Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 28
PRESSU
Wæsta Norðurlandaráðs-
þing verður haldið hér á landi í
febrúar. Allar líkur benda- til að
þingið fari að þessu sinni fram í Há-
skólabíói...
^Vvavar Gestsson fékk „rússn-
eska kosningu" þegar fulltrúar voru
kjörnir á landsfund Alþýðubanda-
lagsins í fyrrakvöld. Töluverður
meirihluti fulltrúanna er sagður til-
heyra flokkseigendafélaginu, sem
er í sókn. Má geta þess að Guðrún
Helgadóttir (úr Ólafsarminum)
lenti í 65. sæti með 50 atkvæði, en
alls voru kjörnir 70 fulltrúar ...
Reykjavík hafa samþykkt að halda
prófkjðr fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Það verður þó aldrei
haldið fyrr en í febrúar þar sem al-
þýðuflokksmenn vilja enn ekki loka
fyrir hugsanlegt sameiginlegt fram-
boð vinstriflokkanna . . .
l^^ílastæði Frímúrararegl-
unnar við Skúlagötu og lokunar-
búnaðurinn sem tekinn var niður
ætla að bögglast eitthvað fyrir
borgaryfirvöldum. Það virðist
ekki á hreinu hvað búnaðurinn og
uppsetning kostuðu. Á fundi borg-
arstjórnar sagði Davíð Oddsson að
fyrirtækið hefði kostað 300 þúsund
samtals og borgin greitt helminginn
á móti frímúrurum. Samkvæmt
upplýsingum frá innflytjanda loku-
búnaðarins kostar hann 450 þúsund
krónur og uppsetn ingin kostar varla
minna en 250 þúsund krónur . . .
Hokkrum starfsmönnum Kjöt-
miðstöðvarinnar í Garðabæ var
sagt upp störfum um mánaðamót-
in. Fimmtán manns vinna hjá fyrir-
tækinu, sem á í rekstrarerfiðleik-
um ...
ið heyrum að kvikmynda-
gerðarfélagið Sýn ætli að fresta
stofnun nýrrar sjónvarpsstöðvar
fram til næsta hausts. Sömu heimild-
ir herma að tveir af starfsmönnum
Sýnar hyggist von bráðar láta af
störfum þar og ætli að stofna nýtt
auglýsingafyrirtæki. Annar
þeirra er Björn Br. Björnsson, sá
hinn sami og var talsmaður fyrir
nýju stöðina, en hinn er Einar
Bjarnason . . .
ijósmyndarar voru fjarri góðu
gamni í sextugsafmæli Flosa Ól-
afssonar, þegar Jakob Magnús-
son og Egill Ólafsson afhentu
honum afmælisgjöf frá Stuðmönn-
um. Við val á afmælisgjöfinni höfðu
Stuðmenn nefnilega haft efst í huga
að Flosi hefur keypt sér býli í Borg-
arfirði og færðu honum hamar og
sigð að gjöf. Þar með var ekki allt
búið, undan rauðu áklæði birtist
bleikt fuglabúr sem hafði að
geyma hænu . . .
I afmælinu hans Flosa flugu
margar góðar sögur. Gunnar Eyj-
óifsson, leikari og skátahöfðingi,
sté í pontu og sagði meðal annars að
talkennarinn hefði komið upp í sér
þegar Stuðmenn nefndu að Flosi
hefði fest kaup á „býli” í Borgarfirði.
