Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 27

Pressan - 02.11.1989, Blaðsíða 27
.. % Fimmtudagur 2. nóv. 1989 27 sjonvarp FIMMTUDAGUR *’ '_______ 2. nóvember Stöö tvö kl. 21.45 HETJAN**** (The Man Who Shot Liberty Valance) Bandarískur uestri Leikstjóri: John Ford Adalhlutuerk: John Wayne, James Stewart, Vera Miles og Lee Maruin Almennt er þessi mynd álitin einn besti vestrinn sem Kanar hafa fram- leitt. í myndinni er sagt frá því þegar nýgræðingur í vestrinu skýtur óvild- armann og verður hetja í augum bæjarbúa fyrir vikið. Síðan kemur babb í bátinn þegar það upplýsist að einhver annar hleypti skotinu af. Hetjan var ein síðasta mynd hins þekkta leikstjóra John Ford. Stöö tvö kl. 23.45 LIFIKNIEVEL (Viva Knievel) Bandarísk bíómynd Leikstjóri: Gordon Douglas Adalhlutuerk: Euel Knieuel, Gene Kelly, Laurence Hutton og Leslie Nielson Fáránleg mynd þar sem reynt er að gera áhættumótorhjólakappann Evel Knievel að kvikmyndahetju. Söguþráðurinn er alveg með ein- dæmum; einhverjir bíræfnir gaurar í Mexíkó reyna að láta líta svo út að Knievel hafi „látist” af slysförum svo þeir geti smyglað eiturlyfjum til Bandaríkjanna í trukknum hans. Byrjunaratriði myndarinnar er líka alveg sprenghlægilegt. Bönnuð börnum. FÖSTUDAGUR 3. nóvember Ríkissjónvarpiö kl. 22.10 VIÐGERÐAR- MAÐURINN**’-4 (The Fixer) Bresk bíómynd Leikstjóri: John Frankenheimer Adalhlutuerk: Alan Bates, Dirk Bogarde og Georgia Brown Þrátt fyrir að þessi mynd sé prýðis- vei leikin gengur handrit hennar ekki alveg upp. Myndin gerist í Rúss- landi um aldamótin og greinir frá gyðingi sem er ranglega dæmdur í fangelsi. Stöö tvö kl. 22.00 NJÓSNARINN SEM KOMINN ÚR KULDANUM***54 (The Spy Who Came In from the Cold) Bresk spennumynd Leikstjóri: Martin Ritt Adalhlutuek: Richard Burton, Claire Bloom og Oscar Werner Viðfangsefni myndarinnar er njósn- arar á tímum kalda stríðsins. Einn þeirra, leikinn af Burton, er orðinn ansi þreyttur og beiskur þegar hann er sendur til Austur-Þýskalands til að koma andstæðingi fyrir kattar- nef. Leikur Burtons er alveg til fyrir- myndar og ekki er höfundur sög- unnar sem myndin er gerð eftir*Sf verri endanum, en sá heitir John Le Carré. Stöð tvö kl. 23.50 FLUGRÁN (AE 612 ohne Landerlaubnis) Þýsk bíómynd Leikstjóri: Peter Schulze-Rohr Adalhlutuerk: Walter Richter, Giinther Mack og Joe Bogosyan A flugvelli einum eru staddir tveir menn, annar þeirra, Milian Bergus- son, er að fylgjast með hinum dökka Racadi þar sem hann er að kaupa sér flugmiða til Beirút. Bergusson gerir það líka og þegar vélin er kom- in í loftið neyðir hann flugmanninn tii að snúa vélinni til Hamborgar. Racadi gerir sér grein fyrir því að vélin er ekki á réttri leið og hvers vegna. Hann tekur því eina flug- freyjuna sem gísl og hótar að myrða hana verði vélinni ekki snúið til Beirút. Bönnuð börnum. Stöö tvö kl. 1.35 EINAF STRÁKUNUM*** (Just One of the Guys) Bandarísk bíómynd Leikstjóri: Lisa Gottlieb Aöalhlutuerk: Joyce Hyser, Clayton Rohner og Billy Jacoby Ung stúlka