Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 7

Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 7
Ffmmtudagur 2. nóv. 1989 7 PRESSU I^Éý skáldsaga með nokkuð óvenjulegum söguþræði er væntan- leg á markaðinn í þessum mánuði. Það er skáldsaga sem ber heitið „Bergnuminn" og fjallar um fjár- hættuspilara í Reykjavík. Spila- fíknin hefur náð heljartökum á söguhetjunni og leitt hann inn á braut glæpa. Fjárhættuspilarinn sit- ur bergnuminn við borðið í spila- klúbbnum þar sem svimandi upp- hæðir skipta um eigendur á hverju kvöldi. Sagt er að þeir sem stundað hafa fjárhættuspil í Reykjavík muni kannast við lýsingar á ýmsum lok- uðum „klúbbum" í höfuðborginni við lestur bókarinnar. Það skal þó tekið fram að hér er ekki neinn venjulegur reyfari á ferðinni heldur bókmenntalegskáldsaga. Höfundur bókarinnar er Eysteinn Björns- son, kennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, og er þetta fyrsta bók Eysteins. Eysteinn hefur þó áður drepið niður penna því hann er fast- ur penni í laugardagsblaði Alþýðu- blaðsins... I DV á mánudaginn gat að líta auglýsingu frá lögmanni sem þar býður fram starfskrafta sína. Auglýs- ingin greinir frá því að vanur lög- maður geti bætt við sig lögfræði- störfum ýmiss konar. Engar reglur gilda um hvort lögmenn hafa heim- ild til að auglýsa á þennan hátt, en hins vegar hefur venjan verið sú að lögmenn auglýsi eingöngu þegar þeir opna skrifstofu eða flytja. Þyk- ir þessi auglýsing bera vott um að samkeppnin fari harðnandi í heimi lögmanna sem hjá öðrum og nú verði hver að bjarga sér . . . L I larðnandi samkeppni í aug- lýsingabransanum birtist á ýmsan hátt. Þannig býður til dæmis Morg- unblaðið auglýsendum upp á ókeypis auglýsingagerð gegn því skilyrði að auglýsing þeirra birtist eingöngu í Morgunblaðinu . . . o ^ÉPinn þeirra sem gefa út sína fyrstu stóru plötu á þessu ári er Geirmundur Valtýsson, sá hinn sami og hefur sent lög í Söngva- keppni sjónvarpsstöðva nokkr- um sinnum og þau öll náð vinsæld- um. Heiti plötunnar: Geirmundur Valtýsson í syngjandi sveiflu ... Hlýlega gerði Verðlagsstofn- un könnun á útsöluverði vínveit- ingahúsa á gosdrykkjum, bjór og öðru áfengi. Eitt og annað for- vitnilegt kom fram í könnuninni, meðal annars óheyrileg álagning nokkurra veitingahúsa á gos- drykkjum. Af einhverjum ástæö- um vill Verðlagsstofnun ekki upp- lýsa niðurstöðurnar . . . LANDSFUNDUR SAMBANDS ALÞÝÐUFLOKKSKVENNA Dagshrá: Föstudagur 3. návemher Kl. 20 Setning: Guðfinna Vigfiísdóttir, varaformaður S.A. Félagsmálaráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, varaformaður Alþýðuflokksins. Birgir Árnason, formaður SUJ Avörp gesta Kosning starfsmanna þingsins Sveitarstjórnarkosningar 1990: Jóna Ósk Guðjónsdóttir, formaður S.A. ogbæjarfulltrúi Hafnarfirði Söngur Kaffi Laugardagur 4. nóvember Kl. 10 Fundi framhaldið Skýrsla formanns Skýrsla gjaldkera Umræður Kl. 11 Kynning tillagna Lífskjör á landsbyggðinni Framsöguerindi: Agnes Gamalíelsdóttir, formaður Verkalýðsfélagsins Arsæls Hofsósi Klara Sigurðardóttir, skrifstofumaður Hafnarfirði Kl. 12 Hádegisverðarhlé Kl. 13 Lífskjör á landsbyggðinni Framsöguerindi: Jón Asberg Salomonsson, bæjarfulltrúi Húsavík Almennar umræður Kl. 15 Störf nefnda Kl. 16 Afgreiðsla tillagna og nefndaálita Kosningar Kl. 18. Landsfundarslit Kl. 20 Kvöldfagnaður í umsjá Kvenfélags Alþýðuflokksins á Akureyri CITROEN ÐX 4x4 VÖKVAFJÖÐRUN MEÐ FJÓRUM HÆÐARSTILLINGUM GERIR HERSLUMUNINN! .. OPIÐ VIRKA DAGA 9—18 LAUGARDAGA 13—17 Kynningarverð frá kr. 1.343.000- stgr. var Alltfrá því Citroen BX fyrst kynntur á lslandi hefur hann notið verðskuldaðra vinsœlda. BX-inn erfrábœr úti á vegum, hörkuduglegur í snjó, mjög rúmgóður og ótrúlega sparneytinn. Hann er búinn hinni einstöku vökvafjöðrun með fjórum hœðarstillingum og eru þá 25 sm undir lœgsta punkt íefstu stöðu sem gerir herslumuninn er á reynir og heldur sömu hœð frá jörðu burtséð frá hleðslu. Hann er glœsilegurfjölskyldubíll með frábœra aksturseiginleika. Bíll sem hefur margsannað ágœti sitt við íslenskar aðstæður. Nú kynnum við nýjan Citro'én, BX 4x4 bíl sem sameinar alla fyrri kosti *Verð án ryðvarnar og skráningar á 5d BX 4x4 miöaö viö gengi 1. nóvember. BX, ásamt sídrifi á öllum hjólum, 107 hestafla vél, lœsanlegu átaki milli fram- og afturhjóla og með driflœsingu að aftan. Komdu og reynsluaktu, það leiðirþig íallan sannleikann. Aukþess tekurþú um leið þátt í glœsilegu reynsluaksturs- happdrœtti, þar sem vinningurinn er Helgarferð fyrir tvo til Parísar, skoðunarferðir um borgina og Citroén verksmiðjurnar auk ótakmarkaðra afnota af Citroén BX 4x4 allan tímann. Globusp Lágmúla, s.91-681555 Góö þjónusta - ánægöir bileigendur

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.