Gunnar sagðist ekki hafa skilið
hvers vegna Flosi og frú þyrftu að
búa í Borgarfirði þótt þau hefðu
keypt sér þar bíl, honum hlyti að
mega aka til Reykjavíkur . . .
c
^Vtóru útgáfufyrirtækin í hljóm
plötubransanum virðast eiga nóg
með að dreifa eigin plötum fyrir
þessi jól. Tónlistarmenn sem höfðu
ákveðið að gefa út plötu hika því
ekki við að annast dreifingu hennar
sjálfir. Einn þeirra er Jón Rafn sem
þegar hefur sent frá sér sína fyrstu
stóru plötu. Jón Rafn lék lengi vel
fyrir matargesti á veitingastaðnum
A. Hansen í Hafnarfirði, en hann
er einnig höfundur lagsins Ég syng
fyrir vin sem náði langt í Söngva-
keppni sjónvarpsstöðva hér heima
fyrir nokkrum árum og sungið var
af Ragnhildi Gísladóttur . . .
ramkvæmdastjóraskipti urðu
nýverið í Gramminu og tók Sig-
urður Ivarsson, einn af eigendum
Grammsins, við stöðunni áf Ás-
mundi Morthens. Mun Grammið
gefa út eina safnkassettu fyrir jólin
með ungum og upprennandi bíl-
skúrsböndum ...
M
^WBsmundur Morthens hefur þó
síður en svo snúið baki við hljóm-
plötubransanum. Auk þess að
vera framkvæmdastjóri fyrir
Smekkleysu hf. er Ásmundur
framkvæmdastjóri nýs útgáfufyrir-
tækis, Geisla, sem mun í næstu
viku gefa út fyrstu sólóplötu Bubba
Morthens í tvö ár. Heitir hún Nótt-
in langa og er nokkurs konar fram-
hald plötunnar Frelsi til sölu sem
kom út fyrir jólin 1986. Upptöku-
stjórn Næturinnar löngu er í hönd-
um Christians Falk og Hilmars
Arnar Hilmarssonar ...
I dag, fimmtudag, kemur til
landsins úr mánaðarlöngu ferðalagi
um Bretland með Sykurmolun-
um hljómsveitin Ham, sem bráð-
lega sendir frá sér plötuna Buffalo
Virgins. Það er fyrirtækið Smekk-
leysa hf. sem stendur að baki þeirri
útgáfu, en Sykurmolarnir hafa
þegar sent frá sér sína „jólaplötu”,
Illan arf. Þriðja platan sem Smekk-
leysa gefur út á næstunni er plata
með þungarokkshljómsveitinni
Bootlegs og ennfremur er væntan-
leg frá því fyrirtæki ,,mini-LP-plata“
eða sjö laga plata með hljómsveit-
inni Bless sem er stofnuð upp úr
Svart/hvítum draumi. Smekk-
leysa hyggst ennfremur gefa út
skáldsögu fyrir jólin; Miðnætur-
sólborgina eftir Jón Gnarr . . .
BYGGJUM Á ÍSLENSKU BREIDDINNI
VELJUM ÍSLENSKT
FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENCA
VEUUM ÍSLENSKT
BYKO
EFTIRFARANDIFYRIRTÆKITAKA ÞÁTTIISLENSKUM DÖGUMIBYKO OG BYGGT & BÚIÐ:
AKRON • ALPAN • BLIKKÁS • BLINDRAVINNUSTOFAN • BORGARPLAST
• BREIÐFJÖRÐS BLIKKSMIÐJA • EFNAMIÐSTÖÐIN • EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
• FlNPÚSSNING • HAMPIÐJAN • HARPA • KlSILL • KÓBRA-PLAST • LAMAIÐJAN
• LEIKFANGASMIÐJAN ALDA • LlMTRÉ • MÁLMSTEYPAN HELLA
• MÁLMSTEYPA ÁMUNDA • MÁLNING • OFNASMIÐJAN • ÓS HF
• PENNSLAVERKSMIÐJAN HF • PLASSTGERÐIN POLYTO • PLASTIÐJAN BJARG
• PLASTPRENT • REYKJALUNDUR • RÚLLUGERÐIN • SAMUR HF
• SEMENTSVERKSMIÐJA RlKISINS • SÉRSTEYPAN • SJÓKLÆÐAGERÐIN 66°N
• SKÓGRÆKT RlKISINS • SLIPPFÉLAGIÐ MALNINGARVERKSMIÐJA • SMIÐSHÚS
• STEINPRÝÐI • STEINULLARVERKSMIÐJAN • TRÉSMIÐJA B.Ó. • TREFJAR
• VlRNET • ÞAKPAPPAVERKSMIÐJAN
KL. 10:00 BYK0 kynnisferðir
í nýja timburverksmiðju
í timbursölu BYK0 í Breidd.
