Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 5

Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 2. nóv. 1989 5 Um 30 manns úr hópi yfirmanna Flugleiða sagt upp fyrirvaralaust „Fólki með áratuga starffsaldur var sparkað fyrirvaralaust. Þvi er klappað á kollinn og loffað launum i þr já til sex mán- uði," segir einn hinna brottreknu. Nær 30 manns fengu fyrirvaralaust afhent uppsagnarbréff i aðalstöðvum Flugleiða siðastliðinn fföstudag. Sumum var gert að pakka saman innan tveggja klukku- stunda. Aðrir láta af störfum innan skamms. Viða rikir gremja i garð Flug- leiða vegna þess hve skyndilegum og harkalegum aðfferðum var beitt við upp- sagnirnar. Æðstu ráðamenn segja hins vegar að hér sé eingöngu um lið i sparn- aði að ræða og að ekki haffi verið komist h já þvi að fækka stjórnendum i samræmi við fækkun almennra starfsmanna. EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON OG ÓMAR FRIÐRIKSSON MYND EINAR ÓLA „Ógleymanlegt síðdegi" „Þetta verður mér ógleymanlegt síðdegi þarna á föstudaginn," segir maður kominn á sjötugsaldur sem ekki vildi þó láta nafns getið. „Milli klukkan hálfþrjú og þrjú var byrjað að kalla menn fyrir framkvæmda- stjóra og deildarstjóra. Maður sá viðkomandi koma út eftir skamma stund föla í framan. Svo var bara að bíða og sjá hvort ég yrði kallaður inn næst eða ekki. Eg fékk svo sent bréf þess efnis að vegna harðnandi samkeppni þyrftu Flugleiðir að segja mér upp störfum tafarlaust. Ég fengi laun í sex mánuði og aðstoð ef ég vildi útvega mér annað starf úti í bæ. Þetta eru þakkirnar fyrir að vinna hjá félaginu í meira en aldar- fjórðung og hafa aldrei fengið að- finnslur í starfi." Maður þessi hefur ekki öðlast rétt til eftirlauna og sér ekki fram á að fá aðra vinnu eins og aðstæður eru á vinnumarkaði um þessar mundir. Mikil óvissa var í aðalstöðvum Flugleiða eftir helgina og fæstir vissu hver var hættur og hver ekki. Sögusagnir gengu fjöllunum hærra og jafnvel voru menn sagðir hættir sem aldrei stóð til að segja upp. Skorið vítt og breitt Uppsagnirnar á föstudaginn náðu til flestra deilda Flugleiða. í frakt- þjónustu var m.a. Hafþór Sigur- björnsson deildarstjóri látinn víkja og einnig Karl Guðmundsson, sem hefur annast gjaldskrármál frakt- deildar ásamt fleirum. Á flugrekstrarsviði fékk Guð- mundur Snorrason, deildarstjóri þjálfunardeildar, uppsagnarbréf, en hann hefur unnið hjá Flugleiðum og áður Flugfélagi íslands í áratugi. Á markaðssviði varð mikil hreinsun. Sverrir Jónsson, svæðisstjóri innan- landsfiugs, var látinn fara. Starfs- maður með áratuga reynslu og mun eiga eftir eitt ár til að komast á eftir- laun. Jóhann D. Jónsson sölustjóri fékk sömuleiðis uppsögn, en hann er gamalreyndur hjá félaginu og hefur m.a. unnið sem sölustjóri Flugleiða á Bretlandseyjum. Helgu Bjarnason, sölustjóra Keflavíkur- flugvallar, var gert að hætta strax eins og flestum öðrum úr þessum hópi. 1 tölvudeild var Steingrími Guð- jónssyni kerfisfræðingi sagt upp. Var honum gert að hætta samstund- is þar sem viðkvæm samkeppni í tölvubransanum leyfði ekki að hann starfaði út uppsagnarfrestinn. Ásamt Steingrími var tveim öðrum í tölvudeild sagt upp. í fjárreiðudeild, sem heyrir undir svonefnt fjármálasvið, voru upp- sagnir. Starf aðalgjaldkera, sem Vil- hjálmur Guðmundsson gegndi, virðist hafa verið lagt niður. Páll Pálsson, aðalfulltrúi aðalgjaldkera, fékk uppsögn en Vilhjálmur var færður til innan fyrirtækisins. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar var Barði Ólafsson aðstoðarstöðvarstjóri lát- inn hætta á föstudaginn. Hámarksaldur lækkaður Jafnhliða þessum uppsögnum var ákveðið að framvegis skyldi félagið ekki hafa í störfum þá sem orðnir væru 67 ára eða eldri. Þetta mun eingöngu gilda um þá sem eru í stjórnunarstöðum hjá félaginu, deildarstjóra, forstöðumenn og framkvæmdastjóra. í Ijósi þessa munu fleiri yfirmenn vera á förum á næstu mánuðum, meðal annars Páll Þorsteinsson, for- stöðumaður stjórnunarþjónustu, Sigurður Matthíasson, sem starfað hefur yfir auglýsingaeftirliti, Gunn- ar Helgason, yfirmaður lögfræði- deildar, og Sveinn Sæmundsson, sem fengist hefur við sölustörf. Við þessa menn verður gerður samn- ingur sem tekur m eðal annars til eft- irlauna. Þá má nefna Baldur Maríusson, deildarstjóra stöðvarstjórnar, en