reynir fyrir sér í blaða- mennsku en gengur ekki of vel. Ekki skána hlutirnir þegar hún sannfærist um að slæmt gengi hennar í faginu sé útliti hennar og kyni að kenna. En stúlkan deyr ekki ráðalaus. LAUGARDAGUR 4. nóvember Stöð tvö kl. 20.30 ÓVÆNT AÐST0Ð (Stone Fox) Bandarísk bíómynd Leikstjóri: Harry Hart Aöalhlutuerk: Joey Cramer, Buddy Ebsen, Belinda Montgomery og Gordon Tootooses Myndin gerist í kringum aldamótin og segir frá munaðarlausum ungum dreng sem býr á búgarði með afa sínum. Besti vinur hans er hundur- inn á bænum. I vitlausu veðri einn daginn fær afi gamli hjartaáfall og veikindin sem í kjölfarið fylgja valda því að hann lendir í fjárhagsvand- ræðum. En afabarnið tekur upp á því að þjálfa hundinn til þess að taka þátt í hundasleðakeppni þar sem væn fjárupphæð er í boði. Mynd yfir meðallagi. Ríkissjónvarpið kl. 21.40 LEYNIGARÐURINN (The Secret Garden) Bresk bíómynd Leikstjóri: Alan Grint Aöalhlutuerk: Gennie James, Barret Oliuer, Jadrien Steel og Derek Jacobi Lítil og frek stúlka fiyst á herragarð á Englandi. Hún er ekki aðeins frek heldur líka svo uppivöðslusöm að heimafólkinu þykir nóg um. En hlut- irnir breytast til betri vegar þegar stelpan uppgötvar leynigarð fullan af ævintýrum. Stöö tvö kl. 22.55 TRYLLTIR TÁNINGAR** (O.C. and Stiggs) Bandarísk unglingamynd Leikstjóri: Lewis Allin Aöalhlutuerk: Daniel H. Jenkins, Neill Barry, Jane Curtin og Paul Do- oley Tveir félagar eru staðráðnir í að njóta sumarleyfisins til hins ýtrasta. Meira er ekki að segja um þessa mynd nema þá að stjörnugjöfin gef- ur ekki ástæðu til bjartsýni. Ríkissjónvarpiö kl. 23.20 PERRAK Þýsk sakamálamynd Leikstjóri: Alfred Vohrer Aöalhlutuerk: Horst Tappert, Erika Pluhar og Judy Winter Perrak lögregluforingi reynir að leita uppi morðingja ungrar stúlku. Punktur og basta. Stöð tvö kl. 00.40 HUGREKKI**1/2 (Uncommon Valor) Bandarísk bíómynd Leikstjóri: Ted Kotcheff Aöalhlutuerk: Gene Hackman, Robert Stack, Fred Ward og Patrick Swayze Hér er á ferðinni enn ein „týndur í bardaga’-myndin. Að þessu sinni leikur Hackman gamlan stríðsjaxl sem fer ásamt gengi sínu til Laos til að leita uppi son sinn, sem er talinn vera þar týndur í einhverju lauf- þykkninu. Leikurinn ku vera með ágætum í myndinni en efnið hinsvegar orðið ansi þreytt. Bönnuð börnum. EINFARINN (Nasty Hero) Bandarísk bíómynd Leikstjóri: Nick Barwood Aöalhlutuerk: Scott Feraco Hann er einfari, svalur og karl- mannlegur töffari, að minnsta kosti á yfirborðinu. Hann var ranglega dæmdur fyrir flutning á stolnum bíl og er nú kominn til Miami að leita hefnda. Bönnuð börnum. 