KL. 10:00 REYKJALUNDUR
kynnir Varmo-suðutækni
í verslun BYKO í Breidd.
KL. 13:00 STEINPRÝOI
kynnir steypuviðgerða- og
viðhaldsefni í verslun
BYKO í Breidd.
KL 15:00 VlRNET HF kynnir
vegg- og þakstál
í timbursölu BYK0 í Breidd.
KL. 16:00 SÁMUR HF kynnir
ný hreinsiefni
í verslun BYK0 í Breidd.
KL. 16:00 ALPAN eldar í
álpottum og álpðnnum
I BYGGT & BÚIÐ
í Kringlunni.
KL 16:30 MÁLNING HF
framkvæmir tilraunir
í verslun BYK0 í Breidd.
KL 17:00
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
66°N fatasýning í
timbursölu BYK0 í Breidd.
KL 17:30
SJÓKLÍOAGERÐIN HF
66°N fatasýning í verslun
BYKO I Breidd.
KL 09:00 SÁMUR HF kynnir
ný hreinsiefni
í verslun BYKO I Breidd.
KL. 13:00 STEINULLAR-
VERKSMIÐJAN kynnir
steinull í timbursölu BYK0
í Breidd.
KL. 15:00 ALPAN eldar
í álpottum og álpönnum
í BYGGT & BUIÐ
í Kringlurmi.
KL 16:00 LEIKFANGA-
SMIÐJAN ALDA smíðar
leikföng í BYGGT & BÚIÐ
í Kringlurmi.
KL 16:30 TREFJAR.
RÓSA INGÓLFSDÓTTIR
kynnir baðkör og
sturtubotna í verslun
BYKO I Breidd.
KL 17:00 MÁLMSTEYPA
ÁMUNOA bakar
pönnukökur á pönnunum
sínum IBYGGT & BÚIÐ í
Kringlurmi.
JAUL,
KL 11:00 TREFJAR.
RÓSA INGÓLFSDÓTTIR
kynnir baðkör og
sturtubotna I verslun
BYKO í Breidd.
KL 11:00 MÁLNING HF
framkvæmir tilraunir
í BYGGT & BÚIÐ
í Kringlunni.
KL 12:00 LEIKFANGA-
SMIÐJAN ALDA. Leikföng
smíðuð í BYGGT & BÚIÐ
í Kringlunni.
KL 12:00 ALPAN eldar í
álpottum og álpönnum
í BYGGT & BÚIÐ
í Kringlunni.
KL 13:00 HARPAHF.Láttu
Hörpu koma þér skemmti-
lega á övart í verslun '
BYKO í Breidd.
KL 14:00 MÁLMSTEYPA
ÁMUNDA bakar
pðnnukökur á pörmum
sínum í BYGGT & BÚIÐ í
Kringlurmi.
ATHUGIDI
Framleiðendur eru auðvitað á staðnum á öðrum timum.
Islensk vörusýning alla þessa viku, frá 30. okt. til 4. nóv. Um fimm-
tíu íslenskir framleiðendur kynna vörur sínar í timbursölu BYKO í
Breidd, í verslun BYKO í Breidd, í BYKO Hafnarfirði og í BYGGT&
BÚIÐ í Kringlunni.
Það er alltaf eitthvað um að vera. Sérstakar kynningar eru í dag-
skránni hér að neðan - komdu við og líttu á!
wíSLE
SKIR
DAGARO^
í BYKO OG BYGGT & BÚIÐ