hann hafði yfirumsjón með rekstri Flugleiða á Keflavíkurflugvelli sem og stöðvum félagsins á flugvöllum erlendis. Baldur hefur unnið hjá Flugleiðum og áður Loftleiðum í nær þrjátíu ár og átti t.d. stóran þátt i uppbyggingu pílagrímaflugsins á sinum tíma. Hrókering ó milli deilda Auk þessara uppsagna stendur yf- ir hrókering á milli deilda og landa. Starf Jóhanns D. Jónssonar í mark- aðsdeild, sem leggja átti niður, hefur verið endurreist og í það kemur Kristín Aradóttir, sem var sölustjóri félagsins í Osló. Emil Guðmundsson, svæðisstjóri í Danmörku, er kallað- ur heim og mun líkast til fundið starf á aðalskrifstofu. Til Kaupmannahafnar fer Gylfi Sigurlinnason, sem verið hefur yfir fargjalda- og áætlunardeild. Tvær manneskjur eiga að taka við hans störfum, þ.e. Hólmfríður Árnadóttir, sem hefur verið forstöðumaður hót- el- og veitingarekstrardeildar Flug- leiða, og svo Vilhjálmur Guðmunds- son, fyrrum aðalgjaldkeri. Hvað býr að baki? Björn Theódórsson aðalfram- kvæmdastjóri vann undirbúnings- vinnuna fyrir uppsagnirnar. Björn og Sigurður Helgason forstjóri fengu skýr fyrirmæli frá stjórn Flug- leiða um að draga saman seglin í marmahaldi. Stjórnin lét Sigurð og Björn um að útfæra niðurskurðinn. Sú stefna sem tekin var gengur út á það að yngja upp í stjórnunarstöð- um og jafnframt fækka stjórnend- um til að stytta boðleiðir og gera yf- irbygginguna markvissari. Innan Flugleiða fóru kviksögur af stað um nefnd sem átti að hafa verið skipuð til að hrinda uppsögnunum í framkvæmd. Nefndin var ýmist kölluð „slátraranefndin" eða „svarta gengið". Tvennum sögum fer af því hvort þessi nefnd var yfir- höfuð til. Eftir því sem næst verður komist var reynt að taka tillit til þess hversu vænlega horfði með atvinnu fyrir þá starfsmenn sem sagt var upp. Það virðist samt ekki hafa gengið eftir í öllum tilvikum, því einstaka starfsmenn segjast eygja litla von til sambærilegra starfa og þeir höfðu hjá Flugleiðum. Helga Birkisdóttir, formaður starfsmannafélags Flugleiða, sagði stjórn félagsins hafa komið saman eftir uppsagnirnar og rætt um hvort starfsmannafélagið skyldi taka af- stöðu til málsins. „Stjórnin tók þá ákvörðun að skipta sér ekki af þessu, enda kveðið á um það í fé- lagslögum að starfsmannafélagið eigi ekki að láta til sín taka í málum sem heyra undir stéttarfélög," segir Helga. „Þetta er löngu tímabært" „Árum og jafnvel áratugum sam- an hafa starfað menn innan félags- ins sem við höfum ekkert að gera við. Þetta eru eftirlegukindur frá Flugfélaginu eða Loftleiðum sem hafa myndað alls konar klíkur til að tryggja hagsmuni sína. Það hefði átt að láta þessa menn fjúka fyrr,“ segir starfsmaður úr hdpi yfirmanna. En hvers vegna var ekki farið í þetta mál af meiri gát og mönnum gefinn kostur á að segja upp í stað þess að fleygja þeim á dyr? „Stjórnunaraðferðir nútímans byggjast á skjótum viðbrögðum við breytingum i rekstri. Hagsmunir Flugleiða verða að ganga fyrir einkahagsmunum starfsmanna. Það er heiðarlegra að segja upp hópi manna á einu bretti í stað þess að segja einum manni upp á dag, sem kallar bara á upplausn á vinnu- stað. Við erum að endurnýja yfir- stjórnina með ungu og vel mennt- uðu fólki og búa okkur undir þá hörðu samkeppni sem blasir við í flugheiminum," svarar hann. Beiskja Það verður að segjast að mikil beiskja kom fram í máli margra við- mælenda okkar. Sumir sögðust skilja vel afstöðu félagsins. Það þyrfti að spara og draga saman segl- in en það væri samt óþarfi að koma ruddalega fram við starfsfólk sem sumt hvert væri komið á þann aldur að erfitt er fyrir það að finna starf við hæfi. Það sem fyrrverandi starfsfólk á erfiðast með að kyngja er sá stutti fyrirvari sem var á uppsögnunum og hinsvegar að „ekkert var gert til að mýkja áfallið", eins og einn starfsmaðurinn orðaði það. „Mann- legi þátturinn gleymdist," segir ann- ar. Einn af starfsmönnum Flugleiða erlendis sagði í samtali við Press- una: „Þetta var bara „svartur föstu- dagur“.“ Svo voru ýmsir sem töldu að hreinsunin á aðalskrifstofu Flug- leiða ætti eftir að draga dilk á eftir sér. Ekki reyndist unnt að ná tali af Sigurði Helgasyni forstjóra né Birni Theódórssyni við vinnslu greinar- innar og Einar Sigurðsson blaðafull- trúi var sagður erlendis.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.