Pressan - 02.11.1989, Síða 12
12
Fimmtudagur 2. nóv. 1989
GLÆPIR OG
FÍKNIEFNI
Sterkasta vopnið gegn offnotkun
ávanabindandi lyffja og fikniefna er
raunhæf og öffgalaus ffræðsla. Hér á
landi heffur rikt verulegt sinnuleysi i
þessum effnum, enda þótt reynsla ann-
arra þjóða haffi ótvirætt sannað gildi
slikrar ffræðslu.
Öfluglöggæslaogdugmikildóms- markað viðnám gegn aðgerðum
yfirvöld geta aldrei veitt nema tak- brotamanna, forvarnir verða því
gagns. Aukin afbrotatíðni síðustu ár,
sem tengist fíkniefnaneyslu, sannar
ótvírætt hvert stefnir, ennfremur
hafa meðferðarstofnanir þurft í
auknum mæli að hafa afskipti af
fíkniefnasjúklingum. Þessi þróun er
augljós á hinum Norðurlöndunum
eftir að afgerandi neysla svonefndra
sterkra efna (heróíns og kókaíns)
náði að festa rætur.
Eins og kunnugt er standa sálræn-
ar þarfir manna alltaf í sambandi
við samskipti við aðra, því eru
best tryggðar á félagslegum grund- vímugjafar eða svonefnd sálræn
velli. fíkniefni notuð á félagslegum
Auðvelt er að fá með sáralitlum grundvelli. Öll ofskynjunarlyf valda
kostnaði góðar fræðslumyndir frá þeirri breytingu á vitundarástandi
ýmsum V-Evrópuríkjum og Banda- manna, að þau magna upp og
ríkjunum, .einnig ætti að vera hægt breyta ýmsum eðlishvötum og
að fá hérlenda lækna, lyfjafræð- geta orsakað hömlulaust og
inga, sálfræðinga og lögreglumenn stundum óviðráðanlegt ástand. Það
til að flytja innlent fræðsluefni um er því augljóst, að meðferð slíkra
meðferð, skaðsemi og afleiðingar efna er neytendum stórhættuleg og
hinna ýmsu tegunda fíkniefna. Fjár- getur leitt til hvers konar ógæfu,
munir sem væri varið til slíkrar bæðiíformigeðrænnasjúkdómaog
fræðslu yrðu þjóðinni til mikils alvarlegustu afbrota. Sá óraunveru-
Teppa-bylting!
5 ár án bletta
- eða nýtt teppi
ÓKEYPIS!
Loksins- eru þau komin teppin sem þola næstum allt: Marquesa Lana!
Núna geturðu teppaklætt fleti sem hingað til var óhugsandi að hafa á teppi vegna
bletta og sfits.
Skoðaðu ábýrgðarskilmálana. Marquesa Lana er ný bylting í teppagarni. Marquesa
Lana er að auki þrautprófað af hlutlausum rannsóknarstofnunum með tilliti til slit-
þols, fjaðurmagns og eiginleika til að halda áferð sinni - þetta er aukatrygging
fyrir þig.
Takið eftir, að Gemlnl - lykkjuteppin eru frábær að gæðum og innihalda hvorki
meira nó minna en 880 gr. af garni á '
Blettalaus teppi lengi lifi: Marquesa
Aðeins i Teppabúðlnni!
Stigahús
Skrifstofur
Stofnanir
Heimili
5 ára blettaábyrgð!
Myndist, innan 5 ára frá kaupdegi blettur,
sem ekki tekst að þrífa úr skv. leiðbeiningum,
eða sérfræðingar okkar ná ekki úr þá skiptum
við orðalaust um teppi hjá þér.
gegn innan 5 ára trá kaup-
degi, skiptum við því slitna út með nýju teppi.
5 ára litaheldni!
Láti teppi lit innan 5 ára frá kaupdegi, skiptum
við því upplitaða út með nýju teppi.
Ath:
Abyrgðin fellur úr gildi við misnotkun,
skemmdarverk eða náttúruhamfarir.
Gemini - teppi ofin úr
Marquesa Lana
Einkar sterk gæðateppi með þéttum lykkjum
og góðu undirlagi. 15 ferskir litir. Framleitt
úr 100% polypropylene. Hentar á allá heimil-
isfleti, stigahús og skrifstofur.
Full ábyrgð.
