Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 8

Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 8
8 Fimmtudagur 2. nóv. 1989 Semst ekki með verktaka og teiknistofu um tvínotkun á húsateikningu. Verktakinn fær í staðinn starfsmann byggingarfulltrúa í Reykjavík til að teikna alveg eins hús. Verktakinn Ólafur Björnsson byggði verslunarhús á Suðurlandsbraut 22 eftir teikningu frá teiknistofu ES. Ólafur vildi byggja samskonar hús á lóð sem hann fékk á Grensásvegi 16. Þegar ekki samdist um þóknun sneri Ólafur sér til Ágústs Þórðarsonar, starfsmanns emb- ættis byggingarfulltrúans í Reykjavik. Ágúst hannaði húsið sem Ólafur vildi, ffyrir verð sem Ólafur sætti sig við. EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON MYNDIR: EINAR ÓLA „Ég sé ekki betur en að okkar teikning hafi verið notuð," segir Sig- urður Kjartansson á teiknistofu ES um áþekkt svipmót húsanna á Suð- urlandsbraut 22 annarsvegar og Grensásvegi 16 hinsvegar. í megin- atriðum eru húsin eins í útliti. Eini munurinn sem orð er á gerandi er að í stað fimmtu hæðar á Suður- landsbraut er komið ris á Grensás- vegi. Agúst Þórðarson þvertekur fyrir að hafa haft teikningar teiknistofu ES til hliðsjónar þegar hann teikn- aði húsið á Grensásvegi 16. Hann segir Ólaf eiga hugmyndina en Ág- úst hafi sjálfur unnið út frá henni, en ekki teikningu Sigurðar. í örstuttu samtali sem blaðamað- ur átti við Ólaf sagðist hann hanna flest sín hús sjálfur, „en ég fæ aðstoð við að teikna þau“. Þegar blaðamað- ur spurði Ólaf um vjðskiptin við Ág- úst svaraði hann: „Ég nenni ekki að ræða við ykkur á Pressunni." Samkvæmt venjulegri skilgrein- ingu á höfundarrétti hönnuða er hústeikning hugverk þess höfundar sem skrifaður er fyrir verkinu. í þessu tilfelli er það Sigurður Kjart- ansson. Teikningin að húsinu, sem stend- ur á Suðurlandsbraut 22, var að mestu leyti unnin á árinu 1985. Ólaf- ur Björnsson, sem er aðaleigandi Steypustöðvarinnar Óss, byggði húsið. Þegar hann var langt kominn með það ákvað hann að reisa sams- konar hús á Grensásvegi 16. Hagsmuna* órekstrar „Það átti að nota sömu grunnhug- myndina á Grensásvegi og við höfð- um notað á Suðurlandsbraut," segir Sigurður Kjartansson á teiknistofu ES. Sigurður og Ólafur komust ekki að samkomulagi um hversu mikið Ólafur skyldi borga fyrir breytingar á teikningum sem þurfti að gera til að aðlaga þær aðstæðum á Grensás- vegi. Þegar ekkert varð úr frekari við- skiptum teiknistofu EiS og Ólafs Björnssonar leitaði Ólafur til starfs- manns byggingarfulltrúans í Reykjavík, Ágústs Þórðarsonar, og bað hann að hanna húsið. Það varð úr að Ágúst teiknaði fyr- ir Ólaf og á byggingarnefndarfundi þann 26. febrúar 1987 voru teikn- ingar Ágústs samþykktar athuga- semdalaust. Á fundinum sátu meðal annars starfsbræður Ágústs. Starfsmenn embættis byggingar- fulltrúa í Reykjavík þurfa sérstakt leyfi til að teikna hús í frítíma sínum fyrir einstakiinga. Borgarverkfræð- ingur veitir þetta leyfi. Ágúst Jóns- son skrifstofustjóri segist ekki vita til þess að nein skrá sé haldin yfir hve oft starfsmenn byggingarfull- trúa fá leyfi til að hanna hús. Ágúst sagðist halda að borgarverkfræð- ingur samþykkti svo til hverja beiðni undirmanna sinna. Bannaðí Hafnarfirði Byggingarfulltrúi og starfsmenn embættisins eiga að hafa eftirlit með byggingarframkvæmdum og undirbúa fundi byggingarnefndar þar sem meðal annars teikningar eru til meðferðar. Af þeim sökum er það jafnan talið varasamt að bygg- ingarfulltrúi taki að sér í aukavinnu að hanna hús sem embættinu er ætlað að hafa eftirlit með. Hættan er sú að byggingarfulltrú- inn, eða starfsmaður hans, líti mild- ari