, fréttastjóri á Bylgjunni (burtséð frá því, náttúr- lega, að hann lærði áður fjölmiðla- fræði við háskólann í Portland, Oregon)? „Nei, kannski ekki. Ég er að reyna að fylgjast með í faginu eins og fagmenn eiga að gera. Eins og ég segi: Það eru nýir hlutir að gerast. í vændum er samruni síma, sjónvarps, tölvu. í Bandaríkjunum, þar sem ríkisvaldið er ekki með af- gerandi forystu í rafeindatækni heldur einkaframtakið, eru menn mjög uggandi yfir því að þeir séu að missa forystuna í hendur á Japön- um, t.d. að því er varðar háskerpi- sjónvarp. Hjá öðrum þjóðum, t.d. Japönum og Frökkum, hefur ríkis- valdið markvisst reynt að stuðla að þróun á þessu sviði með ríkisstyrkj- um. í Bandaríkjunum, aftur á móti, vill það brenna við að hrá viðskipta- sjónarmið, sem eru oft í eðli sínu skammsýn, ráði ferðum. Loks: Á ís- landi, þar sem ríkisvaldið kemur auðvitað inn í öll svona mál, er það alltaf sama sagan að aldrei er hægt að innleiða nýjungar nema í tengsl- um við hernaðarbandalög, saman- ber flugvelli og nú síðast ljósleiðara- málið. Þar ætlar Nató að taka þátt í hluta af kostnaðinum, eins og drep- ið var á í fréttum um daginn." Hallgrímur sem hélt utan síðast- liðið haust fer ekki í launkofa með að í borg eins og New York taki tíma að átta sig og finnast maður eiga heima þar. „Eftir fimm mánuði þótti mér ég geta orðið talað við fólk á þess eigin nótum og þar með lagt grunninn að þeim samböndum sem er nauðsynlegt að hafa. Þá var ég búinn að læra að þetta segi ég ekki við þennan og hitt ekki við hinn. Og farinn að geta lifað innan um alla hörmungina sem mætir manni hvar sem maður á leið um stræti þessarar borgar," segir Hallgrímur sem sjálf- ur býr í hinu athyglisverða hverfi East Village, skammt frá suðupottin- um Tompkins Square, þar sem kom til snarpra átaka í fyrra á milli lög- reglu og íbúa hverfisins, einatt ýmist fátækra, aldraðra eða húsnæðis- lausra — eða allt þetta í senn. „Ástandið er hroðalegt. Þú situr á kaffihúsi og drekkur þitt kaffi og á gangstéttinni við hliðina á þér ligg- ur maður sem þú veist ekkert hvort er dauður eða lifandi — mjög ógeðs- legt í rauninni. En svona er þetta. Það eru um 90 þúsund húsnæðis- lausir menn í New York og þeir eru úti á götu og þú sérð þessa menn. Þarna vantar pólitískar lausnir ef einhvers staðar! Ástæðurnar fyrir þessu ástandi eru m.a. þær að á Rea- gan-árunum voru útgjöld til heil- brigðisþjónustu miskunnarlaust skorin niður og alríkisyfirvöld hættu að greiða sjúkrabætur til þeirra sem haldnir voru „þung- lyndi“ — það var ekki talið sjúkdóm- ur.“ Ein lífsreynslusaga í lokin: „í Ef síminn hringdi — kœmi ég aftur til Islands Martin Berkofsky og Anna Málfríöur Siguröardóttir kenna Tyrkjum aö spila á píanó „Eff siminn hringdi eg mér vœri boðin staða i pianókennslu fyrir lengra komna á íslandi er ég ekki i nokkrum vaffa um að óg slægi til og sottist hér afftur að. En það heffur onn okki verið hringt i mig," sogðr Martin Borkoffsky, bandariski pianéleik- arinn, som or moð þeim lítt skýranlegu ósköpum gerður að „unna öllu sem is- lenskt er". Á sunnudaginn verður hann með ténleika i íslensku éperunni. VIÐTAL: ÞÓRHALLUR EYÞÓRSSÓN - MYND: EINAR ÓLASON íslenska þjóðin er stundum afund- in í garð erlendra tengdasona sinna, einkum ef þeir eru píanóleikarar. Eftir fimm ára dvöl á íslandi, sem var viðburðarík að flestu öðru leyti en því að fá starf við sitt hæfi, tók Martin