Pressan - 10.08.1989, Blaðsíða 14
%
Fyrtr sama verð
og er á mánaðaráskrift
að Stöð 2 geturðu fengið
þrælgóða 16 pizzu
og IV2 lltra af gosi
að auki!
Við eigum við 16 tommu pizzu með ólívum, tún-
fiski, rœkjum, krœklingi, hvítlauki, parmesan
og auka osti. Myndarlega pizzu. í mánaðar-
áskrift að Stöð 2 felst líka margs konar góðgœti.
Fréttir og frœðsla hvaðanœva að af landinu og
líka utan úr heimi. Eða þyrstir þig og fjölskyld-
una í barnaefni með íslensku tali? Hvað með
skemmtidagskrár? Ertu óseðjandi þegar hroll-
vekjur og spennumyndir eru annars vegar?
Fœrðu aldrei nóg af góðum bíómyndum?
Petta fœrðu í 400 útsendingartímum á hverj-
um mánuði á Stöð 2, fyrir aðeins 1.795,- krónur.
En veistu hvað þú ert lengi að borða pizzuna?
Hálftíma! Stöð 2 seður jafnvel sársvanga.