Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 13

Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 13
Viðtal við Odda Erlingsson sálfræðing, sem um nokkurt skeið hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir fólk sem þjáist af kvíða. Kvíði getur verið jákvæður — svo fremi að hann fari ekki úr böndunum. Sumum hættir hins vegar til að gefa sig kvíðanum á vald í svo miklum mæli að þeir hreinlega örmagnast. Þá er ástandið orðið sjúklegt, en sem betur fer er það alls ekki ólækn- andi. Kvíði er fyrirbæri, sem við þekkj- um öll, og flest lærum við að lifa með honum. í sumum tilvikum verður kvíðatilfinningin hins vegar svo nístandi og svo algengt ástand að hún hindrar eðlilegt líf viðkom- andi persónu. Fólk, sem þannig er ástatt fyrir, leitar gjarnan til sálfræð- inga eða geðlækna, en einnig eru í boði námskeið fyrir þá, sem þjást af kvíða. Oddi Erlingsson sálfræð- ingur hefur t.d. stjórnað slikum námskeiðum og blaðamaður PREISSUNNAR mælti sér mót við hann tii þess að fræðast um maga- fiðringinn og svitavaldinn, sem við köllum kvíða. Oddi var fyrst spurð- ur að því hvort kvíði gæti komið snemma fram hjá börnum: „Kvíðaviðbrögð hjábörnum á for- skólaaldri eru nokkuð algeng og þá einkum í tengslum við breytingar á umhverfi eða fjölskyldu. Kvíði og óöryggi geta t.d. kviknað, þegar barn eignast systkini eða þegar for- eldrar skilja. Einnig vegna breyt- inga á búsetu eða bara á barnapöss- un. Börn eru mjög næm á umhverf- isbreytingar og þar sem þroski þeirra er skammt á veg kominn geta þau metið hættulausar aðstæður að mati okkar fullorðnu sem mjög ógn- andi. Einkenni eins og að byrja aftur að gera á sig kannast allir við, en einnig getur óöryggið birst á öfga- kenndari hátt eins og í árásarhegð- un eða mikilli hlédrægni. í byrjun skólaskyldu, þegar breytingar eru náttúrulega verulegar, hafa svo ákveðin vandamál verið skýrð sem kvíðaviðbrögð og þá á ég við skóla- fælni. Börn hafa það fram yfir okkur fullorðna fólkið að þau eiga mjög auðvelt með að tjá tilfinningar sínar. Eftir því sem við eldumst tökum við minna tillit til tilfinninga okkar en meira tillit til hins vitræna. Börn eru að því leyti betur sett en fullorðnir að þau láta strax vita ef eitthvað bregður út af og taka þá auðvitað ekki tillit til eins eða neins. Við full- orðna fólkið höfum aftur á móti al- veg gífurlega sterka tilhneigingu til að afneita og breiða yfir alla spennu. þann verknað að skjóta sig í angist sinni. Og manneskja, sem þjáist af lofthræðslu en stígur út á svalir, get- ur orðið svo óstjórnlega hrædd að hún óttast að kasta sér fram af. Það er hámark lofthræðslunnar." Sumir þora ekki á veitingastaði — Er fólk misjafnlega kvíða- fullt eftir því á hvaða aldri það er? „Já, það kemur fram nokkur munur eftir aldursskeiðum í fyrr- nefndri könnun frá 1987. Svokölluð félagsfælni er algengust hjá einstak- lingum á aldrinum 40 til 49 ára, þ.e. að standa frammi fyrir hópi fólks, fara á veitingastaði, tala á fundum og annað í þeim dúr. í aldurshópn- um 30 til 39 ára voru hins vegar flestir haldnir svonefndri einfaldri fælni, svo sem flughræðslu, hræðslu við skordýr eða annarri hræðslu við einhverjar ákveðnar kringumstæð- ur. Þriðja tegund fælni, svonefnd víðáttufælni, dreifist jafnar á alla aldurshópa og er algengust á aldrin- um 16 til 39 ára.