Berkofsky — sem hefur komið fram opinberlega sem pían- isti frá 8 ára aldri þegar hann lék t sjónvarpi í heimaborg sinni Wash- ington DC — pokann sinn, ásamt konu sinni, Önnu Málfríði Sigurðar- dóttur píanóleikara, og hélt til Tyrk- lands. Þar hafa þau hjón kennt í tvö ár við tónlistarháskólann í hinni fornfrægu borg Izmir, sem áður hét Smyrna, á strönd Eyjahafs. Einn örlagaríkasti viðburður í lífi Berkofskys á íslandi var þegar ekið var á hann þar sem hann brunaði á mótorhjóli eftir Hringbrautinni, með þeim afleiðingum að hann brotnaði illa. Meðal annars hand- leggsbrotnaði hann, sem er eins og gefur að skilja afar viðkvæmt mál fyrir pianóleikara. „Líf mitt breyttist við þetta slys. Ég var umfram allt þakklátur fyrir að hafa sloppið lif- andi út úr þessum ósköpum. Ég komst að því síðar að menn bjugg- ust ekki við því að ég gæti nokkurn tíma leikið aftur á píanó. Þá hét ég því að ef ég endurheimti krafta mína að nýju myndi ég eftirleiðis nýta þá í þágu góðra málefna eins og mér væri frekast unnt,“ segir Berkofsky, sem eftir slysið hélt m.a. tónleika við Harvard-háskóla til styrktar byggingu tónlistarhúss í Reykjavík. Þegar Berkofsky hafði náð sér og safnað kröftum kenndi hann ápíanó í Tónlistarskóla Garðabæjar. „Eg átti mjög gott samstarf við alla þar. En hins vegar var ekki fullnægjandi fyrir mig að kenna mestmegnis byrjendum til lengdar vegna þess að áður hafði ég kennt tónlist á hærra stigi, m.a. við Rutgers-háskólann og Maryland-háskóla. í allri hógværð spurðist ég öðru hverju fyrir um starf hjá Tónlistarskólanum í Reykja- vík. En ég komst brátt að því að það var ekki til i dæminu að ég fengi eitt- hvað að gera þar. Eftir talsverða eft- irgrennslan og eftir að ég hafði gert heyrinkunnugt að mér hefðu borist tilboð um störf á tveimur stöðum er- lendis, í Títógrad í Júgóslaviu og í Izmir, þá sögðu menn í Tónlistar- skólanum: „Þú getur fengið hér starf ef þú kemur sjálfur með þína eigin nemendur!" Ég sagði þá að ég myndi gera mig ánægðan með hálfa stöðu við Tónlistarskólann í Reykja- vík en halda hálfri stöðu í Garðabæ. En svarið sem mér var gefið í Tón- listarskólanum var eftir sem áður: „Nei.“ Ég er þó ekki reiður eða sár út í neinm Það væri smásálarlegt. En ég ann íslandi mjög og vildi held- ur búa hér en nokkurs staðar annars í veröldinni og ef mér byðist hér starf við mitt hæfi myndi ég þiggja það með þökkurn." Berkofsky segist hafa það á til- finningunni að sumum íslendingum gangi illa að skilja að útlendingum ge:ti þótt vænt um um landið þeirra. „Þeir segja kannski sem svo: „Hann hlýtur að vilja koma hingað af því að það er eitthvað að honum. Senni- lega er hann lélegur tónlistarmað- ur.“ Mér þykir mjög leitt að þetta skyldi fara svona. En ég er bjartsýn- ismaður að upplagi. Og ástand mála hér á e.t.v eftir að breytast — hver veit.“ En nú er það Izmir, þriðja stærsta borg Tyrklands með um eina og hálfa milljón íbúa. í Tyrklandi eru fjórar sinfóníuhljómsveitir og starf- ar ein í Izmir þótt sú besta sé líklega í höfuðborginni, AnkcU'a. „Tyrkir eru mjög áfram um að semja sig að háttum Vesturlandabúa og efla sömu götu og ég bý, þarnæsta húsi, þá hugsa ég að ég hafi gengið einum tvisvar sinnum framhjá líki á leið- inni í skólann. Þetta var síðan for- síðumál í Village Voice. Sá látni hét Lincoln Swados, einhentur, fótfúinn og sérsinna einstæðingur. Hann hafði búið í dálítilli skonsu á jarð- hæð