5. nóvember Stöö tvö kl. 23.30 HERRÉTTUR*** (The Court Martial of Billy Mitchell) Leikstjóri: Otto Preminger Aöalhlutuerk: Gary Cooper, Rod Steiger og Elizabeth Montgomery Sannsöguleg mynd um Billy Mitc- hell sem var ofursti í bandaríska flughernum. Eftir fyrri heimsstyrj- öldina reyndi hann að sannfæra yf- irmenn sína um áhrifamátt flughers- ins en mætti litlum skilningi. Hann tók til sinna ráða en lenti þá í mikl- um deilum við stjórn flughersins og var dreginn fyrir herrétt. Frekar hægur gangur í þessari mynd, en hún er vel leikin. dagbókin hennar Ég hef aldrei á ævi minni verið jafn ógeðslega þreytt og svefnlaus, enda er ég búin að vera á veiðum á Einimelnum í fimm sólarhringa samfellt. Það er nefnilega músa- gangur hjá ömmu! Ég skil nú ekkert í þessum æsingi í henni, vegna þess að mýsnar eru búnar að búa á Éinimelnum í langan tíma án þess að trufla hana nokkuð. Hún hafði sko ekki hugmynd um að þær væru þarna . . . fyrr en heimil- ishjáipin uppgötvaði helling af músaskít í einni gluggakistunni. Þá kom amma beint af fjöllum og hafði ekki tekið neitt eftir neinu. Henni hafði að vísu fundist þreytuflekkirn- ir fyrir augunum orðnir soldið stærri upp á síðkastið, en það hafði aldrei hvarflað að henni að þetta gætu verið mýs að skjótast á milli felustaða. Þegar lítil mús var í tvígang búin að hoppa yfir ryksuguna hjá heimil- ishjálpinni gat amma hins vegar ekki lengur haldið því fram að músaskíturinn hefði bara einhvern veginn óvart dottið af himnum ofan. Og þá heyrðist líka heldur betur í henni! Þegar við komum á vettvang stóð amma uppi á eldhúsborði og öskraði af öllum lífs og sálar kröft- um. Það hafði meira að segja safnast saman heill hellingur af fólki fyrir utan og konan í næsta húsi var búin að hringja á sjúkrabíl, því allir héldu að amma væri læst inni, lífshættu- lega slösuð og ósjálfbjarga. Pabbi afþakkaði sjúkrabílinn, þó okkur mömmu fyndist að ömmu veitti ekkert af að leggjast inn á ein- hverja góða stofnun í nokkra daga til að róa sig. í staðinn gáfum við henni slatta af sérrti, en það hafði ekki baun í bala að segja. Um leið og hún var búin að kyngja einum sopa öskraði hún þangað tií við skvettum þeim næsta upp í hana. Þetta endaði með því að við urðum að draga hana inn í svefnherbergi svo við hin fengjum vinnufrið á veiðunum. Pabbi setti hráar kartöflur út um öll gólf og familían leitaði hátt og lágt, en það fannst ekki svo mikið sem ein músartítla, þannig að við fórum bara heim. Það tók því þó varla, vegna þess amma var fljót að sofa úr sér sérríið og þá urðum við að fara aftur á Einimelinn. Núna er amma búin að vera með alla starfsmenn Meindýraeyðis Reykjavíkurborgar á sínum snærum (Hún talar um þá eins og nána æsku- vini!), fá lánaðar fimmtán gildrur frá þeim og fylla þær af osti, rúsínum, súkkulaði og sultu — en engin mús hefur veiðst. Ég verð líka að sofa hjá henni, eða réttara sagt að vaka með henni allar nætur. Hún vekur mig sko á hálftíma fresti og segist hafa heyrt í músunum og þá verð ég vessgú að fara á stjá. Samt veit ég vel að amma myndi ekki heyra í heilum herskara af músum, þó þær hlypu yfir sængina hjá henni. Hún heyrir ekki einu sinni í dyrabjöll- unni nema með höppum og glöpp- um, en hún gengi frekar með sjón- varpsloftnet á hausnum en heyrnar- tæki í eyrunum . .. Góði Guð, láttu mýsnar fara að finnast svo ég fái bráðum svefn- og lærdómsfrið!

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.