Pressan - 12.10.1989, Blaðsíða 26
Fimmtudagur 12. okt. 1989
fjölmiðlapistill
*
Utvarp „eldra“ fólksins
Það var alveg bráðsniðugt af for-
ráðamönnum Islenska útvarpsfé-
lagsins að ákveða að miða dagskrá
Stjörnunnar við fólk upp að 25 ára
aldri, en höfða til „eldra fólks á
besta aldri" á Bylgjunnl. Fram-
kvæmdin hefur hins vegar valdið
mér vonbrigðum.
Það hefur verið óhugnanlegt of-
framboð á nýlegri popptónlist á tón-
listarstöðvunum og meira en tími til
kominn að ein þeirra reyndi að
skapa sér einhverja sérstöðu. Þetta
hélt ég einmitt að Bylgjan ætlaði að
gera núna og bjóst við að breytingin
myndi þýða eftirfarandi:
1. Eldri dægurtónlist — þ.e. aðai-
áhersla á lög eldri en u.þ.b. fimm ára
gömul.
2. Aðrir tónlistarmenn í hávegum
hafðir en ungir „popparar" — t.d.
þeir, sem kenndir hafa verið við svo-
kallað húsmæðrapopp.
3. Viðtaisþættir og aðrir „tal-
málsliðir".
4. Fréttatengdir þættir, t.d. um-
ræður í hljóðstofu.
5. Meira af islenskri tónlist.
6. „Talmálsliðir" á timanum frá
klukkan tíu að kvöldi og fram að
miðnætti. (Sbr. þættina, sem frétta-
menn Bylgjunnar sáu um á fyrstu
mánuðum hins frjálsa útvarps-
rekstrar og nutu mikilla vinsælda
meðal hlustenda frá þrítugu og upp
úr)
Eg hef hlustað töluvert á Bylgjuna
að undanförnu í von um að þessar
umræddu áherslur á eldri hlustend-
ur færu að skila sér, en finnst breyt-
ingarnar alls ekki nægilega róttæk-
ar. Tónlistin er t.d. enn mjög keimlík
þvi, sem heyrist á hinum rásunum.
Það er helst að Páll Þorsteinsson
spili eldri og rólegri tónlist en aðrir
dagskrárgerðarmenn popprás-
anna... Og um helgar er reyndar
oft spiluð „þægileg" tónlist fyrir
þreytt eyru. Eftir hádegi á virkum
dögum er hins vegar lítill munur á
Bylgjunni og öðrum rásum.
Það eru að visu nokkrir Ijósir
punktar í þessu myrkri. Jón Ás-
geirsson hefur verið með frétta-
tengda umræðuþætti kl. 17 til 18 og
er allt slíkt nýmeti af hinu góða.
Þættir Bjarna Dags á mánudags-
kvöldum og laugardagseftirmið-
dögum eru lika spor í rétta átt. Ég
fer þó ekki ofan af því að enn vantar
meira talað mál og kúvendingu í
tónlistarvalið frá mánudegi til föstu-
dags til að Bylgjan geti talist hafa
áberandi sérstöðu í útvarpsflórunni.
Kannski felst vandinn í því að sá
„lágmarksaldur" hlustenda, sem
Bylgjumenn miða við, er 25 ár. Ef
takmarkið væri t.d. að ná eyrum
fólks yfir 30—35 ára kæmu sérein-
kenni stöðvarinnar örugglega betur
í Ijós.
P.S.
Talandi um útvarpsefni fyrir
„eldra" fólk ... Það er skemmtilegt
að velta því fyrir sér hvaða tónlist
verður leikin í dagskrárliðum fyrir
aldraða eftir svo sem þrjátíu til fjöru-
tíu ár, þegar fyrrverandi hippar og
uppar skipa hvern bekk á elliheimil-
um landsins. Ætli Bítlalögin verði
þá alls ráðandi í stað laga eins og
„Þú komst í hlaðið á hvítum hesti",
„Blátt lítið blóm eitt er“ og „Hamra-
borgin"?
JÓNÍNA
LEÓSDÓTTIR
sjénvarps-snarl
Súkkulaöikaka
sjónvarpssjúklinganna
Nú er komið að því kæru eigin-
menn — þið eigið að baka. Við
hérna á PRESSUNNI erum svo hug-
ulsöm og almennileg að við ætlum
ekki að koma ykkur í vanda. Köku-
uppskriftin gæti ekki verið auðlærð-
ari, meira að segja svo auðlærð að
þið munuð fá æði í að baka þessa
köku um hverja helgi. Ef ekki með
sjónvarpinu, þá handa krökkunum,
barnabörnunum, frænkunum og
frændunum sem hvort sem er mæta
i kaffi allar helgar og vilja fá köku
með kaffinu. Það sem þarf er:
2egg
200 g sykur
225 g hveiti
150 g brætt smjörlíki (látið
kóina)
2'/2 tsk. lyftiduft
1 msk.kakó
1 Vi dl mjólk
1 tsk. vanilludropar
Það sem þið gerið er að:
Stífþeyta eggin. Bæta sykrinum út
í. Þið bræðið smjörlíkið og látið
það kólna. Setjið hveitið, lyftiduft-
ið og kakóið i skálina, þeytið
áfram. Bætið bræddu smjörlíkinu,
mjólkinni og vanilludropum í. Þegar
deigið hefur verið hrært er því hellt
í vei smurða ofnskúffu, sett í ofn
á um það bil 175 gráða hita og bak-
að.
Svo þurfið þið krem ofan á kök-
una. í það fara:
3 bollar af flórsykri.
6 tsk. kakó
6 tsk. lint smjörlíki
5 msk. heitt, sterkt kaffi
1 tsk-vanilludropar.
Hrært vel saman.
Með þessari köku drekkið þið ís-
kalda mjólk og hananú.