fjölbýlishúss með ódýrum leiguíbúðum. Einhver náungi keypti húsið og ákvað að breyta óhrjáleg- um vistarverunum í lúxusíbúðir handa efnuðu fólki sem sækist eftir því að búa miðsvæðis. Húseigand- anum fannst jarðhæðin til lítillar prýði og byggði því vegg meðfram henni og lokaði þar með Lincoln karlinn Swados inni í skonsunni sem hann hafði helgað sér, því að ekki var nærri því komandi að hann færi þaðan út. Til að gera langa sögu stutta dó veslings maðurinn þarna á bak við þennan vegg. Nú hefur sak- sóknari New York-ríkis ákveðið að höfða mál á hendur húseigandan- um fyrir að hafa orðið valdur að dauða Lincolns Swados." Það er í þetta umhverfi sem Hall- grímur stefnir aftur innan fárra vikna. Daginn áður en hann fór heim nú fyrir skemmstu varð hon- um gengið framhjá húsinu þar sem Lincoln Swados bar beinin. Þar hitti hann að máli nokkra eldheita menn sem hafa staðið í mótmælum vegna hins sorglega atburðar. Þegar þeir komust að því að hér væri frétta- maður á ferð vildu þeir óðir og upp- vægir fá hann til liðs við sig í barátt- unni við húseigendaveldið, þar sem þeir eiga undir högg að sækja. Hall- grímur sagðist hins vegar vera að flytja í aðra götu þar í grenndinni og það væri aldrei að vita hvaða mál- staður tæki við þar. Vonandi heyrist þó frá honum aft- ur einnig hér. menningarlíf í landi sínu. Þeir eru ákaflega áhugasamir um að glæða tónlistarlífið og tilbúnir að leggja mikið á sig í þeim efnum. Ég hef í starfi mínu mætt mikium skilningi og allir eru mjög hjálpfúsir." En hvernig er fyrir íslenska konu að búa á meðal Tyrkja — hættulegt? „Ég fer allra minna ferða einsöm- iil.“ seoir Anna Málfríður. sem líka kennir í tónlistarháskólanum í Iz- mir, „en á næturþeli ættu konur þó ekki að vera einar á ferð — en það gildir um fleiri staði í veröldinni en Tyrkland. Hluti af þeirri hugmynd sem fólk gerir sér venjulega um Tyrkland er að þar sé konum mjög haldið niðri. Þetta hefur breyst mik- ið á síðustu árum. Samt er í þessum efnum sem öðrum enn mikill mun- ur á þjóðfélagsstéttum. Staða menntaðra kvenna er ekki óáþekk því sem almennt gerist á Vestur- löndum. En á meðal hinna efna- minni, ekki síst úti á landsbyggðinni, er staður eiginkonunnar talinn vera heimilið — eldhúsið; og sama er að segja um dæturnar, sem eru vernd- aðar á heimilunum. Viðkvæðið hjá einhleypum vinum okkar þarna úti er: „Það er engin leið að kynnast góðum tyrkneskum stúlkum. Þær eru allar heima." Reyndar bannaði Mústafa Kemal Ataturk á sínum tíma að konur gengju með blæjur og þar af leiðandi eru flestar konur klæddar vestrænum fatnaði, þótt einstaka kona sjáist enn með blæju fyrir andlitinu." Almennt láta þau Anna Málfríður og Martin Berkofsky vel af starfinu í Tyrklandi. „Vinnuálagið er minna en hér,“ segja þau, „og kaupið er nokkuð gott, a.m.k. á tyrkneskan mælikvarða. Okkur lyndir vel við samstarfsmennina. Aðalmunurinn á starfi okkar þar og hér er sá að þetta er skóli þar sem nemendurnir eru búnir að ákveða að gera tónlist- ina að ævistarfi og þá verða þeir auðvitað að leggja sig alla fram." Á tónleikunum, sem verða haldn- ir í íslensku óperunni á sunnudags- kvöldið og byrja klukkan hálfníu, leikur Berkofsky m.a. tvær píanó- sónötur eftir Beethoven og píanó- sónötu eftir Tcherepnin, auk verka eftir Liszt og Wagner. í ágústlok verður svo aftur lagt í víking á hendur Tyrkjum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.