Breidd: 400 cm. Efnismagn: 880 gr. m2
Verð pr. m’ kr. 2.100,-
TEPPABUÐIN
GÓLFEFNAMARKAÐURINN, SUÐURLANDSBRAUT 26. Sími 91-681950.
legi heimur sem birtist slíkum neyt:
endum verður þeim oft algjörlega
ofviða og þá verða það oftast enn
hættulegri vanabindandi efni eins
og t.d. heróín og kókaín sem taka
við. Rannsóknir á sviði svonefndra
sállyfja eða -efna eru mjög skammt á
veg komnar og ekki síst þess vegna
ber brýna nauðsyn til að sporna við
notkun þeirra. Allur áróður um
notkun skynvilluefna til að opna
veginn milli meðvitundar og dulvit-
undar er háskalegur, enda runninn
undan rótum hagsmunaaðila á
þeim vettvangi.
í þessari grein hafa ekki verið
teknar til umfjöllunar einstakar teg-
undir vímugjafa, né áhrif þeirra, en
þó tel ég rétt að greina í stuttu máli
frá því efni, sem hefur verið mjög
vaxandi meðai neytenda í Banda-
ríkjunum og hugsanlega komið til
íslands. Hér er um að ræða „Crack",
sem er unnið úr kókaínklóríði og
matarsóda, og er talið að úr einu kg
af kókaíni fáist með þessari fram-
leiðsluaðferð um 10 þúsund molar
af krakki. Efnið kom fyrst fram í
Suður-Kalíforníu árið 1981 og er
fyrst skráð í New-York 1985. Efnið er
flögukennt og er gjarnan blandað
saman við maríjúana eða venjulegt
reyktóbak og er því reykt. Með því
að krakksins er neytt með þessum
hætti gerist áverkunin frá lungum til
heilans á örfáum sekúndum. Neyt-
andinn kemst í mikið uppnám,
verður árásargjarn, sér ofskynjanir
og fráhvarfseinkenni geta orðið
mjög slæm. Verð á krakki er marg-
falt lægra en á hefðbundnu kókaíni,
t.d. er skammtur af því seldur á um
80 dollara, en krakk aðeins á 5—10
dollara. Krakk hefur því verið kall-
að efni fátæka mannsins og hefur
náð til nýs neytendahóps og því
stóraukið fjölda neytenda í Banda-
ríkjunum og Mið- og Suður-Amer-
íku. Afieiðingarnar eru vægast sagt
hrikalegar og jafnvel taldar mun
verri en heróínholskeflan í Banda-
ríkjunum á sjöunda áratugnum.
Uppgangur glæpaklíka, sem stjórna
krakksölunni samfara hvers konar
ofbeldi, virðist hafa komið lögregl-
unni í opna skjöldu sem og almenn-
ingi. í stórborgum Bandaríkjanna
tala menn um hreint styrjaldar-
ástand, enda voru 1987 387 manns
myrtir í Los Angeles og ástæðan fyr-
ir ofbeldinu talin krakkið. Þessi tala
samsvarar því að 7 morð af völdum
fíkniefna væru skráð árlega hér á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um eiga sér stað mikil átök milli
framleiðenda kókaíns í Suður-
Ameríkuríkjum og þarlendra stjórn-
valda með stuðningi Bandaríkja-
manna. Björtustu vonir þeirra, sem
best þekkja til þessara mála í Banda-
ríkjunum, eru þær, að takast megi
að hamla gegn frekari vexti þessa
ófagnaðar, en þeir benda réttilega á
að Evrópulönd verði næstivettvang-
ur dreifiaðila krakks, en þar hefur
orðið vart verulegrar aukningar á
neyslu þessa efnis. Búast má þv'r við,
að þetta stórhættulega efni berist
hingað á næstu misserum, og þá
verða allir ábyrgir aðilar að bregð-
ast hart við. Kókaínneysla er orðin
almenn hjá óregluhópum og því bú-
ið að ryðja veginn og auðvelda
krakkinu inngöngu.
Ég hef á undanförnum árum
margsinnis í fjölmiðlum og á nefnd-
arfundum greint frá þeim aðgerð-
um, sem þurfa að hafa forgang af
hendi hins opinbera til að sporna
við frekari útbreiðslu fíkniefna. Sér-
staða okkar sökum fámennis og
legu landsins getur gefið okkur
góða von, en því þó aðeins að á
þessum málum verði haldið af skyn-
semi og festu. Það eru alltof margir
tilkvaddir stöðu sinnar vegna að
fjalla um þennan vandasama mála-
flokk, endalausar umræður og
fundahöld skila okkur lítt áleiðis ef
framkvæmdaviljann og skipulagið
vantar.