“ — Hvað er það sem fólk hræð- ist við að fara á veitingastað? „Þetta er kvíði fyrir því að vera á stað, þar sem annað fólk sér mann og dæmir. Og þarna erum við kom- in að kjarna málsins. Þeir, sem þjást af kvíða eða fælni, eru afskaplega uppteknir af því hvað öðrum finnst um þá, og orsökin fyrir þessu er gjarnan vanmetakennd. Viðkom- andi vill þóknast öllum og þorir þess vegna ekki að segja neitt eða gera, sem gæti valdið því að viðstaddir hugsuðu eitthvað neikvætt um hann. Og þeim mun fleiri, sem eru nálægir, þeim mun erfiðara er að gera svo öllum líki. Hinn kvíðni dregur sig því til baka og stífnar allur upp, þegar hann er í margmenni. Síðan kemur að því að hann kemur sér hjá því að lenda í þeirri aðstöðu að aðrir geti dæmt hann. Eflaust er hins vegar ekki nokkur maður að dæma hann — þetta er hans eigin dómur yfir sjálf- um sér!" — Er einhver munur á þjóðfé- lagsstéttum hvað varðar kvíða? „Nei, aldeilis ekki. Einstaklingar í öllum stéttum geta fengið sjúkleg kvíðaköst, ef sjálfsmat þeirra er lágt. Arkitekt getur t.d. haft afar lítið sjálfsálit og verið fullur kvíða, þó hann sé mjög eftirsóttur og hafi hlotið fjölda verðlauna." EFTIR JÓNÍNU LEÓSDÓTTUR MYND EINAR ÓLASON Væg spenna og kvíði hjálpa manni að leysa verkefni af hendi og auka jafnvel afköst. Þegar kvíðinn er orðinn ákafur verður hann hins vegar truflandi. Og langvarandi spenna veldur sálvefrænum sjúk- dómum, t.d. of háum blóðþrýstingi, hjarta- og æðasjúkdómum, spennu- höfuðverk, magasári og mörgum öðrum svokölluðum nútímasjúk- dómum." —■ Hvenær er kvíði ekki leng- ur til góðs, heldur orðinn sjúk- legur? „Kvíði er orðinn sjúklegur, þegar hann er farinn að trufla eðlilegt dag- legt líf. Dæmi um það er m.a. ef fólk hættir að fara í vinnuna eða treystir sér ekki í bíó, þó það langi mikið til þess.“ — Er manneskja á þessu stigi ekki haldin fælni fremur en kvíða? „Skilin þar á milli eru mjög óljós. Kvíði er skilgreindur sem óljós ótti, en fælni er ótti við eitthvað ákveðið. Þó á kvíði raunar oft rætur að rekja til hræðslu við eitthvað sérstakt og afmarkað, þó maður geri sér alls ekki grein fyrir því.“ Konur kvíðnari en karlar — Hver eru líkamleg einkenni kvíða? „Líkamlegu einkennin eru alltaf eins, hver svo sem orsök kvíðans er. Blóðþrýstingur hækkar, hjartsláttur eykst, öndun verður hröð og stutt, það sprettur út kaldur sviti og mað- ur fer að skjálfa. Flestir kannast við þessi einkenni, en þau eru merki um að spennan sé orðin þó nokkuð mikil. I rannsókn, sem sálfræðingarnir Eiríkur Örn Arnarson og Ása Guðmunds- dóttir gerðu fyrir tveimur árum, kom t.d. fram að 7,2% íslendinga höfðu fundið fyrir fælnieinkennum á síðustu sex mánuðum. Tæplega 20% skýrðu líka frá því að þeir hefðu einhvern tímann verið flug- hræddir. Svipaður fjöldi hafði einnig kviðið því að tjá sig fyrir framan annað fólk. Það er mjög algengt kvíðaefni." — Er einhver munur á kynjun- um hvað þetta varðar? „Já, konur eru kvíðnari en karlar. Af þessum 7,2% fólks, sem fann til fælni samkvæmt könnun Eiríks Arnar og Ásu, voru konur 8,8% en karlar 5,3%. Þetta er þó nokkur munur... Það er erfitt að skýra þennan mun, en mjög líklega liggja orsak- irnar fremur í uppeldinu en að þær séu líffræðilegar. Svo getur líka ver- ið að konur eigi auðveldara með að viðurkenna kvíða og það skekki niðurstöðurnar." — Hver eru algengustu tilefni kvíða? „Líklega er það hræðsla við að tala innan um hóp fólks, loft- hræðsla, hræðsla við að ferðast með flugvél og hræðsla við skordýr. Þessi hræðsla þarf þó ekki endilega að há fólki mjög mikið, þó það nefni þetta í könnunum. Hræðslan er hins vegar orðin sjúkleg hjá manneskju, sem t.d. fer ekki út úr húsi af ótta við að verða ávörpuð eða þurfa að tjá sig.“ — Geturðu nef nt mér dæmi um kvíða á hæsta stigi? „Mörgum finnst þeir vera að sturl- ast og missa alla stjórn. Þá hvarflar að sumum að þeir geti í stjórnleysi sínu hent sér út um glugga eða eitt- hvað álíka. Rjúpnaskytta með víð- áttufælni óttast kannski allt i einu

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.