augum á vinnu og frágang verk- taka sem jafnframt borgar bygging- arfulltrúanum laun. „Við tókum algjörlega fyrir það að byggingarfulltrúinn í Hafnarfirði teiknaði fyrir Pétur og Pál úti í bæ,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Guðmund- ur sagði afstöðu bæjarstjórnar miða að því að fyrirbyggja hagsmuna- árekstra. Til að bæta byggingarfulltrúa upp tapaðar tekjur af aukavinnu og halda honum í æfingu fær hann hönnunarverkefni hjá Hafnarfjarð- arbæ. Þess er jafnan gætt að bygg- ingarfulltrúinn sitji ekki fundi þar sem teikningar hans eru til með- ferðar og hann taki ekki út sín eigin verk. I Reykjavík þykir ekki ástæða til þeirrar varkárni sem Hafnfirðingar temja sér. Ekki einu sinni þegar verktakinn sem á í hlut, Ölafur Björnsson, brýtur byggingarreglu- gerðir í slíkum mæli að byggingar- nefnd sér sig tilneydda að grípa til harkalegra aðgerða. Var sviptur meistararéttindum Ólafur Björnsson tók að sér fyrir nokkrum árum framkvæmdir við Hamarshúsið sem stendur við Tryggvagötu 4—6. Fljótlega var fundið að framkvæmdum Ólafs og á miðju ári 1984 var samþykkt bókun þar sem vinnubrögð voru átalin. Ól- afi var meðal annars gefið að sök að vinna eftir ósamþykktum teikning- um og hunsa tilmæli byggingar- nefndar um úrbætur. Veturinn 1986—1987 var deilan á milli Ólafs og byggingarnefndar komin á alvarlegt stig. Það hindraði þó hvorki starfsmann byggingarfull- trúa, Ágúst Þórðarson, né borgar- verkfræðingi að samþykkja að Ág- úst teiknaði húsið sem var reist á Grensásvegi 16. í sömu vikunni og Ólafur fékk fok- heldisvottorð fyrir byggingunni á Grensásvegi, sumarið 1987, svipti byggingarnefnd Reykjavíkur Ólaf réttindum til að starfa sem bygging- armeistari. Það var haft eftir Hilmari Guð- laugssyni, formanni byggingar- nefndar Reykjavíkur, að leyfissvipt- ingin væri „algjört neyðarúrræði". Af því má ráða hve brot Ólafs þótti alvarlegt. Á meðan byggingarnefnd, sem í orði kveðnu er yfir embætti bygjg- ingarfulltrúa sett, átti í stappi við 01- af réð hann starfsmann embættisins til að vinna fyrir sig. Það gekk líka eins og í sögu að reisa húsið við Grensásveg. Teikningar voru sam- þykktar á fundi byggingarnefndar í lok febrúar 1987 og fimm mánuðum seinna fékk hann fokheldisvottorð frá embætti byggingarfulltrúa. Misnota aðstöðuna Arkitektafélag íslands hefur ályktað gegn því að starfsmenn byggingarfulltrúa taki að sér hönn- un fyrir almenna byggingaraðila. Arkitektar sem blaðamaður talaði við sögðu það misnotkun á aðstöðu að embættismenn ynnu þau verk sem annars féllu til arkitekta og byggingarfræðinga. Arkitektum svíður einkum hversu rúmar heimildirnar eru sem ráða- menn borgarinnar veita starfs- mönnum embættis byggingarfull- trúa til að vinna á almennum mark- aði. í byggingarreglugerð er kveðið á um að byggingarfulltrúum skuli óheimilt að gera húsateikningar „nema sérstaklega standi á“ og þá að fengnu leyfi byggingarnefndar. Byggingarnefnd Reykjavíkur hef- ur afsalað þessu valdi til borgar- verkfræðings. Þetta þýðir að lýð- ræðislega kjörnir fulltrúar afsala sér valdi til embættismanna sem síðan þiggja kaup frá verktökum sem þeir eiga að hafa eftirlit með. Ef marka má frjálslega leyfisveit- ingu borgarverkfræðings til undir- manna sinna stendur undarlega oft „sérstaklega á“ í henni Reykjavík. Húsin a Suðurlandsbraut 22 og Grensósvegi 16 eru glettilega lík. Sami verktakinn byggði, en tveir hönnuðir eru skrifaðir fyrir teikningunum, annar þeirra starfar hjá embætti byggingarfulltrúa. Á sama tíma átti byggingarnefnd í útistöðum við verktakann vegna brota hans á byggingarreglugerð.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.